04.04.1966
Neðri deild: 66. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1448 í B-deild Alþingistíðinda. (1182)

177. mál, álbræðsla við Straumsvík

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Samningur sá um alúmínbræðslu á Íslandi, sem liggur fyrir til umr., hefur haft alllangan aðdraganda. Það var í maí 1961, sem hæstv. ríkisstj. setti á laggirnar hina svo kölluðu stóriðjunefnd. Málið er því búið að vera í höndum hæstv. ríkisstj. og trúnaðarmanna hennar í 5 ár. Og hæstv. ríkisstj. hefur verið tiltölulega lítið trufluð af andstæðingum í þessari samningsgerð. Í fyrsta lagi var stóriðjunefndin skipuð með þeim hætti, að í hana voru settir eingöngu nánustu og hollustu trúnaðarmenn hæstv. ríkisstj. og pólitískir samherjar. Þar með var það tryggt, að andstæðingarnir gátu ekki komið þar að málum. Og í annan stað var það líka vel tryggt, að Alþingi hefði ekkert með undirbúning málsins að gera. Framsóknarmenn fluttu till. um það á þingi, að þessi stóriðjunefnd yrði kosin af Alþingi. Þá till. flutti flokkurinn 1963. Að tilhlutan hæstv. ríkisstj. var sú till. svæfð. Flokkurinn flutti samhljóða till. aftur á þingi 1964. Hæstv. ríkisstj. kom þeirri till. líka fyrir kattarnef. Hún hefur því undirstrikað það mjög rækilega, að Alþingi skyldi ekki koma nærri undirbúningi málsins. Og þannig liðu hálft fjórða ár, að ekki var við Alþingi talað. Hitt er svo annað mál, að flokkar og dagblöð gátu aflað sér einstakra upplýsinga um það, hvað væri verið að undirbúa, og sögðu frá því.

Mér er tjáð, að þegar stóriðjunefnd hafi verið búin að starfa í rúmlega eitt ár, eða seint á árinu 1962, hafi hæstv. ríkisstj. verið komin að þeirri niðurstöðu, að til stóriðju útlendinga á Íslandi skyldi koma, og að hún skyldi beita sér fyrir því, að það mál næði fram að ganga, það hefur að vísu dregizt síðan, vegna ýmissa erfiðleika á undirbúningi málsins, en ákvörðunin hafi í raun og veru verið tekin á þessu ári. Ef þetta er rétt, hefði ég ekki sérslaklega harmað það, þó að þessi samningur hefði þá verið undirritaður og gerður, ef illt átti á annað borð að ske, því að þá var það ár í stíl við fyrri ár þjóðarinnar. Þá voru nefnilega 700 ár liðin frá því, að Gamli sáttmáli var gerður, og þá voru 300 ár liðin frá því, að einveldisskuldbindingin var undirrituð í Kópavogi. Ártölin 1262 og 1662 sómdu sér ekki illa við þetta ár. Hitt er annað mál, að Árni Oddsson skrifaði ekki undir samninginn í Kópavogi með jafnmikilli ánægju og hæstv. iðnmrh. skrifaði nú undir þennan samning. (Gripið fram í.) Nú, hefur hann skrifað undir álsamninginn? Ég hef ekkert heyrt um það. Jón Skaftason, hv. þm., getur svarað því, hvort hann hafi skrifað undir skuldbindingu í desember. Ég skal koma þessu á framfæri fyrir hæstv. iðnmrh. (Gripið fram í.) Nei, alls ekki, hæstv. forsrh. Samningurinn má ekki við því. Hann er ekki svo góður. — Þegar svo ríkisstj. hafði falið málið fyrir Alþingi í 31/2 ár, var loks útbýtt skýrslum til þm. um gang málsins, hvernig það hefði gengið fyrir sig. Skýrslum, sem okkur voru sendar í nóv. 1964, en það fylgdu skilaboð með. Við urðum að gera svo vel að þegja yfir því, hvað slóð í þessum skýrslum. Já, það varð erfitt fyrir suma stjórnarsinnana, það skal ég viðurkenna, því að þeir sögðu frá því, hvað í skýrslunum stóð. En loks í maí 1965, 4 árum eftir að stóriðjunefnd var sett á laggirnar, þá fyrst er málið flutt á Alþingi og skýrsla birt, allstór, sem hv. þm. hafa svo haft fyrir framan sig síðan og sjálfsagt gluggað í við tækifæri og mun verða gert í sambandi við umr. um þennan samning.

Mörgum finnst þessi álsamningur nýstárlegur, jafnvel einstæður, og auðvitað er hann það, hvað það snertir, að nú eru í fyrsta sinn opnaðar dyr íslenzkra atvinnuvega fyrir erlenda auðhringi, ekki aðeins með fjármagni, heldur líka með vinnuafli, og svo koma völdin á eftir. En hann er ekki að því leyti sérslæður, að stefna hæstv. ríkisstj. hefur birzt áður af þessu tagi. Hún hefur komið fram í mörgum öðrum málum á undanförnum árum, stefnan í utanríkismálum, stefnan í samskiptum yfirleitt við útlendinga, það þarf ekki að minna á margt af því tagi. Við munum eftir landhelgissamningnum. Við munum eftir sjónvarpssamningnum. Við munum eftir samningnum um herskipahöfn í Hvalfirði. Við könnumst við yfirlýsta stefnu hæstv. ríkisstj. um ævarandi hersetu í landinu. Við þekkjum fyrirætlun hæstv, stjórnar um að koma Íslandi inn í Efnahagsbandalag Evrópu. Og í sjötta lagi höfum við þennan álsamning. Sex stór mál á 6 árum. Öll eru þau sprottin af sömu rót. Öll eru þau byggð á þeirri órjúfandi sannfæringu hæstv. ríkisstj. og flokka hennar, þeirri sannfæringu, að þjóðinni vegni betur, ef útlendingar hafi meiri ráð en ef Íslendingar eiga að ráða sér sjálfir. Það er ekki af því, að hæstv. ríkisstj. vilji þjóðinni neitt illt, nei, en hún hefur þessa sannfæringu. Útlendingar eru betri, okkur vegnar betur, ef við leyfum þeim að hafa hér völd, atvinnurekstur, fjárráð og áhrif. Íslendingar eru ekki færir um þetta, segja þeir og hugsa, þess vegna eigum við að leyfa útlendingum áhrifavald í okkar alvinnulífi og í okkar menningarlífi, eins og t.d. með sjónvarpi.

Á þessu stigi málsins finnst mér einna mest um það vert að fá upplýsingar hjá hæstv. iðnmrh. um ýmsar greinar þessa samnings og ýmsar áætlanir, sem birtar hafa verið og ég verð að telja heldur óljósar. Ég skal taka það fram, að ég ætlast ekki til þess, að hæstv. ráðh. fari að svara neinu af því, sem ég spyr um, við þessa umr., því að það er ekki sanngjarnt að ætlast til þess, en ég fer fram á hitt, að hann leitist við að gefa þeirri hv. n., sem þetta mál fær til athugunar, þær upplýsingar, sem ég bið um, einhvern tíma fyrir 2. umr., og ég beini því þá um leið til þessarar væntanlegu hv. n., að hún láti ekki undan falla neitt verulegt atriði, sem máli skiptir og þarf að upplýsa þm. um, áður en ákvörðun er tekin í þessu mikla máli. Við eigum heimtingu á því, og ég veit, að hæstv. ríkisstj. mun reyna að verða við því, að við fáum að vita sem bezt um hvert atriði þessa máls, áður en kemur til ákvörðunar. Ég vil því bera fram nokkrar spurningar, helzt bera fram beinar spurningar, svo að auðveldara sé að svara þeim og málið liggi því ljóst fyrir, hvað það er, sem ég tel, að svara þurfi.

Eitt höfuðatriðið í öllu þessu máli sýnist mér vera fjárhagshliðin. Mér finnst, að það hafi verið meginröksemdafærsla talsmanna þessa máls, að Íslendingar græði á því að fá útlendinga inn í landið og geta selt þeim raforku með því verði, sem áformað er, með þessu móti getum við virkjað stórárnar í stórum stíl og fengið þannig ódýrari raforku handa okkur sjálfum með því að selja á föstu verði svo stórum kaupanda mikið af orkunni. Þetta held ég, að séu meginrökin fyrir málinu. Nú hafa legið fyrir okkur í heilt ár áætlanir ríkisstj. og trúnaðarmanna hennar um stofnkostnað Búrfellsvirkjunar, og í þeim skýrslum, þ.á m. í skýrslu hæstv. ríkisstj. frá því í fyrravor, er mjög greinilega skýrt frá því, á hvern hátt er reiknað kostnaðarverð raforkunnar út frá stofnkostnaði Búrfellsvirkjunar. Það veltur því ekki á litlu, hver stofnkostnaður Búrfellsvirkjunar verður, þegar við ákveðum raforkuverðið til útlendinganna. Formúlan fyrir því, hvernig kostnaðarverð raforkunnar finnst út frá stofnkostnaði virkjananna, er ákaflega einföld og sett ljóslega fram í skýrslu ríkisstj. frá því í fyrravor. Formúlan er annars vegar fjármagnskostnaðurinn, hins vegar kostnaður vegna árlegrar stjórnar, eftirlits, gæzlu og viðhalds fyrirtækisins. Þetta er kostnaðurinn af rekstri Búrfellsvirkjunar. Og út frá þessum kostnaði, sem allur er byggður á stofnkostnaðinum, er hægt að finna út hið raunverulega verð á hverri kwst., sem seld er. Í skýrslu hæstv. ríkisstj. frá því í maí í fyrra, á bls. 50, segir svo: „Árleg stjórn, eftirlit, gæzla og viðhald vatnsaflsvirkjana og veitna áætlast 11/2% af stofnkostnaði.“ Þetta er sá liður. Á öðrum stað er skýrt frá því, að fjármagnskostnaðurinn sé reiknaður sem afskriftir og komi fram í vöxtum og afborgunum af lánum til virkjunarinnar í 25 ár. Þar er líka sagt frá því, að ráðgert sé að taka hjá Alþjóðabankanum lán til 25 ára með 6% vöxtum, þetta lán eigi að vera afborgunarlaust í 3 ár, á meðan verið er að byggja virkjunina, en síðan að borgast eftir annuitetsreglum, jöfnum ársgreiðslum, á 22 árum. Það verða ekki nema 22 ára greiðslur, þó að lánið sjálft sé til 25 ára. Á 22 árum verður ársgreiðslan, þegar vextirnir eru 6%, 8,3%. Allt er þetta sýnt í skýrslu ríkisstj. Við þetta bætist þetta 11/2%, sem ég las upp áðan úr skýrslunni. Þá koma út 9,8%, og yfirleitt reiknar ríkisstj. og hennar menn þetta 10%, í staðinn fyrir að reikna með 9,8, enda handhægara. Ég fæ ekki betur séð en að kostnaðarverð raforkunnar, sem frá Búrfelli á að koma, verði þá 10% af stofnkostnaðinum og að það sé engum blöðum um þetta að fletta, þetta sé rækilega fram tekið í skýrslu ríkisstj. frá því í maí í fyrra. 10% af stofnkostnaði Búrfellsvirkjunar, það er árlegt kostnaðarverð raforkunnar frá fyrirtækinu.

