15.11.1965
Efri deild: 16. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í B-deild Alþingistíðinda. (119)

6. mál, Húsnæðismálastofnun ríksisins

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Hv. frsm. 2. minni hl. heilbr.- og félmn. lagði á það áherzlu í ræðu sinni hér áðan, að ég hefði sérstaklega óskað eftir því, að n. tæki till. hans, sér í lagi 3. till. hans á þskj. 72, til athugunar. Nú skiptir það ekki öllu máli að það, sem ég sagði um þetta efni við fyrri hl. þessarar umr., var það, að ég teldi ástæðu til, að þetta yrði athugað, sér í lagi hvort það stæðist frá lagalegu sjónarmiði séð að setja slíkt ákvæði inn í l. Það hefur að dómi þeirra, sem ég hef getað haft samband við á þessum tíma og fróðastir eru um l., verið talið, að það út af fyrir sig gæti staðizt. En síðan fyrri hl. þessarar umr. fór fram fyrir nokkrum dögum, hefur mönnum gefizt tóm til að athuga nánar og íhuga nánar um, hvernig þetta ákvæði mundi í raun og sannleika koma fram út á við. Og mín niðurstaða er þessi í fyrsta lagi, að yrði þessi till. lögfest, yrði um tvenns konar hámark húsaleigu að ræða, og í öðru lagi, að þvert ofan í það, sem hv. þm. sagði hér áðan, þá mundi það að mínu viti draga úr ferðinni um það, að ný hámarksákvæði væru sett.

En ég tel ástæðu til að leiðrétta það hér, sem sjálfsagt mér hefur orðið á eins og öðrum ræðumönnum í þessu máli, að blanda hér saman tvennum l., sem eru óskyld eða a. m. k. ekki eins náskyld og nafn þeirra gæti bent til. Við höfum kannske um of talað um húsaleigulög, en þau voru fyrir allmörgum árum afnumin og eru ekki til lengur, munu ekki vera til praktískt talað nema hjá einu bæjarfélagi, sem hefur óskað að framlengja þau á sínu yfirráðasvæði. En hins vegar, þegar við höfum minnzt á húsaleigulög, höfum við átt við l. um hámark húsaleigu, sem enn eru í gildi. Húsaleigulögin eldri eru, eins og ég áðan sagði, fyrir nokkrum árum afnumin.

Ég tel að þessi brtt., sem hv. 1. þm. Norðurl. e. lagði mestan þunga sinn á að samþykkt yrði, kynni að draga úr ferðinni, seinka allverulega eða um óákveðinn tíma samningu nýrra ákvæða, því að þá mætti segja, að ekkert sérstakt ræki á eftir, að það yrði gert. Það er enn fremur skoðun mín, að væri það ákvæði til, sem ætlazt var til með þessari nýju breytingu á húsnæðismálalöggjöfinni frá s.l. ári, væri það ákvæði í l., að leigja mætti á sannvirði, þá væri byggt mun meira af leiguíbúðum en gert er í dag og væru þá áreiðanlega ekki þær sorglegu staðreyndir, sem fyrir hendi eru á þeim markaði nú.

Menn hefur ekki greint á um, að þessi l. um hámark húsaleigu hafa verið þverbrotin á undanförnum árum, eru því miður, að því er virðist, nánast ekki til annarra nota í dag en til þess, að menn sýni þær tölur við skattauppgjör, sem er áreiðanlega ekki sú þróun, sem nokkur okkar vill mæla með.

Þessir ágallar þrír tel ég við nánari athugun að hljóti að fylgja í kjölfar á samþykkt þessarar till. hv. 1. þm. Norðurl. e. og 1. þm. Vesturl.

Hv. þm. segir, að ef þessi till. hans og hv. l. þm. Vesturl. verði ekki samþ., þá geti losnað um þá skriðu, sem erfitt verður að stöðva, þ.e.a.s. að húsaleiga rjúki upp úr öllu valdi. Mín skoðun er sú, að þessi skriða hafi þegar fallið með þeim alvarlegu afleiðingum, sem á leiguíbúðamarkaðinum eru í dag, margoft hefur hér verið minnzt á og óþarft er að rekja nánar. Það er því mín niðurstaða um þessa till. hv. þm., að hún sé síður en svo til bóta. Óhjákvæmilega myndar hún tvenna taxta á þessum leiguíbúðum þegar, og hún kemur óhjákvæmilega til með að draga úr nauðsyninni á setningu nýrra hámarksákvæða, sem er, eins og ég hef áður sagt, mín skoðun að eigi að koma hið allra fyrsta, og hún gæti einnig tafið fyrir því, að leiguíbúðir yrðu byggðar í ríkum mæli, sem þó er nauðsyn á, þ. e. að auka framboð leiguhúsnæðis, sem ekki er fyrir hendi í dag og er aðalskálkaskjól þess, að leiguhúsnæði er selt hér á óheyrilega háu verði.

Hitt atriðið, sem var aðaldeiluefnið við fyrri hl. umr., um sexföldun á fasteignamati til eignarskatts, skal ég ekki fara nánar út í en ég gerði þá. Ég hef séð í blöðum, að það hefur verið véfengd hin lagalega heimild til að setja þetta ákvæði. En í því sambandi vil ég segja: Ef það hefur verið löglegt að setja í lög hér fyrir ári, að þarna skyldi vera um þreföldun að ræða, þá sé ég ekki, að það út af fyrir sig ætti ekki jafnt að standast í dag, þó að sú upphæð sé tvöfölduð, eða úr þreföldun í sexföldun.