26.04.1966
Efri deild: 72. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1182 í B-deild Alþingistíðinda. (1003)

20. mál, verðtrygging fjárskuldbindinga

Frsm. minni hl. (Helgi Bergs):

Herra forseti. Það er aðeins örlitil aths. — Það, sem hv. 8. þm. Reykv. sagði í upphafi síðari ræðu sinnar, átti vist fullan rétt á sér. Það var rétt, sem hann benti á, að nokkur athugun á þessum málum hefur vissulega farið fram. Mér var fyllilega kunnugt um það, að till. um þessi mál hafði verið samþ. á árinu 1953, og mér var líka kunnugt um það, að nokkrum árum síðar hafði einhver athugun farið fram á þessu máli. En ég held, að ég hafi sagt í ræðu minni áðan, að till. okkar um rannsókn á þessum málum og athugun nú á síðari árum hafi ekki náð samþykki, þar af leiðandi hafi þær athuganir, sem þær gerðu ráð fyrir, ekki farið fram. Hefðu þær athuganir farið fram, hefði þetta frv. verið betur undirbúið en raun ber vitni. Ég skal sízt gera lítið úr því, að það hafi verið merk álitsgerð, sem hv. þm. gerði. Hann sagði nú að vísu sjálfur, að það mundi ekki hafa verið neitt gagnmerkt plagg, en ég vil halda, að það hafi verið gagnmerkt, en ég hef bara ekki séð það. Og mér vitanlega hefur skýrslan ekki verið birt, og eftir því sem fram kom hjá hv. þm., mun hún aðallega hafa snúizt um þann þátt þessara mála, sem lýtur að lífeyrissjóðum, þó að hún hafi komið eitthvað inn á aðra þætti málsins.