28.04.1966
Neðri deild: 80. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1327 í B-deild Alþingistíðinda. (1135)

127. mál, umferðarlög

Frsm. (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Ég minnist þess, að það eru ekki ýkjamargir dagar liðnir síðan þessi hv. þm., sem hér var að ljúka máli sínu, og reyndar fleiri í hv. þd. töldu, að áfengi og þó sérstaklega ef áfengt öl kæmi á markað hér á Íslandi mundi valda öllum umferðarslysum hér á landi eða allflestum. Nú segir þessi hv. þm., að flest eða mest allra slysa, eins og ég held, að hann hafi orðað það, verði vegna of hraðs aksturs. Auðvitað má fara lengra út í þetta og segja sem svo, að of hraður akstur skapist vegna ölvunar við akstur. Við skulum samt sem áður hafa í huga, að það er alveg sama, hvort maður sé ekki ölvaður eða hann sé það, góður vegur verður alltaf til þess að auka hraða, og auðvitað eru góðir vegir lagðir til þess, að við náum meiri hraða á þessum vegum. Og við höfum kallað slíka vegi eins og um Reykjanesbraut hraðbrautir, og við erum m.a. að leggja þessa vegi til þess að vera fljótir á milli staða, til þess að auka hagkvæmni í umferð. Hann kom auðvitað með þá skýringu á því, sem reyndar var komin fram hjá flm. till., sem ég gat um áðan, hv. 1. þm. Reykn., þá, að dómsmrh., — og það liggur reyndar í brtt. allshn. líka, — að dómsmrh. hefur ekki heimild til þess að auka hraðann á þessari einu hraðbraut, sem við eigum að mínu mati, nema við töluðum um vissa kafla innanbæjarbrauta hér í Reykjavík, — hann hefur ekki heimild til þess að auka hraðann nema á þeim tíma árs, sem engin hætta er á ísingu. Og ég vil undirstrika þetta mjög, að það verður ekki aukinn hraði á þessum brautum, nema þegar allt öryggi er fyrir hendi, að hægt sé að keyra á þessum hraða, sem lagt er til.

Ég vil benda hv. síðasta ræðumanni á það, að slíkar hraðbrautir eins og við erum nú að ráðast í, að vísu af litlum mætti, eru þekktar um áratugaskeið, ekki aðeins í nágrannalöndum okkar, heldur um allan heim. Það hefur ekki verið talið til aukinnar slysahættu að auka hraðann um leið, heldur hið gagnstæða. Ég vil benda þessum ræðumanni á það, að fréttir birtust um það frá Englandi fyrir nokkru, ég vil segja fyrir nokkrum missirum, að þar var í tilraunaskyni aukinn hraði á góðum vegum, og staðreyndin varð sú, að það dró stórkostlega úr slysum. Við höfum alltaf þá menn fyrir okkur í umferð, sem vilja keyra eins og þeir telja, að hæfilegt sé. Það er kannske mat annarra, að annar hraði eigi að vera. Upp úr þessu skapast framúrakstur. Ef hægt er að finna einhvern meðalhraða, sem flestir geti unað við, er kannske hægt að sjá fyrir því, að það, sem hættulegast er í umferðinni, framúraksturinn, verði ekki fyrir hendi. Þessi reynsla Englendinga á hraðbrautum þeirra leiddi í ljós, að slysum á þessum sömu vegum stórfækkaði. Hafandi það í huga, að dómsmrh. hefur þessa heimild, þó ekki nema að till. þeirra manna, sem gerst þekkja nú til okkar umferðarvandamála, held ég, að það sé mjög reynandi að fara þessa leið til þess að vita einmitt, hvort við komumst ekki fram úr þeim vanda, sem við höfum m.a. lent í vegna ísvandamálsins á vissum tímum árs á þessari einu hraðbraut, sem við eigum, hvort einmitt verður ekki með þessu hægt að undirstrika, að það er hættulegra að keyra á þessari braut á vissum tímum árs heldur en öðrum, en það er líka öruggara að keyra á þessari sömu braut með meiri hraða en annars staðar á öðrum árstímum.