05.04.1966
Neðri deild: 67. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1550 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)
177. mál, álbræðsla við Straumsvík
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Mér finnst nú, að það væri viðkunnanlegra, að þm. væru hér viðstaddir sem mest. Ég vil fara fram á það, að forsetinn hringi menn inn.
Út af því, sem hæstv. iðnmrh. sagði núna síðast, að framsóknarmenn og aðrir hefðu aldrei gert fyrirvara um gerðardómsákvæðið, vil ég aðeins segja það núna, — en kem að því siðar í ræðunni, — að það er vitanlega fullgildur fyrirvari um þetta efni að setja fram þá kröfu, að álfyrirtækið yrði undir íslenzkum lögum. Skýrari fyrirvara, skýrari stefnu um þetta atriði er ekki hægt að hafa, og auðvitað gengur það algjörlega í bága við þetta að fallast á að setja þetta fyrirtæki undir erlenda lögsögu. Þess vegna hefði hæstv. ráðh. alls ekki átt að vera að gefa í skyn, að aðrir en hann og hans menn bæru ábyrgð á þessu ákvæði. Það var ekki sæmilegt af honum að vera að gefa það í skyn, og það var þetta, sem hv. 5. þm. Norðurl. e. fann að hér áðan með réttu, og kem ég nánar að því síðar.
Ég ætla, áður en ég kem að einstökum atriðum málsins, að gera ofurlitið að umtalsefni þá ræðu, sem hæstv. forsrh. flutti hér í kvöld, og ég verð að segja, að ég er honum mjög þakklátur fyrir það að hafa haft í henni það niðurlag, sem hann hafði. Síðari hluta ræðunnar er ég sérstaklega þakklátur fyrir, vegna þess að hann reyndi að setja sig þar upp á hærri sjónarhól en venja er til af hans hendi og ræða málið nokkuð víðtækt og með yfirliti. En honum fórst eins og nærsýnum manni, sem fer upp á háan hól, að hann er litlu nær, litlu betur settur en áður. Þannig fór fyrir hæstv. ráðh., að útsýni hans af þessum hól, sem hann steig upp á, reyndist vera harla bágborið. En þetta hafði þó þá stórkostlegu þýðingu, að það minnti mig og fleiri á, hversu þýðingarmikið það er að bera saman ástandið eins og það var í þjóðmálum Íslendinga fyrir síðustu styrjöld, þá atburði, sem þá urðu í þjóðarsögunni, við það, sem er að gerast núna, bera ástandið þá saman við ástandið núna og úrræðin, sem þá var gripið til, við úrræði þau, sem þessi hæstv. ráðh. beitir sér nú fyrir.
Hæstv. ráðh. vildi byrja með því að bera saman velmegun þjóðarinnar þá og nú. Á árunum 1930–1940 annars vegar og hins vegar nú. Hann sagði, að þeir, sem réðu hér fyrir málum á þeim árum, ættu ekki að hafa hátt um það, sem þá gerðist, allra sízt í samanburði við það, sem væri að gerast nú. Og hann sagði á einum stað í ræðunni: Þið ættuð ekki að vera að tala um þetta, við höfum gert svo mikið meira en þið. Það er svo sem enginn vafi, að það átti að líta svoleiðis á, að það væri ríkisstj., sem hefði staðið fyrir þessum óskaplegu síldveiðum, sem hafa verið á undanförnum árum og öðru góðæri, sem við höfum átt við að búa. En sleppum því.
Hæstv. ráðh. byrjaði með því, og þá mjög hróðugur, að bera saman hagvöxtinn, meðalhagvöxtinn, sem hefði verið 1930–1940, við það, sem væri núna.
En hvað gerðist á þessum árum, 1930–1940, einkum framan af því tímabili? Það gerðist, að heimskreppan skall yfir. Það gerðist, að verðlag á útflutningsvörum landsmanna hrundi. Það lækkaði ekki, það hrundi, og markaðirnir lokuðust fyrir beztu framleiðsluvörurnar, þannig, að það varð að draga framleiðslu þeirra saman. Hér var að verki heimskreppan, sem allir ættu að muna eftir, þar að auki þær sérstöku búsifjar, sem Íslendingar urðu fyrir, vegna þess að þeir urðu fyrir meiri skellum í sambandi við fiskviðskipti sín t.d. á Spáni en dæmi voru til í mörgum öðrum löndum. Hæstv. ráðh. er að láta reikna hagvöxt þessara ára. Finnst mönnum ekki drengilegt að bera hagvöxt þessara ára, þegar búíð er að taka í dæmið verðhrunið á afurðunum og kreppuna, að bera hann saman við hagvöxt síðustu ára. Telja svo þetta vera mælikvarða á frammistöðu stjórnarvaldanna á þessum tímabilum. Þetta gerði hæstv. forsrh. Íslands. Hann lét sér sæma þennan málflutning. Þetta átti að vera mælikvarðinn. Annars vegar hagvöxturinn á þessum árum, þegar þjóðin varð fyrir þessum áföllum, og hins vegar vöxturinn núna síðustu árin, sem hafa verið metár í aflalegu tilliti, og verðlag á íslenzkum útflutningsafurðum farið hækkandi ár frá ári. Það gæti náttúrlega hugsazt, að það væri frá einhverju sjónarmiði boðlegt fyrir hæstv. ráðh. að flytja svona ræðu í landsmálafélaginu Verði eða einhvers staðar annars staðar í Sjálfstfl., en þetta eru ekki frambærileg rök á Alþ. Íslendinga, það er alveg vist.
Og þá kemur spurningin, hvernig var snúizt við þessum vanda á árunum fyrir stríðið? Hæstv. ráðh. er alltaf að reyna að læða því inn, og hann mun hafa orðað það eitthvað á þá lund, að það hafi orðið afturkippur í framfarasókn Íslendinga á árunum 1930–1940. Það mundi nú engum þykja mikið, þó það hefði orðið afturkippur í framfaramálum Íslendinga við þá atburði, sem þá urðu. En ég hef leyft mér að halda því fram, að þrátt fyrir þessi vandkvæði og þessi áföll, hafi ekki orðið afturkippur í framfarasókn Íslendinga á árunum 1934–1939, og það eru þau ár, sem ég leyfði mér að miða við, þegar ég fann að þessum málflutningi hæstv. forsrh. Ég ætla mér að sýna fram á, að í þessu efni hef ég rétt fyrir mér, en hæstv. forsrh. er að reyna að falsa söguna.
