27.04.1965
Efri deild: 72. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í B-deild Alþingistíðinda. (919)

154. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins

Gils Guðmundsson:

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls gerði ég nokkra grein fyrir afstöðu minni og gat þess þá, að enda þótt ég væri frv. í sjálfu sér fylgjandi, kynni ég að flytja brtt. fyrir 3. umr. málsins. Ég hef nú leyft mér á þskj. 498 að bera fram tvær brtt., og snerta þær báðar aðstoð við togaraútgerð landsmanna. Ég gerði grein fyrir þeim atriðum; sem þessar till. fjalla um, við 2. umr. málsins og skal þar af leiðandi spara mér öllu frekari greinargerð þar um, en vil þó aðeins með örfáum orðum drepa á efni þessara brtt.

Hin fyrri fjallar um það, að þegar ákveðinn skal rekstrarstyrkur til togara, skuli gera mun á því, hvort þeir veiða fyrir innlendan eða erlendan markað. Rökin, sem að því hníga að veita hærri rekstrarstyrk til þeirra togara, sem veiða fyrir innlendan markað, eru að sjálfsögðu þau, að sá afli, sem þannig kemur á land og er unninn hér, er þjóðhagslega séð meira virði, en hinn aflinn, sem fer beint óunninn á hinn erlenda markað. Það hefur sýnt sig hvað eftir annað, einkum áður fyrr, meðan togararnir lögðu í verulegum mæli upp afla sinn hér heima til vinnslu í hraðfrystihús, að einmitt á þeim árstímum, þegar var á milli vertíða hjá bátaflötanum, munaði stórlega um afla togaranna. Hann jók atvinnu í sjávarplássunum og gerði rekstrargrundvöll hraðfrystihúsanna öruggari og traustari, en hann hefði ella orðið. Nú á síðustu tímum hefur dregið mjög úr því, að togararnir legðu upp afla sinn hér til vinnslu og ástæðan er sú, að fyrir útgerðina er hitt í mörgum tilfellum hagkvæmara, eins og sakir standa, að sigla með aflann og selja hann þar. En með því að gera þarna allmikinn mun á rekstrarstyrk, mundi mega stuðla að því, að togarar legðu í auknum mæli upp áfla sinn til vinnslu hér, sem er tvímælálaust í flestum tilfellum hagkvæmara fyrir þjóðarbúið heldur, en að sigla beint með aflann.

Síðari brtt. mín hljóðar um það, að hæstv. ríkisstj. skuli falið að skipa 5 manna n., sem geri till. til Alþ. um ráðstafanir til þess að koma togaraútgerð landsmanna á rekstrarhæfan grundvöll. Ég hef fyrir skömmu hér í þessari hv. d. fjallað um það, hversu mikils virði það hefur verið fyrir okkur að hafa hér lengi getað rekið blómlega togaraútgerð og ég hef lagt á það áherzlu, að ég teldi það mjög mikið tjón fyrir íslenzkan sjávarútveg, ef togáraútgerð héðan þyrfti að leggjast niður og ef ekki yrði hægt að yfirvinna þá tímabundnu erfiðleika, sem hafa verið og eru nú um sinn á rekstri togara. Þar kemur að sjálfsögðu margt til greina, þegar litið er til framtíðarinnar og þá ekki sízt það, að við verðum að horfast í augu við, að í dag erum við með gömul skip í flestum tilfellum. Togaraflotinn er að verða og orðinn gömul skip og úrelt að mörgu Ieyti og að sjálfsögðu þarf hann að endurnýjast og taka nútíma tækni í þjónustu sína, eins og hann hefur gert oft og tíðum áður fyrr. Og sú endurnýjun á að mínu viti að dreifast á nokkurn tíma. Það er óhentugt að þurfa að endurnýja mikinn hluta flotans í einu. Hitt er hentara, að slík endurnýjun komi smám saman, en ekki í stökkum. En ýmsar ráðstafanir mundi vafalaust vera hægt að gera til þess að auðvelda rekstur þeirra togara, sem við eigum þó enn þá og gengur í erfiðleikum með að halda úti. Og raunar hefur verið bent á ýmsa hugsanlega möguleika í því sambandi.

