06.04.1965
Efri deild: 63. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (807)

173. mál, tollskrá o.fl.

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir, fjallar að meginefni til um lækkun tolla á ýmsum vélum og tækjum atvinnuveganna. Með setningu tollskrárl. á árinu 1963 var ákveðin veruleg lækkun á tollum á landbúnaðarvélum og sömuleiðis lækkaðir tollar á ýmsum vélum og tækjum til fiskveiða. Hins vegar var að svo stöddu ekki talið fært að lækka tolla á vélum frá því, sem verið hafði, en á þeim var yfirleitt 35% tollur, og er svo ákveðið í tollskránni frá 1963. Þessi mál þurftu nánari athugunar, og með bréfi 16. des. 1963 fól ég tollskrárnefnd að kanna möguleika á lækkun tolla af vélum og tækjum almennt. Í því bréfi voru sérstaklega rakin víss atriði, sem þyrftu sérstakrar athugunar við: Í fyrsta lagi, að hve miklu leyti væri framkvæmanlegt að ákveða tolla af vélum og tækjum til vinnslu útflutningsafurða lægri en á vélum og tækjum til annarra nota. Og í öðru lagi, hve mikið það mundi kosta ríkissjóð, ef lækkaðir væru tollar á vinnuvélum og öðrum tækjum þess iðnaðar, sem framleiðir vörur og veitir þjónustu fyrir innlendan markað. Enn fremur átti n. að athuga, hvaða aðrar breytingar kynni að þurfa að gera á tollskránni, ef tollar á vélum og tækjum yrðu lækkaðir, og jafnframt fjárhagslegar afleiðingar af öllum þessum fyrirhuguðu breytingum. Þá var lögð á það sérstök áherzla, að í þessu sambandi, lækkun vélatolla, þyrfti að athuga áhrif lækkunar þeirra á samkeppnisaðstöðu innlendra vélaframleiðenda eða hins íslenzka iðnaðar.

Tollskrárnefnd hefur fyrir nokkru skilað till. sínum um þetta efni, og frv., sem hér liggur fyrir, er í meginatriðum í samræmi við þær till. Meginatriðin eru þessi:

1) Að lækka tolla á almennum iðnaðarvélum úr 35% í 25%.

2) Að lækka tolla á vélum og tækjum til vinnslu útflutningsafurða almennt úr 35% niður í 10%.

3) Að séu slíkar vélar jafnframt framleiddar hér innanlands, skuli tollur af þeim innfluttu vélum, sem eru hliðstæðar, vera 15%, en ekki 10%.

4) Gert er ráð fyrir að lækka tolla á síldardælum, sem nú eru mjög að ryðja sér til rúms, niður í 4%, og er það í samræmi við toll á kraftblökkum.

Það eru nú samkv. tollskránni einstakar iðnaðarvélar, sem bera 50% toll, og þær eru lækkaðar niður í 35%. Nú er það svo, að ýmsar af þeim vélum og ýmis af þeim tækjum, sem þessi tollalækkun nær til, eru framleiddar hér í landinu, og því hefur verið ákveðið að endurgreiða tolla af efni í slíkar vélar, sem framleiddar eru innanlands, að svo miklu leyti sem tollar af efni í vélarnar eru hærri en tollar af vélunum sjálfum. Nú er heimild í 3. gr. tollskrárinnar, 12. tölulið, til að lækka gjöld af efni í innlendar framleiðsluvörur, þegar efnivaran er með hærra gjaldi en hin fullunna, innflutta vara. Þetta ákvæði er rýmkað með upphafi 2. gr. í þessu frv., þannig að í stað heimildarinnar til að lækka gjöld af efni í þessar innlendu framleiðsluvörur sé heimilt að lækka eða endurgreiða sem sagt að fullu. En varðandi innlendu framleiðsluna er það að segja, að auk slíkrar lækkunar eða endurgreiðslu á efni í vélarnar hefur verið ákveðið að fella niður söluskatt af framleiðslu vélanna til þess að auðvelda hinum innlendu framleiðendum að standast samkeppni við innfluttar vélar. Þetta þykir nauðsynlegt vegna þess, að hér er um svo verulega lækkun tolla á þessum vélum fyrir útflutningsatvinnuvegina að ræða, eða úr 35% niður í 15%, að sjálfsagt þykir og nauðsynlegt að veita hinum innlenda iðnaði þann stuðning, sem felst í því að fella niður söluskattinn af hinum innlendu vélum.

Auk þeirra lækkana, sem ég hef rakið, á vélatollum eru í frv. nokkur ákvæði tæknilegs eðlis og staðfestingar á eldri úrskurðum, sem telja verður, að muni standa til frambúðar, og þykir rétt að taka slíkt inn í tollskrárlögin nú með viðeigandi tollaprósentum. Sum þessara atriða standa í sambandi við milliríkjasamninga, eins og að er vikið í grg. frv.

Sú nýjung mun vera nú að ryðja sér til rúms varðandi mjólkurgeymslu og mjólkurflutninga að nota stóra geyma til þess að geyma í mjólk heima á sveitabæjum og mjólkin síðan tekin úr þessum geymum beint á stóra tankbíla og flutt þannig til mjólkurbúanna. Þá má gera ráð fyrir því, að þessir geymar, sem eru úr ryðfríu stáli, komi á næstunni að verulegu leyti í stað mjólkurbrúsa, og er lagt til, að tollar á slíkum geymum séu lækkaðir úr 50%, eins og er í gildandi tollskrá, niður í 25%.

Í gildandi tollskrá er heimild til þess að fella niður eða lækka gjöld af bifreiðum fyrir öryrkja eða fyrir lamað og fatlað fólk, allt að 150 á ári. Það er sérstök nefnd lækna, sem ákveður það, hverjir njóta þessara hlunninda á hverjum tíma, en þessi læknanefnd hefur eindregið farið fram á það, að þessi tala, 150, verði hækkuð upp í 250 á ári og enn fremur ætlaðar 50 bifreiðar til endurveitinga ú áður veittum undanþágum. Þessar till. læknanefndarinnar eru teknar upp í þetta frv.

Þá er lagt til, að tekin sé upp heimild til þess að endurgreiða gjöld af rúmum, sem flutt eru inn til notkunar í sjúkrahúsum. Rúm þessi bera nú 90% toll, ef þau eru ekki með sérstökum mekanískum útbúnaði fyrir sjúkrahús, en með þessum breytingum er gert ráð fyrir, að endanlegur tollur verði 35%, þegar endurgreiðsluheimildin er notuð.

Loks er nýmæli, sem stendur í sambandi við það frv. um nafnskírteini, sem liggur fyrir, og er það í 3. gr. frv., að ef ákveðið verður í lögum, að hver einstaklingur og hvert fyrirtæki skuli hafa auðkennisnúmer, sé fjmrn. heimilt að mæla svo fyrir, að sérhver innflytjandi skuli tilgreina númer sitt á aðflutningsskýrslu. Þetta nýmæli er sett inn eftir till. hagstofustjóra og stendur í sambandi við það frv., sem ég gat um. En hugmyndin er sú, að komið yrði á fót við hagstofuna sérstakri fyrirtækjaskrá, sem yrði, að því er fyrirtæki snertir, hliðstæð þjóðskránni, að því er varðar skráningu einstaklinga.

Ég legg til, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.