08.04.1965
Neðri deild: 65. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 780 í B-deild Alþingistíðinda. (647)
120. mál, réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
Frsm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Í júnísamkomulaginu svokallaða varð samkomulag milli Alþýðusambands Íslands, Vinnuveitendasambands Íslands og ríkisstj. um lengingu orlofs hjá verkafólki. Frv. ríkisstj., sem hér liggur fyrir til umr., er þess efnis, að starfsmenn ríkisins fái sömu lengingu orlofs og það fólk, sem náði þessum kjarabótum með samningum á s.l. ári, á þann veg, að starfsmenn fái í stað 18 daga 21 virkan dag nú í orlof án þess að missa af föstum launum, og þeir, sem hafa verið í þjónustu ríkisins í 10 ár og lengur skuli fá 24 daga.
Allshn. hv. d. hefur haft þetta frv. til athugunar og mælir einróma með því, að frv. verði samþ.