12.04.1966
Neðri deild: 68. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1324 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)

127. mál, umferðarlög

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Frv. þetta, sem er 127. mál, er komið frá Ed. og hlaut einnig nokkrar breytingar undir meðferð málsins þar frá því, sem það var upphaflega lagt fram. Eins og fram kemur í aths. frv., hafði þáv. dómsmrh. skipað hina svokölluðu umferðarslysanefnd í nóvembermánuði 1963 til að gera till. um ráðstafanir til úrbóta vegna hins sívaxandi fjölda umferðarslysa, og á s.l. hausti átti ég fund með þessari n. og hún gerði þá grein fyrir því, að hún mundi tæplega ljúka störfum sínum endanlega fyrr en einhvern tíma síðar á þessu ári, 1966, hún þyrfti að láta fara fram svo umfangsmikla skýrslusöfnun. Og þá varð það að ráði að óska eftir, að n. skilaði bráðabirgðaáliti, sem gæti falið í sér till., sem hægt væri að láta koma þegar til framkvæmda, ef verða mætti til bóta í sambandi við öryggi í umferðinni.

Og um það fjallaði þetta frv. upphaflega að setja nánari og strangari reglur um ökuskírteini, þannig að þau væru tvenns konar: í fyrsta lagi bráðabirgðaskírteini og svo fullnaðarskírteini, en bráðabirgðaskírteinið væri gefið út til eins árs og fullnaðarskírteini síðar til 5 ára frá útgáfudegi. Nú var það undir meðferð málsins í Ed., að dómsmrn. þótti ástæða til þess að beina því til allshn., sem málið hafði þar til meðferðar, að gera jafnframt breytingar á fullnaðarskírteinunum þannig, að þau giltu til 10 ára, en ekki 5 ára, og var þar m.a. stuðzt við upplýsingar, sem rn. höfðu borizt um hliðstæðar reglur og jafnvel lengri tíma fullnaðarskírteina í nágrannalöndum okkar, en hugmyndin með bráðabirgðaskírteini fyrsta árið er að fylgjast með fyrsta ári ökumannsins og geta þá haft áhrif á það að láta hann ganga aftur undir próf, sérstaklega með hliðsjón af því, að menn fylgist vel með þeim sífelldu breytingum, sem segja má að séu á umferðarreglunum í okkar miklu og öru umferð.

N. féllst svo á að gera þá brtt., sem nú er komin inn í 4. gr., að bráðabirgðaskírteinið sé til byrjenda og gildi í eitt ár frá útgáfudegi, en fullnaðarskírteini gildi í 10 ár frá útgáfudegi og fullnaðarskírteini þeirra, sem náð hafa 60 ára aldri, skuli gilda í 5 ár.

Það var einnig undir meðferð málsins, að dómsmrn. skrifaði allshn. Ed. í sambandi við endurskoðun á ákvæðum umferðarl. um svokölluð reiðhjól með hjálparvél, sem svo höfðu verið kölluð, en það hafa alloft verið til meðferðar í rn. beiðnir um að breyta ákvæðum umferðarl. um þetta, og leitaði rn. umsagnar umferðarlagan., sem gerði til allshn. Ed. þær brtt., sem nú eru komnar inn í þetta mái. eins og það er eftir 3. umr. í Ed. á þskj. 410. Þá er einnig þess að geta, að í frv. til l. um breyt. á l. um meðferð opinberra mála, nr. 82 21. ágúst 1961, sem liggur nú fyrir þinginu, er gert ráð fyrir því, að dómara verði heimilað að ljúka með dómssátt málum, þar sem viðurlög geta numið allt að eins árs ökuleyfissviptingu, og er m.a. 2. gr. frv., eins og það var upphaflega flutt, en

er nú í 9. gr., miðuð við, að þetta frv. verði samþ.

Báðum bréfum dómsmrn., 10. marz og 28. marz, til allshn. Ed. fylgja allýtarlegar grg. með þeim till., sem þar eru gerðar, og vildi ég mega mælast til þess, að hv. allshn. Nd., sem fengi þetta mál til meðferðar, kynnti sér þær, og sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þær að svo stöddu fremur, en leyfi mér að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.