Og þá kem ég að fyrstu spurningunni, sem mig langar til að leggja fyrir hæstv. ráðh.: Er það ekki rétt, að lánin eigi að vera til 25 ára, afborgunarlaus fyrstu 3 árin og borgast síðan með jöfnum ársgreiðslum í 22 ár? Ef hann viðurkennir, að þetta sé rétt, þessu hafi ekki verið breytt síðan í fyrra, er frá þessu var skýrt, þá held ég, að ekki verði um það deilt, að reikna beri með 10% af stofnkostnaði til að finna út kostnaðarverð raforkunnar. Menn segja, að með afborgunum af lánunum séum við að leggja í eign. Það eru reyndar allir að gera, sem fá að afskrifa sínar eignir. En hvað eru afskriftirnar? Þær eru til að mæta rýrnun á verðmætunum á löngum tíma, þarna á 25 árum. Íslenzkir atvinnurekendur fá að afskrifa sínar eignir meira en þetta, eða í kringum 4%, í ýmsum tilfellum. Nú er þess að gæta, að gastúrbínustöðvar verður að afskrifa á miklu skemmri tíma, ég held, að það sé talað um á 17 árum í þessum skýrslum, þá eru það 6–7%, sem þyrfti að afskrifa þær. Það er endingartíminn, sem þarna er miðað við.

Nú er búið að gera nýja kostnaðaráætlun fyrir Búrfellsvirkjun og ekki aðeins fyrir fyrsta áfangann, 105 megawött, heldur fyrir alla virkjunina, og meira að segja meiri kostnaðaráætlun heldur en um Búrfellsvirkjun. Í grg. þessa frv. er greint frá því, hvað áætlaður stofnkostnaður 105 mw. virkjunarinnar verður samkv. þessari nýju kostnaðaráætlun. Gamla áætlunin var, eins og menn geta séð hver hjá sér, 1050 millj. kr. — eitt þúsund og fimmtíu millj. kr. — en í þessari áætlun er stofnkostnaður kominn í 1415 millj. kr., þessi áfangi. Áætlunin hefur þá hækkað síðan í fyrra um 365 millj. eða hér um bil 35%. Það er að vísu sagt í grg. þessa frv., að þessi hækkun stafi m.a. af því, að færðar hafi verið til framkvæmdir frá síðari áfanga virkjunarinnar fram til hins fyrri, sem valdi m.a. þessari hækkun, en ég skal koma að því síðar, hvernig ég held, að liggi í þessu.

Þá kem ég að annarri spurningunni, sem mig langar til að leggja fyrir hæstv. ráðh. Hvernig er hún sundurliðuð, þessi nýja kostnaðaráætlun yfir fyrri áfanga Búrfellsvirkjunar, 105 mw? Hvernig er hún sundurliðuð? Það er búið að skýra þarna frá því, að hún er 1415 milljónir, en hvernig sundurliðast hún? Hvað er t.d. erlendur kostnaður, hvað er innlendur kostnaður, hvað eru vinnulaun og hvað eru vélar og hvað eina, og hvað eru ráðstafanir vegna ísvandamálsins? Ég veit reyndar um einn lið, sem komið hefur inn í þessa áætlun, sem ekki var í hinni fyrri. Það er varastöð, gastúrbínustöð, 20 þús. kw. Þessar varastöðvar voru aldrei teknar með inn í fyrri áætlunina, en í þessari áætlun um fyrri áfanga Búrfellsvirkjunar er tekin ein slík stöð, 20 þús. kw., og hún er áætluð núna á 60 millj. kr. Hins vegar var gert ráð fyrir því í skýrslunum frá í fyrra, að það þyrfti 40 mw varastöð með fyrsta áfanga virkjunarinnar, en nú þarf ekki nema 20 mw. Ég veit ekki, hvernig liggur í því. Ég hélt, að ísvandamálið hefði heldur vaxið en minnkað, svo að það væri ekki gott að minnka þessar varastöðvar. En látum það liggja á milli hluta í bili. Allur þessi kostnaður af Búrfellsvirkjun, stofnkostnaður Búrfellsvirkjunar, er þannig reiknaður, að sleppt er öllum innflutningsgjöldum af efni, vélum og tækjum til virkjunarinnar, það er óbreytt frá því, sem áður var í hinni fyrri áætlun. Ég vil víkja nokkrum orðum að þessum lið í áætluninni, af því að mér finnst hann sannarlega umtalsverður.

Í skýrslu hæstv. ríkisstj. frá því í maí í fyrra segir m.a. um þetta atriði, með leyfi hæstv. forseta: „Hér skal að lokum bent á, að allar kostnaðartölur í þessari skýrslu og fskj. hennar eru reiknaðar án innflutningsgjalda. Athuganir leiddu snemma í ljós, að til þess að ná samkeppnisfæru verði á raforkunni yrði að fella þessi gjöld niður að mestu, a.m.k. á fyrsta virkjunarstiginu, enda eiga keppinautar okkar ekki við þau að búa nema þá að mjög litlu leyti. Þótti því heppilegt að reikna dæmið á þennan hátt og bæta heldur aðflutningsgjöldum við, að svo miklu leyti sem þeim yrði beitt, auk þess sem Alþjóðabankinn taldi sér betur henta þessa reikningsaðferð. Núverandi aðflutningsgjöld hækka kostnað vatnsvirkjana um sem næst 20% og gastúrbínustöðvanna um 30%. Að aðflutningsgjöldum alúminíumverksmiðjunnar er vikið á öðrum stað, en þau mundu hækka stofnkostnað hennar um 20%.“

Hvað þýðir nú þetta: „að reikna dæmið á þennan hátt,“ eins og það er orðað í þessari skýrslu, reikna dæmið á þennan hátt, að sleppa öllum aðflutningsgjöldum? (Gripið fram í.) Í hvað? (Dómsmrh.: Þetta er alveg ákveðinn taxti í landsvirkjunarlögunum.) Það er náttúrlega ekkert betra fyrir það, þó að það sé. En í hvaða tilgangi er þetta gert? Um það segir beint í skýrslunni: „Til að ná samkeppnisfæru verði.“ M.ö.o.: til þess að geta selt Svisslendingum raforkuna ódýrari. En verður raforkan nokkurn skapaðan hlut ódýrari við þetta? Ég get ekki séð, að það að sleppa þessum aðflutningsgjöldum sé neitt annað en það, að ríkið leggur fram þessa upphæð í virkjunina, leggur til aðflutningsgjöldin sem framlag. Það þýðir ekkert annað. Þetta er alveg eins og þegar verið er að lækka verð hérna í búðunum á neyzluvarningi, varan er borguð niður. Varan er í raun og veru ekkert ódýrari fyrir þetta. Bændurnir fá sitt verð eða eiga að fá alveg jafnt fyrir það, sjómennirnir sitt verð fyrir fiskinn, sem er borgaður niður, og smjörlíkisgerðirnar sitt verð fyrir smjörlíkið alveg eins fyrir þetta. Hvað er verið að gera með þessu, að borga niður? Það er verið að dreifa niður á alla þjóðina nokkrum hlutanum af verðinu. Það er ekkert annað. Og með því að sleppa innflutningsgjöldunum við Búrfellsvirkjun er verið að borga niður rafmagn. Þjóðin tekur á sig í þessu formi nokkurn hluta af raforkuverðinu. Þetta er aðeins niðurgreiðsla. En er þetta nokkuð rangt eða ranglátt? Nei, ekki gagnvart Íslendingum. Það er það alls ekki. Við Íslendingar fáum þarna raforkuna ofurlítið ódýrari vegna þessarar niðurgreiðslu, en hún kemur óbeint á okkur alla í einhverju formi í gegnum ríkiskassann. En Svisslendingar fá hana ódýrari. Það er borgað líka niður fyrir þá. Með þessu móti er verið að sýna lægra raforkuverð en annars væri. Fyrir Íslendinga sjálfa er aðeins verið að taka úr öðrum vasanum og láta í hinn og skiptir því engu máli, ekkert við það að athuga, en gagnvart Svisslendingunum fá þeir orkuna þarna talsvert ódýrari með því að reikna dæmið á þennan hátt, eins og ríkisstj. sagði í fyrra. En hvað nemur þetta miklu, þessi 20%, af stofnkostnaði á fyrri áfanga Búrfellsvirkjunar, þessi 105 mw? Það er ósköp auðreiknað. Af 1415 milljónum nemur þetta 283 millj. tvö hundruð áttatíu og þremur millj. — sem stofnkostnaðurinn er sýndur minni en hann er í raun og veru. Þarna er stór liður, sem ég tel vanreiknaðan inn í dæmið, þegar um verðlagningu á raforku er að ræða fyrir útlendinga. Fyrir Íslendinga gerir það ekkert til, það hefur ekkert að segja. Þessi liður er vanreiknaður.

Þá er annar liður, sem ég held, að ekki muni vera í neinum áætlunum enn, eða mér hefur verið tjáð, að hafi ekki verið tekinn inn, hvorki í þessa ársgömlu áætlun né þessa nýju. Það er sá kostnaður, sem búið er að leggja í rannsóknir og undirbúning á virkjunarstöðum á Íslandi. Ég hef aflað mér upplýsinga um þetta, hvað þetta muni vera mikið, sem tilheyrir Búrfellsvirkjun einni, ekki öðrum virkjunum annars staðar, heldur aðeins Búrfellsvirkjun. Og ég hef fengið þau svör, að það muni nema 391/2 millj.

En svo kemur liður, sem ég hef aldrei heyrt nefndan í sambandi við kostnaðaráætlun Búrfellsvirkjunar nema í skýrslum ríkisstj. í fyrra. Það eru vatnsréttindin í Þjórsá. Þau eru hvergi nokkurs staðar reiknuð, og það er tekið fram í skýrslunni, að þau séu ekki reiknuð. Eru vatnsréttindin í Þjórsá virkilega einskis virði og landsréttindin til að hagnýta sér vatnsaflið þar? Ef menn vilja gera dæmið upp alveg hlutlaust, er þá hægt að sleppa öllum vatnsréttindum, — vatnsréttindum, sem eiga að skapa milljóna króna gróða fyrir þjóðina í 25 ár a.m.k. og ef til vill enn þá meira á eftir? Eru þessi vatnsréttindi ekki einhvers virði? Á ekki að reikna þau, þegar við erum að verðleggja raforku til útlendinga? Ég ætla ekki að fara að gera neina áætlun um, hvað eigi að reikna þau, fjarri því. Ég er aðeins að benda á það, að þarna finnst mér vera einn liður í stofnkostnaði, sem er alveg sleppt, þegar á að fara að reikna út raunverulegt kostnaðarverð á raforku til útlendinga. En gagnvart Íslendingum skiptir það ekki frekar máli heldur en innflutningsgjöldin. Ríkið á vatnsréttindin og þjóðin á ríkiskassann, svo að það breytir engu.

