08.04.1965
Efri deild: 64. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (909)
154. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv. er komið til þessarar hv. d. frá Nd., þar sem það hefur verið samþ. óbreytt, eins og það var lagt fram. Það eru í frv. þrjú efnisatriði. Það fyrsta, að á árinu 1965 skuli ríkissjóður greiða fiskseljendum 25 aura verðuppbót á hvert kg af línu- og handfærafiski. í öðru lagi er ákvæði um það, að ríkissjóður skuli leggja fram 33 millj. á árinu 1965, er verja skal til framleiðniaukningar frystihúsa og annarra endurbóta í framleiðslu frystra fiskafurða. í þriðja lagi er svo ákvæði um það, að stjórn aflatryggingasjóðs sé heimilt að ákveða, að bætur til togara úr sjóðnum vegna aflabrests 1964 skuli miðast við úthaldstíma þeirra á því ári í staðinn fyrir að greiða beinlínis eftir ákvæðum aflatryggingasjóðslaganna til hvers og eins. Ég skal fara um þessi þrjú atriði nokkrum orðum.
Þegar fiskverðið fyrir árið 1965 var ákveðið í byrjun jan. s.1., lýsti ríkisstj. yfir því, að hún mundi leita heimildar Alþ. til þess að greiða á árinu 1965, 25 aura verðlagsuppbót á hvert kg af línu- og handfærafiski. Þetta er til komið vegna þess, að línu- og handfærafiskur er talinn vera og er áreiðanlega bezti fiskurinn, sem kemur til vinnslu í landi, en hefur gengið saman nokkuð upp á síðkastið, og þess vegna átti þessi upphæð að nokkru leyti að hvetja fiskimenn til þess að halla sér að þessari veiðiaðferð og sömuleiðis átti þetta að verða nokkur styrkur til hinna smærri frystihúsa úti um land á þann hátt að auka fiskinn til þeirra, því að línuveiðarnar og handfæraveiðarnar, eru meir stundaðar þar heldur en á Faxaflóasvæðinu. Þetta er að vísu ekki mjög mikil upphæð, en er þó talin munu nema um 22 millj. kr. alls og vera þess vegna nokkur stuðningur við útveginn og þá, sem vinna aflann í landi.
Þegar verð fisksins var ákveðið í ársbyrjun 1964 með þeirri hækkun, sem þá var ákveðin, var talið, að hraðfrystihúsin mundu ekki geta undir þeirri hækkun staðið ásamt með þeim hækkunum, sem orðið hefðu á kaupi um áramótin og rétt fyrir áramótin 1963–1964. Þá var ákveðið að veita frystihúsunum framlag til framleiðniaukningar, sem nam 43 millj. kr., og veita ábót á fiskverðið, sem nam 6% til viðbótar við það verð, sem ákveðið var af verðlagsnefnd. Þessari uppbót var svo breytt á miðju ári í 4% vegna þeirrar lækkunar, sem orðið hafði þá á farmgjöldum. Nú hafði við þessi s.1. áramót, þegar verðlagsráð sjávarútvegsins fór að athuga afkomu frystihúsanna, komið í ljós, að upplýsingar bentu til, að afkoma þeirra hefði verið sæmilega góð á árinu 1964 og betri, en búizt var við í byrjun ársins. Þess vegna var talið mögulegt að afnema þennan styrk, sem frystihúsunum hafði verið veittur, bæði í beinu framlagi til framleiðniaukningar, 43 millj., og 6% til fiskverðshækkunarinnar til þeirra, ef ekki hefði komið annað