02.04.1965
Neðri deild: 62. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (731)

70. mál, búfjárrækt

Frsm. (Gunnar Gíslason):

Herra forseti. Þetta frv. til nýrra búfjárræktarlaga er stjórnarfrv. og var lagt fram árla á þessu þingi fyrir hv. Ed. Það hefur um skeið verið til athugunar hjá landbn. þessarar hv. d. og var afgreitt frá n. nú fyrir 2—3 dögum. Mér finnst skylt að taka það fram, vegna þess að þess er getið í nál. okkar, að hv. 7. landsk. þm. hafi ekki verið viðstaddur, þegar málið var afgreitt úr n., að fjarvera hans stafaði af því, að hann fékk ekki fundarboð. Sá misgáningur var ekki starfsmönnum þingsins að kenna, heldur mér.

Landbn. flytur á þskj. 386 5 brtt. við frv. Ég vil leyfa mér að gera örstutta grein fyrir þessum brtt. nefndarinnar.

Það er í fyrsta lagi brtt. um það, að 4. gr. frv., sem fjallar um laun búfjárræktarráðunautanna, orðist eins og þar segir, en sams konar breyting hafði verið gerð í hv. Ed. á jarðræktarl., og okkur þótti því hlýða, að þessar tvær greinar í báðum lögunum væru með sama eða svo til sama orðalagi. Það, sem raunar felst í þessari till., er það, að ráðunautarnir eiga að semja við búnaðarsamböndin um þann hluta, sem búnaðarsamböndunum ber að greiða, þ.e.a.s. 35% af launum þeirra, en þar sem ríkissjóður á að greiða meiri hl. eða 65%, er talið eðlilegt, að landbrh. samþykki, hver launin verða, og greiði síðan 65% af því, sem hann fellst á, að laun þessara manna verði.

Við 6. gr. frv. leggur n. til, að gerð verði sú breyting, að á eftir orðinu „kynbótanefnd“ komi: ef héraðsráðunaut þykir ástæða til. — Þetta ákvæði um kosningu kynbótanefnda var í hinum eldri búfjárræktarl. og er sett hér inn enn, en þannig er ástatt, að í mörgum sveitarfélögum mun þessum ákvæðum laganna ekki hlýtt, og það kemur til af því, að nautgripasamböndin og sæðingarstöðvarnar hafa tekið við því starfi, sem þessum kynbótanefndum er ætlað að vinna. Okkur þykir því ástæðulaust að vera að skipa hreppsnefndum að kjósa þessar nefndir í þeim sveitum, þar sem verkefni þeirra er ekki lengur til.

Hið sama er að segja um 3. brtt. Við leggjum til, að á eftir orðinu „hrossakynbótanefnd“ komi: ef héraðaráðunaut þykir ástæða til. —Við vitum, að í fjölmörgum sveitum okkar lands er svo litið um hesta og hrossabúskap, að þessu ákvæði laganna er alls ekki hlýtt. Í þessum sveitarfélögum eru ekki þessar nefndir kjörnar, enda mun það jafnvel vera svo, þar sem hrossarækt er lítil, að menn kaupa þá hesta, sem þeir telja sig þurfa að nota, frá þeim héruðum, þar sem hrossarækt er rekin.

Eins og hv. þd. er í minni, voru samþ. hér í fyrra lög um breytingu á búfjárræktarl. að því er varðaði kafla þeirra um hrossarækt. Þetta var frv., sem ég flutti ásamt hv. 5. þm. Norðurl. v. Nú er lagt til í þessu frv., sem hér liggur fyrir, að þessi lög, sem þingið samdi í fyrra, séu felld úr gildi. Landbn. d. getur ekki fallizt á þetta og vill taka upp í frv. 1. gr. þeirra laga eða bæta inn í 32. gr. ákvæðum, sem stóðu í þessum l., sem þingið samþykkti í fyrra. Þetta varðar töku stóðhesta, sem ólöglega ganga lausir. Eftir búfjárræktarl. og þessu frv., sem hér liggur fyrir, virðist það vera heimilt hverjum manni að taka sig upp og fara inn í lönd manna og afréttir og taka þar stóðhesta, sem lausir kunna að ganga. Þetta finnst landbn. vera fullmikið frjálsræði, enda held ég, að það yfirleitt þekkist ekki, að hver og einn borgari í landinu taki að sér slík löggæzlustörf. Aftur á móti getur hver og einn borgari kært, ef hann sér, að lög landsins eru brotin. Þess vegna leggjum við til, að inn í greinina verði tekin þessi ákvæði, sem voru í l., sem þingið samþykkti í fyrra, að umráðamanni landsins, hvort það er heimaland eða afréttur, þ.e.a.s. bóndanum sjálfum eða ábúandanum eða fjallskilastjóranum, verði gert skylt að framkvæma þessi ákvæði laganna.

5. brtt. er um hrossaræktarkaflann einnig. Við leggjum til, að þar sem svo hagar til, að telja má eðlilegt, að stóðhestum sé leyft að ganga lausum, þ.e.a.s. þar sem beitilönd eru það einangruð, þá leggjum við til, að það sé ekki eingöngu á valdi Búnaðarfélagsins að veita slíkar undanþágur, heldur geti einnig sýslunefndirnar gert það, ef þær samþykkja það með 4/5 hlutum atkv., eftir að þessi mál hafi fengið þá afgreiðslu heima í sveitahreppunum eins og lögin gera ráð fyrir.

Ég hef þá í stuttu máli gert grein fyrir þessum 5 brtt., sem eru á þskj. 386. Um lögin sjálf skal ég ekki fara mörgum orðum. Þetta er mikill lagabálkur í 9 köflum og milli 80 og 90 greinar, minnir mig. En ég verð að segja það eins og er, og tala þá ekki fyrir munn n., heldur mín sjálfs, að jafnvel þessi mikli lagabálkur finnst mér vera heldur leiðinlegur á margan hátt. Eflaust hefði mátt koma öllu þessu máli fyrir í enn þá færri greinum og styttra máli, og allur sá upptíningur á styrkjum til búfjárræktarinnar, sem er tíndur hér til í l., allt ofan í 15 aura, finnst mér vera heldur leiðinlegur sparðatíningur. Ég held, að það væri miklu nær að láta þessa upphæð renna beint til Búnaðarfélagsins og láta Búnaðarfélagið ásamt hæstv. landbrh. ráðstafa þessu fé eftir því, sem þætti bezt henta. En forsvarsmenn bændastéttarinnar, Búnaðarfélagið og stjórn þess, leggja mikla áherzlu á það, að þetta mál fái framgang, og ég vil ekki bregða fæti fyrir það.

Það má segja, að þetta frv. feli ekki í sér miklar breytingar frá eldri búfjárræktarl. Það eina, sem í því raunar felst, er það, að þessir styrkir, sem ég nefndi, eru allverulega hækkaðir, þannig að til þessara mála verður veitt úr ríkissjóði eitthvað á 5. millj. kr., og svo það, að á þessa styrki á að koma verðlagsuppbót eftír reglu, sem fundin verður. En eins og ég sagði, finnst mér allur þessi upptíningur á þessum styrkjum vera bændastéttinni ekki til neins sóma.