Og enn er einn liður í þessari kostnaðaráætlun, sem talið er að muni ekki vera nægilega áætlaður. Það eru ráðstafanir gegn ísvandamálinu í Þjórsá. Um þetta hefur verið mikið skrifað og margar tölur birtar, og skal ég ekki ræða það neitt sérstaklega, hvað þær ráðstafanir verða dýrar, en ég spurðist fyrir um það hjá einum úr landsvirkjunarstjórn, þegar ég hitti hann af tilviljun. Hvað ætli sé í þessari nýju kostnaðaráætlun mikil upphæð til ráðstöfunar gegn ísvandamálinu? Og hann svaraði mér, að það mundu vera um 17 millj. kr. — seytján millj. — Hins vegar hefur manni skilizt, að þessar ráðstafanir muni verða eitthvað dýrari, þegar til kemur, og það liggja fyrir upplýsingar um það frá raforkumálastjóra og ég held verkfræðingi Landsvirkjunar og fleirum, að það eigi að fresta þeim ráðstöfunum í bili, það sé ekki hægt af fjárhagsástæðum að leggja í þær í fyrsta áfanga. Mig minnir, að ég hafi ummæli um það eftir raforkumálastjóra, að þessu verði frestað af þessum ástæðum, en hins vegar sé ákveðið að gera þessar ráðstafanir vegna ísvandamálsins og það sé fjarri því, að það eigi að sleppa því fram af sér, enda sjá það allir og eru sammála um, að það verði að gera.

Að þessu athuguðu vil ég benda á, að eigi maður að fá út raunverulegt kostnaðarverð raforkunnar, verði að taka með innflutningsgjöldin, sem eru rúmar 280 millj., og rannsóknirnar og undirbúningskostnaðinn, sem eru eitthvað í kringum 39 millj., en um vatnsréttindin og ísvandamálið þori ég ekki að segja neitt, nefna neinar upphæðir, þó að auðvitað hefði átt að taka það með í þennan reikning. En þá fer nú kostnaðurinn að hækka talsvert við Búrfellsvirkjun. Ég hef hérna ummæli eftir raforkumálastjóra, Jakobi Gíslasyni, sem eru birt í blöðum um áramótin, — ég held, að það hafi verið í Morgunblaðinu, þó er ég ekki alveg viss um það, — þar segir hann, með leyfi hæstv. forseta:

„Allir eru sammála um, að bezta ráðið gegn ísmyndun á umræddu vatnasvæði sé að minnka kæliflöt ánna og byggja stór uppistöðulón. Þetta er það, sem stefnt verður að af forráðamönnum Búrfellsvirkjunar. En af fjárhagslegum ástæðum er ekki hægt að ráðast í heppilegustu lausn frá fræðilegu sjónarmiði við fyrstu virkjun í Þjórsá. Eins og oft hefur verið skýrt frá áður, er því ætlunin að byggja fyrst rennslisvirkjun við Búrfell, sem styðjist við varastöðvar, samfara nokkrum aðgerðum til minnkunar á kælikerfi árinnar ofan virkjunar og nokkurri miðlun í Þórisvatni. Eftir því sem virkjunum miðar áfram á vatnasvæðinu, er svo ætlunin að ráðast smám saman í svipaðar aðgerðir og dr. Devik ræðir um á fræðilegum grundvelli í skýrslu sinni.“ Og síðar segir hann einnig: „Hins vegar verða síðar stíflur ofar í ánni sem eðlilegur liður í virkjun.“

Það er því ótvírætt, að þetta er ætlunin, en það á að fresta því til 2. áfanga að framkvæma það vegna kostnaðar við það.

Þriðja spurningin, sem mig langar til þess að leggja fyrir hæstv. ráðh., er þá þessi: Hvað mundi hver kwst. mæld við Straumsvík kosta, ef innflutningsgjöld og kostnaður af undirbúningsrannsóknum eru reiknuð með? Hvað mundi kostnaðarverð hverrar kwst. hækka við það að taka innflutningsgjöldin með í reikninginn? Eins og ég sagði áðan, hefur hæstv. ríkisstj. og sérfræðingar hennar sýnt fram á það í skýrsíunni frá í fyrra, að reikna beri 10% af stofnkostnaði sem kostnaðarverð raforkunnar á ári. Og nú höfum við í grg. þessa upphæð á fyrri áfanga, 105 mw, 1415 millj. kr. Kostnaðarverð raforkunnar, sem frá þessari virkjun á að koma, verður þá á ári í kringum 1411/2 millj.

Þessi 105 mw virkjun mun eiga að skila samkv. upplýsingum í þessu frv. og grg. um 900 millj. kwst. á ári. Hvað verður þá meðalverðið á kwst.? 15.72 aurar. Af þessari raforku á álbræðslan í Straumsvík að fá um 530 millj. kwst., sé ég í þessum skýrslum. Hún á að borga fyrir hverja kwst. 10.75 aura. Það er að vísu svo, að fyrstu 3 árin eiga þeir að borga 12.9 aura, en það er tilfærsla á skatti, svo að ég reikna það ekki með. Skatturinn er þá bara lækkaður þau þrjú árin sem því nemur. En það mundi rugla dæmið að fara að reikna þetta hærra verð, 12.9 aura, þetta tímabil, því að þá vantar á skattinn í staðinn, svo að það er einfaldara að reikna með þessum raunverulegu 10.75 aurum allt tímabilið og reikna þá líka skattinn sem svarar 20 dollurum á hvert tonn, þótt það eigi að forminu til að vera 121/2 dollar fyrstu 3 árin. Já, þá á álbræðslan að borga fyrir þessar 530 millj. kwst. á ári 10.75 aura, en þá eru eftir handa Íslendingum 370 millj. kwst., og ég get ekki betur séð en verðið á þeirri orku verði 22.84 aurar til þess að fá út alla upphæðina. Ég get ekki reiknað þetta betur. Ég mun taka því vel, ef hæstv. ráðh. leiðréttir mig seinna meir um, að ég hafi farið með einhverja vitleysu, því að það vildi ég sízt gera. Ég fæ það út, að meðalverð verði 15.72 aurar kwst. eftir þessum gögnum, sem liggja núna fyrir, en þegar ÍSAL, eða álbræðslan, borgar 10.75 fyrir sitt rafmagn, verður verðið 22.84 aurar á kwst. handa Íslendingum, allt byggt á 10% af stofnkostnaði þessa áfanga virkjunarinnar.

Ég get því ekki betur séð en það verði allverulegt tap á þessari raforkusölu á þessu tímabili, eða sem svarar mismuninum á meðalverðinu og því verði, sem álbræðslan borgar, mismunurinn verði 4.97 aurar á hverri kwst., og miðað við þetta magn raforku á ári, sem fram er tekið í þessu frv. og þessum samningi, yrði tapið eitthvað liðugar 26 millj. á ári, eða 26.341 millj. á ári, mjög nálægt 79 millj. á þessum þremur árum. Og nú skal ég taka það fram, að ég tók ekki innflutningsgjöldin með í þennan reikning, ég sleppti þeim, alveg eins og ríkisstj. Og ég tók ekki rannsóknarkostnaðinn með heldur. Ég tók bara töluna, sem stendur í frv., 1415 millj. stofnkostnaður við 1. áfanga.

Ég get ekki annað sagt en ég dáist að Svisslendingum sem samningamönnum, og vitna ég þá í leiðara í Alþýðublaðinu 30. marz s.l., og ég hygg, að leiðarinn sé skrifaður af hv. 5. þm. Vesturl., sem er ritstjóri Alþýðublaðsins. Ég get ekki betur séð, en ég þori ekkert að ábyrgjast um það. Í þessum leiðara stendur, með leyfi hæstv. forseta:

„Samningar þessir eiga sér langan aðdraganda. Mörg erlend félög hafa á undanförnum árum athugað möguleika á byggingu álverksmiðju hér á landi, en öll horfið frá, flest vegna ótryggra efnahagsmála frekar en lélegra náttúruskilyrða. Lengi vel gekk hvorki né rak í viðræðum við Svisslendinga, þar eð samningsmenn Íslands settu þeim alger skilyrði, að raforkuverð væri 2 1/2 mill. Það er skilyrði, sem Íslendingar hafa sett, ekki Svisslendingar.“

Íslendingar hafa sett, stendur þarna, að raforkuverðið verði þetta. Nú er það vitað og áður frá því skýrt, að Svisslendingar fóru fram á að fá raforkuna fyrir 2 mill, eða 8.6 aura kwst. Þeir sögðust alls ekki geta borgað meira, alls ekki, hér væri ómögulegt að borga meira, þeir hefðu ekki efni á því. Þeir voru reyndar alveg á sama tíma að semja við Norðmenn um 13.76 aura fyrir kwst., en það er önnur saga. Þeir gátu ekki borgað nema 2 mill, 8.6 aura. En þá hefur auðsjáanlega hæstv. ríkisstj. sett hnefann í borðið og sagt: „Nei, takk. 10.75 aura.“ Svo kom að því, að Svisslendingar gengu að skilyrðinu, sem hinir settu, þeir gengu að því alveg óhræddir.

