16.03.1965
Neðri deild: 55. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í B-deild Alþingistíðinda. (875)
154. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Í fyrra var ákveðið að greiða nokkrar uppbætur til sjávarútvegsins vegna þess, hvernig hag hans var komið þrátt fyrir metafla mörg ár í röð og óvenjulega hagstætt verðlag, og sagði það sína sögu um, hvernig efnahagsmálastefna og atvinnumálastefna hæstv. ríkisstj. hafði leikið þennan aðalatvinnuveg landsmanna.
Okkur var svo sagt í haust og það var hiklaust ráðgert í greinargerð fjárlagafrv. og öðrum skýrslum, að þessi mál hefðu færzt þannig til betri vegar, að þessar bætur féllu niður.
En nú kemur í ljós með þessu frv., sem hér liggur fyrir, hversu haldgóðar þær upplýsingar hafa verið, sem þá voru gefnar um þessi mál. Nú kemur það sem sé í ljós, að uppbætur verða að halda áfram til sjávarútvegsins. Þær eru að vísu áætlaðar nokkru minni fyrir þetta ár en þær voru í fyrra, en það er augljóst á þessu frv., sem hér liggur fyrir, að það verður að halda áfram að greiða uppbætur til sjávarútvegsins, og þeir, sem eru inni í þeim málum, draga það ekki í efa, að full nauðsyn sé á slíku, eins og málum útvegsins er komið. Því mun ég mæla eindregið með því, að þetta frv, verði samþ. Ég hygg, að sjávarútveginum muni sízt veita af því, sem þar er gert ráð fyrir honum til stuðnings, eins og komið er.
En ég get ekki látið hjá líða að benda á það í þessu sambandi, að í fyrra var aflað tekna til þessa og álögur samþykktar til að standa undir uppbótum til sjávarútvegsins. En nú er í sambandi við þetta frv. ráðgert að afla enn tekna með því að skera niður framkvæmdir, enda þótt það sé áður búið að afla tekna fyrir ríkissjóð til þess að greiða miklu hærri uppbætur en þær, sem ráðgerðar eru með þessu frv. Þannig ætlar hæstv. ríkisstj. að ná tvisvar því sama með þessum aðferðum, leggja fyrst á álögur í fyrra til að mæta uppbótum til sjávarútvegsins, láta svo í það skína í haust, að þær uppbætur falli algerlega niður, koma svo með uppbætur á ný nú í marzmánuði, sem ákveðnar voru raunar í janúarmánuði, og afla þá aftur á ný tekna með niðurskurði verklegra framkvæmda til þess að greiða það, sem búið var að leggja skatta á þjóðina til að standa undir.
Ég mun ekki fara langt út í að ræða í þessu sambandi hag og afkomu sjávarútvegsins, en eins og ég sagði áðan, aðeins lýsa yfir því, að ég vil fullkomlega styðja þær uppbætur, sem hér eru ráðgerðar til útvegsins, og mun sízt af því veita. En það er athyglisvert að gefa því gaum, að svona skuli vera komið við hin allra beztu skilyrði, og sýnir það alveg svart á hvítu, að stjórnarstefnan í framkvæmdinni er í meginatriðum röng. Annars væri ekki komið svona fyrir aðalútflutningsvegi landsmanna við allra hagstæðustu skilyrði.
