30.04.1966
Efri deild: 77. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1349 í B-deild Alþingistíðinda. (1173)
171. mál, vernd barna og ungmenna
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Ástæðan til þess, að ég kveð mér hljóðs, er sú, að skotið hefur verið á fundi í menntmn. til þess að ræða brtt. þær, sem hv. 9. þm. Reykv. (AG) flytur við þetta frv.
Það er skemmst af að segja, að brtt. fengu ekki undirtektir í n. og n. mælir ekki með þeim, hvorki í heild né einstökum till., og það kom fram eins og áður í n. sú afstaða einstakra nm., að þeir teldu málinu teflt í tvísýnu, ef breytingar yrðu á frv. gerðar, og réði það m.a. því, að þeir vildu ekki mæla með þessum brtt.
Til viðbótar því að lýsa þessari afstöðu menntmn. vil ég leyfa mér, hæstv. forseti, að víkja lítillega að tveim af brtt. hv. 9. þm. Reykv., sem sérstaklega voru nefndar af öðrum hv. þdm. en mér og hv. flm. við þessa umr., enda kom fram í n. ósk um, að svo yrði gert.
Það er þá fyrst 7. brtt. hv. þm., sem er við 36. gr. frv. Um þessa brtt. vil ég vísa til þess, sem ég áður hef sagt, að brtt. er allsendis óþörf, því að í 3. mgr. 16. gr. frv. segir, að barnaverndarnefnd skuli ávallt við úrlausn barnaverndarmála velja þann kostinn, sem ætla má, að sé barninu fyrir beztu.
Við þetta vil ég bæta því, að það er með ráði gert að orða þetta ákvæði 36. gr. eins og það er. Þetta ákvæði er orðrétt samhljóða ákvæði, sem er í 16. gr. l. frá 1947 um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna, nema hvað í þessu frv. er sams konar ákvæði látið ná til barna almennt, skilgetinna sem óskilgetinna, og því fellt niður orðið „óskilgetið“, en að öðru leyti er síðasta mgr. 36. gr. samhljóða þessu ákvæði í l. um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna.
Í sambandi við þetta ákvæði, sem nú er í l. um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna, hefur skapazt allvíðtæk dómvenja, og undirbúningsnefnd frv. eða sú n., sem undirbjó þetta frv., var þeirrar skoðunar, að það væri rétt að halda sér við það orðalag. Þetta kemur ljóst fram í grg. með frv. frá því í fyrra, í aths. þar um 34. gr. A, sem var shlj. 36. gr. þessa frv., en í aths. við gr. segir m.a. svo orðrétt: „Hefur verið hallazt að því að halda orðalagi 16. gr. laga nr. 87 1947 að efni til, með því að allvíðtæk dómvenja er fengin um það ákvæði. Ljóst er, að barnaverndarnefndum ber í þessu efni sem öðrum að hafa að leiðarljósi, hvað barni er fyrir beztu, sbr. almenna ákvæðið í 16. gr. 3. mgr. frv.“
Við þetta skal ég aðeins bæta því, að mér er kunnugt um, að háskólarektor, sem var formaður þeirrar n., sem undirbjó frv., telur mjög vafasamt að breyta þessu ákvæði, þ.e.a.s. 3. mgr. 36. gr. frv. eins og hún nú er.
Þá skal ég aðeins víkja að 11. brtt. á þskj. 636. Hún er á þá leið, — ég skil það a.m.k. þannig, — að öllum úrskurðum barnaverndarráðs megi áfrýja til dómstóla. Þetta mundi leiða til skipulags í þessum málum, sem mun hvergi þekkjast í þeim löndum, sem við höfum eða ætla má að við höfum helzt eitthvað til að sækja um fordæmi eða fyrirmyndir í þessum efnum. Það má líka benda á það, hve seinvirk þessi leið yrði. Fyrst kæmi málið til kasta barnaverndarnefndar, síðan barnaverndarráðs, þá undirréttar og að lokum hæstaréttar. Það mætti jafnvel gera ráð fyrir því, að einhver börn væru komin á þann aldur, að lögin tækju ekki lengur til þeirra, þegar allt það skeið væri á enda runnið, en einmitt í slíkum málum, barnaverndarmálum, er oft skjótrar úrlausnar þörf.
Það mun vera svipuð uppbygging á kerfi barnaverndarmála á Norðurlöndum eins og hér er. Hins vegar er mér tjáð og hef nú reyndar um það víssu, að t.d. í Bretlandi og Bandaríkjunum heyra barnaverndarmál undir sérstaka dómstóla. En þeir dómstólar eru sérstaks eðlis, og þeir eru við það miðaðir að hafa úrlausn slíkra mála með höndum. En það er hvorki á Norðurlöndum né í þessum enskumælandi löndum, sem ég áður nefndi, þekkt, að barnaverndaryfirvöldum og dómstólum sé blandað saman með þeim hætti, sem hér er lagt til. Með þessu er auðvitað ekki sagt, að barnaverndarmál komi aldrei til kasta dómstóla. Svo hefur verið hér í víssum tilvikum um langt skeið, og ég vil t.d. benda á það, að í 53. gr. þessa frv., 3. mgr., segir svo orðrétt:
„Ef beita verður valdi við framkvæmd ákvörðunar barnaverndarnefndar eða barnaverndarráðs samkv. lögum þessum, heyrir slík valdbeiting undir fógeta eða lögreglu, ef brýna nauðsyn ber til. Fulltrúi barnaverndarnefndar eða barnaverndarráðs skal þó ávallt vera viðstaddur slíkar framkvæmdir.“
Það hefur ekki orkað tvímælis, að barnaverndarmál koma oft til kasta dómstóla, og hér er í þessari gr., 53. gr., tekið beinlínis af skarið um það, að þegar framkvæmd á ákvörðun barnaverndarnefndar eða barnaverndarráðs eigi fram að fara og til slíks þurfi valdbeitingu, skuli fógeti eða lögregla koma til skjalanna. Þar að auki má benda á það, sem auðvitað sjálfsagt er, að það er alltaf hægt að sækja barnaverndarráð til saka fyrir dómstólum á þeim grundvelli, að ráðið hafi ekki farið að lögum eða hafi brotið lög á einhvern hátt í þeim málum, sem til kasta þess hafa komið. Ég veit ekki, hvort hv. flm. hefur athugað þetta eða gert sér þetta ljóst. En ég vil aðeins segja það, að ég held, að samþykkt þessarar brtt. væri algerlega fráleit.
Að öðrum brtt. mun ég hafa áður vikið og sé því ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um málið.