12.11.1964
Efri deild: 14. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 852 í B-deild Alþingistíðinda. (717)
70. mál, búfjárrækt
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Frv. til l. um búfjárrækt hefur verið samið af n., sem Búnaðarfélag Íslands skipaði í samráði við landbrn. Í n. áttu sæti Sigurður Snorrason bóndi, Gísli Magnússon bóndi og Einar Gestsson bóndi á Hæli. Sigurður Snorrason var formaður n. Frv. þetta er heildarendurskoðun á núgildandi búfjárræktarlögum, og er gildandi búfjárræktarlögum alveg umsteypt með þessu frv., og er öruggt, að það er til mikilla bóta og framfara frá því, sem gildandi lög eru.
Frv. fer fram á allmikla hækkun á styrkjum til búfjárræktar frá því, sem gilt hefur í lögum frá 1957. Frv. er flutt að mestu leyti óbreytt frá því, sem n. skilaði því af sér. Hins vegar gerði búnaðarþing nokkrar breyt. á frv. til hækkunar á því framlagi, sem n. lagði til. Ráðuneytið tók þá afstöðu að halda sig í aðalatriðum við frv. n., og verður að telja, að það hljóti að vera forsvaranlegt, þar sem það er samið af n., sem Búnaðarfélagið hefur skipað, og með tilliti til þess, hverjir skipuðu n. Tillögur búnaðarþings til breyt. á frv. n. voru ekki efnislegar að öðru leyti en því, að búnaðarþing lagði til, að styrkirnir yrðu hækkaðir nokkru meira en n. lagði til. En að litlu leyti er þó frv. ekki alveg eins og n, skilaði því af sér, og tel ég rétt að greina frá því, að hverju leyti frv. hefur verið breytt frá því, sem n. skilaði því af sér.
Í 4. gr. og 54. gr. frv., eins og n. skilaði því af sér, var gert ráð fyrir, að héraðsráðunautar og sérfræðingar í búfjársæðingu tækju laun samkvæmt tilgreindum launaflokkum í núgildandi launakerfi ríkisstarfsmanna. Launakerfi þetta er tímabundið og breytingum háð og því óhagkvæmt að binda laun þessara starfsmanna í lögum, eins og téð ákvæði gera ráð fyrir. Í þess stað er ákveðið, að landbrh. ákveði launin að fengnum till. Búnaðarfélags Íslands, og ætti þá að vera fyrir því séð, að laun þessara manna verði í samræmi við það, sem gildir um aðra opinbera starfsmenn í launakerfi ríkisins.
Þá er breytt út af reglu gildandi búfjárræktarlaga og launin greiðist 65% úr ríkissjóði og 35%, af hlutaðeigandi búnaðarsambandi, en áður var hér um helmingaskipti að ræða. Þá er ekki gert ráð fyrir, að sú regla verði upp tekin, að ríkissjóður taki þátt í skrifstofukostnaði og ferðakostnaði héraðsráðunautanna beinlínis samkv. þessu frv., en það skal bent á, að búnaðarsamböndunum, er ætlaður á fjárl. 1964 og einnig á frv. til fjárl. 1965 850 þús. kr. styrkur, og virðist eðlilegast, að við ákvörðun þessa styrks sé tekið tillit til útgjalda búnaðarsambandanna, þ. á m. þessa kostnaðar, og er þá eðlilegra að hækka þessa upphæð með tilliti til þess, að búnaðarsambóndunum verði veittur styrkur fyrir skrifstofuhaldi og ferðakostnaði ráðunautanna, heldur en að ákveða það beinlínis í l., að nokkur hluti þessa kostnaðar sé greiddur. Það er heppilegra. Og ég vil segja það, að ég vil heldur beita mér fyrir því, að þessi upphæð á fjárl. í heild verði hækkuð, og það mun vera praktískara og eðlilegra til þess að halda ferðakostnaðinum niðri heldur en annars væri. Og ef búnaðarsamböndunum er þannig úthlutað af Búnaðarfélagi Íslands í tiltölu við kostnað af heildarfjárhæð, sem er í fjárlögum, þá kemur það auðvitað búnaðarsamböndunum að alveg eins miklu gagni.
48. gr. í frv. n. og búnaðarþings gerir ráð fyrir, að tvö hrossaræktarbú sé rekin á vegum ríkisins. Undanfarin ár hefur verið rekið hrossaræktarbú við bændaskólann á Hólum og hrossaræktarbú á Kirkjubæ á Rangárvöllum, sem nýtur styrks úr ríkissjóði. Þá hef ég talið eðlilegra, að frvgr. sé í heimildarformi, að það sé heimilt að hafa tvö hrossaræktarbú, heldur en það sé beinlínis ákveðið í lögum.
Sektarákvæði 76. gr. frv. n. er breytt í samræmi við till. búnaðarþings.
Að öðru leyti er frv. eins og n. gekk frá því. Ég tel ekki nauðsynlegt að fara að rekja efni þessa lagabálks, sem hefur verið útbýtt meðal hv. þm., og einnig eru hér allýtarlegar athugasemdir prentaðar með frv., sem skýra frvgr. og þær breyt., sem frv. felur í sér frá gildandi lögum. Það er ekki nauðsynlegt að fara að rekja þetta lið fyrir lið, þar sem það liggur alveg fyrir, en frv. er miklu ýtarlegra en gildandi lög. Það fer yfirleitt í hverri grein fram á nokkra hækkun frá gildandi lögum, og er að álíti n., eins og segir í grg., sem fylgir frá n., mjög til bóta og til þess að ýta undir bata í búfjárræktinni, eins og það er orðað.
Framlög ríkisins samkv. gildandi lögum um búfjárrækt nema, miðað við áætlaða greiðslu 1964, 3 012 453 kr. Búnaðarfélag Íslands hefur reiknað út, að útgjaldaaukning ríkisins samkv. frv. n. og með framangreindum breyt ráðuneytisins muni nema 1 millj. 470 þús. kr. eða 47%.
Ég læt svo nægja við þessa umr., að svo stöddu a. m. k., að vísa til grg. og athugasemda, sem frv. fylgja, en legg til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.