07.03.1966
Efri deild: 46. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1221 í B-deild Alþingistíðinda. (1047)
12. mál, iðnfræðsla
Helgi Bergs:
Herra forseti. Ég vil ekki láta 1. umr. þessa máls fara hjá án þess að segja um það örfá orð, þótt ekki væri til annars en að láta í ljós ánægju mína yfir því, að þetta mál. sem liggur nú öðru sinni fyrir hv. Alþ. og hefur verið í undirbúningi í allmörg ár, er nú komið á það stig, sem raun ber vitni. Iðnfræðslan hér á landi hefur, frá því að hún fyrst tók að mótast, sem varla verður talið, að hafi verið fyrr en á þessari öld, mótazt mjög eftir dönskum fyrirmyndum, og þó að ég skuli sízt draga úr því, að við getum tekið þá merku og dugmiklu þjóð okkur til fyrirmyndar í ýmsum efnum, er ég ekki viss um, að hún hafi verið mjög góð fyrirmynd einmitt á þessu sviði. Iðnnámið hafði þar eins og víða um Evrópu mótazt á mörgum öldum. Mótun þess á rætur sínar aftur í miðöldum, en þar með byggðust upp erfðavenjur kynslóð fram af kynslóð, sem urðu til þess að skapa grundvöll undir iðnþróun nútímans í þessum löndum. Hér á landi höfðum við, þegar iðnaðarmenn, handverksmenn, fóru fyrst að hasla sér völl, ekki neinar slíkar erfðavenjur, og okkar form á þessum málum var þess vegna eftirlíking af því, sem við þekktum annars staðar frá og tókum upp hjá okkur einmitt um það leyti, sem tækniþróunin var að gera þau form úrelt hjá nágrönnum okkar.
Vélvæðing nútímans og framleiðsluhættir 20. aldarinnar gera að sjálfsögðu allt aðrar kröfur til tæknilegrar þekkingar hjá miklum þorra þjóðarinnar en áður hefur verið. Og á því er enginn vafi, sem hæstv. menntmrh. tók hér fram, að með þessu frv. er stigið stórt skref fram á við, stórt skref í rétta átt í þessum málum. Að mínum dómi hefði þetta frv. mátt vera róttækara. Það hefði mátt ganga lengra í þá átt að efla þá tæknilegu fræðslu fyrir ungu kynslóðina, sem óháð er hinu hefðbundna iðnnámi. Og sjálfsagt eru ýmis atriði þar sem skoðanir geta í einstökum atriðum verið skiptar um, hversu langt eigi að ganga. En ég geri ráð fyrir því, að menn muni nú vera hikandi við að bera fram brtt. við þetta frv., úr því að það er komið á þetta stig eftir erfiða fæðingu og er tvímælalaust til mikilla bóta.
Efni frv. er svo vel þekkt, að ég ætla ekki að fara að ræða um það í einstökum atriðum, en mig langar að segja örfá orð í tilefni af þeim breytingum, sem gerðar hafa verið á málinu í hv. Nd., breytingum, sem ég í aðalatriðum tel til bóta.
Í niðurlagi nál. hv. menntmn. Nd. segir: „Smávægileg breyting er lögð til á 20. gr. Það er skilningur n., að iðnskólar skuli vera opnir nemendum, sem þá vilja sækja, enda þótt þeir stundi ekki iðnnám eftir samningi við meistara.“ Þessi smávægilega breyting, sem nál. nefnir svo, er að mínum dómi ákaflega veigamikil. En hún er lítil fyrirferðar, því að þar er aðeins um að ræða að breyta orðinu „og“ í orðið „eða“. Í 20. gr. segir: „Skylt er að taka í iðnskóla til iðnnáms alla þá í umdæmi skólans, sem gert hafa löglega námssamninga“ — og frv. eins og það var, segir: „og fullnægja að öðru leyti settum skilyrðum.“ Þessi setning, eins og hún var, gefur greinilega í skyn, að löglegir námssamningar séu skilyrði fyrir upptöku í iðnskóla, og breyting sú, sem gerð var á þessari gr. í Nd., að taka af tvímæli um það, að það sé ekki meiningin, þetta atriði er að mínum dómi svo veigamikið, að ég álit, að það væri æskilegt, að hv. n., sem fær þetta frv. til meðferðar, gangi úr skugga um það, að þessi breyting, sem gerð var í hv. Nd., sé fullnægjandi til þess að taka af öll tvímæli um þetta efni.
Í 22. gr. er rætt um almenn inntökuskilyrði í verknámsskóla og iðnskóla, og þar er ekki gert ráð fyrir námssamningi sem skilyrði fyrir því, og styður það ásamt þeirri breyt., sem gerð var á frv. í Nd., að því, að um þetta eigi ekki að vera nein tvímæli í frv.
Í Nd. var einnig gerð sú breyt. að heimilað var að reka áfram þá skóla, sem nú eru reknir, umfram þá 8, sem frv. gerir ráð fyrir, og fullnægja nánar tilteknum skilyrðum. Ég álit, að þessi breyting hafi verið nauðsynleg og rétt. Það er að vísu hafið yfir allan vafa, að það væri æskilegt að geta haft skólana fáa, til þess að þeir gætu orðið stórir og öflugir og haft yfir að ráða dýrum og fullkomnum tækjum. En það verður líka að gá að þeim praktísku skilyrðum, sem við er að fást. Það á ekki sízt við þann skóla, sem á undanförnum árum hefur verið rekinn í Vestmannaeyjum og hefur haft fleiri nemendur en gert er ráð fyrir, að hinir nýju skólar geti haft í sumum kjördæmum landsins, og þar sem aðstaða er slík, að mjög torvelt er að sækja skóla annars staðar.
