27.04.1965
Efri deild: 72. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1065 í B-deild Alþingistíðinda. (918)

154. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Eitt af mörgu, sem núv. hæstv. ríkisstj. hafði skráð á skjöld sinn, þegar hún reið úr hlaði var, að hún ætlaði að afnema allar uppbætur. Og eitt af mörgu, sem hún hefur kiknað á að standa við, er afnám uppbótanna. Ekki er ég beinlínis að lá hæstv. ríkisstj. þetta. Hitt er það, að henni og fylgismönnum hennar er skylt að kannast við þetta og hafa samræmi í uppbótakerfinu jafnhliða. Og þegar ástandið er þannig, að hæstv. ríkisstj. hefur engin úrræði önnur, en auka við uppbótakerfið, eins og hún hyggst gera með þeirri lagasetningu, sem hér er til 3. umr., á hún að bíta á jaxlinn og hafa uppbæturnar til sjávarútvegsins, sem þar um ræðir, svo að verulegu gagni verði. Ég skil það vel, að hæstv. ríkisstj. og stuðningslið hennar finnur sárt til þess að þurfa að strika yfir sín stóru orð um afnám uppbóta og fara nú að lifa á uppbótakerfi, sem þessir menn höfðu fordæmt og gengið til kosninga og hlotið meiri hluta m.a. upp á það, að þeir kynnu ráð til að afnema uppbætur. Ég veit, að þeir gera það ekki að gamni sínu í sæmilega hagstæðu tekjuári að skera niður 1/5 hluta af nýlega gefnum fyrirheitum um framkvæmdafé á fjárl. til þess að greiða með því uppbætur. Þetta er vitanlega neyðarúrræði, þetta er óáran í stjórnarfarinu, þó að það sé ekki óáran að öðru leyti. Það má líkja þessu við að skera af líkama lifandi hold og flytja til vegna slysasára. Það er ekki sársaukalaust og enginn gerir það, nema hann sjái ekki önnur ráð. En úr því að til þess er gripið, á að vanda sig við það betur, en að mínu áliti er gert í þessu frv.

Ákveðið er samkv. 1. gr. frv. þessa, að greiddar skuli á hvert kg línu- og handfærafisks uppbætur, sem nema 25 aurum. Samkv. 2. gr. má verja 33 millj. kr. 1965 til framleiðniaukningar frystihúsa og annarra endurbóta við framleiðslu frystra fiskafurða. Á stofnlánadeild sjávarútvegsins að úthluta fé þessu í samráði við Landsbankann og Útvegsbankann eftir reglum, sem sjútvmrh. setur.

Ekki veit ég, hvernig þær reglur verða. Þó þykist ég vita, að þær geti ekki orðið þannig, að þær komi svo sem vera þarf til hjálpar þeim frystihúsum, sem eru af staðháttum þannig sett, að þau verða að taka á móti og vinna úr þeim afla, sem fyrirhafnarmestur er og dýrastur í vinnslu og leggur sig verst í flökun. Á ég þar við smáfisk og fisktegundir, sem svara illa til verðs miðað við vinnslukostnað. Sum frystihús, einkum á vissum árstíðum, verða að taka þann fisk til vinnslu og það jafnvel sem meginverkefni. Þann aðstöðumun, sem þannig verður til, fá fyrirtækin ekki jafnaðan með framleiðni aukningartillagi eða endurbótastyrk. Sá stuðningur er við annað miðaður fyrst og fremst en erfiðleikana, sem vissar tegundir hráefnisins skapa.

Fyrir tíma núv. hæstv. ríkisstj. voru greiddar uppbætur á þann fisk, sem hér um ræðir. Það fyrirkomulag var ekki gallalaust. En þessi uppbót var sumum sjávarplássum og frystihúsum þeirra stórkostleg hjálp. Þessar verðbætur jöfnuðu aðstöðumun milli staða og voru því mikilsverðar, ekki aðeins fyrir þá, sem á móti þeim tóku, heldur líka mikilsverðar þjóðfélagslega. Þetta var í reynd nokkurs konar staðaruppbót og stuðlaði því að byggðajafnvægi. Þegar hæstv. núv. ríkisstj. sagði öllum uppbótum stríð á hendur, felldi hún niður þennan réttláta jafnvægisstuðning. Nú hefur hún samið frið við uppbæturnar og yfirleitt gengið uppbótakerfi á hönd og nú á hún þess vegna og stuðningsmenn hennar að taka upp jafnvægisuppbæturnar aftur. Þetta hefur láðst, þegar stjórnarfrv. um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins var samið. Þetta vantar í frv. Þess vegna höfum við hv. 3. þm. Norðurl. v. leyft okkur nú við 3. umr. að leggja fram brtt. á þskj. 499 um, að aftan við 2. gr. frv. komi svo hljóðandi mgr.:

„Enn fremur leggur ríkissjóður fram á árinu 1965 10 millj, kr., er verja skal til að greiða vinnslustöðvum, sem hafa erfiða rekstraraðstöðu, vinnsluuppbætur á smáfisk, á tilteknar fisktegundir og fisk veiddan á vissum tímum árs eftir reglum, sem rn. setur að fengnum till. Fiskifélags Íslands og Landssambands ísl. útvegsmanna.“

Leggi ríkissjóður fram 10 millj. á þessu ári í umræddu skyni og verði þessari fjárfúlgu skynsamlga skipt milli þeirra vinnslustöðva sjávarútvegsins, er erfiðasta hafa rekstraraðstöð, er enginn vafi á því, að það yrði mikil jafnvægishjálp.

Fyrir fáum dögum heyrðist frá landsfundi útvegsmanna og fiskverkenda svo mikið ramakvein, að úr þeirri átt hefur ekki annað eins áður heyrst. Ég held, að nú eftir þann fund ætti enginn alþm. að skoða hug sinn um að samþykkja þessa till: Og nú er fram komið, að hafísinn hefur eyðilagt útmánaðaaflabrögðin þetta ár einmitt á mörgum þeim stöðum, sem hafa erfiðasta aðstöðu fyrir frystihús sín, þó að venjulegt árferði sé. Þeir atburðir gera að mínu álíti hv. þm. skylt að samþykkja þessa till.