Ég hef áður minnzt á varastöðvarnar, þessar gastúrbínustöðvar, sem eiga að hlaupa í skarðið, þegar Þjórsá bilar eða bregzt. Þá á álbræðslan að fá raforku frá þessum olíukyntu varastöðvum, og í I. áfanga Búrfellsvirkjunar á að reisa 20 þús. kw. gastúrbínustöð til þess að tryggja álverksmiðjunni raforku, þegar illa vill til fyrir austan. Og í samningi þessum, sem við höfum fyrir okkur, eru ákvæði um það, að þegar svona vill til, láti Íslendingar álverksmiðjunni í té þessa raforku frá varastöðvunum. En nú þurfa þeir meiri orku en ein varastöð, 20 mw, getur skilað, því að þeir eiga að fá 60–65 þús. kw. af 105, og 20 mw stöð getur því ekki fullnægt þeim, eins og allir sjá. En fyrir hvaða verð eiga þeir að fá þá raforku frá gastúrbínustöðvunum? Fyrir sama verð, 10.75 aura. Nú segir hæstv. ríkisstj. í skýrslu sinni frá í fyrra, að raforkan frá gastúrbínustöðvum muni verða um 5 sinnum dýrari en frá vatnsaflsstöð. Mér sýnist því, að hver kwst. frá þessum gastúrbínustöðvum geti orðið nokkuð dýr, eða einhvers staðar á milli 55 og 75 aura, sýnist mér a.m.k. Þetta verðum við að selja þeim á 10.75 aura. Við vitum auðvitað ekki, hvað lengi, en eftir því sem ég hef frétt frá Þjórsá þessa dagana, hefði líklega þurft að „keyra“ þessa stöð á fullu og ekki dugað til. Átti þá að taka raforku frá Sogskerfinu, frá öllum almenningi, Íslendingum, og bæta upp það, sem á vantaði handa álverksmiðjunni, því að hún verður alltaf að fá sitt, alveg afdráttarlaust og allt á 10.75 aura? Það held ég, að verði aumi „bisnessinn“ að selja þessa raforku frá gastúrbínustöð. Ég hef ekkert farið út í að reikna þetta, hvað „undirballansinn“ yrði mikill, en mér sýnist, að hann geti orðið mjög mikill, ef það þyrfti að „keyra“ svona stöð í viku eða kannske lengur í einu, svo aðra og svo þá þriðju, 20 þús. kw. stöðina og tapið er kannske á hverja kwst. um 50–60 aurar. Svo að ég reikni þetta í huganum, er þetta ekki 10 þús. kr. tap á klukkutíma eða meira? Ég er ákaflega hræddur um það. Hv. þm. geta athugað það heima hjá sér í matartímanum, hvað þetta yrði, en mér finnst það vera eitthvað um þetta. (Gripið fram í.) Nei, það má maður ekki. Maður verður að reikna þetta dæmi, áður en málið fer til 2. umr. Mér sýnist, að þetta séu ákaflega slæm viðskipti. Jú, fyrirgefið, ég hef gert uppkast að reikningi á þessu. Mér reiknast, að þetta tap gæti orðið á einum sólarhring um 260 þús. kr. Það er ekki fjarri því, sem ég var að segja áðan, eitthvað í kringum 260 þús. kr., ef varastöð er fullkeyrð, þessi stöð, með þessu verði á kwst., sem selt er svo á 10.75 aura. Það eru náttúrlega ekki hagstæð viðskipti þetta.

Þá kem ég að einni spurningunni enn til hæstv. ráðh.: Hvað tapa Íslendingar miklu á því að selja ÍSAL raforku frá gastúrbínustöð fyrir samningsverðið, miðað við fullnotaða 20 mw stöð, á einhverjum tilteknum tíma? Hvað tapa Íslendingar miklu á því? Ég er að reyna að fá staðfestingu á þessum reikningi, sem getur verið rangur hjá mér, reyna að fá staðfestingu á honum frá hæstv. ríkisstj.

Þá kem ég að lántökunum til virkjunarinnar. Um það segir í skýrslu hæstv. ríkisstj. frá því í maí í fyrra, — þar er verið að segja frá samningi við Alþjóðabankann. — með leyfi hæstv. forseta:

„Á það er bent í bréfi bankans, að bankinn láni því aðeins til slíkra framkvæmda, að aðrir lánsmöguleikar séu ekki fyrir hendi. Það er því til þess ætlazt, að Íslendingar afli fjár annars staðar, eins og frekast er unnt, en það, sem þar hefur komið til greina í því efni, er öflun markaðsláns í Sviss með aðstoð Swiss Aluminium. Jafnframt telur Alþjóðabankinn augljóst, að hann verði meginlánveitandi þeirra 20 millj. dollara, sem áætlað er að afla erlendis. Hann leggur því áherzlu á, að lánsfjáröflun annars staðar sé með kjörum, sem verði ekki fyrirtækinu byrði, og jafnframt, að öðrum verði ekki boðnar betri tryggingar en honum.“

Þetta er upp úr skýrslu hæstv. ríkisstj. frá í fyrravor. Þarna stendur, að það sé gert ráð fyrir, að Alþjóðabankinn verði meginlánveitandi, ekki eini lánveitandinn, meginlánveitandi 20 millj. dollara, sem afla á erlendis. M.ö.o.: ég get ekki skilið þessa mgr. öðruvísi en svo, og það er varla hægt að deila um, að það er rétt skilið, að Íslendingar eigi ekki að taka meiri erlend lán til virkjunarinnar en þessar 20 millj. dollara og Alþjóðabankinn hafi lofað að lána meginið af þeirri upphæð. En 20 millj. dollara eru, eins og allir vita, um 860 millj. kr. En ekki dugir þetta fyrir I. áfanga Búrfellsvirkjunar, 1415 millj. Þó að 20 millj. dollara séu teknar að láni erlendis, eða 860 millj. kr., vantar samt 555 millj. kr. til að fá út upphæðina til þess að koma upp þessum 1. áfanga, 105 mw virkjun. Og því langar mig til að spyrja: Hversu mikil lán fást hjá Alþjóðabankanum og með hvaða kjörum, og hvar fást önnur lán, hversu mikil og með hvaða kjörum verða þau? Það er að vísu búið að skýra frá því í skýrslunni frá í fyrra, sem ég er að lesa úr, að lánskjörin frá Alþjóðabankanum eiga að vera þessi, 6% vextir, 25 ára lán, afborgunarlaus 3 fyrstu árin og síðan afborguð með annuitetsreglunni eða jöfnum ársgreiðslum. Ég býst við, að það hafi ekki breytzt, en þó kann það að vera. Maður veit aldrei, hvað breytist. En um hinn hluta byggingarkostnaðarins hef ég engar upplýsingar, og því spyr ég um þetta, en það er mjög þýðingarmikið að fá þessar upplýsingar, því að það er ómögulegt að vita, hver fjármagnskostnaðurinn verður, nema vita þessi lánskjör. Við skulum segja, að hann sé þetta í kringum 8.3% af stofnkostnaði hvað snertir þessar 860 millj., það sem þær ná. En hver verður fjármagnskostnaðurinn af hinum 555 millj.? Verður hann minni eða verður hann meiri? Og þá breytist kostnaðarverð raforkunnar, ef þarna eru einhver önnur kjör heldur en hjá Alþjóðabankanum. Það er þess vegna, sem ég spyr um þetta.

Ég hef í þessum hugleiðingum haldið mig eingöngu við I. áfanga Búrfellsvirkjunar, þessa 105 mw. virkjun, en ég hef ekkert minnzt á nein fjárhagsmál hvað snertir síðari áfanga þessarar virkjunar. Ástæðan til þess, að ég geri það, að ég hef, kannske meira að gamni mínu, gert mér þessa útreikninga um raunverulegt raforkuverð frá 1. áfanga, er sú, að það liggja fyrir nokkrar — alls ekki fullnægjandi — upplýsingar um það, hvað l. áfangi virkjunarinnar muni kosta. Það er upplýst núna, eins og ég hef áður tekið fram, að nýjasta áætlunin er 1415 millj., þegar ekki eru reiknuð með aðflutningsgjöld, og hygg ég, að það sé ekki neinum vafa undirorpið, að sú upphæð er fengin nú vegna þeirra tilboða, sem bárust í virkjunina og opnuð voru, ef ég man rétt, 4. febr., og birt í öllum blöðum daginn eflir. En samkv. frásögn formanns landsvirkjunarstjórnar, Jóhannesar Nordals, við blaðamenn þann dag, náðu tilboðin, að hann sagði, til 3/5 hluta virkjunar 1. áfanga, þessarar 105 mw. virkjunar. Tilboðin náðu til um það bil 3/5 hluta af stofnkostnaði I. áfangans. (Gripið fram í.) Allar upphæðirnar. Svona er það, þegar maður fær stóra bók í hendurnar, manni yfirsést alltaf. (Gripið fram í.) Jú, ég er nú kominn lengra. Ég hélt mig vera búinn að lesa hér um bil allt plaggið. (Gripið fram í.) Bls. 226, já. Þetta kalla ég ekki viðhlítandi áætlun, svo að maður gæti áttað sig á því, hvað síðari áfangar kosta, því að þarna er verið að reikna út á mw., kostnaðinn í mw., það er ekki heildarkostnaðurinn, ég hef ekki getað séð það. (Gripið fram í: Stofnkostnaðurinn er þarna.) Stofnkostnaðurinn allur af seinni áfanganum? (Gripið fram í.) Þá er það ekki bls. 226. En það er ágætt, að þetta liggur nú fyrir, ég skal athuga það rækilega síðar, ef við höfum þarna allan stofnkostnaðinn. En hvaðan eru tölurnar komnar? Hvernig vita menn um þennan stofnkostnað af virkjunum, sem á að byggja frá 1969–1975? Hvernig er hægt að vera kominn með allar þær tölur hér inn á bls. 226? Ég segi alveg eins og er, mér er ómögulegt að skilja það. (Gripið fram í.) Er þetta ekki spádómur, er þetta ekki áætlun? Eru nokkur tilboð? Ég skal koma að því nánar á eftir. Ég hélt, að það væru engin tilboð komin í Búrfellsvirkjun nema þau, sem sagt hefur verið opinberlega frá. Ég hef ekki heyrt það, eða af hverju var þá ekki sagt frá þessum tilboðum opinberlega eins og hinum, sem opnuð voru í febrúar? Ég skal fúslega viðurkenna, að það hefur þá farið fram hjá mér, ef það hefur verið gert, að opinberlega hafi verið sagt frá því, að það hafi verið boðinn út síðari áfangi Búrfellsvirkjunar og tilboð hafi komið og liggi nú fyrir opinberlega. Ég skal viðurkenna, að þetta hefur þá farið fram hjá mér, ef það hefur gerzt.