Sú breyting n. í Nd. að leggja ráðh. þá skyldu á herðar að láta skólana einbeita kröftum sínum að sérstökum greinum, til þess að skapa á milli þeirra verkaskiptingu, er einnig að mínum dómi mjög þýðingarmikil. Með þeim hætti er fært að láta fara fram milli skólanna eins konar nemendaskipti, þar sem nemendur, sem stunda nám sitt við einn skóla að mestu leyti, gætu flutt sig til annars um tíma til þess að taka þátt í sérstökum greinum, sem þar væru lengra á veg komnar.
Þriðja atriðið, sem breyting var gerð á í Nd. og ég álít, að sé mjög þýðingarmikið atriði, lýtur að yfirstjórn þessarar fræðslustarfsemi. Frv., eins og það lá fyrir, sló því föstu, að iðnfræðslu skyldi að öllu leyti heyra undir menntmrn., en ekki undir fleiri rn., eins og áður hafði verið. Þetta ákvæði var að sjálfsögðu mjög til bóta, og það er skoðun mín, að það sé til mikils tjóns fyrir skólakerfið í landinu, að það skuli ekki vera fellt undir eina yfirstjórn að öllu leyti, heldur falla undir ýmis önnur rn. — einstakir þættir þess. Auðvitað ættu öll fræðslumál í landinu að heyra undir eina stjórnardeild.
Við höfum raunar hliðstæð vandamál á öðrum sviðum. Mér dettur í hug í þessu sambandi að minnast á eitt vandamál, sem nýlega hefur orðið til, af þessu tagi. Í fyrra voru samþ. hér á hv.
Alþ. lög um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, sem gera ráð fyrir fimm stofnunum, sem heyra undir nærri því hver sitt rn., í stað þess að þær ættu allar að heyra undir eina stjórnardeild, eins og skynsamlegt er talið annars staðar og jafnan leitazt við að gera í öðrum löndum.
Þetta var nú innskot, en ég vildi segja þetta til þess að undirstrika þá skoðun mína, að mjög mikil nauðsyn er á því að samræma allt fræðslustarf í landinu undir eina yfirstjórn.
En frv., eins og það lá fyrir Nd., gerði einnig ráð fyrir því, að komið yrði á fót sérstakri iðnfræðsluskrifstofu og sérstökum iðnfræðslustjóra. Á þessu gerði Nd. breytingu og felldi þessa stofnun niður úr frv., og ég álit, að það sé til bóta, ekki aðeins af þeim ástæðum, sem fram komu í ræðu hæstv. menntmrh. hér áðan, nefnilega þeirri, að ótímabært og ónauðsynlegt væri að setja á stofn sérstaka stofnun í þessu skyni, heldur einnig vegna þess, að með þessu móti mundi yfirstjórn fræðslustarfseminnar klofna í sundur á þann hátt, sem ég er ekki víss um, að væri til neinna bóta. En á hinn bóginn: við þessa breytingu verður iðnfræðsluráðið sú stofnun eða sá aðili, sem fyrst og fremst á að móta iðnfræðsluna í landinu. Með tilliti til þess er ég ekki fyllilega sáttur við það, hvernig hugsað er, að iðnfræðsluráðið sé skipað. Í því er gert ráð fyrir, að verði fulltrúar frá handverksmeisturum og sveinum og nemum og auk þess frá iðnverkafólki og iðnrekendum og einn fulltrúi frá skólunum sjálfum. Að mínum dómi hefði verið mjög æskilegt, að hærri tæknimenntun hefði haft einhver áhrif í þeirri stofnun, sem á að móta þessa tæknilegu fræðslu. En í frv. er ekki gert ráð fyrir því, að iðnfræðsluráð hafi nein sérstök tengsl við tæknifræðingastéttina eða verkfræðingastéttina eða aðra þá, sem líklegir væru til þess að geta haft frjó áhrif á það, hvernig tæknimenntunin og iðnmenntunin þróast í landinu, og haft áhrif í þá átt að koma í veg fyrir, að þessi fræðsla staðnaði í því formi, sem henni er eitt sinn fengið. Að vísu koma þarna til áhrif menntmrn., og þess er þá að vænta, að menntmrn. sjái til þess, að þessara áhrifa gæti í hæfilegum mæli. Menntmrh. er ætlað að skipa án tilnefningar formann iðnfræðsluráðs, og opnast honum þar möguleiki til þess að láta hina hærri tæknimenntun hafa tengsl við þessa starfsemi á þann hátt, sem ég álit, að sé bæði æskilegt og nauðsynlegt.
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þetta meira. Ég vildi aðeins koma þessum örfáu aths. á framfæri. Ég er þeirrar skoðunar, að þetta frv. sé til mikilla bóta, eins og ég hef áður sagt, og ég er sammála hæstv. menntmrh. um það, að við undirbúning þessa frv. hefur verið unnið gott og mikið starf. Ég álit, að þó að við kunnum að geta gert einhverjar aths. við einstök atriði málsins, sé málið samt svo þýðingarmikið, að það megi ekki henda okkur, að frv. verði ekki afgreitt sem lög frá þessu þingi.