Við höfum á undanförnum árum bent á nokkur atriði í þessu sambandi, og sérstaklega höfum við Framsfl. bent ýtarlega á, hvernig lánapólitík ríkisstj. hefur leikið sjávarútveginn og aðrar hliðstæðar atvinnugreinar og hvernig vaxtapólitíkin hefur líka leikið framleiðsluatvinnuvegina. Og ég vil nota þetta tækifæri til þess, að hér komi inn á Alþ. vitnisburður, sem enn hefur borizt um þessi efni frá manni, sem menn áreiðanlega almennt bera traust til, að hafi fullt vit á þessum málum og einurð til að segja það, sem honum sýnist rétt. Þessi maður er Haraldur Böðvarsson útvegsmaður á Akranesi, sem ritar um þessi efni ritgerð eða skýrslu, sem hann kallar, í Morgunblaðið í dag, aðalmálgagn ríkisstj. Þar segir þessi mikilsvirti og mikilhæfi útgerðarmaður m.a., með leyfi hæstv. forseta, og er hann þá að ræða,
hversu ólánlega sé komið fyrir útgerðinni, og rekur þar ýmsar ástæður:
„Einn liður í rekstri skuldugra fyrirtækja er mjög erfiður viðfangs, en það eru vextir af lánum.“ — Það kemur nú ekki vel heim við það, sem hæstv. viðskmrh. fræðir okkur um af og til, því að hann segir, að vaxtaútgjöld á útgerðinni séu svo lítil, að þau hafi enga þýðingu. — „En vextirnir eru enn þá allt of háir,“ heldur höfundur áfram, og vil ég geta þess, að Haraldur Böðvarsson & Co. greiðir árlega í þessa hít 3—4 millj. kr. Síðan segir Haraldur Böðvarsson, og það er aðalatriðið: „Hverjar eru svo leiðir til úrbóta í útgerð og fiskiðnaði?“ því að hann slær því föstu, sem margir fleiri þekkja, að ástandið sé hið alvarlegasta. „Réttilega hefur verið m.a. bent á aukna vinnuhagræðingu, meiri tækni með nýtízkuvélum, en hinar fullkomnu vélar kosta mikið fé. Og ofan á verð vélanna, t.d. gaffallyftara og fleiri véla, bætist 35% tollur í ríkissjóð.“ Og síðan segir hann: „Og hvar fæst lán til kaupa á þessum nauðsynlegu vélum? Mér vitanlega hvergi, þótt sannanlegt sé, að slíkar vélar spara mikið vinnuafl og borga sig á tiltölulega stuttum tíma, þar sem næg verkefni eru fyrir hendi.“
Hér er sem sé alveg komið inn á kjarna málsins og þann kjarna, sem við í stjórnarandstöðunni í Framsfl. höfum bent á ár eftir ár, m.a. úr þessum ræðustól, en það er þetta, að hæstv. ríkisstj. fer algerlega öfugt að. Hún stritast við að draga úr útlánunum, fyrst og fremst útlánunum til framleiðslunnar og þeirra, sem þurfa á lánum að halda til ýmissa allra nauðsynlegustu framkvæmda. Það dregur úr rekstrarfé útgerðarinnar, og það gerir útgerðinni og öðrum framleiðsluatvinnuvegum landsins erfiðar undankomuleiðir undan þeirri dýrtíðarholskeflu, sem rís í landinu vegna stefnu ríkisstj. að öðru leyti.
En undankomuleiðirnar ættu vitanlega fyrst og fremst að vera þær að koma rekstri í betra horf með meiri vinnuhagræðingu, meiri vélvæðingu og öðru slíku. En þessum leiðum er lokað með lánapólitík ríkisstj. Síðan gortar ríkisstj. af því, að upp byggist einhver lítilfjörlegur gjaldeyrisvarasjóður og menn verði að leggja það á sig að draga saman lánveitingarnar, loka inni spariféð til þess að hlynna að honum, það verði að vera aðalatriðið, spariféð megi ekki vera í umferð. En það er svo einmitt þessi lánapólitík ríkisstj., sem verður til þess, að það situr á hakanum, sem sízt skyldi, t.d. hjá framleiðslunni, sem vantar rekstrarfé. En það eru framkvæmdir í landinu samt sem áður, þ. á m. verðbólguframkvæmdir, þannig að ekki ræðst við neitt. En það eru ekki þær framkvæmdir, sem fyrst og fremst þurfa að eiga sér stað, sem sitja fyrir með þessu lagi, heldur hinar, sem menn gera til að bjarga fjármunum sínum undan dýrtíðarholskeflunni með því að leggja þá í margs konar byggingar og framkvæmdir, þ. á m. ýmsar, sem ekki eru meðal þess nauðsynlegasta, sem þjóðarbúið þarf á að halda.
