14.10.1965
Neðri deild: 3. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1205 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)

12. mál, iðnfræðsla

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Það verður að sjálfsögðu verkefni fjvn. og Alþingis í heild að taka ákvarðanir um það á sínum tíma, hverjar fjárveitingar skulu veittar til byggingar iðnskóla og verknámsskóla, þegar þessi lög hafa verið afgreidd.

Varðandi síðari spurningu hv. þm. vil ég aðeins segja það sem mína persónulegu skoðun, að ég tel ákvæði um fjárveitingar til framkvæmda ekki eiga heima í almennri löggjöf. Þau eiga heima í fjárlögum. Ég tel, að þeirri stefnu eigi að fylgja í þessu máli og öllum öðrum, að ákvæði um fjárveitingar séu í fjárlögum, en ekki í almennri löggjöf.