02.03.1965
Efri deild: 48. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 873 í B-deild Alþingistíðinda. (745)
101. mál, Lífeyrissjóður hjúkrunarkvenna
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Eins og fram kemur í grg. frv. þess, sem hér liggur fyrir, er efni þess það að gera hliðstæðar breytingar á l. um lífeyrissjóð hjúkrunarkvenna og þegar hafa verið samþ. hér á hv. Alþ. að því er snertir lífeyrissjóð opinberra starfsmanna og lífeyrissjóð barnakennara. Jafnhliða þessu er sú breyting gerð á, að nafni sjóðsins er breytt, vegna þess að nú er það farið að tíðkast í nokkrum mæli, að karlar stundi hjúkrunarstörf. Eru þeir meðlimir í Hjúkrunarfélagi Íslands, og þykir því auðvitað eðlilegt, að þeir séu teknir með í þetta.
Fjhn. hefur haft þetta frv. til athugunar, og eins og nál. á þskj. 279 ber með sér, er n. sammála um að leggja til, að frv. verði samþykkt með einni orðalagsbreytingu, sem flutt er á þskj. 280. Eins og kemur fram í nál., var að vísu einn hv. nm. fjarstaddur, þegar það var afgreitt, en aðrir nm. mæla með samþykkt þess með áðurgreindri breytingu.