19.12.1964
Efri deild: 35. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (688)

102. mál, jarðræktarlög

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Ég hafði kvatt mér hljóðs, þegar þetta mál var hér til umr. síðast, og ætla ég ekki að vera langorður um það, en get þó ekki látið hjá líða að minnast á nokkur atriði, sem fram hafa komið við umr. málsins.

Hæstv. landbrh, minntist á það, hvers vegna Búnaðarfélag Íslands og búnaðarþing hefðu ekki gert till. um endurskoðun jarðræktarl. þegar á árinu 1960, eftir að búið var að afgreiða efnahagsmálalöggjöfina, sem hafði ýmsar hækkanir í för með sér. Því er til að svara, að í þann mund sem búnaðarþing kom saman stóðu umr. um efnahagsmálalöggjöfina hér á hv. Alþingi, og svo er annað, að þegar efnahagsmálalöggjöfin var á döfinni og túlkar þeirrar löggjafar voru að leiða þjóðinni fyrir sjónir, hverjar afleiðingar sú löggjöf hefði í för með sér, var það hreint ekki mikið, sem dýrtíðin átti að hækka, eða ca. 3%. Miklu fé var eytt til þess að koma þjóðinni í skilning um þessa miklu og merku löggjöf, og það var gefið út rit, sem kallað var „Viðreisn“ og var sent inn á hvert einasta heimili á kostnað ríkissjóðs, til þess að tilkynna þjóðinni, hvað í vændum væri. Og í þessu merka riti stendur m.a. um áhrif gengisbreytingarinnar á lífskjörin, með leyfi forseta:

„Sú hækkun vísitölu framfærslukostnaðar um 13%, sem að framan er getið, sýnir þau áhrif, sem gengisbreytingin mundi hafa á lífskjör almennings, svo framarlega sem engar aðrar ráðstafanir væru gerðar samhliða.“ Slík hækkun framfærslukostnaðar hlyti að sjálfsögðu að verða öllum almenningi afar þungbær, ef dýrtíðin hækkaði um 13% frá því, sem hún hafði áður verið. En svo stendur enn fremur: „En niðurstaða þeirra athugana er sú, að hinar auknu fjölskyldubætur nægi til þess að jafna að fullu þá kjaraskerðingu, sem gengisbreytingin að öðrum kosti hefði í för með sér fyrir fjölskyldu með 60 þús. kr. tekjur, þar sem börnin eru 3 eða fleiri. Gildir þetta fyrir fyrsta verðlagssvæði, þ.e.a.s. kaupstaði eða kauptún með yfir 3000 íbúa. Á öðru verðlagssvæði, en á því svæði eru sveitir og smærri kaupstaðir og kauptún, verður hagur barnafjölskyldna þeim mun betur tryggður.“ Og ef lengra er farið, kemur maður að kjarna málsins og heildarniðurstöðunni, sem átti að verða. „Sú aukning fjölskyldubóta og þær niðurgreiðslur á innfluttum neyzluvörum, sem að framan hefur verið lýst, munu draga mjög úr þeirri hækkun á vísitölu framfærslukostnaðar, sem breyting gengisskráningarinnar að öðrum kosti hefði í för með sér. Er gert ráð fyrir, að hækkunin verði tæplega 3% í stað um það bil 13% ella. En lækkun um 8.5% á rót sína að rekja til aukningar fjölskyldubóta, 1.6% til niðurgreiðslna á innfluttum vörum og 0.2% vegna þess, að ríkisstj. hefur í hyggju að fella niður námsbókagjald.“ Þetta var nú það, sem látið var í veðri vaka á þeim merku tímamótum, sem íslenzka þjóðin stóð á fyrir tæpum 4 árum. Þá átti dýrtíðin samkv. efnahagsmálalöggjöfinni að hækka aðeins um 3%.

