15.04.1966
Neðri deild: 70. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1146)

171. mál, vernd barna og ungmenna

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það mál, sem hér liggur fyrir, er mjög gott mál, og ég held, að það sé óhætt að segja, að allir í menntmn. hafi verið sammála um það, að þetta mál ætti að ná fram að ganga.

Hér í þessari hv. d. var gerð breyt. á 41. gr. í fyrra, og við þm. þessarar hv. d., sem áttum sæti í þessari mþn., sem starfaði í sumar, höfum leyft okkur að leggja til, að 41. gr. yrði sett aftur í það horf, sem hún var þá, og leyfi ég mér fyrir okkar hönd að flytja hér brtt. þess efnis.

Það eru hv. 3. þm. Vestf. og hv. 5. þm. Vesturl. ásamt mér, sem standa að þeirri brtt., að 41. gr. orðist eins og hún var, þegar hún fór frá d. í fyrra. Ég mun ekki þurfa að lesa það upp, hv. þm. þekkja það, en ég skal aðeins rifja upp, hvaða munur er á því eða gr. eins og hún er nú.

Í fyrsta lagi er munurinn sá, að eins og gr. er nú orðuð í stjfrv., stendur, að eigi megi ráða barn yngra en 15 ára til vinnu í verksmiðju, enda hafi það lokið fullnaðarprófi barnafræðslu eða burtfararprófi. Það, sem við leggjum til, og það, sem samþ. var næstum einróma í d. í fyrra, var að bæta þarna inn í, að það megi ekki heldur ráða barn yngra en 15 ára til upp- og útskipunarvinnu eða byggingarvinnu. Þetta er fyrsta og í raun og veru eitt höfuðatriðið, sem þarna er breytt.

Í öðru lagi var í fyrra bætt inn nokkrum ákvæðum viðvíkjandi hámarksvinnutíma barna undir 14 ára, þannig að hann skuli vera jafnmargir tímar og samsvarar helmingi af áratölu þeirra og hámarksvinnutími 14—16 ára barna skuli vera 8 stundir á dag. Enn fremur er það sett inn, að ráðh. skuli hafa heimild til þess að setja reglugerð, sem nál yfir landið í heild, en meginið af því er líka í l., eins og þau eru núna.

Ég held, að það, sem hefur gefið tilefni til viss misskilnings, — og þegar ég mæli fyrir þessu, geri ég það náttúrlega á eigin ábyrgð, — það, sem hefur gefið tilefni til viss misskilnings af hálfu nokkurra hv. þm., einkum Sjálfstfl., er einn hlutur í þessu sambandi. Það stendur í stjfrv., eins og það er nú: „Eigi má ráða barn yngra en 15 ára til vinnu í verksmiðju“, og það hefur komið greinilega fram, að þegar talað er um verksmiðju, heyra hraðfrystihús þar undir, og mér er nær að halda, að það liggi þegar fyrir dómur um slíkt. Í lögum, sem nú eru í gildi, stendur, með leyfi hæstv. forseta, 39. gr. þeirra, sem búin er að vera í gildi síðan 1947:

„Ekki má ráða barn yngra en 15 ára til vinnu í verksmiðju, enda hafi það lokið fullnaðarprófi barnafræðslu eða burtfararprófi.“

Lögin eins og þau eru núna hljóða upp á þetta. Það má ekki ráða barn yngra en 15 ára til vinnu í verksmiðju. Og mér er nær að halda, að það liggi þegar fyrir skaðabótadómar, þar sem sé gengið út frá því, að hraðfrystihús sé verksmiðja, eins og eðlilegt er, þannig að ég held, að þeir hv. þm., sem hafa verið með aths. út af þessu, byggi það algerlega á misskilningi. Hins vegar hef ég ekki orðið var við, að nokkrir þm. væru að gera aths. við hitt, sem hér var breytt í d. í fyrra og við leggjum til, að sé breytt nú, að börn innan 15 ára skuli ekki vinna við upp- og útskipunarvinnu eða byggingarvinnu. Menn vita alveg um þau banaslys, sem orðið hafa, því miður tíð, í sambandi við slíkt, þannig að það er ekki nema eðlilegt, að menn vilji koma í veg fyrir slíkt.

Þessi brtt., sem við leggjum fram, er skrifleg og of seint fram komin. Hins vegar erum við á því allir, að þessu máli beri að flýta eins og hægt sé, og ég þykist hafa skilið á hæstv. forseta, að hann mundi mjög gjarnan vilja ljúka þessari umr. nú í kvöld, og mundum við síður en svo hafa nokkuð á móti því. Ef t.d. það yrði erfitt að fá afbrigði fyrir svona till., mundi ég fyrir hönd okkar flm. taka hana aftur til 3. umr., þannig að við gætum greitt fyrir því, — það er alveg jafngott, að hún sé flutt þá. En það, sem er höfuðatriði í sambandi við þetta, er, að þetta frv. fái greiðan gang í gegnum þessa hv. d. og í gegnum þingið, og um það held ég, að sé samkomulag, nema kannske eitthvað ofurlítið hvað snertir þessa gr. En hvernig sem með þessa brtt. fer, hvort það yrði nú við 2. eða 3. umr., stöndum við jafneindregið með því, hvað sem þarna yrði gert, að þetta frv. næði fram að ganga.

Ég leyfi mér svo með þessu fororði að afhenda hæstv. forseta þessa till.