Ég segi það hér einu sinni enn, sem ég hef sagt hér á undanförnum árum, að þetta verður aldrei lagað, verðbólgan verður aldrei stöðvuð, og þessu verður aldrei komið í nokkurt horf, meðan ríkisstj. reynir að gera slíkt einvörðungu með því að draga saman útlánin, halda uppi háum vöxtum, auka dýrtíðina meira en kaupgjaldið í landinu, og beitir öðrum slíkum samdráttarráðstöfunum, en lætur fjárfestinguna vera stjórnlausa, eins og hún er nú í landinu, gerir með þessu móti ráðstafanir, sem verða til þess, að það kemst ekki í framkvæmd, sem fyrst og fremst þarf að gera, eins og Haraldur Böðvarsson svo skörulega og skilmerkilega bendir á í ritgerð sinni.
Það, sem Haraldur Böðvarsson segir í Morgunblaðinu, er nákvæmlega það sama, sem við höfum verið að reyna að vekja athygli á öll þessi ár, að það þarf að breyta um stefnu og í staðinn fyrir að reka þá lána- og vaxtapólitík, sem hæstv. ríkisstj. hefur rekið, þá þarf að hafa spariféð í umferð og beina því þangað, sem það verður að mestu liði fyrir þjóðarbúskapinn. Það verður að endurskoða efnahagsmálastefnuna í grundvallaratriðum, ef það á að verða nokkur minnsta von til þess að komast út úr þessu öngþveiti. Og allra sízt verður út úr þessu öngþveiti komizt með því að bæta því nú við, sem hæstv. ríkisstj. lýsir yfir að hún ætli að gera, sem sé því að skera niður verklegar framkvæmdir ríkisins um 20%, Það eru þær ráðstafanir, sem hæstv. ríkisstj. lýsir nú yfir að eigi að gera, og sú yfirlýsing kemur fram einmitt í sambandi við þetta frv., og um það mun ég fara nokkrum orðum.
Ég hef þegar lýst afstöðu minni til frv. sjálfs, og hún er alveg jákvæð, með þeim rökum, sem ég hef rakið. En ég bendi á, að svona smáuppbætur til útvegsins er vitanlega engin lausn á vandamálum útgerðarinnar, ekki hin minnsta lausn, þó að það sé nauðsynlegt að vera með þessu, eins og sakir standa. Það verður að endurskoða þessi mál frá rótum, m.a. í þá stefnu, sem Haraldur Böðvarsson bendir á í þeirri grein, sem ég var að vitna til og er í aðalatriðum hin sama, sem við í stjórnarandstöðunni margir höfum missirum saman reynt að beita okkur fyrir og verður vitanlega að lokum ofan á. Það er á hinn bóginn spurning, hve mikið tjón menn verða búnir að gera sér, áður en blaðinu verður alveg snúið við.
En nú segir hæstv. ríkisstj., að til þess að fá peningauppbæturnar eigi að skera niður allar verklegar framkvæmdir ríkisins og öll framlög á fjárl., sem ekki eru lögbundin, að því er mér skilst. Þetta er það nýjasta, sem hæstv. ríkisstj. hefur fundið upp á, og við sjáum, að þetta staðfestir enn betur það, sem áður var reyndar augljóst, að hæstv. ríkisstj. hrekst frá einu neyðarúrræðinu til annars.
Maður skyldi halda, að það væru hinir mestu kreppu- og örðugleikatímar, þegar til stendur að grípa til neyðarráðstafana af þessu tagi, en það er nú öðru nær, eins og við allir þekkjum. En þetta sýnir öngþveitið og ég vil segja ráðleysið, því að hér er allt á fleygiferð í því dýrtíðarflóði, sem efnt hefur verið til. Með þessu er í raun og veru ætlun hæstv. ríkisstj. að umturna alveg þeim fjárl., sem sett voru fyrir aðeins 2 1/2 mánuði. Í desembermánuði voru þó lögfestar nýjar álögur, sem eiga að gefa hátt á 3. hundrað millj. kr., og þá voru með því álögurnar í heild fyrir utan vegáætlunina færðar upp í 3 1/2 milljarð, en ef álögurnar í vegáætluninni eru taldar með, um 3 milljarða og 800 millj.
Nú á að skera niður opinberar framkvæmdir um 120 millj., því að það er talið, að ekki sé hægt að fá þessar 120 millj. í framkvæmdirnar af þessum hálfa fjórða milljarði. En þetta er yfirlýsing um, að það sé ekki hægt að halda uppi verklegum framkvæmdum og ólögboðnum framlögum, sem nema 600 millj. af 3 1/2 milljarði. Sýnir þetta enn, að það fer sílækkandi sá hluti af ríkistekjunum, sem gengur til opinberra framkvæmda og nauðsynlegustu framkvæmda. Eftir því sem álögurnar vaxa, virðist fara minni hluti af þeim til framfaranna, framkvæmdanna.