Þennan sama vetur komu jarðræktarl. hér fyrir hv. Alþingi, og ég minnist þess, að ég gerði undir þeim umr. fyrirspurn til hæstv. landbrh., hver háttur yrði á hafður í þessum efnum varðandi vísitöluna, eða að öðrum kosti, hvort jarðræktarl. yrðu fljótlega endurskoðuð með tilliti til vaxandi dýrtíðar, sem þá var nokkurn veginn fyrirsjáanleg. Svar hæstv. ráðh. stendur að sjálfsögðu í þingtíðindum — með leyfi forseta — og hljóðar svo:

„Svo er fsp. um það, hvort ríkisstj. hafi á prjónunum nokkrar hugleiðingar um að breyta jarðræktarl. eða lagfæra, til þess að þau geti innt af hendi það hlutverk, sem þau hafa gert áður, vegna dýrtíðarinnar. Ég vil upplýsa það, að vitanlega hefur ríkisstj. hugleitt þetta, en hún er ekki tilbúin með till, um það, og ég hygg, að það sé meira en hægt er að segja og státa af oft áður.“

Og enn fremur segir hæstv. ráðh.:

„Stjórnin hefur í hyggju að láta endurskoða ýmiss konar löggjöf landbúnaðarins einmitt með það fyrir augum, að landbúnaðurinn verði ekki mjög hart úti vegna þeirra verðhækkana, sem verða óneitanlega á mörgum vörum, svo sem rekstrarvörum og öðru slíku, enda þótt núv. ríkisstj. sé ekki tilbúin með till. enn.“

Maður skyldi nú ætla, að úr því að svo fór, að dýrtíðin óx um meira en 3%, eins og var í veðri látið vaka, og enn fremur, að það var látið í veðri vaka þegar 1960, að endurskoða ætti jarðræktarl., að þessi löggjöf hefði komið fyrr fyrir hv. Alþingi endurskoðuð og í frv., sem hæstv. ríkisstj. leggur fram, fyrr en að 4 árum liðnum. Og þetta finnst mér vítavert, hvað hæstv. ríkisstj. hefur rumskað seint og hvað hún hefur tafið málið og haft mikla fjármuni af bændastéttinni vegna þess. Og þar er ekki um að sakast við bændurna sjálfa eða þeirra félagsskap, því að þeir hafa jafnan gert sitt til að ýta á eftir málinu, eins og þegar kom fram við 1. umr. þessa máls og ég gat hér um.

Þá sagði hæstv. ráðh., að bændasamtökin, Búnaðarfélag Íslands og mér skilst Stéttarsamband bænda hafi ekki óskað eftir, að jarðræktarframlagið hækkaði meira en um 30%. Ég hef aflað mér upplýsinga um þetta, og það er síður en svo sannleikur, sem í þessum ummælum hæstv. ráðh. felst, en það stendur í grg. frv. hér, með leyfi forseta, — það er í 10. gr., á að vera 11. gr., niðurröðun efnis breytt frá því, sem verið hefur, til betra samræmis:

„Um leið og landbrh. fól Búnaðarfélagi Íslands og Landnámi ríkisins að endurskoða frv. það til jarðræktarlaga, sem samið var af nefnd, er landbrh. skipaði, og byggt var að mestu á frv. mþn. búnaðarþings, var þess getið, að frv. mætti ekki gera ráð fyrir meiri hækkun jarðræktarframlags en sem næmi 30%.“

Þarna stendur það skýrum stöfum, að fyrirskipunin kom frá landbrh. eða landbrn. og skyldi ríkisframlag til jarðarbóta miðað við sama magn jarðarbóta og árið 1963. Þarna tel ég, að það sé fyllilega sannað, hver á uppástunguna að þessari hækkun, eins og ég gat um í minni frumræðu, og tel ég, að það þurfi ekki að vera að deila um þessa hluti, þar sem það stendur skýrum stöfum í frv. hæstv. landbrh., og held ég, að hann hefði gott af því að lesa það og kynna sér sannindin, sem hann hefur lagt þar á borð fyrir Alþingi. Og ég met meira þau sannindi en hin, sem hann kemur með að öðru leyti.

Þetta hafa þeir enn fremur staðfest báðir búnaðarmálastjórarnir, Halldór Pálsson og Ólafur E. Stefánsson. Þeir hafa báðir sagt mér, að þetta hafi þegar verið ákveðið, þegar endurskoðun laganna hófst. Enda fór ekki endurskoðunin fram fyrr en á s.l. hausti og í vetur, enda þótt bréf rn. væri dags. snemma í júlí, vegna þess að starfsmenn Búnaðarfélags Íslands, sem undirbjuggu þessa löggjöf, voru fjarverandi mestallt sumarið og gátu ekki sinnt þessu verki, fyrr en þeir komu í bæinn eftir ferðir sínar um landið í sumar.

