20.04.1965
Efri deild: 70. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1060 í B-deild Alþingistíðinda. (914)
154. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Í janúarmánuði s.1., þegar endanlega var ákveðið, hvað fiskverð skyldi vera á yfirstandandi ári, gaf ríkisstj. þá yfirlýsingu, að hún mundi leita heimildar Alþingis til þess að greiða úr ríkissjóði á árinu 1965 25 aura verðuppbót á hvert kg línu- og handfærafisks. Jafnframt skýrði ríkisstj. fulltrúum fiskseljenda og fiskkaupenda frá, að hún mundi stuðla að því, að frystihúsunum yrði á árinu 1965 bætt upp sú aukning framleiðslukostnaðar, sem leiddi af hækkun fiskverðsins, en það var 51/2 %. Gert er ráð fyrir, að 25 aura verðuppbótin á línu- og handfærafisk muni nema um 22 millj. kr. og bætur til frystihúsanna, sem eru 51/2 % af hráefnisverðinu, séu um 33 millj. kr., eða samtals 55 millj.
Með hliðsjón af þessu hefur ríkisstj. borið fram frv. það, sem hér liggur fyrir og er um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins. Sjútvn. þessarar hv. d. hefur rætt málið á fundum sínum og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess með þeirri breytingu, sem fram kemur á þskj. 482, en þar segir, með leyfi forseta:
„1. Á eftir 2. gr. komi ný gr., svo hljóðandi: Á árinu 1965 heimilast að greiða úr ríkissjóði til skreiðarframleiðenda 10 millj. kr. til verðuppbóta á útflutta skreiðarframleiðslu, eftir reglum, sem sjútvmrh. setur.
2. Á eftir 3. gr. komi ný gr., svo hljóðandi: Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Þó er sá fyrirvari, af hendi þriggja hv. nm., eins og fram kemur í nál., að þeir áskilja sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma við afgreiðslu málsins.
Eins og fram kom í ræðu hæstv. sjútvmrh. við framsögu fyrir máli þessu við 1, umr. í þessari hv. d., taldi hann, að til viðbótar því, sem þegar væri ákveðið um línu- og handfærafiskinn og því, sem varið verður til framleiðniaukningar í hraðfrystihúsunum, gæti einnig til þess komið, að vegna þess; hve sala og verðlag skreiðarframleiðslunnar væru erfið, gæti til þess komið, að það yrði með einhverjum hætti að styrkja þá framleiðslu einnig. Sjútvn. er þeirrar skoðunar, að ekki verði hjá því komizt að viðurkenna þessa staðreynd og leggur því til, að í frv. komi ný gr., sem felur það í sér, að á árinu 1965 verði heimilt að greiða úr ríkissjóði til skreiðarframleiðenda 10 millj. kr. Eins og ég áðan sagði, er gert ráð fyrir því í frv. þessu, að verja þurfi 22 millj. kr. til uppbóta á línu- og handfærafisk. Síðan þessi áætlun var gerð, hefur orðið á allmikil breyting frá því, sem fyrirhugað var, a.m.k. hvað línufisk snertir. í fyrsta lagi var sem kunnugt er allan janúarmánuð verkfall á bátaflotanum hér í Faxaflóa og víðar, en það er sá tími, sem línuveiðar eru hér helzt stundaðar, en vegna þessa þótti mörgum útgerðarmönnum ekki borga sig að hefja línuveiðarnar, en hófu þess í stað netaveiðar fyrr en ella. Þá má geta þess, að við Norðurland hefur nú um meira, en tveggja mánaða skeið legið að mestu niðri allur veiðiskapur vegna hafíssins, sem þar herjar. Það segir sig sjálft, að það hefur einnig veruleg áhrif á heildaraflamagnið.
Ég aflaði mér upplýsinga um það hjá Fiskifélagi Íslands, hvað gera mætti ráð fyrir, að þessi aflarýrnun hefði í för með sér miðað við heildarupphæðina til greiðslu verðuppbóta á línufiskinn. Við athugun á þeim aflaskýrslum, sem fyrir hendi voru, en það var fyrir fyrstu tvo mánuði ársins, janúar og febrúar, kom í ljós, að heildarlínuaflinn var um helmingi minni en á sama tíma s.1. ár. En við aflamagn s.1. árs er miðað, þegar talað er um 22 millj. til verðbóta á línu- og handfærafisk. Fyrir þetta tímabil koma því til með að lækka greiðslur úr ríkissjóði um 3–31/2 millj. kr. af þessum sökum. Það má því gera ráð fyrir, að nokkuð af þeirri upphæð, sem verja skal til skreiðarframleiðslunnar samkv. till. n., verði fyrir hendi vegna þessa samdráttar, sem átt hefur sér stað í línuaflanum, eins og ég áðan sagði.
Ég vil að lokum segja það, að ég tel, að það ákvæði, sem er í 1. gr.,þessa frv., þ.e. sérstök verðuppbót á línu- og handfærafiskinn, þó að það sé ekki nema 25 aurar á hvert kg, sé mikilsverð ákvörðun, sem beri að fagna, þ.e. að verðlauna sérstaklega þann sjávarafla, sem að allra dómi hefur tryggt bezt þau meðmæli, sem íslenzki fiskurinn hefur áunnið sér á erlendum markaði.
Herra forseti. Ég vil svo leyfa mér að óska þess, að brtt. n. hljóti samþykki og frv. þannig breytt verði samþ. og vísað til 3. umr.