Með þessu er stefnt að því líka, að nýjar álögur og niðurskurður á þjónustu nemi um 400 millj. á nokkrum mánuðum. Nýju álögurnar munu nema um 270 millj. eða svo, niðurskurðurinn á framkvæmdunum nemur 120 millj. Nýjar álögur og niðurskurður á þjónustuframkvæmdum á að nema samtals um 400 millj. á örfáum mánuðum.
Ríkisstj. segir okkur alltaf, að sig vanti peninga. En við vitum, að ríkisstj. hefur þá yfirlýstu efnahagsmálastefnu að hafa greiðsluafgang til þess að draga úr kaupgetunni og draga peninga úr umferð inn í kerfið. Það er hennar átrúnaður, að með því að takmarka lánveitingarnar, leggja inn í bankakerfið hluta af sparifjáraukningunni og með því að hafa greiðsluafgang á fjárl. megi sjá öllum borgið í þjóðarbúskapnum. Og þess vegna er hæstv. ríkisstj. stöðugt að stritast við að koma á landsmenn nýjum og nýjum álögum. Og nú þegar hún í bili telur, að menn hafi fengið meira en nóg af nýjum álögum, þá á að reyna að ná þessu sama marki með því að draga úr lífsnauðsynlegustu framkvæmdum. Og þetta á að gera, eins og ég sagði, þótt skattálagning og skattaálögur séu orðnar meiri en nokkru sinni fyrr.
En væri nú ekki nær fyrir hæstv. ríkisstj. að reyna að fara inn á sparnaðarleiðir, heldur en að ráðast eingöngu á þá liði fjárl., sem eiga að fara til verklegra framkvæmda og til þýðingarmestu málanna? Væri ekki nær fyrir hæstv. ríkisstj. að snúa sér af alvöru að sparnaði og reyna að minnka eyðslu á öllum sviðum og bæta þannig hag ríkissjóðs, ef hann þyrfti á því að halda, að hagur hans sé réttur? En um það höfum við vitanlega ekki fengið neina skýrslu. Við höfum ekki fengið neina skýrslu um, hvernig ríkissjóður raunverulega stendur, nema það, sem allir gerðu ráð fyrir, að fjárl. stæðust fullkomlega í reyndinni, eins og þau voru orðin, þegar frá þeim var gengið fyrir áramót, og við margir höfðum trú á og trúum enn, að stefnt væri að verulegum greiðsluafgangi með þeim álögum, sem þá voru samþykktar. En ef ríkisstj. vantar peninga, hvers vegna fer hún þá ekki inn á sparnaðarleiðina? Það verður að vera skýlaus krafa og er áreiðanlega skýlaus krafa í landinu, að slíkt sé gert og það ósleitilega og þannig, að það sjáist í framkvæmd, áður en hugsað er til þess að skera niður þýðingarmestu þjónustuframkvæmdir ríkisins, eins og ríkisstj. hefur nú lýst yfir að hún ætli að gera.
Þá er einnig í þessu sambandi ástæða til að minna á það, hvernig gengur með skilin á sköttunum í ríkissjóðinn. Mundi það ekki vera eðlilegra, ef ríkisstj. vantar peninga, að hún gerði myndarlega gangskör að því, að söluskattinum væri öllum skilað í ríkissjóðinn, öllu því, sem tekið er af mönnum í söluskatt, væri raunverulega skilað í ríkissjóðinn? En það er á almannavitorði, að stórkostlegur misbrestur er á því. Og ég er alveg sannfærður um, að ef ríkisstj. gerði rösklega herferð í þessu efni, verulega rösklega og beitti til þess orku sinni og sinna manna, mundi verða af því stórkostlegur árangur og miklu meiri árangur en nemur þessum 120 millj., sem nú er gert ráð fyrir að skera niður af verklegum framkvæmdum. Sama er að segja um beinu skattana, sem að vísu hefur verið lofað að lækka og vitanlega verða að lækka, því að í fyrra voru þeir gersamlega óbærilegir. En ef gengið væri í það af verulegum dugnaði að fá í lag grundvöll beinu skattana, þ.e.a.s. framtölin, mundi alveg vafalaust líka verða verulegur tekjuauki að því fyrir ríkissjóð.