til. En til viðbótar má svo segja, að það hafi á árinu 1964 komið fram nokkur hækkun á söluverði hraðfrystra fiskafurða, það hafa verið lækkaðar fragtir og það hafa verið lækkaðir nokkuð vextir hjá bönkum og þess vegna var að öllu þessu athuguðu talið, að hefði fiskverðið verið ákveðið óbreytt á þessu ári, mundi vera talið fært að ætla þessum fiskvinnslustöðvum að taka á sig þær hækkanir, sem komu til framkvæmda á árinu í vinnulaunum og komu til framkvæmdanna áramótin síðustu, að taka á sig þær byrðar, sem af því leiddi, að niður yrðu felldar alveg uppbætur ríkissjóðs til þeirra, sem greiddar voru á árinu sem leið. Nú var ákveðið, að fiskverðið skyldi ekki vera óbreytt frá árinu áður, heldur skyldi það hækka um 51/2 %, sem bæði var talið hlutfallsleg hækkun til sjómanna og á við það, sem aðrir hefðu fengið og hækkun til útvegsmanna, sem ekki var talið veita af að þeir fengju á sinn aflahlut. Niðurstaðan af öllu þessu varð svo sú að leggja til, að ríkissjóður greiddi hraðfrystihúsunum sem svaraði þeirri upphæð, sem 51/2% hækkunin næmi og það er talið, að sú hækkun muni nema 33 millj. kr., þannig að bæturnar úr ríkissjóði, bæði 25 aura hækkunin fyrir línu- og handfærafiskinn, sem nemur 22 millj., og 33 millj. kr. framlagið til framleiðniaukningar frystihúsanna, nemur samtals um 55 millj. kr., en það þýðir, að ríkisframlagið í þessu skyni hefur lækkað frá því á árinu 1964 úr milli 90 og 100 millj. kr., sem framlögin voru þá samanlagt, niður í 55 millj. Náttúrlega er æskilegt og æskilegast og nauðsynlegt, að hægt sé að komast hjá því, að ríkissjóður greiði meðgjöf með þessum aðalatvinnuvegi landsmanna, þegar það er líka athugað, að verð á þessari afurð, hraðfrysta fiskinum, hefur hækkað verulega á þessu tímabili. En að öllu athuguðu hefur það ekki verið talið fært og þetta sé sú minnsta ábót, sem þeir geta komizt af með. Það hefur að vísu verið farið fram á það, að saltfiskframleiðendum væri einnig greidd viðbótarupphæð til þess að standa undir sínum rekstri og skreiðarverkendum sömuleiðis, en það var ekki talið eðlilegt af þeim, sem með þessi mál fóru í verðlagsráði, oddamannsins a.m.k., að til þess arna þyrfti að koma, a.m.k. ekki hvað saltfiskinn snerti. Hann hefur hækkað mjög verulega á s.1. árum og var talinn með þessari verðhækkun vel geta mætt þeirri hækkun á tilkostnaði, sem hefði orðið við þessa fiskverkun.
Öðru máli gegnir um skreiðina. Hún hefur ekki hækkað í verði, eins og bæði hraðfrysti fiskurinn og saltfiskurinn og þess vegna getur komið til, að það verði með einhverjum hætti að styrkja þá framleiðslu í bili. En vegna þess að enn er ekki séð, hvert verð muni verða á þessari afurð á þessu ári og ekki komið til neins útflutnings þar enn, hefur það ekki verið tekið upp í þetta frv. og verður, ef til kemur, þá að veitast með öðrum hætti síðar. En sem sagt, það hefur ekki verið tekið upp í þetta frv.