Þar sem hæstv. sjútvmrh. er nú hér viðstaddur í d., vildi ég aðeins minnast á eitt atriði, sem ég gerði að umtalsefni við 2. umr., þegar hann var fjarverandi, eitt atriði, sem ætti að geta orðið togaraútgerðinni nokkur stuðningur og jafnvel veruleg lyftistöng, ef vel tækist til. Það er stóraukin fiskileit með þarfir togaranna alveg sérstaklega fyrir augum. Það var ákveðið á s.1. ári að auka þessa fiskileit með sérstöku tilliti til togaranna og var það vissulega vel ráðið. Hins vegar hefur frétzt, að ýmsir örðugleikar hafi komið upp í sámbandi við framkvæmd þessarar ákvörðunar og þá minnist ég þess, að fyrir rúmum mánuði, seint í marzmánuði, nánar tiltekið hinn 25. marz s.1., birtist í einu dagblaðanna, dagblaðinu Vísi, viðtal við Jakob Magnússon fiskifræðing, sem hefur haft með að gera undirbúning og framkvæmd þessarar fiskileitar og það upplýstist,m. a., að í meira en mánuð þá á undan, hefði fiskideildin verið að leitast við að fá mannskap á þann togara, sem fenginn hafði verið til fiskileitárinnar, togarann Þorstein þorskabít, en það hefði ekki tekizt og togarinn hefði þess vegna ekki farið í fiskileitina og frá því var skýrt í þessu viðtali, að nú hefði fiskideildin gefizt upp á því að leysa þetta verkefni. Það kom einnig fram og vakti athygli mína í þessu viðtali, að í sambandi við ráðningu manna á þetta leitarskip hefði verið leitað bæði til sjómannasamtakanna og Félags botnvörpuskipaeigenda varðandi, skildist mér, annars vegar vinnutíma eða fjölda manna á skipinu, ekki veit ég, hvort heldur var og þá hins vegar sennilega kaup og kjör, og eins og haft er eftir fiskifræðingnum í þessu viðtali. Við reyndum á sínum tíma að ná samkomulagi við sjómannasamtökin um breyttan hvíldartíma og við Félag botnvörpuskipaeigenda um frekar hátt kaup, en hvorugt tókst. — Mér þætti æskilegt að fá um það upplýsingar af hálfu hæstv. sjútvmrh., í fyrsta lagi, hverjar orsakir vorú til þess, að svona erfiðlega gekk að gera út þetta leitarskip, sem jafnframt átti að vera rannsóknarskip, átti að hafa það með höndum að rannsaka, að mér skilst, nýja gerð veiðarfæra, sem töluverðar vonir voru bundnar við og í öðru lagi, hvernig þessi mál standa nú, hvort tekizt hefur að leysa þennan vanda, hvort skipið er farið af stað til rannsóknar og leitar.

Mér er ekki grunlaust um; að eitt af því, sem kann að hafa valdið erfiðleikum í sambandi við það að koma togaranum Þorsteini þorskabít út í þessa rannsóknarleiðangra og fiskileitarleiðangra, sé það, að það kaup og þau kjör, sem boðin voru, hafi ekki verið nægilega hagstæð til þess að leysa vandann með að fá mannskap á skipið. Það er vitanlegt, að til þess að árangurs megi vænta af starfsemi eins og þessari, af fiskileit og rannsóknum á nýjum veiðarfærum, sem eru a.m.k. ný hér á landi, þarf margt að fara saman. Það þarf til þess gott skip og ég satt að segja efast um, að togarinn Þorsteinn þorskabítur sé alls kostar hentugur til þeirra hluta, þar sem hann er með minnstu togurum okkár. Það þarf góða yfirmenn og góða skipshöfn að öllu leyti og útbúnað í samræmi við það, til þess að árangur náist. Mér skilst, að það hafi, fyrst og fremst staðið á því að fá háseta á skipið, að kaupið og kjörin, sem boðin voru, hafi ekki verið nægilega viðhlítandi til þess að fá góðan mannskap á skipið. Fastakaup á togurum, sem eru við almennar veiðar, mun nú vera, að því er ég bezt veit, um, 6000 kr. á mánuði og það má gera ráð fyrir, að á þeim veíðum, sem nú eru stundaðar og með heldur tregan afla, eins og oftast hefur verið að undanförnu, má gera ráð fyrir að, að meðaltali séu aflaverðlaunin jafnmikil eða aðrar 6000 kr., þannig að heildartekjur togarasjómanna á mánuði undanfarinn tíma, sem í flestum tilfellum hefur verið erfiður, afli lítill, háfi verið um 12 þús. kr., en á þeim skipum, sem vel hefur gengið, hefur hann hins vegar verið nokkru meiri á mánuði.

Við síldarleit hygg ég, að nú sé samið um fast káup, bæði þá síldarleit, sem fram fer fyrir Norður- og Austurlandi að sumrinu og sömuleiðis þá leit, sem framkvæmd er fyrir Suður- og Vesturlandi á öðrum árstímum, muni vera um að ræða fast kaup um 12 þús. kr. fyrir háseta á mánuði. Ég hygg, að það sé vonlítið að fá skipverjá á fiskileitar- og hálfgert fiskiathugana- eða veiðarfærarannsóknarskip, sem yrði tryggð öllu minni mánaðarlaun og það föst mánaðarlaun, heldur en hér er um að ræða við síldarleitina. Ég veit ekki, hvað hefur verið í boði, en ég tel líklegt, að það hafi ekki verið um að ræða þessi kjör, þannig að örugg væru, heldur hafi það verið eitthvað minna. En það er enginn efi á því, að fiskileitarskip, sem er vel útbúið og með góðri áhöfn og hefur það að aðalstarfi sínu að leita að fiski og fiskimiðum í þágu togaranna, en jafnframt tæki að sér að prófa nýjungar í sambandi við veiðar og veiðarfæri, er eitt af því, sem nú í bili gæti orðið einna mest lyftistöng fyrir togaraútgerðina í þeim erfiðleikum, sem hún á í nú um sinn.

Ég skal ekki fjölyrða meira um þetta mál, en vildi mega vænta þess, að hæstv. ráðh. upplýsti, hvernig gengið hefði með þessa fiskileit í þágu togaranna og hvernig það mál líti út nú.