Það verður svo að teljast ömurlegt, að á sama tíma sem hæstv. ríkisstj. leggur til að lækka opinberar framkvæmdir á þessa lund, sem hér er gert ráð fyrir, er hún uppvís að því fullkomlega að innheimta ekki einu sinni löglega álagða skatta hjá ríkustu mönnum landsins eins og stóreignaskattinn. En það hefur veríð upplýst hér á hv. Alþ. hvað eftir annað, að á sama tíma sem hæstv. ríkisstj. lætur elta aðra til þess að greiða lögboðin gjöld, — og það er ekkert við því að segja, að það sé gengið eftir því, að menn greiði lögboðin gjöld, — er ekki innheimtur nema að sáralitlu leyti löglega álagður skattur, stóreignaskatturinn. Allt þetta er nauðsynlegt að minna á, þegar til stendur að gera ráðstafanir af þessu tagi.
Við, sem erum dálítið kunnugir efnahagsmálastefnu ríkisstj. og á hverju hún er byggð, vitum, að þessar ráðstafanir, sem nú á að fara að gera, að draga úr opinberum framkvæmdum, eiga sér tvenns konar rætur í kerfi hæstv. ríkisstj. Annars vegar er að reyna að fá greiðsluafgang hjá ríkinu, ekkí í því skyni að nota hann til að styðja nauðsynlegustu framkvæmdir, eins og áður tíðkaðist yfirleitt með greiðsluafganga, þegar þeir urðu, heldur til þess að draga fé inn í peningakerfið og draga þannig úr þenslunni, eins og þeir kalla það, og kaupgetunni. Þetta er annar þátturinn. En hinn þátturinn er sá beinlínis að draga úr fjárfestingunni. Okkur er það alveg ljóst, að hæstv. ríkisstj. hugsar sér að draga úr fjárfestingunni, því að hún telur sjálfsagt, að fjárfestingin sé of mikil í heild. Það er mjög athyglisvert að sjá nú, hvaða framkvæmdir það eru, sem hæstv. ríkisstj. telur helzt, að megi missa sig eða fresta, þegar um slíkt sé að ræða, að framkvæmdir séu meiri en þjóðarbúið ræður við. Hverjar eru þá þær framkvæmdir, sem eiga að víkja? Það eru þær framkvæmdir, sem fé er veitt til á fjárl.? Það eru skólarnir, það eru spítalarnir, það eru hafnargerðirnar, það eru vegirnir og brýrnar, það eru raforkulínurnar, svo að aðeins örfá dæmi séu nefnd af fjöldamörgum, sem nefna mætti.
Ég mun ekki fara út í það hér í þessum fáu orðum, sem ég segi, að lýsa því, hvernig ástatt er í þessum greinum, þessum þjónustugreinum, sem ég hef hér nefnt, eins og menntamálum, heilbrigðismálum, samgöngumálum og raforkumálum. Ég vænti þess, að það muni verða gert af öðrum. En ég vil leyfa mér að benda á, að það eru þessar framkvæmdir, sem hæstv. ríkisstj. telur, að helzt megi missa sig og eigi að víkja fyrir öðru, ef framkvæmdir í landinu séu of miklar að hennar dómi. En ég segi, að þegar nú á að draga úr framkvæmdum í landinu með því að klípa af þessum framkvæmdum, er því fórnað, sem sízt skyldi. Þá er því hreinlega fórnað, sem sízt skyldi. Þá er þetta látið víkja fyrir fjöldamörgu öðru, sem fremur mætti bíða, þegar litið er á þjóðarhaginn.