En hitt, að það séu til einhverjar áætlanir um þetta, án þess að nokkur tilboð hafi verið gerð, það getur vel verið. Ég er ekkert að neita því og skal ekkert vera að rengja það. En um tilboðin í 1. áfangann, sem opnuð voru í febrúar, þau vita allir, og það var svo að skilja á hæstv. ríkisstj. og talsmönnum hennar, að þarna hefðu komið mjög góð tilboð. Þau hefðu verið ákaflega hagslæð, ákaflega lág, eiginlega nærri því lægri en var reiknað með. Það var nefnilega reiknað með 1050 millj. kr. stofnkostnaði af virkjuninni, og svo koma tilboðin. Tilboðin eru, eins og formaður landsvirkjunarstjórnar sagði, í 3/5 hluta virkjunarinnar, og 3/5 hlutar af áætluðum kostnaði, af þessum 1050 millj., voru þá 630 millj. Ef tilboðin færu eitthvað yfir 630 millj., voru þau hærri en áætlunin frá í fyrra, ef þau fóru yfir það í 3/5 hluta virkjunarinnar. Ef þau fara niður fyrir 630 millj. í þennan hluta, eru þau lægri en áætlunin var. Önnur áætlun lá ekki fyrir í febrúar, a.m.k. ekki opinber, þegar þessi tilboð voru kynnt. Lægsta tilboðið af 7 í þessa 3/5 hluta virkjunarinnar var 822.4 millj. eða 192.4 millj. hærra en áætlað var. Annað í röðinni var 825.9 millj. eða um 196 millj. hærra. Þriðja tilboðið var á 865.3 millj. eða um 235 millj. hærra en áætlað var. Og þessi þrjú lægstu tilboð eru þá hærri en áætlunin, sem lá fyrir í fyrra. Það lægsta er 301/2% hærra, annað í röðinni 31% hærra og það þriðja 37% hærra en áætlað hafði verið. Tilboðin eru ekki hagstæðari en þetta. Ég tala nú ekki um hæsta tilboðið, því að það er 784 millj. hærra en áætlað var eða 124%, en það lítur náttúrlega enginn við slíku tilboði. En auk þess veit ég ekkert um, hvort búið er að taka nokkru þessara tilboða, hvort búið er að meta þau, bera þau saman og meta þau eða hvort farið er að taka nokkru þeirra, því að sjálfsagt eru ýmis skilyrði, ýmsir varnaglar, ýmsir fyrirvarar í þessum tilboðum, eins og algengt mun vera, að mér er tjáð, og það þarf því að meta þau til þess að vita í raun og veru, hvað er lægst og hvað er hagkvæmast. Ég hef ekkert um það frétt, að neinu þessara tilboða hafi verið tekið, en tölurnar sjálfar, sem birtar voru í Morgunblaðinu daginn eftir að þau voru opnuð, eru þessar. Yfirleitt eru lægstu tilboðin um 30–33% hærri en áætlunin, sem fyrir lá og fyrir okkur hefur legið fram að þessu. Og þegar maður fer svo að bera þetta saman við kostnaðinn, sem nú er gefinn upp í þessu frv., 1415 millj., er hægt að fá út 30% eða í kringum það, 30% hækkun á þessum 1050 millj. og 60 millj. kr. varastöð, sem ekki var höfð með áður, hún var höfð útundan. Eftir því sem mér sýnist er þetta 1422 millj. eða 10 millj. hærra en sagt er í þessu frv.

Þarna sýnist mér vera komin alveg ótvíræð skýring á því, vegna hvers 1. áfangi Búrfellsvirkjunar er nú áætlaður 1415 millj. Það eru hreinlega tilboðin sjálf, sem hækka tölurnar hjá landsvirkjunarstjóm, og svo gastúrbínustöðin, sem aldrei var tekin með áður, en þeir urðu nú að taka inn. Þannig er þessi tala fengin.

Aftur á móti segir í grg. þessa frv., að þessi hækkun stafi af tilfærslu á framkvæmdum frá síðari áfanga fram til hins fyrra. Ég vona, að hæstv. ráðh. leiðrétti þetta, ef eitthvað er rangt, en ég hef skilið þetta þannig, að svona liggi í hækkuninni, ekki í neinum tilfærslum á framkvæmdum, heldur sé þetta raunverulega hækkun frá hinni fyrri áætlun. (Forseti: Ég bið hv. þm. afsökunar. Ég leyfi mér að spyrja, hvort hann treysti sér til að ljúka máli sínu á 2–3 mínútum, þar sem áformað hefur verið að gera hlé á fundinum um kl. 7.30.) Nei, ég get það ekki. (Forseti: Hv. þm. gerir þá hlé á máli sínu.) — (Fundarhlé.)

Herra forseti. Þegar ég lauk máli mínu fyrir fundarhléið, sagði ég frá því, að ég hefði rætt eingöngu um l. áfanga Búrfellsvirkjunar og kostnaðarverð raforkunnar frá þeim áfanga byggt á stofnkostnaði hennar. Ég var kominn að því að ræða um 2. áfanga Búrfellsvirkjunar og talaði um það, að nauðsyn væri fyrir þm. að fá að sjá sundurliðaða kostnaðaráætlun fyrir þann áfanga, því að um þann áfanga væru ekki til nein tilboð til þess að byggja skoðanir sínar á, útboð mundu ekki hafa verið gerð og þar af leiðandi engin tilboð í neitt hvað snertir þann áfanga og væri hann því byggður á áætlunum. Hæstv. ráðh. benti mér þá á, að ég skyldi lesa bls. 226 í frv. Ég hef nú litið lauslega yfir þetta síðan og er hæstv. ráðh. þakklátur fyrir að benda mér á skekkjur, ef einhverjar eru í mínu máli, og þegar ég hef nú litið yfir þá skýrslu um stofnkostnað Búrfellsvirkjunar, sem er á bls. 226, kemur í ljós, að þetta er stofnkostnaður fyrri áfanga, ekki þess síðari. Þetta er stofnkostnaður 105 mw. virkjunar, sem ætlunin er að reisa á árunum 1966–1969, — áfanginn, sem ég hef verið að ræða um nú að undanförnu. Ég hef því haft alveg rétt fyrir mér í því, að ég er ekki enn farinn að sjá neina áætlun af neinu tagi um síðari áfanga virkjunarinnar. (Dómsmrh.: Það er á bls. 227.) Það er nú aðeins mynd þar, teikning. Ég sé enga áætlun á bls. 227, það er aðeins mynd af húsinu og fjallinu þar fyrir ofan. En í þessari sundurliðun á bis. 226 yfir fyrri áfanga Búrfellsvirkjunar kemur það út, sem ég nefndi áðan, áætlun um, hvað virkjunin muni kosta. Ég sagði 1415 millj., þarna stendur 1354 1/2 millj., en það, sem vantar inn í töluna, er gastúrbínustöðin, 20 mw gastúrbínustöð, sem er áætlað, að kosti 60 millj., og þá kemur talan út, svo að ég held, að þetta sé ótvírætt alveg rétt hjá mér, að þetta er l. áfangi virkjunarinnar og ekkert um næsta áfanga talað, hvorki á þessari síðu né annarri. En af þessum kostnaði, 1415 millj., er byggt á tilboðum 859 millj., en um 4951/2 millj. er byggt á áætlunum, engum tilboðum. Það eru áætlanir um þann hlutann, 4951/2 millj., en byggt á tilboðum um 859 millj. Þar sem þessi hluti er byggður á áætlunum, er ekki heldur hægt að fullyrða, hvort þessi tala sé rétt, þessar 1415 millj. Eina leiðréttingu vil ég þó gera. Mér hefur yfirsézt það, að undirbúningskostnaður, 391/2 millj., sem ég nefndi í ræðu minni áðan, að mundi ekki vera í áætluninni, er hér með, og leiðrétti ég það. Sú tala er hér með, en gastúrbínustöðin aftur á móti er ekki með.

Þá vil ég leiðrétta hér aðra smáskekkju. Á bls. 225 er rætt um afl og orku. Ég sagði í ræðu minni hér áðan, að frá I. áfanga væri reiknað með 900 millj. kwst. á ári, og það er rétt, það stendur þar líka, um í . áfanga. En þegar fullvirkjuð er Þjórsá, er talið, að kwst. verði 1720 millj. á ári, en ég sagði 1800 millj. Þarna er dálítil skekkja hjá mér, sem gerir það að verkum, að meðalverðið á raforkunni verður hærra en ég sagði, því að kwst. eru færri, en ég hef ekki reiknað út, hvað það nemur miklu. Ég endurtek því óskir mínar um það við hæstv. ráðh., að hann gefi n. upplýsingar um það fyrir 2. umr. þessa máls, hvernig reiknaður er út byggingarkostnaður síðari áfanga Búrfellsvirkjunar.

En nú er samt óhjákvæmilegt að reyna að gera sér einhverja hugmynd um það, áður en menn fara að samþykkja slíkt frv. sem þetta, hvað þessi 2. áfangi muni kosta. Þó að engin tilboð séu til, þó að við höfum ekki fyrir okkur neina nýja áætlun um það, er óhjákvæmilegt að gera sér grein fyrir þessu til þess að geta séð nokkurn veginn, hvað raunverulegt kostnaðarverð raforkunnar verður, þegar Þjórsá er fullvirkjuð með 210 mw. Í þessu efni er ekki hægt að byggja á öðru en þeim áætlunum, sem birtust í skýrslu hæstv. ríkisstj. frá því í maí í fyrra, en þar er gerð grein fyrir þessu. Þar er gerð grein fyrir því, hvað siðari áfangar hafa verið áætlaðir. Þessi kostnaðaráætlun yfir Búrfellsvirkjun í heild er í skýrslu ríkisstj. frá í maí í fyrra, á bls. 50. Eins og áður segir, er þar fyrri áfanginn áætlaður á 1050 millj., en síðari áfangi 567 millj. án varastöðva, án gastúrbínustöðva. Samtals ætti Búrfellsvirkjun að kosta samkv. áætluninni frá því í fyrra 1617 millj., en við það bætast gastúrbínustöðvar, a.m.k. tvær 20 mw., ef ekki fleiri. Ég ætla þó, að þær eigi að verða fleiri. Ég þori ekki að fullyrða um það, hvort í grg. frv. er sagt beinum orðum, að þær eigi að verða fleiri en tvær, en tvær eiga þær að verða a.m.k., en þær eru áætlaðar á 120 millj. báðar, 60 millj. hvor, og ef því er bætt við, er gamla áætlunin yfir fullvirkjaða Þjórsá 1737 millj.

Ég geri ráð fyrir því, að það sé ekki varlegt að áætla verðhækkanirnar á 6 ára tímabili, frá 1969–1975, minni en þær hafa reynzt í þessari nýju áætlun, sem gerð er um fyrri áfanga, eða 30%, m.ö.o., að sú hækkun, sem fram hefur komið, 30%, haldi sér á síðari áfanganum, þó að engin verðbólguaukning verði á þeim 6 árum og hin gamla áætlun, 1617 millj. án varastöðva, haldi sér að öðru leyti en því að bæta við þessum 30%. En ef þetta er gert, ef reiknað er með því, að síðari áfangi virkjunarinnar, 627 millj. með einni varastöð, hækki um 30%, eins og komið hefur í ljós, að hinn fyrri gerir, hvað er þá Búrfellsvirkjun orðin dýr? Ég get ekki betur séð en hún verði um 2230 millj., eða síðari áfanginn um 815 millj., en um fyrri áfangann vitum við áætlunina, 1415 millj.

