15.03.1965
Efri deild: 54. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (839)
17. mál, verkamannabústaðir
Frsm. (Þorvaldur G. Kristjánsson):
Herra forseti. Ég er ekki rétti aðilinn til þess að svara fsp. hv. síðasta ræðumanns, hv. 5. þm. Reykn., en mér fannst rétt að segja nokkur orð í sambandi við þessa fsp.
Ég sagði áðan, að það væri gert ráð fyrir því, að ríkisstj. mundi veita ráðstöfunarfé til byggingarsjóðs verkamanna á þessu ári til viðbótar við hinar föstu, árlegu tekjur. Þetta er í raun og veru það eina, sem liggur fyrir og ég get skýrt frá hér. En það, eins og ég tók fram í minni fyrri ræðu, er auðvitað þýðingarmikið, að ríkisstj. skuli vera viðbúin að veita sjóðnum meira fjármagn en hann hefur yfir að ráða með sínum föstu, árlegu tekjum. Stjórn byggingarsjóðs verkamanna mælti með þessu frv. í trausti þess, að þetta yrði gert, og við höfum ekki ástæðu til að ætla annað en ríkisstj. muni gera þetta.
En ég held, að hjá hv. síðasta ræðumanni gæti nokkurs misskilnings, ef hann telur, að það þurfi svo mikið viðbótarfjármagn, að það þurfi að lána kannske út á allar íbúðir, sem sótt hefur verið um núna á þessu árl. Í framkvæmd er þetta ekki þannig. Það er ekki lánað til þessara íbúða örar en þær eru byggðar upp, og það þarf hvergi nærri eins mikið fjármagn á þessu ári og þarf til þess að fullnægja lánaumsóknum, sem nú liggja fyrir. Þær hljóta samkv. reynslu okkar að dreifast á nokkur ár. Að vísu er alltaf hreyfing á umsóknafjöldanum, það koma nýjar umsóknir. En það er sama. Það þarf ekki eins mikið fjármagn og mér virtist koma fram hjá hv. síðasta ræðumanni. Og þegar hið almenna veðlánakerfi, sem gert er ráð fyrir að þurfi að fullnægja lánum til 750 íbúða á ári, þarf þó ekki nema 220—230 millj. til þess að geta annazt þetta hlutverk sitt, þá sjáum við, að það er miklu minna, sem þarf til byggingarsjóðs verkamanna, sem ég ætla að þurfi ekki að lána út á miklu meira en sem svarar 50 íbúðum á ári, miðað við löggjöfina eins og hún er og þann tilgang að veita aðeins þessi lán til þeirra, sem verst eru settir. Og þegar l. voru endurskoðuð árið 1962, var gert ráð fyrir því, að sá fjöldi, sem gæti notið lána hjá byggingarsjóði verkamanna, væri 10% af því fólki, sem býr í kaupstöðum og kauptúnum.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta. Ég vildi aðeins láta þess getið, sem ég hef nú sagt að gefnu tilefni frá síðasta hv. ræðumanni. Ég fagna því, að allir, sem hér hafa talað, eru sammála um mikilvægi þeirrar löggjafar, sem hér er um fjallað, mikilvægi laganna um verkamannabústaði. Það fer ekki á milli mála, að sá þáttur, sem þessari löggjöf er ætlað að sinna í húsnæðismálunum, má ekki liggja eftir. Það á að vera aðalsmerki okkar í þessum málum að hjálpa þeim bezt, sem þurfa þess mest, og það er tilgangur laganna um verkamannabústaði.