Sannleikurinn er sá, að þessar framkvæmdir, sem hæstv. ríkisstj. ætlar nú að setja í úrkastsflokkinn, eiga að vera í forgangsflokki framkvæmdanna. Ef þannig er komið fyrir hæstv. ríkisstj., sem augljóst er raunar, að hún kann engin ráð til þess að láta lífsnauðsynlegustu framkvæmdir sitja í fyrirrúmi um vinnuafl og fjármagn, þá á sú ríkisstj. ekkert erindi lengur í ráðherrastólunum. Hún á að fara. Sú ríkisstj., sem grípur til þessa úrræðis í einhverju hinu mesta góðæri, sem þjóðin hefur lifað, á engan rétt á sér. Sú ríkisstj., sem setur þessar framkvæmdir í úrkastsflokkinn, sem eiga að vera í forgangsflokknum, á engan rétt á því að fara áfram með málefni landsins. Hún á að afsala sér völdunum.
En þá er það fjárfestingin í heild. Það er sagt, að hún sé talin of mikil. Þeir telja hana of mikla. Það er mjög erfitt fyrir okkur að dæma um þetta, sem engan aðgang eigum að neinum framkvæmdaáætlunum eða öðru, sem snertir þessi efni. Og ég skal því ekki dóm á þetta leggja, um heildarfjárfestinguna á næstunni. En hitt veit ég, að fjárfestingarmálin eru í algeru öngþveiti, verðbólguöngþveiti, og fyrir því öngþveiti eiga nú ýmsar af þýðingarmestu framkvæmdum þjóðarinnar að víkja, því að það á engu að fresta nema þeim. Verðbólguframkvæmdirnar eiga að halda áfram, sem við sjáum daglega fyrir augum okkar, en skólar, spítalar, vegir, hafnir og raforkulinur eiga að víkja, svo að dæmi séu nefnd.
Það getur staðið þannig á, að réttmætt sé að draga úr framkvæmdum ríkisins eða fresta einhverjum þeirra, og það hef ég því bent á áður við ýmis tækifæri. En það verður þá að vera vegna þess, að aðrar enn þýðingarmeiri framkvæmdir fyrir þjóðarbúið, sem aðrir hafa með höndum en ríkið, þurfi að hafa forgang og megi til með að komast í framkvæmd. En að efna til niðurskurðar á sjúkrahúsbyggingum, skólabyggingum, samgönguframkvæmdum og annarri mikilsvarðandi þjónustu, til þess að gegndarlausar verðbólgu- og gróðabrasksframkvæmdir þeirra fésterkustu í landinu geti haft forgangsaðstöðu varðandi vinnuafl og efni, það er hneyksli. Það er hneyksli að setja framkvæmdir ríkisins í úrkastsflokk, til þess að slíkt geti farið fram. Ég dreg í efa, að það, sem nú á að gerast hér í þessu tilliti, gæti gerzt í nokkru af hinum nálægu Evrópulöndum, þar sem við þekkjum bezt til. Ég dreg í efa, að svona atburðir gætu gerzt í nokkru þeirra landa.
Ef við svo íhugum þetta ofurlítið nánar, kemur líka í ljós, að það eru engin stórvirki í framkvæmd núna, engin sérstök stórvirki í framkvæmd, sem ætti að þurfa að víkja fyrir. En samt telur ríkisstj., að það þurfi að skera niður 20% af framkvæmdum ríkisins. Á hverju eiga menn þá von hjá stjórn, sem fylgir þessari stefnu, ef nú verður bætt við á næstunni t.d. byggingu stóriðjufyrirtækja og stórvirkjana í því sambandi, miklum mannvirkjum í Hvalfirði á vegum Bandaríkjanna, og svo á verðbólgufjárfestingin að halda áfram óhindruð og ringulreiðin og skipulagsleysið í fjárfestingarmálum?
Það verður að gera þá skýlausu kröfu til hvaða ríkisstj. sem er, að hún líti yfir þjóðarbúskapinn í heild. En ef einhver dirfist að tala um, að það eigi að fresta einhverjum framkvæmdum öðrum en skólum, spítölum, vegagerðum og öðrum slíkum framkvæmdum, t.d. fresta einhverju af því, sem aðrir vilji gera en ríkið sjálft, þá verður æpt: Höft, höft, höft. Hann vill höft. — Mikið eiga menn að vinna fyrir frelsið, ef þetta á að ganga svona. Opinberum framkvæmdum verði kastað í úrkastsflokkinn, en allar hinar, sem menn sjá daglega fyrir augunum og telja má þýðingarminni, eiga að hafa sinn gang, hvað sem tautar.
