28.04.1965
Neðri deild: 74. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1092 í B-deild Alþingistíðinda. (943)

157. mál, Myndlista- og handíðaskóli Íslands

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Handíðaskólinn hefur starfað í Reykjavík síðan 1939. Á þessum árum hafa um 6.000 manns sótt í hann margvíslega kennslu og eru þar bæði áhugamenn í ýmsum listgreinum og kennaraefni í teikningu eða vefnaði og verðandi listamenn.

Skólinn hefur unnið sér vaxandi hefð, vinsældir og viðurkenningu. Hann varð upprunalega til, eins og margar menningarstofnanir hér á landi, fyrir fórnfúst áhugastarf einstakra manna. Nú er hann orðinn það stór og hlutverk hans það mikið, að tími er kominn til að setja hann á fastan grundvöll. Með þessu frv. er lagt til, að sett séu föst lög um skólann, ríkisvaldið taki að sér yfirstjórn hans og beri meginhluta af kostnaði, en Reykjavíkurborg beri nokkurn hluta af kostnaði, og er um það samkomulag milli þessara aðila. Málið hefur verið afgreitt með samkomulagi í Ed. Menntmn. þessrar hv. d. mælir einróma með því, að það verði samþ.