Hvernig var brugðizt við þessum vanda á árunum 1934–1939, eða 1934–1938 skulum við segja, til þess að taka það tímabil, þegar Framsfl. og Alþfl. fóru með stjórn landsins? Þegar það starf byrjaði, var orðið stórfellt verðfall á framleiðsluvörum landsmanna, hreinlega markaðshrun, og viðskiptahöft í öllum markaðslöndum, og bezti markaður okkar hafði verið á Spáni. Það, sem lafði eftir af saltfiskkvótanum á Spáni, byggðist á mútugreiðslum, sem inntar voru af hendi suður á Spáni, til þess að reyna að missa ekki allan kvótann, eins og landskunnugt er. Á þessum árum voru engar hjálpar- eða samstarfsstofnanir þjóðanna til í peningamálum og engin hjálp í viðlögum, en hver þjóð varð að duga eða drepast eftir því, sem eigin efni stóðu til. Ofan á þetta ástand í markaðsmálum, sem ég var að lýsa, bættist síminnkandi fiskafli við strendur Íslands, vegna þess að erlendir togarar skófu fiskimiðin inn undir 3 mílur og langt inn í flóa og firði, — langt inn í Faxaflóa og aðra firði skófu erlendu togararnir og aflinn fór sífellt minnkandi.
En hvernig snerist nú þjóðin við þessum vanda undir forustu þeirrar ríkisstj., sem þá tók við? Sennilega hafa menn misst kjarkinn og kallað á útlendinga og beðið þá um að taka við atvinnurekstrinum. Það er ekki ólíklegt, að menn hafi gert það, að menn hafi gerzt nokkuð svartsýnir, þegar svona stóð, kannske haldið, að það væri ekki hægt að byggja eingöngu á sjávarútvegi, ef til vilt haldið, að afli gæti brugðizt áfram. Er ekki líklegt, að mönnum hafi dottið þetta í hug, eins og mönnum dettur í hug núna, að eina leiðin til þess að bjarga sér sé sú að afhenda erlendum aðilum atvinnureksturinn á Íslandi? Skyldi nokkrum hafa dottið í hug á þessum árum, að það væri hægt að virkja fallvötn Íslendinga, hægt að ráðast í að virkja stórt? Það er ótrúlegt, að nokkrum manni hafi dottið í hug við þessi skilyrði, að slíkt væri mögulegt. Það er þvert á móti líklegra, að menn hafi álitið, að það væri óhugsandi að virkja nema með því að taka um leið inn erlendan atvinnurekstur, til þess að útlendingar gætu staðið undir raforkusölunni. En hvað var gert? Var það þetta, sem gert var á þessum árum, sem hæstv. forsrh. vill nú endilega tala um? Var það þetta, sem gert var á þessum árum? Var gripið til þessara úrræða? Nei, það var ekki gripið til þessara úrræða. Það var allt annað, sem gert var. Það var hafin í landinu allsherjar uppbygging nýrra atvinnugreina og hlúð að því, sem fyrir var á vegum Íslendinga sjálfra, — á vegum Íslendinga sjálfra. En á þessum árum verð ég fyrir því, að blaðasneplar þeir, sem hæstv. núv. forsrh. stóð að á þeim tíma og aðrir hans félagar, m.a. Morgunblaðið, komu á kreik þeirri lygasögu, að ég væri í útlöndum til þess að bjóða erlendum aðilum sérréttindi á Íslandi, samninga um atvinnuréttindi á Íslandi. En þetta var ósatt. En Morgunblaðið lét sér sæma að halda því fram, að ég og aðrir værum að starfa að þessu líklega vegna þess, að þessum blessuðum mönnum hefur ekki getað dottið í hug, að hægt væri að reisa við öðru vísi en að gefa sig útlendum aðilum á vald, og þess vegna hlytum við að vera að makka þetta. Og það er a.m.k. ekki fjarri lagi að gizka á þetta, miðað við þann hugsunarhátt, sem kemur fram núna hjá þessum mönnum, að þeir hafi í raun og veru haldið það, sem þeir voru að segja.
Á þessum árum var sett á stofn skipulagsnefnd atvinnumála, sem átti að hafa með höndum að leita nýrra leiða í atvinnurekstri Íslendinga. Og það var sett á laggirnar önnur stofnun, sem hét fiskimálanefnd, til þess að hafa sérstaka forgöngu um nýmæli í sjávarútvegi og styðja nýjungar í þeim efnum. Og á vegum þessarar síðari stofnunar hófst t.d. fiskfrystingin í landinu. Hún byrjaði í tilraunafrystihúsi, sem þessi n. kom á laggirnar og sem Sjálfstfl. var auðvitað á móti, það þarf ekki um það að spyrja. Hann var algerlega á móti því, eins og flestum atvinnuráðstöfunum, sem á þessu tímabili voru gerðar, til þess að Íslendingar gætu yfirleitt rétt sig úr kútnum. Það er ekki að furða þótt hæstv. forsrh. langi til að fá þetta rifjað upp og ýmislegt fleira í þessu sambandi, sem er ef til vill hægt að gera. En á þessum árum hófst fiskverkun með þessu nýja sniði í 25 frystihúsum víðs vegar um landið. Þetta var hvorki meira né minna en upphafið að þeirri gjörbyltingu, sem hefur orðið í fiskiðnaði Íslendinga og sem hefur bjargað þjóðinni. Upphafið er að rekja til þessara ára og einmitt til þessa tímabils, sem hæstv. forsrh. landsins, sem telur sig vera sögufróðan, heldur fram um, að á hafi orðið afturkippur í framfarasókn Íslendinga.
Það var vitaskuld fleira gert, þótt við ramman reip væri að draga, því að peningar voru ekki rifnir upp á auðveldan hátt þá, eins og nærri má geta. Þá voru teknar upp karfaveiðar og skreiðarverkun var tekin upp á ný, og hefur þetta hvort tveggja orðið stórfelldir liðir í þjóðarbúskap Íslendinga. Afköst síldarverksmiðjanna jukust á þessum árum um 150%, en stjórnin ætlar að rifna af monti yfir því, nú í þessu góðæri og síldarmoki, að hún hafi aukið eitthvað dálítið afköst síldarverksmiðjanna. En við þessi skilyrði voru afköst síldarverksmiðjanna aukin um 150%. Þá var komið upp alveg nýju skipulagi á söltun síldar og verzlun og viðskipti með síld. En áður hafði verið þannig ástalt, að menn gátu helzt ekki komið nálægt síldarverkun, vegna áhættunnar, hún var óskipulögð með öllu. Markaðurinn var takmarkaður, og ef eitthvað veiddist að ráði, var saltað alltof mikið, og verðið féll, og menn urðu gjaldþrota hver um annan þveran. Nærri stappaði því, að enginn þyrði lengur að koma nærri síldarsöltun, og hún var orðin aðeins svipur hjá sjón og að verða lítils virði í þjóðarbúskap landsmanna. En á þessum árum var þessum atvinnuvegi skorinn algerlega nýr stakkur og komið á því skipulagi um verkun og sölu saltsíldar, sem hefur gert saltsíldarverkun að einum þýðingarmesta þættinum í þjóðarbúskap Íslendinga. Og þetta gerðist einmitt á þessum árum, þegar afturkippurinn varð í framfarasókn landsmanna, eftir því sem núv. hæstv. forsrh. segir mönnum söguna. Auðvitað veit hann mikið betur, en svona vill hann hafa söguna.
