11.02.1965
Neðri deild: 41. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í B-deild Alþingistíðinda. (663)
104. mál, landgræðsla
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Það kemur fram í grg. með þessu frv., að það var svo fyrir lagt síðustu nefnd af mörgum, sem um þetta mál hafa fjallað, að hún skyldi ekki fjalla um sérstaka tekjuöflun. Reynsla undanfarinna ára er sú, að hugmyndin um sérstaka tekjuöflun hefur valdið erfiðleikum og tafið málið, og ég geri því fastlega ráð fyrir, að hugmyndir ráðh. hafi verið þær að reyna að ná þó samkomulagi um kjarna málsins og þær skipulagsbreytingar, sem hér eru, og það hefur raunar gerzt með þessu frv.
Ég vil benda á það, að hugmyndirnar um sérstaka tekjustofna hafa ekki aðeins verið umdeildar, heldur hefur reynslan sýnt, að slíkar hugmyndir gefast misjafnlega. Hv. 3. þm. Norðurl, e. nefndi þá leið, sem farið var inn á með skógræktina, að láta hana hafa tekjur af tóbakssölu, og talaði um, að hann og aðrir hafi viljað fara í þá slóð. Nú hefur það gerzt á síðustu 1—2 árum, að af sérstökum ástæðum hefur tóbakssalan minnkað stórkostlega, og ég hef það fyrir satt, að skógræktin hafi orðið fyrir mjög miklum skyndilegum tekjumissi, sem sjálfsagt veldur truflun á störfum hennar, því að byggt hefur verið á jöfnum vexti þessara tekna. Alveg eins gæti farið með áfengið. Þá er það svo, eins og síðasti ræðumaður benti á, að sérstakir skattar á áfengi eru meira eða minna að taka úr einum vasanum og láta í hinn, því að tekjur af því renna til ríkisins hvort eð er.
Rétt er að benda á, að sú stóra skipulagsbreyting, sem gerð er með þessu frv., að taka upp embætti og starf gróðurverndarfulltrúa, hefur í sjálfu sér í för með sér vissa aukningu á þeirri starfsemi. Þessi nýja viðleitni til þess að verja þann gróður, sem er, í staðinn fyrir að hugsa eingöngu um að vinna aftur sanda og fokið land, mun þurfa einhvern dálítinn tíma til þess að komast á fætur og gera sér grein fyrir, hvaða verkefni þar liggja fyrir, sem helzt er hægt að leggja til glímu við. Ég vil því benda sérstaklega á 42. gr. frv., sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Áður en 5 ár eru liðin frá gildistöku þessara laga, skal landgræðslustjóri hafa látið gera yfirlit um landskemmdir og samið áætlun um, hvernig helzt megi bæta þær, svo og í hverri röð skuli unnið að landbótunum.“
Mér virðist því, að hér gerist jafnframt hinum hækkandi framlögum á fjárl., að sett er upp nýtt svið, ný herdeild í baráttunni gegn uppblæstri og gróðureyðingu. Þeir, sem þarna munu starfa, fyrst og fremst gróðurverndarfulltrúi, taka þá væntanlega bráðlega til verka og gera sér grein fyrir því, hvað hægt er að gera á þessu sviði á næstu árum. Samkv. lögunum á á 5 ára tímabili að gera yfirlit yfir allt landið og áætlun um, hvernig bæta megi þær landskemmdir, sem orðið hafa eða virðast vera yfirvofandi, og það mun þá koma til kasta Alþingis, þegar slík áætlun liggur fyrir, hvernig það vill við henni bregðast og hvernig það vill tryggja fé til hennar. En ég hygg, að sú reynsla, sem er af vaxandi fjárveitingum á síðustu árum, og í öðru lagi sú eining, sem hefur verið um nauðsyn þessa máls; gefi ekki ástæðu til annars en að vera bjartsýnn um það, að þegar þessar áætlanir koma frá bæði þeim starfsmönnum, sem fyrir eru, og þeim nýju, sem þarna koma til skjalanna, þá muni þingið ekki láta standa á peningum, til þess að okkur megi vegna vel í baráttunni fyrir því að varðveita landið okkar og hindra það, að verðmætasti partur þess fjúki út á Atlantshaf.