Ég skal að vísu viðurkenna, að ég skil ekki fyllilega eina mgr. í grg. með þessu frv., hvað snertir einmitt þetta atriði, endanlegt kostnaðarverð Búrfellsvirkjunar. Á bis. í 10 í grg. segir, með leyfi hæstv. forseta: „Loks hefur það mikilvæg áhrif í þá átt að draga úr áhættu Íslendinga, að þegar hafa verið fengin föst tilboð í öll byggingarmannvirki Búrfellsvirkjunar, svo að stofnkostnaður hennar er þegar að langmestu leyti fastbundinn, þó að verðhækkanir eigi sér stað á byggingartímanum.“

Ég skil ekki þessa mgr., segi ég, vegna þess að ég leit svo á, að það þyrfti að gera meiri byggingar en áætlað er í l. áfanga og engin tilboð lægju fyrir frekar en þau, sem skýrt hefur verið frá opinberlega. En þarna segir skýrum stöfum, að öll tilboð liggi fyrir um byggingarframkvæmdir við Búrfell. Og nú vil ég spyrja: Liggja þá fyrir tilboð um öll byggingarmannvirki, sem þarf að reisa vegna ísvandamálsins í Þjórsá? Geta þá væntanlegir hv. nm. fengið að sjá þessi tilboð, sem hafa borizt í öll byggingarmannvirkin við Þjórsá, og auðvitað hvað snertir ísvandamálið líka? Hér stendur það í grg. frv.

Eins og ég sagði, finnst mér harla litlar líkur til þess, að endanlegur stofnkostnaður Búrfellsvirkjunar, 210 mw., geti orðið lægri en þetta, 2230 millj. kr. Auðvitað getur mér yfirsézt eins og öðrum um það, hvernig eigi að áætla og hvernig eigi að reikna eitt og annað. En til þess eru umr. m.a., að maður fái sem allra bezt úr þessu skorið. Ég held, að ég muni það rétt, að ég hafi séð þau ummæli í blaðagrein eftir Sigurð Thoroddsen, sem á sæti í landsvirkjunarstjórn, að nú þegar sé búið að áætla fullnaðarkostnaðarverð Búrfellsvirkjunar 1910 millj. Ég held, að það standi einhvers staðar í þessari grg., en ég þori ekkert að fullyrða um, hvaðan hann hefur það, en þó ætti hann að vita þetta, þar sem hann á einmitt sæti í stjórn Landsvirkjunar. Mér finnst hins vegar líklegra, að þetta verði meira vegna þeirra hækkana, sem þegar eru komnar í ljós, og geti varla orðið minna á öllu því tímabili, sem á eftir að líða til 1975. En ef þetta reyndist nú rétt, að Búrfellsvirkjun kostaði endanlega 2230 millj. og skilaði 1800 millj. kwst. á ári, verður árlegur kostnaður raforkunnar eftir 10%-reglunni, sem ég hef áður rætt um, 223 millj. Af því á álbræðslan að fá, þegar öll virkjunin er komin í gagnið, 1060 millj. kwst. á ári á 10.75 aura, sem verða þá 114 millj., en Íslendingar eiga að hafa fyrir sig um 740 millj. kwst. á ári, og reiknast mér þá svo til, að verðið til þeirra, þegar öll virkjunin er komin í gagnið, verði 14.73 aurar á kwst. eða 109 millj. Auðvitað lækkar meðalverð raforkunnar við það, þegar öll virkjunin er tekin til starfa, því að síðari áfangar eru að sjálfsögðu mun ódýrari en sá fyrsti. En sé þetta rétt hjá mér, að reikna megi með 223 millj. kr. kostnaði á ári, verður meðalverð á raforkunni, hverri kwst., um 12–39 aurar í fullvirkjaðri Þjórsá, þannig reiknað eins og ég hef nú gert grein fyrir.

Á bls. 225 í frv. er gerð grein fyrir, hver heildarorkan verður. Í fyrsta áfanga er reiknað með 900 millj. kwst., eins og ég sagði áður í ræðu minni, en endanleg orka verði 1720 millj., en ekki 1800, eins og ég nefndi. Þannig er þetta á bls. 225 í frv., en við það, að þarna er lægri tala en ég nefndi, verður meðalverðið hærra en þetta, eins og ég hef áður sagt, ekki mikið, ég hef ekki reiknað það út, en eitthvað hærra. Undir þessari töflu stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Afgangsorka verður fyrir hendi langtímum saman. Þessi orka hefur enn ekki verið metin til verðs.“

Ef þetta reyndist nálægt sanni, sem ég hef hér haldið fram, að allar líkur bendi til þess, að meðalverð á kwst. frá fullvirkjaðri Þjórsá verði 12.39 aurar, er það 1.64 aurum hærra en álverksmiðjunni er seld orkan. Og þessi mismunur mundi nema um 171/2 millj. kr. á ári, sem Íslendingar töpuðu á því, sem þeir seldu álverksmiðjunni. En allt er það bundið því skilyrði, að verðbólguaukningin verði nánast engin á tímabilinu 1969–1975. Verði aftur á móti verðbólguaukning svipuð og að undanförnu, verður þetta tap meira, og verði lausn ísvandamálsins erfið og kostnaðarsöm umfram það, sem þegar hefur verið gert ráð fyrir, en hún virðist mjög lágt áætluð, eins og ég nefndi, verður auðvitað hallinn enn meiri. En auk þess vantar inn í þetta dæmi um tapið, sem ég nefndi hér áður í kvöld, það tap, sem stafar af því að selja raforku frá gastúrbínustöðvum á 10.75 aura, sem kostar kannske 55–75 aura, og getur munað þó nokkrum upphæðum.

Niðurstaða mín úr þessum hugleiðingum er því sú, að það séu ákaflega sterkar líkur til þess, að Íslendingar séu að selja orkuna með tapi til álbræðslunnar, með miklu tapi, sennilega 80 millj. kr. tapi á fyrstu þremur árunum, en yfir allt tímabilið líklega eitthvað í kringum 17–18 millj. a.m.k. á ári, en getur orðið miklu meira. Ég veit, að um svona hluti má sjálfsagt alltaf deila, þegar verið er að gera áætlanir um hluti, sem engin vissa er fengin um. En þó að ég geri hinar allra varfærnustu áætlanir, sem ég tel mig hafa gert, fæ ég út þetta tap. Þetta þykir kannske ekki neitt alvarlegt tap, þó að það yrðu 18 millj. á ári. En samt stingur það í stúf við skýrslurnar, sem birtar hafa verið í Morgunblaðinu og í grg. þessa frv. um gróðann, sem Íslendingar eiga að hafa af sölunni og samningnum, gróða af raforkusölunni fyrir þetta verð, er nemur um 860 millj. með vöxtum á 25 árum. Það geta náttúrlega ekki orðið neinar slíkar millj. í gróða, ef mínir reikningar reynast réttir, heldur þvert á móti tap. En 18 millj. kr. tap á ári, ef það reyndist nú það, yrði 1047 millj. á 25 árum með 6% vöxtum, reiknað með sama hætti og hæstv. ráðh. hefur látið gera yfir gróðann. Ég skal endurtaka það, að ef Íslendingar tapa 18 millj., aðeins 18 millj. á ári á því að selja raforkuna með þessu verði, þá er það tap orðið 1047 millj. kr. á 25 árum með 6% vöxtum. Og þó vil ég segja, að það er alvarlegt við þetta, að öll þessi raforka til álbræðslunnar er niðurborguð með eftirgefnum innflutningsgjöldum. En við höfum annan vafasaman hagnað líka af þessum samningi, eins og hér hefur komið fram hjá öðrum ræðumönnum, að það á líka að gefa eftir innflutningsgjöld af vörum og vélum og tækjum öllum til álbræðslunnar sjálfrar og þessi eftirgjöf muni nema um 500 millj. kr. Auðvitað er sú eftirgjöf í eitt skipti, en ekki árlega. En aðeins þessi eftirgjöf, svo að ég noti reikningsaðferðir ríkisstj., þessi eftirgjöf, 500 millj. í innflutningsgjöldum til álverksmiðjunnar, mundi nema með gamla 6% vaxtareikningnum 2146 millj. á 20 árum.

Ég vona, að menn afsaki það, þó að ég geri það að gamni mínu að sýna reikninga á þennan veginn. Af því að það er lögð svo mikil áherzla á að sýna gróðareikningana, þá má varla minna vera en að maður geri ráð fyrir tapi líka og reikni það út.

Þannig lítur þetta út, hvað kostnað við Búrfellsvirkjun snertir, frá mínu sjónarmiði eftir þeim gögnum, sem ég hef bezt getað skoðað um það mál. En sagan er bara ekki búin. Það þarf að virkja meira. Þjórsá dugir ekki. En af hverju dugir hún ekki? Af því að við seljum mikinn hluta af orkunni útlendingum. Við verðum því að fara að virkja fyrir okkur sjálfa og vera búnir að virkja þó nokkuð mikið árið 1976, ettir 10 ár. Þá verður ný virkjun að vera komin í gagnið til viðbótar Búrfellsvirkjun. Ég sé í Morgunblaðsgrein eftir hæstv. iðnmrh., að hann talar um þetta. Þá þurfi að fara að virkja. Þá verði raforkan búin. Þessi frá Búrfellsvirkjun. Þá fer Íslendinga að vanta raforku. Það er vist alveg rétt. Og hann orðar það þannig, ef ég man rétt, að þá verði virkjaður Háifoss eða einhver önnur framkvæmd, sem lagt verður í. Ég man ekki, hvort ég hef þetta orðrétt hérna hjá mér. Það er nú alltaf vissara að hafa það. (Gripið fram í.) Já, ég held, að það hljóti að vera rétt. Já, hæstv. ráðh. segir í Morgunblaðsgreininni 24. febr., þar er verið að tala um Búrfellsvirkjun: „Með bræðslu nægir sú virkjun hins vegar ekki nema til 1976. Hér er reiknað með, að þá taki við Háafossvirkjun eða sambærileg framkvæmd.“ Já, þetta er rétt haft eftir hjá mér: Háafossvirkjun eða sambærileg framkvæmd. Mér sýnist á þessu, að þarna sé allt í lausu lofti, hvað verði virkjað næst, annaðhvort Háifoss, — ég skal nú viðurkenna, að ég veit ekki, hvar Háifoss er, en það skiptir ekki máli, hann er einhvers staðar þarna fyrir austan, — en svo segir „eða sambærileg framkvæmd“. Það er ekkert víst, að það verði Háifoss, það getur orðið einhver annar foss einhvers staðar annars staðar. Við vitum þetta ekki, og hæstv. ríkisstj. veit það ekki heldur. En það verður ný virkjun, og hún á að vera komin upp 1976. En hvað kostar hún? Veit hæstv. ríkisstj., hvað hún kostar, eða á hún til einhverja áætlun um það, hvað hún kostar? Og ef hún veit þetta ekki frekar en ég, hvernig er þá hægt að birta töflur í Morgunblaðinu og í nál. um gróðann öll árin fram til 1985 og vita svo ekkert, hvað þessi virkjun kostar? Er ekki von, að manni blöskri ónákvæmnin í þessu öllu saman? En þetta er nú samt svona. Hæstv. ríkisstj. hefur talið sér fært að reikna út gróða af rekstri vatnsaflsstöðva, einhverra, einhvers staðar, sem ekki er farið að gera neina áætlun um, — áætlun um gróða allt fram til 1985. En þó að við vitum ekkert meira en þetta um þennan þriðja kafla virkjananna, sem ég vil kalla svo, þá vitum við þó eitt, og um það verður víst ekki deilt, að allar virkjanir, sem lagt verður í eftir Búrfellsvirkjun, verða dýrari og miklu dýrari en Búrfellsvirkjun. Ekki bætir það úr skák, þegar á að fara að gera upp gróðann eða réttara sagt tapið af því að selja raforkuna á 10.75 aura kwst.