Ég tel, að þetta sé nægjanlegt til að sanna þetta mál. Það stendur líka í þessu frv., að meðaltals jarðræktarkostnaður sé 76%, og þar af eiga bændurnir samkv. þessu frv. að taka á sig 46% á móti 30%, sem ríkið tekur á sig samkv. þessu frv., ef að lögum verður.

Þá var ráðh. að undrast yfir því, eins og raunar alltaf, að við höfum oft gert kröfur, framsóknarmenn, þegar við erum utan ríkisstjórnar, en ekki í ríkisstjórn. Ég vil benda hæstv. ráðh. á, að það er oft og mörgum sinnum búið að endurskoða jarðræktarl. og auka framlag þess opinbera til jarðræktar í stjórnartíð framsóknarmanna, og einmitt í tíð vinstri stjórnarinnar kom hæstv. ráðh., sem nú er og var þá hv. þm. Rang., og bauð miklu betur, sagði, að þetta væri óviðunandi ástand miðað við þá dýrtíð, sem þá ríkti í landinu. En eftir að hann kom að völdum, hefur minna orðið úr honum að rétta hlut bændastéttarinnar en meðan hann var í stjórnarandstöðu. Hann t.d. gat þess, að hann ætlaði að afnema alla Framsóknarskattana á dráttarvélum og tækjum til landbúnaðarins. Hver varð staðreyndin? Hann hefur hækkað öll tæki landbúnaðarins um mikið á annað hundrað prósent. Það er hans þáttur í því máli, og annað hefur eftir því farið.

Svo minntist hæstv. ráðh. á það, að við framsóknarmenn hefðum aldrei flutt neitt um það, að styrkja ætti vatnslagnir á sveitaheimili, aldrei flutt nein frv. um það, en færum að fitja upp á þessu máli nú, af því að það hefði verið komið inn í frv. Hæstv. ráðh. er sennilega ekki minnugur maður, en ég vil minna hann á það, að við höfum oft og mörgum sinnum flutt frv. um sams konar efni á Alþingi og það síðast fyrir ári, og hans samþm., hv. 4. þm. Sunnl., Björn Fr. Björnsson, flutti frv. ásamt Helga Bergs og fleiri hv. þm., þar sem átti að breyta l. um aðstoð til vatnsveitna á þann veg, að styrkur yrði greiddur samkv. þeim l. til vatnsveitna í sveitum, svo að málið er alls ekki nýtt fyrir okkur framsóknarmenn, en það má vera, að það sé nýtt og hljómi sem nýmæli í eyrum hæstv. landbrh., en ég vona, að svo verði ekki eftirleiðis. Ég vil líka minna á það jarðræktarlagafrv., sem við höfum lagt fram hér, framsóknarmenn, og gengur í flestum greinum lengra til móts við bændur en þetta frv.

Það hefur að undanförnu ríkt mikið góðæri hér á landi, enda þótt það hafi sýnt sig, að stjórnarfarið hafi átt erfitt. Sjávaraflinn hefur vaxið um því sem næst 60% síðan 1958 og verðgildi hans því sem næst tvöfaldazt, þannig að það er síður en svo, að það hafi nokkurt hallæri ríkt í landinu, og því er ástæða til að skera ekki við nögl sér hlut bændanna, heldur á góðærið, sem ríkt hefur til lands og sjávar, að verða til þess að horfa björtum augum til framtíðarinnar og miðla mönnum réttilega.

Ég tel, að ég hafi nú gert grein fyrir málinu, eins og það hefur verið lagt fyrir Alþingi, og gangi þess frá upphafi, og ég sé ekki ástæðu á þessu stigi málsins til að ræða meira um það, nema sérstakt tilefni gefist til. En ég gat ekki látið hjá líða að láta sannleikann koma í ljós, eins og hann hefur verið í þessu máli frá upphafi.