18.03.1965
Neðri deild: 56. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í B-deild Alþingistíðinda. (894)

154. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég er það sem við köllum „dauður“, og verður að bíða betri tíma að ræða nánar við forsrh. um ýmislegt af því, sem hann sagði hér áðan.

Það er auðheyrt, af hverju hæstv. forsrh. hefur mestar áhyggjur nú um þessar mundir. Hann hefur mestar áhyggjur af því, að menn fylki sér í vaxandi mæli um Framsfl., og kannske hefur hann ástæðu til að hafa áhyggjur af því. Það er svo að sjá sem hann gangi með áramótagreinina mína í vasanum og þykir mér það gott og sýnir, að ég muni hafa hitt þar á rétta nótu.

Hann telur það mikið hneyksli, að gert sé ráð fyrir því, að í Framsfl. geti menn haft mismunandi skoðanir á einstökum málum. En ég tel það mikinn sóma fyrir flokkinn, að þannig er ástatt og við förum ekki neitt í felur með þetta. Þetta er allt öðruvísi í Sjálfstfl., því að þar má víst enginn hafa aðra skoðun en „páfinn“, og allir vita, hver „páfinn“ er. Ef út af ber, þá kemur „páfinn“ með bannbullur sínar með viðeigandi hótunum og öðru slíku til þess að reyna að færa allt í rétt horf, eins og það er kallað í þeirri sveit.

Hæstv. forsrh. hefði sannarlega átt að eyða nokkrum mínútum, fyrst hann fór að ræða þessi mál almennt, til að gera grein fyrir stefnu Sjálfstfl og stefnufestu sinni t.d. í viðhorfinu til kommúnista, svo að ekki sé nefnt nú nema það eitt. Hann hefur talið sig þar mikinn krossferðaforingja, en skriður nú fyrir kommúnistum til að reyna að framlengja, ef verða mætti, eitthvað valdastreitusetu sína í forsætisráðherrastólnum.

Það er svo að heyra helzt á hæstv. forsrh., að opinberar framkvæmdir séu þannig vaxnar, að þær megi bíða, þær séu einhvers konar aukaþægindi, sem þjóðin eigi að veita sér, ef hún hafi efni á því. Hæstv. forsrh. virðist algerlega vanta grundvallarskilning á því, að mikill þorri allra verklegra framkvæmda ríkisins er meðal undirstöðusteinanna í sjálfum hagvextinum, þannig að það verður ekki eðlilegur hagvöxtur og ekki eðlileg framleiðsluaukning, nema það opinbera geri sína skyldu t.d. í samgöngumálum, hafnarmálum, skólamálum og heilbrigðismálum. Þetta er bókstaflega ein undirstaðan að hagvextinum. Það er ekkert einkennilegt, þó að manni, sem hefur þennan hugsunarhátt ráðherrans, finnist það ekki skipta miklu máli, þó að hann kasti opinberum framkvæmdum í úrkastsflokkinn. En þetta er algerlega á misskilningi byggt. Hér er verið að deila um, hvað skuli sitja fyrir, og við höldum því einfaldlega fram, að það verði að velja og hafna í því tilliti og líta á heildina. Það er aðalatriðið.

Þá var hæstv. forsrh., eins og honum er tamt, að snúa hér út úr vaxtadæmi mínu og málflutningi mínum um vextina. Ég sagði það, sem satt var, að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna reiknaði vextina í sjávarútveginum 40% af kaupinu í frystiiðnaðinum 1961. Þá reiknaði hún auðvitað vexti af öllu því fé, sem í frystiiðnaðinum var, bæði skuldum og eigin fé. En hæstv. forsrh. botnaði ekkert í þessu frekar en öðru, sem lýtur að efnahagsmálum, og grípur í ofboðinu grein Haralds Böðvarssonar, sem er einn af ríkustu mönnum landsins og þykist ætla að hnekkja þessu dæmi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna með því að vitna í vaxtagreiðslur hans. Dæmið var ekki frá mér, það var frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og því verður ekki hnekkt með því að lesa upp, hvað einn af ríkustu mönnum landsins borgar í vexti. Það er ekki það, sem hér er um að ræða, og það hefði hæstv. forsrh. átt að skilja.