Á bls. 99 í grg. frv. er rætt um áhrif álbræðslu á gjaldeyris- og þjóðartekjur. Þar er m.a. sagt, að gjaldeyristekjur Íslendinga af þessum samningi og álverksmiðjunni og því öllu saman verði um 300–320 millj. kr. á ári, þegar álbræðslan er fullbyggð og tekin til slarfa. Og þessu er skipt niður á mannskapinn, sem muni vinna í Straumsvík, 450 manns. Og útkoman er sú, að gjaldeyristekjur á mann á ári verði allt upp í 700 þús. kr. Aftur á móti í skýrslunni í fyrra voru það ekki nema 650 þús., en það er allt upp í 700 þús. núna. En látum það vera, það skiptir ekki miklu máli, hvor talan stendur á pappírnum. Sagt er, að þetta sé meiri gjaldeyrisöflun á hvern mann heldur en þekkist í íslenzkum atvinnuvegum, sem fyrir eru. En útreikningurinn á þessu er kannske nokkuð flókinn fyrir mig, hvernig þeir fá þessar 320 millj. Hins vegar er hægt að sjá það, hvernig þetta var reiknað í fyrra, í skýrslu hæstv. ríkisstj. þá, því að þar var þetta alveg sundurliðað. Það er á bis. 11 í skýrslunni frá því í maí í fyrra. Þar er það sagt, hvernig þetta er reiknað. Það eru 103 millj. fyrir raforku, um 50 millj. í skatta og 150–200 millj. laun og þjónusta. Þessar tölur koma ekki alveg nákvæmlega heim við frv. núna, en það breytir ekki miklu. Þannig var þetta sundurliðað þá, og má segja, að það megi miða við þetta enn.

Það, sem ég rek strax augun í við þessa skýrslu, er: hvernig stendur á því, að þeir fara að deila þessu niður á starfsfólkið þarna í Straumsvík, þessum upphæðum? Er fólkið í Straumsvík að framleiða raforkuna, sem verið er að selja Svisslendingum? Er það að framleiða þessa vöru, þessa gjaldeyrisvöru, raforkuna? Ég hélt, að það fólk kæmi ekkert að því. Ég hélt, að það fólk ætti að vinna við álið. Hvað er verið að blanda raforkusölunni inn í þetta? (Dómsmrh.: Það er af því, að raforkan er borguð í dollurum.) Fara ekki þeir dollarar aftur upp í afborgun og vexti af lánum? (Dómsmrh.: Að parti.) Að parti, fara þeir ekki allir og meira fyrstu árin? Hvernig getur það verið? Ef tekin eru útlend lán til þess að borga alla Búrfellsvirkjun, duga þá peningarnir frá álverksmiðjunni? Ég get ekki reiknað þetta í huganum náttúrlega, en ég skal athuga það. En ég hélt, að þessi greiðsla fyrir rafmagn frá verksmiðjunni færi öll, sem á að vera eitthvað í kringum 103 millj. á ári, og þó að hún sé allt að 114 millj. kr., — ég hélt, að hún færi til þess að borga vexti og afborganir af lánunum, ef öll lánin eru erlend, að segja, og þurfi talsvert meira en greiðslan verður frá álverksmiðjunni fyrir raforkuna. En jafnvel þó að það væri einhver afgangur af gjaldeyrinum, til hvers er þá verið að reikna þetta svona? Hann fer allur út aftur. Íslendingar nota ekki þennan gjaldeyri til að kaupa fyrir vörur eða neitt þess háttar. Ég held, að þessi upphæð, sem kemur fyrir raforkusöluna, komi ekkert við gjaldeyrisöflun fólksins, sem vinnur í Straumsvík. Það kemur ekkert málinu við.

Hvað má segja um skattana, sem kallaðir eru framleiðslugjald? Er það gjaldeyrisöflun fólksins, sem vinnur þarna? Það er gjaldeyrir, það er alveg rétt. En ég held, að það sé vafasamt að blanda því inn í tölu Íslendinganna þarna. Hvernig er það, ef það verður mikið af þessu útlendingar? Breytir það engu? Það er bezt að fara ekki mikið út í þetta, nema einn liðinn, það eru laun fyrir störf og þjónustu þarna í Straumsvík, 450 manns, 150–200 millj. Það hlýtur þá að vera ákaflega vel launað. Ég held, að þetta fólk hljóti að vera á miklu meira en Dagsbrúnarkaupi, ef 450 manns geta fengið 150–200 millj. yfir árið fyrir vinnu sína. Mér sýnist, að þá þyrfti hver maður að hafa um 330–440 þús. kr. árslaun, og mér þykir það vel borgað eða það mundi þykja hérna í Reykjavík. Nei, það er auðvitað miklu fleira fólk, sem vinnur við þetta, en þessi 450. Enda segir í skýrslunni frá í fyrra: „laun og þjónusta og hvers konar starfsemi“ þessu tengt. Ég geri ekki ráð fyrir, að þeir borgi hverjum manni, sem hjá þeim vinnur, meira að meðaltali en 150–200 þús. kr. á ári. Þeir kannske borga eitthvað hærra en íslenzkir atvinnurekendur, því að þeir hafa meiri möguleika til þess, og þeir mega gera það, þó að þeir borgi 150–200 þús. yfir árið. Og það eru hinar raunverulegu gjaldeyristekjur á mann og annað er það ekki. Mér sýnist reikningurinn um, að þetta verði 650–700 þús. á mann á ári, vera hreinlega út í loftið.

Það hefur verið nokkuð deilt á hæstv. ríkisstj. fyrir að undirskrifa þessa samninga, áður en þeir voru lagðir fyrir Alþ., og er ekki að furða, þó að mönnum þyki slíkt heldur lítilsvirðing fyrir þinginu. Ég hef brotið um það heilann, hvers vegna hæstv. ríkisstj. tók þetta til bragðs. Í hvaða tilgangi er hún að skrifa undir slíkan samning, áður en hann er lagður fyrir þingið? Kom ekki undirskriftin að alveg jafnmiklu gagni, þó að það væri gert eftir að Alþ. hafði samþykkt frv.? Ég á erfitt með að skilja þetta. En ef samningurinn hefði fyrst verið lagður fyrir Alþ. og undirskrifaður á eftir, hefði ekki verið hægt að deila á einn eða neinn fyrir það, að Alþ. hefði verið sýnd lítilsvirðing. Ég skil ekki, að þessa hafi þurft vegna hv. stuðningsmanna ríkisstj., að beita slíkum öryggisráðstöfunum. Ég held, að þeir eigi ekki skilið neinar slíkar aðdróttanir. Þeir hafa ekki reynzt ríkisstj. þannig, að þess hafi átt að þurfa. Þessum aðfinnslum og ádeilum út af undirskriftinni svaraði hv. 5. þm. Vesturl. nokkuð í dag, og það, sem hann sagði þá, var í raun og veru það sama og hann var búinn að segja í Alþýðublaðinu í leiðara 30. marz s.l., sem ég ætla, að hann hafi skrifað, þó að ég hafi ekki sannanir fyrir því, en hann notaði eiginlega sömu orðin í dag og eru í þessum leiðara. Ég býst við, að ég geri honum ekki rangt til, þótt ég gizki á, að hann hafi skrifað hann sjálfur. Í þessum leiðara segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Þjóðviljinn hefur gert harða árás á ríkisstj. fyrir það, að samningarnir við Swiss Aluminium Ltd. skyldu vera undirritaðir af iðnmrh., áður en þeir voru lagðir fyrir Alþ. Kallar blaðið þetta fyrirlitningu á Alþ. Þessi málflutningur er furðulegur. Samkv. 21. gr. stjórnarskrárinnar á forseti lýðveldisins að gera samninga viðerlend ríki, en það þýðir í reynd, að ríkisstj. á að gera slíka samninga. Ef þeir hafa í sér fólgið afsal, kvaðir á landi eða landhelgi eða breytingu á stjórnarhögum ríkisins, skal samþykki Alþ. koma til.“

Ég held, að ég muni það rétt, að hv. þm. endurtæki þetta hér í dag. Hann var að halda því fram í dag og heldur því fram í þessum leiðara: Ríkisstj. þarf ekki að leggja saminga fyrir Alþ. nema undir vissum skilyrðum. Og hver eru svo þessi skilyrði? Jú, hann tekur þau fram. Ef í þeim felst afsal, kvaðir eða breyting á stjórnarhögum. Er þetta þá skýring á því, vegna hvers þessi samningur er nú lagður fyrir Alþ.? Er hv. þm. með þessu að segja: Í þessum samningi er afsal, kvaðir, breyting á stjórnarhögum, af því er hann lagður fyrir þingið? (Dómsmrh.: Þetta er frv., sem á að fá lagagildi.) Já, en mér skildist, að hv. þm. héldi fram, að hæstv. ríkisstj. hefði ekkert þurft að vera að leggja þetta frv. fyrir þingið nema vegna þessa ákvæðis í stjórnarskránni, ef samningar séu þess eðlis. að þetta felist í þeim, verði að gera það. Þetta kemur þannig út, hvort sem hv. þm. meinar það eða meinar það ekki, að það sé í þessum samningi afsal. kvaðir eða breytingar á stjórnarskránni. Ég veit ekki, hvort hann meinar þetta, en þannig kemur þetta út í leiðaranum.

En er þá nokkurt afsal í þessum samningi? Það er ekki örgrannt um það, að það sé afsal á dómsvaldi. Eru nokkrar kvaðir í þessum samningi? Mér finnst, að sú kvöð sé í samningnum, að Íslendingar selji raforku með tapi. Er nokkur breyting á stjórnarhögum í þessum samningi? Mér dettur helzt í hug þetta með Vinnuveitendasambandið, að menn hafa, sumir, nokkrar áhyggjur af því, t.d. að það geti haft einhverjar afleiðingar, ef útlendingar gerðust hér umsvifamiklir í vinnuveitendasamtökunum í landinu, og það kynni kannske að breyta eitthvað stjórnarhögum. En það er víst margt fleira en það, sem gæti komið til greina undir þessum lið. En það lítur þó út fyrir, að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því, að Alusuisse fari að taka völdin í Vinnuveitendasambandinu, því að Alþfl. hefur tekið að sér að tryggja, að það komi ekki fyrir.

