14.10.1965
Neðri deild: 3. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1207 í B-deild Alþingistíðinda. (1035)

12. mál, iðnfræðsla

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég held nú satt að segja af því, sem hæstv. menntmrh. sagði hér áðan, að þá sé hann farinn að hugsa svo mikið um landbúnaðinn, að hann sé eiginlega búinn að gleyma öllu öðru, því að hæstv. ráðh. komst að þeirri niðurstöðu, að það mætti alls ekki ákveða vissar fjárveitingar í sérstökum lögum, heldur yrði eingöngu að gera það í fjárlögum. Ég þori næstum því að segja, að á hverju þingi, sem hæstv. menntmrh. hefur setið á, hefur hann greitt atkvæði með fjárveitingum, sem hafa verið ákveðnar með sérstökum lögum, en ekki fyrst og fremst í fjárlögum, og ég hélt, að hæstv. menntmrh. væri það vel kunnugur fjárlögunum, að hann viti það, að mjög stór hluti fjárlaganna, sennilega meiri hluti þeirra útgjalda, sem þar er ákveðinn, er lögbundinn fyrir fram, er ákveðinn með sérstökum lögum, og þess vegna verður menntmrh., þegar hann undirbýr sinn hluta fjárlaganna, að fara eftir því, sem þessi lög mæla fyrir um. Hér er ekki um annað að ræða í því, sem ég sagði, heldur en að fylgja fordæmum, sem eru fjöldamörg til og allir hv. þm. vita um og hafa greitt atkv. með mörgum sinnum, því að eins og ég áðan sagði er mikill meiri hluti þeirra útgjalda, sem eru á fjárlögum, lögbundinn fyrir fram í einstökum lögum. En það, hvort menn vilja lögbinda ákveðnar upphæðir í sérstökum lögum eða ekki, það fer að sjálfsögðu ákaflega mikið eftir þeim áhuga, sem þeir hafa á viðkomandi máli. Ef menn hafa áhuga á viðkomandi máli og vilja tryggja framkvæmd þess, lendir það ekki aðeins í fjárlögum, heldur í sérstökum lögum, vegna þess að það er miklu meiri trygging fyrir framkvæmdinni en fjárlagaákvarðanir, sem aðeins eru bundnar við eitt ár, ef þær eru ekki ákveðnar í sérstökum lögum einnig. Þess vegna skil ég það ekki, ef hæstv. ráðh. hefur áhuga á því, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, ef að lögum verði, verði eitthvað annað og meira en hrein pappírslög, þá skil ég það ekki, hvers vegna hann hefur á móti því, að í lögunum sjálfum yrði ákveðin föst fjárveiting til þessara mála til að tryggja það, að lögin verði framkvæmd, en það verði ekki háð hreinum tilviljunum síðar meir í sambandi við afgreiðslu fjárlaga, hvort nokkuð verður úr framkvæmd laganna eða ekki.