Hæstv, ráðh. Emil Jónsson spurði hér áðan: Hvað vilja þeir gera, sem ekki vilja skera niður opinberar framkvæmdir? Við teljum hreinlega ekkert liggja fyrir um, að ríkissjóð vanti fé til að standa undir þeim opinberu framkvæmdum, sem búið er að setja á fjárl. Ekkert liggur fyrir um þetta. Auk þess teljum við, að með því að innheimta skattana, með því t.d. að láta skila í ríkissjóðinn söluskattinum, sem innheimtur er af fólkinu, mundi vera hægt að ná því fé, sem þarf. Enn fremur er það ekkert einkennilegt, þótt við göngum eftir því, að ríkisstj. efni eitthvað af þeim sparnaðarloforðum, sem hún hefur gefið með digurbarkalegum yfirlýsingum á undanförnum árum. Það var ekki svo lítið um að vera, þegar hún tók við og sagði, að sukkið hefði verið þannig áður, að það væri auðvelt að lækka ríkisútgjöldin. Það hefur þá þokkalega verið gert eða hitt þó heldur. Er það nokkuð einkennilegt, að við göngum eftir efndum á einhverju af þessu, þegar á að fara að skera niður opinberar framkvæmdir? Situr það á hæstv. ráðh. að setja upp undrunarsvip út af slíku? Loks vil ég segja: Jafnvel lántaka til að halda uppi þessum framkvæmdum væri skárri en það, sem núv. ríkisstj. hugsar sér að gera.

Mér þótti það leiðinlegt, sem hæstv. samgmrh. sagði hér áðan um undirmann sinn, framkvstj. Skipaútgerðarinnar. Hæstv, ráðh. verða að gæta velsæmis, þótt þeir sæti gagnrýni og þeim kunni að renna í skap undan gagnrýninni. En það er ekki að gæta velsæmis, þegar ráðh. ræðst að undirmanni sínum, sem enga möguleika hefur til þess að útskýra málstað sinn hér. Það ættu hæstv. ráðh. sannast að segja að gera annars staðar. Auk þess á ég eftir að sjá, að það hafi strandað á forstjóra Skipaútgerðarinnar einum að framkvæma þær till., sem hinir norsku sérfræðingar gerðu. Hitt mun sönnu nær, að þar mun hann hafa farið eftir ráðum þeirra manna íslenzkra í mörgum dæmum, sem betur þekkja til þessara mála en hæstv. ráðh. og útlendu sérfræðingarnir samanlagt. Auk þess veit ég ekki betur, en það liggi fyrir, að þessi forstöðumaður Skipaútgerðarinnar hafi þráfaldlega gert till. um að útvega hagfelldari skip til strandferðanna, en hæstv. ráðh. hafi ekki sýnt hina minnstu viðleitni í þá átt að útvega slík skip, þannig að hægt væri að reka strandferðirnar með hagfelldara móti.

Það er ekki að mínu viti að gæta velsæmis að ráðast þannig á undirmann sinn hér á hv. Alþ. og ég man ekki eftir því að hafa heyrt slíkt gert áður á þessa lund. Og mér þykir mikið miður, að þetta skuli hafa hent jafnágætan mann og hæstv. ráðh. En menn verða að gæta þess, þótt þeim kunni að renna í skap, að fara ekki yfir eðlileg takmörk. Hæstv. ráðh. hneykslaðist mjög á því, að halli Skipaútgerðar ríkisins hefði vaxið frá því 1958. Þá var halli Skipaútgerðarinnar 11.6 millj., en hæstv. ráðh. segir, að hann verði nú 30 millj. Það er ekki furða, þó að þeirri stjórn blöskri þetta, sem hefur hækkað ríkisútgjöldin á sama tíma úr 850 millj. í nálega 4 milljarða eða 3 milljarða og 800 millj., 3800 millj., ef með er talin vegáætlunin.