29.04.1966
Neðri deild: 81. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í B-deild Alþingistíðinda. (1019)

113. mál, ríkisreikningurinn 1964

Frsm. meiri hl. (Davíð Ólafsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta mál til meðferðar, og eins og fram kemur á nál. á þskj. 633, mælir n. með, að frv. verði samþ. Einn nm., Einar Ágústsson, mun skila séráliti, sem hefur ekki verið útbýtt enn, og tveir nm., þeir Lúðvík Jósefsson og Jón Kjartansson, skrifa undir nál. með fyrirvara.