19.12.1964
Efri deild: 35. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 832 í B-deild Alþingistíðinda. (690)
102. mál, jarðræktarlög
Bjartmar Guðmundsson:
Herra forseti. Enda þótt ég eigi sæti í þeirri n., sem væntanlega fær þetta mál til umsagnar, tel ég rétt að segja örfá orð við þessa umr. vegna þeirra umr., sem farið hafa fram hér í d. áður um þetta mál.
Í sambandi við þá aths., sem komið hefur fram, og aðfinnslur um það, að þetta merka mál, frv. til nýrra jarðræktarl., komi heldur seint fram, vil ég minna á, að það er allalgengt, að mál þurfi nokkurn aðdraganda og undirbúning, og það var naumast þess að vænta, að þetta mál væri nægilega undirbúið fyrr en þá á næstliðnu þingi. En til þess að koma þar nokkuð til móts við það, að breytingar á þessum lögum koma ekki fyrr en nú, hafa verið tvívegis gerðar verulegar breytingar á styrkjum til jarðræktar og annarra liða, sem heyra undir jarðræktarlög. Á síðasta þingi var gerð sú mikla breyting, að styrkur vegna jarðræktar var hækkaður mjög á býli, sem hafa 25 ha. og minna tún. Þetta var mjög veigamikið atriði, því að meiri hluti bænda komst þá um leið undir ákvæðið um mikið hækkaðan styrk, og mér er persónulega kunnugt, að þessi lagabreyting olli því, að mjög mikið var ræktað og hefur verið ræktað eða undirbúin ræktun að síðan. Í öðru lagi var búið að breyta þessu ákvæði áður, þ.e.a.s. færa þetta takmark upp í 15 ha. úr 10. Einnig var sú breyting gerð á síðasta þingi, að stórkostlega var hækkað framlag til súgþurrkunar, sem er mjög veigamikið atriði í sambandi við heyhirðingu. Einnig var þá tekið upp nýtt ákvæði um styrk fyrir plógræsagerð.
Ég tel rétt að benda á þetta í sambandi við það, að kvartað er um, að breyting á jarðræktarl. komi heldur seint. En úr því að ég taldi mér skylt að benda á þetta og ég er hér kominn, vil ég einnig gera ofurlítið að umræðuefni það atriði, sem nú hefur verið deilt um, það er það, hvort taka eigi inn á jarðræktarlög nýjan styrk til vatnsveitna, bæði til heimilisþarfa og í peningshús. Ég get sagt það, að ég tel mjög eðlilegt, að þessi nauðsynlega framkvæmd sé styrkt, og meira að segja er hliðstæða fyrir því, að vatnsveitur hafa notið styrks, en ég álít, að á þessu stigi sé ekki eðlilegt að taka það inn í jarðræktarlög. Þetta atriði hefur aldrei verið í jarðræktarl., og má auðvitað deila um það, hvort það eigi þar heima eða einhvers staðar annars staðar, og ég ætla ekki að leggja neinn úrskurð á það. En í samtrandi við það, sem nú er til umr., er það að segja, að það hefur náðst sérstakt samkomulag um það milli ríkisstj. og forsvarsmanna bænda, að jarðræktarstyrkur samkv. jarðræktarl. hækki um 30%, þ.e.a.s. um 30% miðað við þær framkvæmdir, sem styrks nutu 1963. Ef tekinn væri inn einn liður til viðbótar á jarðræktarl., þ.e.a.s. styrkur til vatnsveitna, mundi það að sjálfsögðu dragast frá styrk til annarra jarðarbóta og hann yrði þá þeim mun lægri, sem næmi því, sem til vatnsveitnanna færi. En þó er hitt enn veigameira, að fyrir liggur engin athugun á því, hvað þetta kynni að nema miklu. Það yrði alveg rennt blint í sjóinn með það, og þá yrði ekki hægt að reikna dæmið rétt út, heldur áætla það meira og minna. Þess vegna tel ég, að ekki sé unnt á þessu stigi að taka þetta atriði inn nú.
Svo vil ég bæta því við, að ég fagna því, að þetta frv. er fram komið, og ég veit, að bændur fögnuðu því mjög í haust, þegar það var tilkynnt, að afgreidd mundu verða ný jarðræktarlög á þessu þingi. Ég læt alveg ósagt um það, hvort það hafi verið svo sérstaklega fyrir forgöngu bændasamtakanna, að þessi tilkynning var gefin út í haust. Mér er vel kunnugt um, að þetta mál hefur verið í undirbúningi lengi, og ég get vottað það, að hæstv. landbrh. hefur haft mjög góða forgöngu í þessu máli, ekki síður en í því að fá inn lagabreytingu þá, sem ég gat um áðan, um aukna jarðræktarstyrkinn. Og ég vænti þess, að í þeirri nefnd, sem við hv. 1. þm. Vesturl. báðir sitjum í, landbn., geti orðið milli okkar góð samvinna um afgreiðslu á þessu máli. Hann ber það gott skyn á þessa hluti, og veit ég, að ekki stendur á honum að styðja þetta frv., þó að honum kannske finnist, að það nái ekki nægilega langt í öllum greinum.
Um það má alltaf deila, hvernig sú heildarhækkun á jarðræktarstyrk eigi að deilast út á milli hinna einstöku liða, sem á jarðræktarl. standa. Ég fyrir mitt leyti hefði kosið, að þar gætu orðið einhverjar tilfærslur milli, en tel þó, að það sé ekki gott að gera mikið að því, þar sem það virðist vera nokkurn veginn samkomulag hjá þeim forsvarsmönnum bænda, sem að samningu frv. hafa staðið, að jarðræktarstyrkur skuli vera þetta t.d. á tún og þá ekkí sami á allar túnasléttur eða þetta eða hitt á t.d. heyhlöður eða votheysgryfjur eða safnþrær o.s.frv. Í aðalatriðum tel ég, að eðlilegt sé, að þeir, sem um þetta mál hafa fjallað af hálfu bænda, hafi þarna mest um að segja, þó að ýmsir liðir þarna geti hins vegar verið mjög til álíta, hvort ekki ætti að færa þá eitthvað til.