Um síðasta atriðið, um heimild fyrir aflatryggingasjóð til þess að ákveða, að bætur til togara úr sjóðnum sökum aflabrests 1964 skuli miðast við úthaldstíma á því ári, þá er það að segja, að þetta er ekki með neinum hætti brot á reglum aflatryggingasjóðs eða lögum, sem um hann gilda, heldur er þetta hugsað þannig, að fyrst séu bæturnar reiknaðar samkv. l. um sjóðinn fyrir hvern togara, eins og l. um aflatryggingasjóðinn segja til, síðan séu þessar upphæðir aliar lagðar saman í heild og útkomunni síðan deilt á úthaldsdaga togaranna og gert upp við hina einstöku togara samkv. því. Þetta kemur til af því, að það er erfitt að meta afkomu togaranna beinlínis eftir afla, því að þeir hafa mismunandi aðstöðu til þess að komast af, þó að aflinn geti verið jafn í tonnatali, vegna þess að með sumt af aflanum er siglt til útlanda og selt beint, annað er lagt hér á land og fyrir alls ósambærilegt verð. Togaraeigendur hafa óskað eftir því, að sami háttur yrði hafður á þessum greiðslum úr aflatryggingasjóði nú og var hafður í fyrra, þannig að þeirri heildarupphæð, sem kemur út, þegar búið er að deila niður aflatryggingasjóðsbótunum á hvern togara, verði þá skipt í hlutfalli við þann dagafjölda, sem þeim hefur verið haldið úti. Þetta er að þeirra dómi eðlilegra og hagkvæmara fyrir þá og þeir óska eindregið eftir því, að þessi háttur verði hafður á.
Þetta eru þau þrjú efnisatriði, sem í frv. felast, og ég verð nú að segja það, að í hv. Nd. var ekki mikill ágreiningur um þau í sjálfu sér. En það, sem mest var rætt um í þeirri hv. d. í sambandi við þetta frv., var eitt atriði í grg. frv., þar sem sagt er, að ríkissjóður þurfi með einum hætti eða öðrum að afla sér fjár til þess að greiða þau útgjöld eða standa undir þeim útgjöldum, sem í þessu frv. felast og sömuleiðis þeim útgjöldum, sem leiðir af 6,6% launahækkun opinberra starfsmanna, sem samið var um snemma á þessu ári. Sú útgjaldahækkun fyrir ríkissjóðinn er áætluð 65 millj. kr. Þessi útgjöld, sem leiðir af þessu frv., eru, eins og ég sagði, áætluð 55 millj. kr., þannig að heildarútgjöld ríkissjóðs vegna þessara tveggja liða verða um 120 millj. kr. Þessarar upphæðar er hægt að afla á tvennan hátt. Það er hægt að afla hennar með því að leggja á nýjan skatt fyrir henni og það er líka hægt að afla hennar með því að draga úr útgjöldum ríkissjóðsins, því að það vita sjálfsagt allir hv. þm. þessarar d., að fjárl., eins og gengið var frá þeim á sínum tíma, voru svo þröng, að það eru engar líkur til þess, að hægt verði að taka þessi útgjöld á ríkissjóðinn, án þess að nokkurra tekna verði aflað á móti, ef á að komast hjá því, að ríkisbúskapurinn verði rekinn með halla á árinu. Ríkisstj. hefur þess vegna ákveðið, að til þess að jafna þessi met og ná þessum 120 millj., sem nauðsynlegar eru í þessa tvo staði, skuli verklegar framkvæmdir ríkisins verða lækkaðar á árinu 1965 um 20%. Greiðslur til verklegra framkvæmda á fjárl. 1965 nema samtals um 600 millj, kr. og ef 20% verður skorið niður af því eða frestað, eins og réttara er að segja, þar til síðar, spöruðust þar u.þ.b. þær 120 millj., sem nauðsynlegar eru í þessu skyni. Heimild til þessarar frestunar er veitt í fjárl., eins og þau voru afgreidd rétt fyrir áramótin og þarf þess vegna út af fyrir sig enga nýja lagaheimild til þessarar frestunar. Ég held, að ég þurfi ekki að hafa um frv. fleiri orð. Það er mjög einfalt, þessi þrjú efnisatriði, sem ég lýsti, enda voru þau út af fyrir sig lítið rædd í hv. Nd., heldur kom mönnum ekki saman um það, hvernig teknanna skyldi aflað eða möguleikar yrðu fundnir til þess að inna þessa greiðslu af höndum, en það er strangt tekið, að segja má, kannske ekki efni þessa frv., þó að það sé afleiðing af því.
Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.