Á þessum árum, einmitt þessum árum, sem ég er að tala um, 1935–38, var fyrsta stóra raforkuvirkjunin gerð á Íslandi, Sogsvirkjunin, sem kostaði á þeim tíma nálega 7 millj. kr., sem var nálega helmingurinn af, þeirri fjárhæð, sem fjárlög Íslendinga námu þá. Svarar til þess, að við réðumst nú óstuddir á erfiðum tímum í virkjun, sem kostaði upp undir 2000 millj. kr., ef miðað er við fjárlögin, eins og þau voru þá og eru nú hjá núv. ríkisstj. Í þetta var lagt einmitt á þessum árum, þegar „afturkippurinn“ varð sem mestur í framfarasókn landsmanna. Þá var lagt í þetta. Og það var ekki talið þá alveg óhjákvæmilegt að hengja aftan í virkjunina stórfyrirtæki erlendra manna, sem gætu keypt bróðurpartinn af orkunni. Það gerðu menn ekki, af því að menn höfðu hugsað sér að reyna að byggja upp sinn eiginn atvinnurekstur sjálfir. Þeir kjarklausu voru ekki komnir til valda þá.
Við skulum aðeins staldra þarna við, einmitt við Sogsvirkjunina, vegna þess að nú er verið að tala um virkjun, Búrfellsvirkjun án alúminverksmiðju er miklu minna átak fyrir íslenzku þjóðina nú en Sogsvirkjunin var á sinni tíð. Um það er ekkert að efast, enda hef ég ekki heyrt nokkurn mann bera sér annað í munn. Ef við litum á stofnkostnaðinn, er þetta alveg augljóst. Sogsvirkjunin var þá líka miklu meira við vöxt, miðað við raforkunotkun á Íslandi en Búrfellsvirkjun án alúmínvers væri núna. Samt hikuðu menn ekki við að leggja í hana og Búrfellsvirkjunin án alúmínvers gefur miklu hagstæðara raforkuverð nú en Sogsvirkjunin gat gert þá. Hún er miklu hagstæðari virkjun, en samt sem áður er manni sagl, að það verði að semja við erlendan auðhring, vegna þess að annars sé ekki hægt að virkja á hagkvæman hátt fyrir Íslendinga. Þó er hægt að virkja án þess á miklu hagstæðari hátt en við höfum nokkru sinni virkjað áður og á miklu hagstæðari hátt en Sogsvirkjunin var á sinni tíð, sem hefur þó reynzt hin mesta mjólkurkýr fyrir þjóðarbúið og engan svikið. Og það sama er að segja um aðrar Sogsvirkjanirnar.
Menn hugsa nú kannske: Ja, því hefur ekki verið haldið fram, að það hefði ekki verið hægt að virkja án þess að taka alúminhringinn með í leiðinni. Já, það hefur ekki verið orðað þannig, en við skiljum fyrr en skellur í tönnunum. Það er ekki nema örstutt síðan hæstv. forsrh. sagði það hérna í þessum ræðustól, rétt áður en við fórum í matinn, að það væri óneitanlega miklu erfiðara að ráðast í Búrfellsvirkjun, ef álverksmiðjan fylgdi ekki með. Við skiljum fyrr en skellur í tönnunum. Þeir settu fyrir sig erfiðið. — Þeir settu fyrir sig erfiðið við að koma upp Búrfellsvirkjuninni, eftir orðum hæstv. forsrh. Það var erfiðara. Það mátti ekki leggja það á sig að reyna að koma upp Búrfellsvirkjuninni. — Í Morgunblaðinu birtast greinar á sunnudögum, sem menn álíta, að séu venjulega ritaðar at hæstv. forsrh. sjálfum. Það eru slúðurdálkar, kallaðir Reykjavíkurbréf. En ýmislegt skynsamlegt slæðist þó með, eins og nærri má geta, þegar það er íhugað eftir hvern þetta er. En í einum af þessum dálkum segir svo ekki alls fyrir löngu, og er þá verið að minna á, hverju hafi verið lýst yfir af hálfu Sjálfstfl. strax árið 1961 og að engum þurfti að koma á óvart, það sem nú er komið á daginn. Það átti að vera svo greinilega sagt fyrir. Þar er sagt, með leyfi hæstv. forseta orðrétt: „En það yrði mun auðveldara en ella, ef sala orkunnar er fyrirfram tryggð með því verði, sem undir lánum getur staðið. En þá mundum við sjálfir eiga orkuverið og sjálfir þurfa að afla lánsfjár til þess.“ Sem sagt, ef alúmínverksmiðjan væri ekki með. Með öðrum orðum, það er alveg greinilega sagt og getur ekki misskilizt, að ástæðan til þess, að þessir hæstv. ráðh. lenda inn á þessari braut og vefja sig í þessum vanda, sem þeir hafa aldrei getað rifið sig út úr — ástæðan er sú að þeir eru haldnir minnimáttarkennd, þeir trúa því sjálfir, að það sé ekki hægt að fá lán erlendis til þess að gera Búrfellsvirkjun án þess að hafa alúmínverksmiðjuna með. Þetta er skýringin á öllu þessu, það botnar enginn í þessu, ef hann ekki hefur þetta í huga. Þetta er skýringin á öllu málinu. Þetta er skýringin á hugsunarhættinum og skýringin á því, hvers vegna í þetta er ráðizt, og það kemur strax fram 1961. Og ólán ríkisstj. er einmitt það, að hún hugsaði svona strax og festi sig strax í þessu neti í viðræðum sínum við útlendingana og Alþjóðabankann og alla þá, sem hér eiga hlut að máli. Sat svo föst í því neti, sem hún sjálf hafði riðið og hafði ekki manndóm til að rífa það utan af sér. Það er einmitt þessi hugsunarháttur, sem er grundvöllurinn fyrir því, að lagt er út í þetta ævintýri.
Ég var að rifja aðeins upp, hvað gerðist á þessum árum, þegar „afturkippurinn“ varð í framfarasókn landsins, eftir því sem hæstv. forsrh. taldi. Ég var að greina frá Sogsvirkjuninni og var búinn að segja frá ýmsu öðru. Þá er þess næst að minnast, að á þessum árum var fjöldi nýrra iðnfyrirtækja reistur, og þetta er mjög viðurkennt nú. Ungur myndarlegur iðnrekandi, sem á dögunum var að halda yfirlitserindi um íslenzkan iðnað, gekk út úr götu sinni til að greina frá og vekja athygli á þeirri staðreynd, að einmitt á þessum árum hefðu verið byggð upp mörg þeirra iðnfyrirtækja, sem hefðu dugað Íslendingum bezt. Þessi ungi maður kunni söguna betur en hæstv. forsrh. eða a.m.k. sagði réttara frá, enda er það engin tilviljun, að fjöldinn allur af myndarlegustu fyrirtækjum landsins eiga 30 ára afmæli, eða um það bil, um þessar mundir. Það er engin tilviljun.