Hvernig er svo þetta frelsi, sem menn eiga að færa þessar fórnir? Hvernig er það frelsi? Auðvitað ekkert nema nafnið. Það er bara frelsi fyrir þá ríku. Það er bara frelsi fyrir þá, sem hafa nóga peninga, og ekki fyrir neina aðra, hinir eru allir undir höftum. Það er ekki frelsi fyrir neina aðra, en við getum kallað það frelsi fyrir þá. Hér eru höft, og þau eru framkvæmd með lánapólitíkinni, þau eru framkvæmd á þann hátt, sem Haraldur Böðvarsson er að segja mönnum frá í Morgunblaðinu í dag, þannig að það fást ekki lán til þess að kaupa nauðsynlegustu vélar til fiskiðnaðarins. Þetta eru höftin, sem eru í gildi. Það eru lánsfjárhöftin. Frelsið er aðeins fyrir þá, sem hafa nóga peninga.
En ef einhverjum skyldi detta í hug, að það væri skynsamlegt að reyna að raða framkvæmdunum á þjóðarbúinu niður og einhverjir yrðu að fresta sínum framkvæmdum, sem væru taldar ónauðsynlegri en þær, sem hér er verið að ræða um, þó að þeir hefðu nóga peninga, þá æpa menn: höft. Það eru höft, ef það snertir þá, sem hafa nóga peninga, en hitt eru ekki höft. Lánsfjárhöft eru ekki höft, af því að þau snerta aðeins þá, sem þurfa á fjármagni að halda frá öðrum.
Og hvernig eru lánsfjárhöftin framkvæmd? Þau eru framkvæmd þannig, að verulegur hluti af sparifjáraukningu þjóðarinnar er tekinn af viðskiptabönkunum og lagður inn í Seðlabankann, að mestu leyti til að halda þessu fé úr umferð. Þetta á m.a. að gera til þess að draga úr fjárfestingunni, og þetta var okkur sagt að væri einhlítt til þess að hafa jafnvægi í þjóðarbúskapnum. En hvar er jafnvægið í þjóðarbúskapnum? Þetta verkar aftur á móti á þá lund, sem margsannað er og margupplýst, að það verður að sitja á hakanum, sem sízt skyldi, t.d. á vegum framleiðsluatvinnuveganna, fjárfestingar til þess að bæta rekstraraðstöðuna, og þetta verkar einnig þannig, að unga fólkið í landinu, sem þarf að koma sér upp íbúðum og annarri staðfestu, finnur mest fyrir þessum höftum. En frelsið er fyrir hina.
Við sjáum biðraðirnar hérna við bankadyrnar á morgnana. Benda þær til þess, að jafnvægi sé í lánamálunum eða jafnvægi í efnahagsmálunum? Nei, þær benda til þess, að þar ríki hið mesta jafnvægisleysi. Og það eru þessir, sem bíða við dyrnar á bönkunum, sem eru að glíma við haftapólitík ríkisstj., þessa sérstöku tegund af höftum. Verið er að reyna að stjórna með „peningapólitískum“ ráðstöfunum einum saman, eins og gert er í sumum stóru löndunum, þar sem er allt yfirfljótandi í fjármagni. En það er ekki hægt að gera hér, svo að í nokkru lagi sé, og það ættu menn nú að vera búnir að læra.
Það verður laglegt ástand hér á næstu árum eða næstu missirum, ef á að halda áfram þessari pólitík og leggja í nýjar stórframkvæmdir. Það verður laglegt ástand. Ég held, að það þurfi sannarlega að skoða þessi mál meira í heild en menn hafa fengizt til að gera nú um sinn.
