10.04.1965
Efri deild: 66. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (813)

173. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. 1. minni hl. (Helgi Bergs):

Herra forseti. Eins og fram kom í ræðu frsm. meiri hl., náði fjhn, ekki samstöðu um afgreiðslu þessa frv. Hv. 1. þm. Vesturl., sem í fjarveru hv. 1. þm. Norðurl. e. tók sæti í fjhn., og ég höfum gefið út sérstakt nál. á þskj. 446 og brtt. á þskj. 447.

Ég þarf ekki að eyða mörgum orðum að því að gera grein fyrir þessu. Ég skal neita mér um að fara langt út í umr. um almenn atriði, eins og frsm. hv. meiri hl. gaf þó tilefni til.

Ég ræddi þessi atriði nokkuð við 1. umr. málsins, og umfram það, sem þá var sagt og fram kemur í nál. á þskj. 446, hef ég ekkí miklu við að bæta. Það hefur verið skoðun mín lengi, og ég hef tekið hvert tilefni, sem gefizt hefur í sambandi við tollskrármál, til þess að láta þá skoðun í ljós, að nauðsyn beri til að lækka mjög verulega, helzt afnema tolla á vélum og tækjum til framleiðslunnar. Ég sé ekki ástæðu til þess að rökstyðja þetta svo mjög nú, það hef ég og reyndar margir fleiri gert áður, og ég skal ekki endurtaka það. Það liggur í augum uppi, að sá aukni stofnkostnaður, sem af þessu leiðir, rýrir samkeppnisaðstöðu þeirra framleiðenda, sem slíka tolla eiga að greiða, og ekki nóg með það, heldur eru slíkir tollar hemill á viðleitni framleiðenda til að bæta vélakost og tækjakost, og það er kannske ekki síður alvarlegt atriði.

Það kom fram hjá hv. frsm, meiri hl. hér áðan, að við, sem að þessu nál. stöndum, teldum, að jafnvel eftir að þetta frv., sem hér liggur fyrir, hefði verið samþ., þá ætti sér stað mismunun milli einstakra greina framleiðslunnar í tollamálum. Ég vil, að það komi skýrt fram, að ég álít meira að segja, að sú mismunun sé aukin með þessu frv., og þykist ég hafa sýnt fram á það í nál. á þskj. 446. Mér virðist, að eftir að þetta frv. hefur verið samþ. óbreytt, væri um að ræða 5 tollaflokka á vélum og tækjum til framleiðslunnar í staðinn fyrir þó ekki nema 4 eða jafnvel ekki nema 3 áður á þessum tækjum.

Það eru þá í fyrsta lagi bátar, sem eru tollfrjálsir, og vélar til þeirra, sem eru það í raun líka. Þó að þær séu í 10% tolli samkv. skránni sjálfri, þá eru tvær heimildagreinar til þess að endurgreiða tolla af þeim og sýnilegt, að löggjafinn ætlast til, að svo sé. Í öðru lagi er það 4% flokkur. Í honum eru veiðarfæri og ýmsar vélar og tæki til fiskveiðanna, t.d. eins og síldardælur, sem nú bætast við samkv. þessu frv., sem hér liggur fyrir, og hliðstætt. Í þriðja lagi eru svo í 10% tolli landbúnaðarvélar og vélar til fiskiðnaðarins samkv. þessu frv. Í fjórða lagi er svo 15% tollur. Þar eru vélar til fiskiðnaðarins, sem einnig eru framleiddar hér innanlands. Og síðast í fimmta lagi eru vélar og tæki til iðnaðar, sem fyrst og fremst vinnur fyrir innlendan markað, og iðnaðar úr landbúnaðarvöru og slíku í 25% tolli.

Raunar er svo 6. flokkurinn, sem ég hef nú gengið fram hjá og geri ekki sérstakan ágreining um, og það eru vélar til ýmiss konar þjónustuiðnaðar, sem eru enn í 35% tolli og voru víst raunar í 50% áður. En þær ætla ég ekki að gera hér sérstaklega að umtalsefni. En mér virðist, að það sé óeðlilegt að skipta framleiðslunni niður í flokka, sem búi við misjöfn skilyrði að þessu leyti til.