Á hinn bóginn getur hæstv. forsrh. komið hér og sagt: Þá voru ekki keyptir margir bátar — þá voru ekki keyptir margir bátar — og það á að vera sönnun fyrir því, að það hafi ekki verið vel búið eða skynsamlega stjórnað. En var von til þess, að keyptir væru margir bátar eins og ástatt var með sjávarútveginn þá? Markaðirnir lokaðir og þeir fáu, sem opnir voru, kannske tæplega hálfdrættingar að verðlagi miðað við það, sem var nokkrum árum áður. Var furða, þó að keyptir væru færri bátar en t.d. nú við þau skilyrði, sem nú eru? Og var furða, þó að menn leituðu sér annarra úrræða í staðinn fyrir það, sem var að lokast á þessum árum? (Gripið fram í.) Já, allt var náttúrlega eftir þessu. Allt var eftir þessu um aflasölurnar og markaðina. Var furða, þó að eitthvað drægi úr báta- og skipasölu?
Ætli það hefði ekki verið sæmilegra fyrir forsrh. landsins, sem vill telja sig sögufróðan, að flytja mál sitt á aðra lund en hann gerði, að slíta ekki þannig út úr einstök atriði eins og tölurnar um hagvöxtinn skýringalausar, sem verða honum til minnkunar í þingtíðindunum, og svo þessa frásögn um bátana, hvað þeir hefðu verið fáir keyptir, en draga undan allt það, sem ég hef hér verið að greina frá og margt fleira í sömu stefnu. Þetta eiga svo að kallast stjórnmálaumræður! Hæstv. forsrh. var að tala um, að það hefði verið skemmtilegt, að hv. 1. þm. Austf. hefði reynt að ræða málin með yfirliti yfir þjóðarbúskapinn. Manni skildist, að hann ætlaði að feta í fótspor þm. Austf. og gera það sama, en það fór þá svona.
En það er fleira, sem mætti greina frá í þessu sambandi, fyrst farið er að ræða þetta góðu heilli, því að þetta sýnir í raun og veru alveg tvo heima, annars vegar þann heim, sem við lifðum í fyrir styrjöldina, sem var byggður á því, að menn ættu að bjarga sér sjálfir og brjótast út úr erfiðleikunum og svo þann heim, sem við lifum í nú undir forustu hæstv. forsrh., þar sem að manni virðist helzt hugsað þannig, að það sé ekki hægt að gera neitt, afli geti brugðizt, það geti komið fyrir óhöpp, og þess vegna getum við alls ekki treyst á okkur, við verðum að fá hér útlendinga til þess að taka skellina af okkur.
Í þessu sambandi er einnig ástæða til að benda á, að heildarframkvæmdir í landinu á árunum 1935–1939, á þessu kyrrstöðutímabili, sem hæstv. forsrh. var að segja frá, urðu meiri en nokkru sinni áður fram að þeim tíma. Árin 1935–1937 var t.d. varið til nýrra fyrirtækja svo sem síldarverksmiðja, frystihúsa, mjólkurbúa, rafveitna og iðnfyrirtækja nýrra o.þl. nálega jafnhárri fjárhæð og samtals á 10 árunum næst á undan þ.e. 1925–1934. Þessi ár eru samt, eins og eðlilegt er, kölluð kreppuárin, því að menn vissu tæplega, hvernig átti að komast af. Og það var auðvitað vegna þess, að þrátt fyrir þessar breytingar, sem urðu og þessa stórkostlegu framsókn, sem varð í landinu og sem þjóðin hefur búið að síðan, var gífurleg fátækt og talsvert atvinnuleysi. En það var ekkert einkennilegt, þegar tekið var tillit til þess, við hvað var að glíma. Og sannleikurinn er sá, að á þessum árum tókum við of lítið af erlendum lánum samanborið við þær gifurlegu framkvæmdir, sem í landinu voru. Skuldir jukust í heild sem svaraði Sogsvirkjuninni, en öll hin uppbyggingin var á þessum stórkostlegu krepputímum gerð fyrir tekjur þjóðarinnar sjálfrar. Náttúrlega var þetta ofraun. Það var ofraun. Það hefði þurft að taka meira af lánum, en það var erfitt að fá lán á þeim árum. Það voru ekki til hjálparstofnanir þá, sem hægt var að leita til, og engin óafturkræf framlög, eins og ég sagði áðan. Það varð hver að duga eða drepast. Og einmitt vegna þess voru gjaldeyriserfiðleikar og atvinnuuppbyggingin gat ekki orðið eins óskaplega ör, eins og hún hefði þurft að vera.
Það er til marks um það, sem hrundi á þessum árum og sem þurfti að mæta, að útflutningur saltfisks á árunum 1935–1939 — en saltfiskurinn var á þessu tímabili aðalvaran, áður en síldveiðarnar jukust, — að útflutningur saltfisks á árunum 1935–1939 minnkaði nálega um 60% samanborið við það, sem var 1928–1931, áður en kreppan skall á. Hvað haldið þið að mundi gerast núna ef þetta kæmi fyrir? Ég er hræddur um, að hæstv. forsrh. yrði þá ekki bjartsýnn, og ég er hræddur um, að það færi þá eitthvað að minnka kjarkurinn. Hann yrði ekki brattur í ræðustólnum, ef svona áföll dyndu yfir. Ég vona, að annað eins og þetta komi aldrei aftur fyrir íslenzka þjóð. Það fer um mann hrollur, ef maður hugsar til þess, hvernig fara mundi undir forustu þeirra, sem nú fara með þessi mál, ef eitthvað í áttina að þessu ætti eftir að koma fyrir.
