10.04.1965
Efri deild: 66. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 917 í B-deild Alþingistíðinda. (815)
173. mál, tollskrá o.fl.
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Sú ríkisstj., sem hér situr, telur sig vera stjórn frjálsra viðskipta. Því er það, að ég vildi minnast örlítið á eina af þeim brtt., sem felast í frv. hæstv. ríkisstj.
Hv. 10. þm. Reykv., sem hafði framsögu hér fyrir meiri hl. n., talaði mjög um nauðsyn þess, að það þyrfti frelsi í öllum viðskiptum, og hér er ein heimildagr. í tollskrárl., 3. gr., 27. liður, sem fjallar um að fella niður gjöld á bifreiðum til fólks, sem er bæklað og lamað eða hefur við mikla vanheilsu að búa. Og að sjálfsögðu er ekki nema gott eitt um þetta a., segja, að þessi heimild sé í Iögum, og enn fremur það, að þessi heimild skyldi rýmkuð verulega frá því, sem verið hefur, því að takmörkun bifreiðanna til þessa fólks hefur verið allt of mikil. En frelsið hefur hins vegar verið ákaflega litið hjá þessu fólki að velja á milli hinna mörgu bifreiðategunda, sem hafa verið fluttar til landsins. Mér hefur verið tjáð, að það sé ekki frjálst val nema á 25 bifreiðategundum af þeim 150, sem fluttar voru inn árið sem leið, og þetta er allt of lítið. Yfirleitt hefur fólkið orðið að taka, hvort sem það hefur viljað eða ekki viljað, þessar austur-evrópsku bifreiðar. Það má vel vera, að þær séu undir mörgum kringumstæðum ágætar. En maður, sem fatlast og er vanur öðrum bifreiðum, það mundi koma sér bezt fyrir hann að geta fengið þá bifreiðartegund, sem hann hefur vanizt, frá því að hann fór að aka bíl. Þess vegna er það, að ég vildi spyrja frsm. eða hæstv. fjmrh. um það, hvort þessi heimild verði ekki rýmkuð um frjálsa valið á milli einstakra bifreiðategunda, vegna þess að mér er vel kunnugt um, að það er mikið áhugamál og mikið nauðsynjamál fyrir það fólk, sem á hér hlut að máli. Og sé ekkert á döfinni um það, að þetta yrði gert, vildi ég og mælast til þess, að hæstv. ríkisstj. tæki þetta mál til athugunar, enda finnst mér, að það væri í fullu samræmi við þá stjórnarstefnu, sem hún hefur haldið fram, að það ætti að vera frelsi í viðskiptum.