Þá er rætt í þessu frv. um áhrifin af eiturlofttegundum frá álverksmiðjunni, og skýrt er frá því, að það sé ástæðulaus ótti að vera að gera ráð fyrir neinum skaðlegum áhrifum af lofttegundum eða eiturefnum frá þessari verksmiðju, enda er samningurinn þannig úr garði gerður, að fyrirtækið á engar öryggisráðstafanir að gera til að eyða flúorgasi eða öðrum slíkum eiturtegundum í Straumsvik, þó að þeir verði að gera það í öðrum löndum. Á bls. 217 í grg. frv. er skýrsla frá Rannsóknastofnun iðnaðarins um mengun. Ég ætla ekki að fara að lesa þessa skýrslu, en þar er greint frá því, hvaða skaðleg efni, úrgangsefni, komi frá álbræðslunni. Þar er nefnt tjöruefni, brennisteinssambönd, áloxýðryk, krýólít, flúorvetni, kolsýra og kolsýringur. Þá segir þar, með leyfi hæstv. forseta:

„Swiss Aluminium Ltd., Zürich, sem er samningsaðili að byggingu fyrirhugaðrar álbræðslu í Straumsvík, hefur gefið eftirfarandi upplýsingar í bréfum, dags. 3. febr. 1966 og 1. marz 1966.“ Ég nenni ekki að lesa allar þessar tölur, þar er skýrt frá í tölum heildarmagni hverrar eiturtegundar fyrir sig eða lofttegundar á hvern rúmmetra o.s.frv., en svo segir, með leyfi hæstv. forseta: „Þessar tölur verða lagðar til grundvallar við þessa athugun, þar sem í fyrsta lagi mjög miklar rannsóknir eru gerðar til þess að spara krýólit (flúor) vegna hins háa kostnaðar“ o.s.frv.

M.ö.o.: hættan af þessum eiturlofttegundum frá álbræðslunni er útskýrð af sjálfu Swiss Aluminiumfélaginu. Og rannsóknastofnunin íslenzka, Rannsóknastofnun iðnaðarins, segir, að þessi athugun, sem hún svo geri, sé byggð á þessum tölum frá Swiss Aluminium. Var nú ekki hægt að fá neinar upplýsingar frá hlutlausari aðila um þessa hættu en frá Swiss Aluminium? Þurfti íslenzk rannsóknastofnun að byggja á tölum og upplýsingum frá því fyrirtæki? Þarna er ég ekki að segja, að neitt sé rangt, sem þetta fyrirtæki hefur sagt þarna. En þessi vinnubrögð finnst mér einkennileg. Síðan er talað um tjónahættu af þessum lofttegundum á sláturdýr, fiska,sagt,að sláturdýrin, sem eru alin upp í næsta nágrenni við álbræðslu, verði ekki fyrir sjáanlegum áhrifum, fyrr en þau verða tveggja ára, — þá kemur það í ljós. Þetta er nú um sláturdýrin. Þar er talað um jórturdýr, — mér virðist nú, að sum sláturdýr séu jórturdýr, en þau eru nú sér í flokki. Þar er talað um, hve mikið magn þurfi að vera, til að þau verði fyrir tjóni, og það endar með því, að þau liggja dauð, þegar komið er í ákveðið magn. Niðurstöður rannsóknastofnunarinnar um þessa hættu eru m.a. á þá leið, orðrétt: „Hættusvæðið ætti því að liggja innan 3–4 km fjarlægðar frá áætlaðri álbræðslu við Straumsvík.“ Hún viðurkennir, að það verður hættusvæði þarna, og hættusvæðið er teiknað upp á kort, sem fylgir þessu frv. Það ætti því að liggja innan 3–4 km frá álbræðslunni, m.ö.o. 3–4 km í allar áttir frá álbræðslunni er hættusvæði, segir rannsóknastofnunin. Og auk þess segir: „Ályktun þessi er miðuð við fyrsta þrep byggingarframkvæmdanna eða 30 þús. tonna bræðslu, vegna þess að þar er óvissan mest. En við rekstur þessa fyrsta þreps er aðstaða til þess að rannsaka nákvæmlega, hvar hin raunverulegu hættumörk liggja, og gera þær ráðstafanir, er reynslan sýnir, að nauðsynlegt sé.“

Menn vita sem sé ekkert með vissu um þessa hættu, hvað hún er mikil eða hvað hættusvæðið verður stórt, en telja þó, að það sé ekki nema 3–4 km frá álbræðslunni, þó verði ekki sagt um þetta með vissu fyrstu 3 árin, en á því tímabili megi rannsaka þetta og komast að betri niðurstöðu. Hins vegar hefur álbræðsla í Noregi orðið að fyrirbyggja þessa hættu.

Ef menn virða fyrir sér kortið af hættusvæðinu, sjá þeir, að það er ekki alveg eftir þessari formúlu, þetta kort af hættusvæðinu. Það eru 3 km í vestur frá bræðslunni, — ekki 4, aðeins 3, — það eru 3 km í suður, en það eru ekki nema 2 km í austur. Og vita menn, af hverju eru ekki nema 2 km í austur? Það er af því, að þar er Hafnarfjörður. Hafnarfjörður lendir inni á hættusvæðinu, ef það væri markað eins og segir í þessari grg. Ef þetta hættusvæði væri dregið 4 km, eins og þarna er fyllilega gefið í skyn, að megi gera ráð fyrir, yrði Hafnarfjörður sennilega hér um bil allur á hættusvæðinu. Það er vel af sér vikið að búa til kort yfir svona hættusvæði.

Ég vildi nú gjarnan beina því til þeirra manna, sem eru í forustuhlutverkum fyrir vinnandi fólk í landinu, að svona mál sé athugað dálítið betur. Það eru í gildi lög um öryggisráðstafanir á vinnustöðum. Segir m.a. í 5. gr. þessara laga, þ.e. laga nr. 23 frá 1. febr. 1952, með leyfi hæstv. forseta:

„Vinnuveitanda ber að sjá svo um, að á vinnustað sé öllu svo fyrir komið, að verkamenn séu verndaðir gegn slysum og sjúkdómum, eftir því sem föng eru frekast til. Vinnuveitanda ber að sjá svo um, að verkamenn fái vitneskju um, ef hætta fylgir störfum þeirra, og á hvern hátt bezt sé að forðast hana. Sérstaklega skal leiðbeina óvönum verkamönnum, nemum og ungum verkamönnum í þessu efni.“

Í 8. gr. þessara laga segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Þegar um vinnu er að ræða, sem hefur í för með sér óvenjulega mikla hættu fyrir líf, limi eða heilbrigði verkamanna eða er óvenjulega erfið, getur ráðh. sett reglur í samráði við öryggismálastjóra um öryggisútbúnað umfram það, sem mælt er fyrir í lögum þessum. Í þeim reglum geta verið ákvæði um takmörkun vinnutíma, að verkamenn innan 18 ára aldurs séu eigi látnir framkvæma verkið og eigi heldur verkamenn, sem hafi annaðhvort ekki nægilegt líkamlegt eða andlegt atgervi til vinnunnar.“

Í 11. gr. þessara laga segir, með leyfi hæstv. forseta: „Sérhver, sem ætlar að reisa eða reka meiri háttar verksmiðju eða verkstæði eða breyta eldra fyrirtæki, skal leita umsagnar öryggismálastjóra um, hvort hið fyrirhugaða skipulag sé í samræmi við lög þessi og reglugerðir settar samkv. þeim. Í því skyni skal hann láta í té sundurliðaða grg. með nægilegum uppdráttum yfir fyrirkomulag véla og húsakynna og öðrum upplýsingum, sem máli kunna að skipta, allt eftir því, sem öryggismálastjóri kann að krefjast“ o.s.frv.

Nú vil ég spyrja: Verður ekki álbræðslan undir lögum um öryggisráðstafanir á vinnustað? (Dómsmrh.: Það stendur í samningnum.) Að hún sé undir þeim? (Dómsmrh.: Já.) Hlýtur þá ekki að leiða af því, að það verði að gera öryggisráðstafanir þegar í byrjun til að sporna við þeirri hættu, sem bent er á í skjali rannsóknastofnunarinnar? Ég vænti þess, að þessi lög verði framkvæmd og það dugi ekki að semja um það, að ÍSAL skuli engum eiturlofttegundum eyða, eins og gert mun hafa verið. (Gripið fram í.) Ja, það eru sama sem engar ráðstafanir á móts við það, sem gert er í öðrum löndum. Ég ætla, að þær séu harla litlar á móts við það, sem þeir verða t.d. að gera í Noregi.

Ég skal fara að ljúka máli mínu, en ég vil aðeins að lokum segja það, að ein höfuðrökin fyrir þessari samningsgerð hafa verið þau, að Íslendingar gætu selt afgangsorku með góðum kjörum og virkjað þannig stór fallvötn, sem yrðu ódýrari í virkjun en þau smærri. Og hæstv. ríkisstj. hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að eina leiðin til þess að afla markaðar fyrir þessa afgangsorku hafi verið álbræðsla, hafi verið fyrirtæki auðhrings úti í heimi til þess að reka hér álbræðslu. Og nú vil ég spyrja: Voru engir möguleikar aðrir til þess að afla markaðs fyrir þessa orku? Hefur aldrei verið athugað, hvort ekki var hægt að selja orku frá Búrfellsvirkjun, til þess að hita upp hús hér sunnan- og suðvestanlands, — hús, sem ekki hafa jarðhita til upphitunar? Menn vita, að þessi hús eru hituð upp með olíu og olían kostar gjaldeyri. Hefur þetta nokkurn tíma verið rannsakað? Var ekki þess vert á öllum þessum 5 árum, sem liðin eru síðan stóriðjunefnd var sett á laggirnar, að gera athugun um það, hvort þessir möguleikar væru ekki fyrir hendi? Nú vitum við, að ríkið selur raforku til upphitunar og hefur gert alllengi, þó að í mjög takmörkuðum stíl hafi verið. Og eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið, er verð á raforku til upphitunar allt frá 29 aurum, hef ég frétt um, og upp í 40 aura kwst., þegar þau skilyrði fylgja, að það megi loka fyrir raforkuna á vissum klukkutímum sólarhringsins eftir því, hvernig álagið er. En þegar menn geta nú keypt raforku frá ríkinu fyrir kannske 30–40 aura, eins og sakir standa nú, voru þá engir möguleikar til þess að selja almenningi raforku til upphitunar í staðinn fyrir að selja hana á 10.75 aura til álbræðslu? Ég skal viðurkenna, að ég hef enga faglega þekkingu í þessum efnum. En mér finnst, að svona hluti hefði átt að rannsaka, áður en farið var að gera samninga af þessu tagi. Ég hef aldrei heyrt, að nokkur athugun hafi farið fram á þessu. Og það er alveg jafnmikils virði og gjaldeyrisöflun að spara þann gjaldeyri, sem við eyðum núna í innflutning á olíu.