Ég hef nú minnzt nokkuð á framkvæmdir í landinu á þessum árum. Nú skyldu menn halda, að mönnum hefði fallizt hugur varðandi það að innleiða hér nýjungar í félagslegum efnum einmitt á þessum árum og stiga spor til félagslegra framfara. En einmitt á þessu tímabili voru sett fyrstu lögin um almennar alþýðutryggingar og með þeim komið á fót Tryggingastofnun ríkisins og alþýðutryggingakerfið innleitt. Auðvitað var flokkur hæstv. forsrh. á móti því eins og flestu, sem gert var á þessum árum til þess að rífa sig út úr þessum vanda. Auðvitað var hann á móti því, og sjálfsagt telur hæstv. forsrh. það vera einn vottinn um þann afturkipp, sem á að hafa orðið á framfarasókn Íslendinga á þessu tímabili, að einmitt á þessum árum voru alþýðutryggingalögin sett og grundvöllurinn lagður að alþýðutryggingalögunum. Afurðasölulögin voru sett líka einmitt á þessum árum, og auðvitað var flokkur hæstv. forsrh. á móti þeim. Einmitt þeirri löggjöf, sem hefur orðið grundvöllur að framförunum í sveitunum alla tíð síðan og bjargaði íslenzkum landbúnaði. Auðvitað var Sjálfstfl. á móti því, og hann var svo ákafur á móti, að hann efndi til mjólkurverkfalls í Reykjavík til þess að reyna að kúga menn til að falla frá afurðasölulöggjöfinni. Og ég efast ekkert um, að jafnáhugasamur maður og hæstv. forsrh. hefur alltaf verið í pólitík í þeim herbúðum, að hann hefur verið framarlega í þeim framkvæmdum. Það dreg ég ekki í efa. Hann var snemma efnilegur og hlífði sér lítt. Á þessum árum var svo reist háskólabyggingin og komið upp rannsóknarstofnun atvinnuveganna, svo að aðeins séu dæmi nefnd um merkar stofnanir, sem einnig risu upp á þessum árum. Já, þetta gerðist á þessu tímabili, sem hæstv. forsrh. sagði, að hefði einkennzt af „afturkipp“, sem orðið hefði í framfarasókn Íslendinga, og réttast væri fyrir þá, sem að þessu stóðu, að ræða sem minnst um þessi ár. En ég tel á hinn bóginn þetta vera þýðingarmikla sögu og lærdómsríka sögu. Ég held, að það hafi verið gæfa íslenzku þjóðarinnar, að hæstv. núv. forsrh. var ekki kominn til valda hér þá og réði þá ekki stefnunni. Ég er hræddur um, eftir því sem kemur nú fram um hugsunarhátt hans og miðað við hvernig hann beitir sér nú varðandi úrræði í atvinnumálum landsins, að það hefði ekki þá verið hafin alhliða uppbygging á vegum Íslendinga sjálfra til þess að komast út úr vandanum, heldur hefði erlendum aðilum verið falin forsjá í atvinnumálum.
Nú búum við við mokafla og höfum búið lengi.
Stórhækkandi verðlag er á öllum okkar útflutningsvörum, en aðalvandamál þjóðarinnar er mannekla við að sinna viðfangsefnum, og alls staðar eru framfaraáætlanir, m.a. til að gera íslenzkt atvinnulíf fjölbreyttara og byggja upp ný íslenzk fyrirtæki og stækka þau, sem fyrir eru. Þetta eru höfuðeinkenni þjóðarbúsins í dag vegna góðra ytri skilyrða, en samt sem áður segir hæstv. ríkisstj., að það sé ekki hægt að treysta á íslenzka atvinnuvegi. Það sé ekki hægt að virkja við Búrfell án þess að hleypa stórrekstri erlendra manna inn í landið og atvinnurekstri Íslendinga sjálfra verður að ryðja frá til þess að fá pláss fyrir atvinnurekstur útlendinganna.
Nú spyr ég: Hvað hefðu þeir menn tekið til bragðs fyrir stríðið við þau skilyrði, sem þá voru, sem standa fyrir þessu núna? Er nokkur í efa um svarið, og var það þá ekki gott, að þessir menn réðu ekki á þeim árum? Er eftirsjón að því? Nei, það var gæfa. Það var gæfa, að menn með þennan hugsunarhátt voru ekki komnir þá til valda á Íslandi. Og við hefðum ekki búið við það þjóðfélag, sem við búum við nú í dag, ef þeir hefðu þá setið í valdastólunum. Framfarasóknin eftir styrjöldina, sem hefur verið mikil, var byggð á þeim grundvelli, sem lagður var á þessum erfiðu árum fyrir stríðið, eins og við sjáum gleggst, ef við lítum á þróun fiskiðnaðarins, sem grundvöllurinn var lagður að fyrir stríðið. Eins ef við athugum þróun síldveiðanna, sem var byggð á því skipulagi í löggjöf, sem þá var sett, síldariðnaðinn, sem er aðeins framhald, endurbætur á því, sem þá var lagður grundvöllur að. Þetta er framþróunin eftir stríðið. Og íslenzki iðnaðurinn. Mörg merkustu fyrirtækin voru einmitt stofnsett á þessum árum fyrir styrjöldina og síðan haldið áfram á sömu braut.
Loks var svo landhelgisútfærslan, sem kom til viðbólar og var stærsta endurbótaskrefið, sem nokkru sinni hefur verið stigið á Íslandi næst frelsistökunni. En það er einmitt táknrænt fyrir núv. hæstv. forsrh., að hann var einn af þeim mönnum, sem alls ekki var hægt að fá til þess að standa með í því, að landhelgin yrði færð út í 12 mílur. Til þess fékkst hann ekki. Í því vildi hann ekki vera með. Og þegar landhelgin var færð út í 12 mílur 1958, var þessi núv. hæstv. forsrh. ritstjóri stærsta blaðs landsins, Morgunblaðsins. Tilkynningin um landhelgisútfærsluna var birt um vorið 1958 og þá tilkynnt, að það ætti að færa út frá 1. september. Hæstv. ráðh. vildi ekki vera með í því og hans félagar. Þeir voru í stjórnarandstöðu þá. Það var gengið á eftir þeim að vera með, því að mönnum var ljóst, að mikils þurfti við og allir þurftu að standa saman. En þeir vildu ekki vera með, þeir vildu vera utan við ábyrgðarlausir. Og hvað kemur svo í ljós? Þegar búið er að ákveða landhelgisútfærsluna, tekur þessi hæstv. forsrh. sig til í blaði sínu allt sumarið og ræðst á ríkisstj. landsins fyrir það að hafa fært út landhelgina, og til þess að gera þetta sem allra tortryggilegast hélt hann því fram, að landhelgisútfærslan væri í raun og veru málefni kommúnista. Þeir hefðu kúgað framsóknarmenn og Alþflm. til þess að færa út, og það væru í raun og veru kommúnistar, sem stæðu fyrir landhelgisútfærslunni. Þessu hélt hæstv. ráðh. fram í blaði sínu einmitt um þær mundir, sem Bretarnir voru að gera það upp við sig, hvort þeir ættu að ráðast með herskip sín inn í landhelgi Íslands eða gera það ekki. Þá hélt hæstv. ráðh. þessu fram í blaðinu.