Mér virðist, að við þessa flokkun gæti tveggja sjónarmiða. Þau tæki, sem notuð eru til frumframleiðslu — til hráefnisöflunar, eru sett í lægri tollflokka en hin, sem eru til iðnaðar eða fullvinnslu hráefna, því að þegar tækin til fiskveiða eru í ýmist 0 eða 4% tolli, eru tækin til fiskiðnaðar í ýmist 10% eða 15% tolli, og þegar tæki til hráefnaöflunar í landbúnaði eru í 10% tolli, eru tæki til iðnaðar á því sviði í 25% tolli. Hér er því um að ræða ósamræmi og misjöfnun, sem ég get ekki fundið nein eðlileg rök fyrir.

Í öðru lagi er hér gert ráð fyrir mismunun á þeim grundvelli, hvort um er að ræða framleiðslu útflutningsvöru (en þar er nú raunar bara átt við fiskiðnað, eftir því sem ég fæ bezt séð, í þessu frv.) eða vinnslu fyrir innlendan markað. Ég geri ráð fyrir því, að flestir geri sér það ljóst, að mörkin þarna á milli geta verið æðióglögg og getur orðið æðimiklum erfiðleikum undirorpið að gera þau mörg glögg í framkvæmd. En látum það liggja á milli hluta. Þó að svo væri, að hægt væri að gera þessar línur sæmilega glöggar, finn ég ekki rök því til stuðnings, að eðlilegt sé að draga þessa markalinu.

Hv. frsm. meiri hl. sagði hér áðan, að það væri í sjálfu sér eðlilegt að draga þessa línu, sökum þess að þeir tollar, sem legðust á þær vélar, sem notaðar eru til framleiðslu vara til sölu á innanlandsmarkaði, kæmu fram í vöruverðinu og væru því í raun og veru neyzlutollar eða neyzluskattar. Þetta út af fyrir sig er ekki vefengt. En hitt er ljóst, að til þess að þetta geti komið fram í vöruverðinu, verður iðnaðurinn að hafa þá aðstöðu að geta hækkað vöruverðið sem þessu svarar, og það liggur jafnljóst fyrir eftir sem áður, að þetta rýrir samkeppnisaðstöðu iðnaðarins við hliðstæðar vörur, sem ekki eru framleiddar undir þessum skilyrðum. Og svo er hitt sjónarmiðið, sem ég nefndi áðan og ég vil undirstrika enn á ný, að tollar af þessu tagi verka til þess að draga úr áhuga manna og viðleitni til þess að vélvæðast og búast betri tækjum.

Þetta sjónarmið, að hafa lægri tolla á vélum, sem ætlaðar eru til útflutningsframleiðslunnar, heldur en hinum, sem ætlaðar eru til framleiðslu fyrir innanlandsmarkað, er, eins og ég sagði áðan, þess eðlis, að mér finnst það hljóta að vera nokkuð erfitt í framkvæmd. Þeir erfiðleikar koma strax fram í þessu frv., sem hér liggur fyrir, vegna þess að höfundar þess hafa ekki treyst sér til þess að gera þarna annan greinarmun á í raun heldur en skilja á milli fiskiðnaðar og annars iðnaðar. En vissulega er það ýmiss konar annar iðnaður en bara fiskiðnaður, sem hefur möguleika til þess að vera og er að nokkru leyti kannske þegar orðinn útflutningsiðnaður. Út í þetta skal ég ekki fara frekar og ekki eyða tíma hv. d. í frekari rökstuðning fyrir okkar máli, því að eins og ég sagði áðan, hef ég við ýmis tækifæri komið þeim rökum á framfæri og skal því ekki taka langan tíma frá hv. d. til þess að gera grein fyrir máli 1. minni hl:

Við höfum á þskj. 447 lagt fram brtt., sem allar hníga í þá átt að jafna aðstöðu iðnaðargreinanna og atvinnugreinanna þannig, að við viljum marka þá stefnu, að allar vélar og tæki til framleiðsluatvinnuveganna, hverrar greinar þeirra sem vera skal, skuli búa við sömu tollkjör og sem allra lægst. Næst mínu skapi hefði verið að leggja til, að þessir tollar væru afnumdir, en við höfum á þessu stigi ekki viljað ganga lengra en að leggja til, að þessar vélar og tæki verði öll í 4% tolli.

1. till. á þskj. 447 er um mjólkurtankana, sem ég gerði að umræðuefni hér við 1. umr. þessa máls. Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir hans undirtektir í því máli, og hv. fjhn. hefur lagt fram till. um það, að tollur á þessum geymum skuli lækka úr 25% ofan í 10%, og er það þakkarvert, svo langt sem það nær: Hins vegar höfum við í 1. minni hl. lagt til, að þetta lækki ofan í 4%, í samræmi við þá stefnu, sem er í till. okkar að öðru leyti.

Þegar tollskrármál hafa verið til umr. hér á hv. Alþ., höfum við framsóknarmenn jafnan lagt áherzlu á ýmis fleiri atriði en þau, sem hér eru aðallega til umr. Okkur hefur þó þótt rétt vegna þess, hve hér er um mikið grundvallaratriði að ræða, — hvernig eigi að tolla vélar til framleiðslunnar, — að takmarka okkar tillögugerð og okkar málflutning við það atriði eitt. Áður höfum við flutt till. um t.d. endurgreiðslu á tollum af íbúðarhúsnæði, og erum við að sjálfsögðu enn þá þeirrar skoðunar, að það beri að gera og raunar e. t. v. taka til endurskoðunar tollun á byggingarefni yfirleitt, þótt við höfum ekki að þessu sinni séð ástæðu til þess að flytja till. af því tagi af þeim sökum, sem ég var að gera grein fyrir. Ég sé hins vegar, að hv. 2. minni hl. fjhn., 4. þm. Norðurl. e., hefur flutt brtt. í þessa átt, og mun ég að sjálfsögðu styðja hana, þó að við af þeim ástæðum, sem ég gerði grein fyrir áðan, flytjum ekki slíka till. í 1. minni hl.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara mörgum orðum um þetta til viðbótar því, sem þegar er sagt. Brtt. okkar á þskj. 447 eru þess eðlis, að þær eiga að marka ákveðna stefnu í þessum málum og við höfum þess vegna ekki séð ástæðu til þess að setja þær þannig fram, að það fari fram endilega atkvgr. um hvern einstakan tölulið, heldur væri að sjálfsögðu eðlilegt til hægri verka, að hæstv. forseti bæri upp stafliðina, eins og þeir liggja fyrir í heild. Skal ég þá ekki fara fleiri orðum um þetta, en geta þess þó að lokum, að það kemur fram annaðhvort í grg. eða í framsöguræðu hæstv. fjmrh., að tekjutap ríkissjóðs við þær breytingar, sem frv. gerir ráð fyrir, eins og það liggur fyrir, sé um 25 millj. kr. Samkv. sundurliðun, sem ég hef fengið frá fjmrh., hef ég reiknað út, hvaða viðbótartekjumissir væri fólginn í því fyrir ríkissjóð, að samþykktar yrðu brtt. okkar á þskj. 447, og telst mér svo til, að það muni vera 27 1/2 millj. Það er að vísu nokkurt fé. En þegar við með skömmu millibili þurfum að taka afstöðu til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð, eru jafnan hundruð millj., sem þar er um að ræða, svo að mér virðist ekki, að þær 27 1/2 millj., sem hér er um að ræða, geti ráðið neitt úrslitum um það, hvaða stefnu menn vilja marka í sambandi við þetta mikilvæga mál, sem hér er við að fást.