Áhrifin af þessari lánapólitík, sem ég hef verið að lýsa og koma fram í gjaldeyrisstöðunni, eru dýru verði keypt. Þau kosta rekstrarfjárskort hjá framleiðslunni og verri afkomu á allar lundir, minni möguleika til þess að greiða eðlilegt kaup og annað því líkt. Þau kosta peningaþröng og getuleysi hjá þeim, sem sízt skyldi. En þessi pólitík hefur samt ekki læknað verðbólguna. Hún hefur magnazt. Og ekki hefur dregið úr fjárfestingunni í heild, en þetta hefur haft áhrif þannig að breyta fjárfestingunni. Það eru önnur verkefni, sem fengizt er við, og þar ber mest á verkefnum þeirra fjársterkustu. Og hún verður til þess, þessi stefna, að það eru þeir, sem fá forgangsaðstöðu fram yfir aðrar nauðsynlegustu framkvæmdir og fram yfir sjálfa framleiðsluna. Hvernig er t.d. orðið með vinnuaflsskortinn hjá sjálfri framleiðslunni, og hvernig stendur á honum? M.a. kemur til hin gegndarlausa samkeppni frá verðbólgufjárfestingunni. En þetta verður ekki læknað með því að taka 120 millj. af því fé, sem á að verja til þess að byggja heilbrigðisstofnanir, skóla og annað slíkt, sem þjóðin verður að halda áfram að koma í framkvæmd. Og ef menn halda, að sú pólitík geti staðizt, að ekki sé hægt að halda áfram með sæmilegum hraða við slíkar framkvæmdir í mestu góðærum, hvenær ætla menn þá að vinna það upp aftur? Það er tæpast hægt að hugsa sér, að annað eins góðæri og verið hefur nú um sinn geti orðið um alla framtíð.
Í raun og veru er fjárfestingin undirstaða þjóðarbúskaparins í framtíðinni, alveg eins og heimilanna. Tekjur og afkoma þjóðarinnar á næstu árum fer vitaskuld að verulegu leyti eftir því, hvernig til tekst með fjárfestinguna, með framkvæmdirnar, hvort menn leggja í skynsamlegar framkvæmdir eða óskynsamlegar. Við vitum, að verðbólgufjárfesting er oft mjög óskynsamleg og stórlega hættuleg. Vegna verðbólgunnar leggja menn t.d. í miklu stærri framkvæmdir en þeir í raun og veru hafa efni á og þeir þurfa, þ.e. þeir, sem hafa veruleg peningaráð. Þetta vitum við vel, og við vitum, að verðbólgan er versti ráðunauturinn, sem til er varðandi fjárfestingarframkvæmdir.
En hvað er gert á heimilunum? Hvað gerir hygginn húsbóndi, ef hann þarf að horfast í augu við, að það er takmarkað, sem hann getur komið í framkvæmd, og það er auðvitað ævinlega takmarkað, og það er líka takmarkað, sem þjóðarbúið getur komið í framkvæmd? Hygginn húsbóndi lítur yfir heildina og reynir að raða verkefnunum niður eftir þýðingu þeirra fyrir heimilið í heild. En er það þetta, sem hæstv. ríkisstj. gerir með sinni fjárfestingarpólitík? Nei og aftur nei, ekkert í þá átt. Það, sem hún gerir, er að setja í úrkastsflokkinn það, sem sízt skyldi, láta það í raun og veru hafa forgang, sem helzt mætti bíða, reyna svo að halda þessu innan einhverra takmarka, að því er manni skilst, með lánapólitík, sem verður til þess, að það fellur oft niður, sem þarflegast er.
Ég vil svo að lokum segja þetta: Ríkisstj., sem gefst alveg upp við þá frumskyldu í nútímaþjóðfélagi að tryggja því þýðingarmesta forgang, en lætur það þess í stað sitja á hakanum, á engan rétt á sér, ríkisstj., sem í mesta góðæri gefst upp við að halda uppi eðlilegum lágmarksframkvæmdum í skólamálum, íbúðamálum, heilbrigðismálum, samgöngumálum og öðrum þvílíkum höfuðþáttum, á engan rétt á sér.
Að endingu vil ég svo spyrja um þrennt: Á að skera niður framlög til allra verklegra framkvæmda án undantekninga? Mér virðist eiga að gera þetta skv. yfirlýsingunni í grg., en það væri æskilegt að fá þessu beint svarað.
Á að skera niður öll ólögboðin framlög á fjárl.? Og ef svo er ekki, hver eru þá undantekin?
Hvað á að gera við 22. gr. og sérstaklega tvennt á henni? Ætlar ríkisstj. að hætta við að nota lántökuheimildina til ríkisspítalanna upp á 10 millj. kr.? Og hvað ætlar ríkisstj. að gera við lántökuheimildina til flugvallagerða, 15 millj. kr.?