Svo kemur að því, að um haustið ráðast Bretar inn með herskipin, vegna þess að þeir héldu, að Íslendingar væru klofnir í landhelgismálinu, ekki sízt fyrir skrifin í Morgunblaðinu. En Bretar skildu það ekki, að það voru bara fáir menn í forustuliði Sjálfstfl., sem stóðu fyrir þessu, en ekki almenningur á Íslandi. Þess vegna stóð almenningur saman gegn Bretum, þegar út í þetta var komið. En það var ekki fyrir kjark eða dugnað þessa hæstv. ráðh., núv. forsrh., að landhelgin var færð út. Ef hann hefði mátt ráða, hefði hún alls ekki verið færð út, því að það hefur alltaf verið hans hugsunarháttur, að það mætti ekkert gera í þeim málum nema það, sem hægt væri að fá útlendingana til þess að samþykkja. Þetta kom líka fram í því, að þegar átti að halda á sigrinum í landhelgismálinu, gekkst hæstv. ráðh. og félagar hans fyrir því, að samið var við Breta um að draga sig út úr íslenzkri landhelgi gegn því, að þeir fengju í raun og veru stöðvunarvald um frekari útfærslu landhelginnar framvegis. Þeir fengju vald til þess að skjóta öllum útfærslutilraunum Íslendinga fyrir alþjóðadómstól, — Bretar fengju eins konar stöðvunarvald í landhelgismálinu. En ég er að segja þetta hér sumpart vegna þess, að hæstv. ráðh. var að minnast hér áðan á landhelgismálið, — hann dró það inn í þessar umr. alveg sérstaklega, — og sumpart vegna þess, að þetta lýsir svo vel þeim hugsunarhætti, sem liggur á bak við þá stefnu, sem hér er fylgt. Og það verður ekki þolað ómótmælt, að þeir menn, sem eiga slíka sögu, temji sér að standa hér á hv. Alþ. og bera öðrum mönnum á brýn, að þeir hafi ekki nógu öruggan framfarahug í málefnum landsins og hafi verið dragbitar á framkvæmdir og framfarir. Slíkt er ekki með nokkru móti hægt að þola og verður ekki gert.
Eins og ég sagði áðan, er ég mjög þakklátur hæstv. ráðh. fyrir það, að hann skyldi draga umr. inn á þetta viðtækara svið, því að það gefur einmitt tækifæri, nauðsynlegt tækifæri til þess að bera saman viðhorfið nú við það, sem áður var, þegar Íslendingar hafa brugðizt einna myndarlegast við þeim vanda, sem þeim bar að höndum. En þegar Íslendingar hafa brugðizt sem myndarlegast við, t.d. eins og gert var óneitanlega á kreppuárunum fyrir stríðið, hafa þeir farið þveröfugt að við það, sem hæstv. núv. ríkisstj. ætlar að gera. Þeir hafa ekki leitað á náðir útlendinga og beðið þá um að taka við málunum úr sínum höndum, heldur hafa þeir klifið þrítugan hamarinn til þess að hefja kröftuga uppbyggingu á sínum eigin vegum. Og ég held því fram, að það sé allra sízt ástæða til þess að breyta stefnunni núna.
Ég hef aldrei viljað loka fyrir það með öllu að semja víð útlenda aðila undir vissum kringumstæðum um að taka að sér einstök verkefni í landinu, sem væru þannig vaxin, að við gætum ómögulega leyst þau sjálfir, en þyrftum þó okkar búskapar vegna að koma þeim í framkvæmd. En það liggur ekkert slíkt fyrir nú. Það er ekki einu sinni í áttina til þess, að ástandið sé þannig. Okkur vantar ekki verkefni. Eins og ég hef margtekið fram, er mannekla eitt helzta vandamálið í landinu, og menn hafa alls staðar ágætar framkvæmdaáætlanir, sem þeir þurfa að koma í framkvæmd. Og aldrei hafa verið betri skilyrði til þess að gera okkar atvinnulíf fjölbreyttara á eigin vegum en einmitt nú. Og við þurfum ekki að leggja út í þetta til þess að fá góða virkjun. Við getum fengið þá beztu virkjun, sem við höfum nokkurn tíma átt kost á að koma í framkvæmd, án þess að láta þetta fylgja með. Og hvaða ástæða er þá til þess að taka á sig þá gífurlegu áhættu, sem óneitanlega fylgir því að taka stórt erlent fyrirtæki inn í landið, því er nokkur maður hér, sem vill neita því, að þessu fylgi veruleg áhætta? Ég held ekki. Ég held, að það geti enginn neitað því, að það fylgir veruleg áhætta, það fylgir því stórkostleg áhætta m.a. á miklum áhrifum þessa fyrirtækis á íslenzk mál, sem menn þyrftu auðvitað að vera lausir við, ef menn ættu þess með nokkru mögulegu móti kost.
Það er vitanlega alveg út í hött að halda hér hjartnæmar ræður um, að við þurfum að leggja út í þetta til þess að skjóta fleiri fótum en nú standa undir okkar atvinnulífi af þeirri einföldu ástæðu, að fjöldann allan af áætlunum einmitt í þá stefnu verðum við að láta liggja óframkvæmdar, vegna þess að okkur skortir mannafla til þess að koma þeim í framkvæmd. Það er verið að tala um það í þessu sambandi, að líklega geti þetta orðið lykill að stórfelldum iðnaði. Ég skal ekki vera með neinar fullyrðingar í því sambandi. Þetta er eitt af því, sem sagt er til þess að gylla þessar fyrirætlanir. En ég vil leyfa mér að benda á, að í Noregi eru alls ekki mikil brögð að því, að sérstakur iðnaður hafi vaxið út frá alúmínbræðslum. Samkv. upplýsingum, sem ég hef fengið, hefur fremur litið eða réttara sagt mjög lítið orðið um þetta. Hvers vegna? Hvers vegna ætli það hafi ekki vaxið upp stórfelldur iðnaður út frá þessum fyrirtækjum í Noregi, ef gera mætti ráð fyrir því, að það væri auðvelt eða lægi beint við? Og þegar ég hef spurt um það, hvaða iðnaður þarna kæmi til greina og hvaða markað menn t.d. ættu að framleiða fyrir vörur úr þessu hráefni, hafa svörin vægast sagt verið ákaflega óljós, ef þau hafa verið nokkur. Því hef ég ekki getað séð, að þetta væri neitt sérstakt úrræði til þess að gera okkar atvinnulíf fjölbreyttara. En þá segja menn: Það er gert til þess að hægt sé að virkja. En þær röksemdir hafa verið hraktar að þess þurfi til að virkja hagkvæmt.
Hæstv. ráðh. var í ræðu sinni í kvöld að tala um þjóðrækinn mann. Manni virtist hann hafa verið heldur svartsýnn. Hann nafngreindi ekki þennan mann, ég efast ekkert um, að þetta hefur verið mætur maður, enda sagði ráðh. það. En hann sagði, að þessi maður hefði lagt ákaflega mikla áherzlu á, að það væri vafasamt, skilst mér, að þjóðinni gæti fjölgað og lifað í landinu. Þetta var heldur óljóst, en ég skildi það þannig, að verzlun og iðnaður gætu aldrei orðið til á Íslandi. Eitthvað var þessi maður líka að tala um, að fiskveiðar væru í óvissu o.s.frv. Hvað mundi þessi maður hafa viljað, ef hann væri nú uppi? Álbræðslu, vafalaust. Alveg vafalaust álbræðslu. Þessi maður hefði verið í flokki hæstv. ráðh., hann hefði verið einn helzti baráttumaður fyrir álbræðslu með honum, það sjá allir. Það eru einmitt svona menn, svartsýnir menn, úrtölumenn, sem vasklegast ganga fram með hæstv. ráðh., og menn, sem ekki sjá, að það hafi orðið neinar framfarir á árunum fyrir 1940, af því að þær voru á vegum Íslendinga sjálfra. Það telja þeir allt hafa verið mjög lítils virði. En þessi maður hefði verið álmaður, það er alveg víst.
Því er nú verr og miður, að það er minnimáttarkenndin og vanmatið á möguleikum Íslendinga sjálfra og vanmatið á því, að Íslendingar geti komið sér upp nægilega stórbrotnum atvinnurekstri, sem er grundvöllurinn að því, sem nú er verið að gera. Og ég vil enn einu sinni endurlaka þakklæti milt til hæstv. forsrh. fyrir að hafa minnt á að ræða þessi mál á þennan hátt.
Það gekk allt í sömu stefnu hjá hæstv. ráðh. Hann var að tala um það t.d., að það væri of seint að bjarga atvinnunni, þegar neyðin væri skollin á, og hann var að hræða menn með hættunni á atvinnuleysi. Hvernig hefði þessi maður litið á málin á kreppuárunum fyrir stríðið? Ég held, að það séu lítil takmörk fyrir því, sem honum hefði þá fundizt, að þyrfti að ganga inn á til þess að bjarga við. Ég get ekki annað séð. Ég verð að segja, að mér lízt ekki á þennan hugsunarhátt, og ég held, að það sé ekki hann, sem leiðir til farsældar. Þessi bölmóður leiðir áreiðanlega ekki til góðs, og það eitt er alveg víst, að þeir, sem hafa dugað íslenzku þjóðinni bezt á undanförnum öldum, eru ekki þeir menn, sem hafa litið svona á. Það eru ekki þeir, sem hafa séð fjandann í hverju horni og viljað leita sér liðs, misjafnlega vel valins liðs til þess að glíma við hann.
Hæstv. iðnmrh. var mikið niðri fyrir í dag og virtist taka mjög nærri sér þá gagnrýni, sem hafði komið fram á einstökum ákvæðum samningsins, ekki sízt gagnrýni, sem laut að því, að það á að setja fyrirtæki á Íslandi undir erlenda lögsögu, því það er kjarni málsins varðandi þann þáttinn. Málið er ósköp einfalt, það á að setja fyrirtæki á Íslandi undir erlenda lögsögu. Út af þessu var ráðh. mjög í uppnámi og satt að segja ekki alveg gott að fylgjast með eða fá samhengi í röksemdafærsluna að því er mér virtist. Mér virtist þetta helzt hjá hæstv. ráðh. ganga út á að hylja sig reyk í þessum háska og gera þetta svo flókið, að enginn botnaði neitt í neinu. Og það var auðheyrt, að hæstv. forsrh. þótti þetta ekki hafa tekizt nógu vel, því að hann kom hér og bætti við reykinn í sinni ræðu, sem ég skal nú bráðum koma að. Lagði reykský til viðbótar. Hæstv. dómsmrh. sagði, og ég held ég hafi áreiðanlega tekið rétt eftir því, — hélt fram þeirri nýstárlegu kenningu, að gerðardómur af þessu tagi gæti verið betri en íslenzkir dómstólar. Til hvers höfum við þá verið að berjast fyrir því að fá dómstóla inn í landið og fá sjálfstætt dómsvald? Er það ekki eitt höfuðeinkenni á sjálfstæðu ríki að hafa sjálfstætt dómsvald? En nú heyrir maður dómsmrh. landsins segja, að gerðardómar erlendis geti verið betri en íslenzkir dómstólar til þess að fjalla um málefni fyrirtækis á Íslandi, sem á að heita íslenzkt fyrirtæki, a.m.k. að vera skrásett íslenzkt fyrirtæki. Það kalla ég heldur nýstárlegt, og ég held, að ég hafi heldur ekki misskilið það, að hann hafi sagt, að þessi uppástunga um það að hafa erlendan gerðardóm í stað þess að fyrirtækið kæmi undir íslenzka lögsögu, að þessi uppástunga hafi komið frá íslenzkri hlið. Ég skildi hann þannig. Ráðh. hafði svo ekki talað nema nokkrar setningar, þegar hann sagði til viðbótar, að þessi ákvæði hefðu mikið breytzt stig af stigi okkur í hag. Ég fæ ekki komið þessu saman. Hver var að bisa við að breyta þessu okkur í hag, þegar uppástungan var frá okkur sjálfum? Var það hringurinn, sem vildi lagfæra þetta frá því sem þeir höfðu stungið upp á? Mikil er umhyggjan fyrir okkar málum! Ég held, að það hljóti að vera eitthvað bogið við þetta, og væntanlega leiðréttir hæstv. ráðh. það. Ég vil ekki snúa út úr eða hafa rangt eftir. En ætli þetta geti ekki þýtt, að það hafi verið misskilningur hjá hæstv. ráðh., að þetta hafi komið frá honum eða hans mönnum og þetta hafi, eins og líklegast er, komið frá hringnum, því að það kom fram einmitt í viðtalinu, sem blöðin áttu við forstjóra hringsins, að hringnum fannst þetta hafa tekizt vel. Að vera ekki undir íslenzkum dómstólum, því að þeim væri, að því er manni skildist, ekki að treysta í þessu efni vegna reynsluleysis. Ég held, að hæstv. ráðh. ætti ekki að vera að halda því fram, að hann hafi viljað þetta, a.m.k. þarf þetta þá miklu nánari skýringar við, svo að menn botni upp eða niður í þessu. Og hvað sem hæstv. ráðh. hefur viljað um þetta, hygg ég, að flestum öðrum sé það ljóst, að það er mikill ágalli, stórkostlegur ágalli og einn versti ágalli samningsins, að það skuli vera gengið undir það jarðarmen að setja fyrirtæki á Íslandi undir erlenda lögsögu. Hér var lesinn einhver feiknaruna af hliðstæðum, að því er átti að vera, en svo hratt, að það var ómögulegt að henda reiður á því á nokkurn hátt. En ég heyrði þó, að það var mest lagt upp úr, að hliðstæða í þessu efni væri sú, að í rússneskum olíusamningum væru ákvæði eitthvað þessu lík, um málskot til útlendra gerðardóma. En hvað er sambærilegt um viðskiptasamning um olíu á milli tveggja ríkja annars vegar og íslenzkt fyrirtæki, sem á að starfa hér og hafa hér stórfelldan atvinnurekstur í 45 ár? Hvað er hliðstætt í þessu? Það er eitthvað undarlegur hugsunarháttur, sem kemur þarna fram, og ég held því fram, að þetta hljóti að vera sagt til þess, að menn ekki átti sig á málinu, fremur en til þess að færa nokkur skynsamleg rök fyrir því, að þessi tilhögun sé eðlileg. Það er auðvitað ekkert sambærilegt í þessu. Það er ekkert sambærilegt við milliríkjasamning annars vegar og hins vegar samning um starfrækslu eins stærsta fyrirtækis í landinu sjálfu, sem aðstandendur þessa máls tala alltaf um eins og íslenzkt fyrirtæki. A.m.k. eru þeir ekkert feimnir við að kalla þetta íslenzkan atvinnurekstur, þegar þeir eru að reyna að vinna þessari hugmynd hylli, svo mikið er víst.
Þá gerði ráðh. endurteknar tilraunir til þess að halda því fram, þó að hann vildi nú sjálfur ekki viðurkenna það áðan, að eiginlega væru allir þm. samsekir sér um þetta. Það var eins og við hefðum allir tekið þátt í þessum samningum og bærum ábyrgð á þeim með honum. Það er þokkalegur málflutningur þetta. Þessu hefur hv. þm. Ingvar Gíslason, hann var í þessari n., svarað fyrir sitt leyti með því, að auðvitað bera nm. enga ábyrgð á samningunum, og það sagði hæstv. ráðh. í öðru orðinu, þó að hann væri að læða þessu að í hinu orðinu í þessum þjóðlega stíl, sem við þekkjum. Við vitum, hver hafði þann stíl, hvaða persóna. Það var að vísu ekki þjóðsagnapersóna, það var skáldsögupersóna, sem hafði þann frásagnarmáta, sem minnir á þetta. Í öðru orðinu er því haldið fram, að í rauninni beri þm. allir ábyrgð á þessu, en í hinu orðinu er auðvitað sagt, að þeir beri ekki ábyrgð á samningunum. Einnig upplýsti Ingvar Gíslason alþm. hér í kvöld, að það hefði verið fyrirvari hreinn og klár af hendi þm. úr stjórnarandstöðuliðinu, að þeirra afstaða væri sú, að þetta fyrirtæki skyldi vera undir íslenzkum lögum og þar af leiðandi undir íslenzkri lögsögu. Ráðh. var vorkunnarlaust að átta sig á því, hvað í þessu fólst, enda vissi hann það auðvitað, þó að það sé verið að reyna að draga úr því með því að hafa þennan tvískinnung í málflutningnum. Svo bætti hæstv. ráðh. því við, að gerðardómsákvæðin hefðu verið sýnd Ólafi Jóhannessyni og hann hefði ekkert haft við þau ákvæði að athuga, sagði hæstv. ráðh. Ég ræddi þetta mál að sjálfsögðu við ólaf Jóhannesson nú í því hléi, sem gafst, og hann hefur beðið mig að segja, að hann hafi aldrei komið nálægt þessari samningagerð og aldrei látið uppi neitt álit varðandi ákvæði í þessum samningum, hvorki gerðardómsákvæði né önnur. Svo getur hæstv. ráðh. rætt þetta við hann á réttum stað, þ.e.a.s. í Ed.
Eins og ég sagði áðan, virðist sem hæstv. forsrh. fyndist, að þessi reykur, sem hæstv. iðnmrh. og dómsmrh. hafði þyrlað hér upp, væri ekki nægilega svartur, — ráðh. ekki nægilega vel hulinn. Hann kom því hér og bætti við, og það var hreint ekki svo ómerkilegt, sem hann bætti við, til þess að sýna fram á, hvað þetta væri allt eðlilegt. Og fyrsta dæmið var þetta með landhelgina. Hann sagðist ekki leggja mjög mikið upp úr því, sem Ólafur Jóhannesson segði um þetta, vegna þess að Ólafur Jóhannesson hefði sagt, að menn ættu að vera undir það búnir að leggja málsín undir alþjóðadóminn, sagði hæstv. ráðh. og þóttist nú vel hafa gert, að því er manni virtist. En er eitthvað hliðstætt í því, að ríkið leggi málefni sín undir alþjóðadóm, eins og Ólafur Jóhannesson átti við, og hinu, að fyrirtæki á Íslandi, sem starfrækt er á Íslandi, skuli vera undir erlendri lögsögu? Er eitthvað hliðstætt í þessu? Auðvitað ekki. Hvers vegna er þá hæstv. ráðh. að eyða tíma manna hér við að hlusta á þvílíkt? Enda sagði hæstv. ráðh. rétt á eftir þessi orð, ég skrifaði þau eftir honum: „Hér stendur að vísu öðru vísi á. Hér er um að ræða mál á milli íslenzks fyrirtækis og annars aðila.“ Hvers vegna var hæstv. ráðh. þá að segja þetta? Hví var hann að blanda þessu inn í þetta? Hvaða þýðingu hefur svona málflutningur eða svona röksemdir? Jú, þetta átti að vera viðból við reykskýið til þess að gera það svolítið dekkra. Því er verið að bera þetta saman, fyrst hæstv. ráðh. segir sjálfur, að það standi öðru vísi á, m.ö.o. að það sé ekki sambærilegt? Hann ætti að svara því, en ekki ég.
Síðan fór ráðh. að tala um mannréttindadómstólinn til þess að sýna, að því er manni virtist, hvað þetta væri eðlilegt og lýsti því í löngu máli, hverjir hefðu haft mestan áhuga fyrir því að koma Íslandi undir mannréttindadómstólinn. Ég get ekki séð, hvað það kemur þessu máli við. Hæstv. ráðh. reyndi heldur ekkert að tengja það við þetta mál, þó að hann kæmi með þennan þátt. Mér skilst þetta vera sjálfstæður þáttur um mannréttindadómstólinn, eða getur það verið, að hugsanagangur hæstv. ráðh. sé í raun og veru eitthvað á þessa leið: Af því að Íslendingar hafa gengið undir mannréttindadómstólinn, er og óaðfinnanlegt, að fyrirtæki, sem lögskráð er íslenzkt, skuli undanþegið íslenzkri lögsögu og komi undir erlendan gerðardóm. Getur verið, að ráðh. hugsi svona? Ég veit það ekki. En hann virðist ætla þeim, sem hlusta á hann, að hugsa svona. Það finnst mér ekki sanngjarnt að ætlast til slíks. Þetta er auðvitað alveg út í hött og kemur þessu máli ekkert við.
Síðan hóf hæstv. ráðh. sérstakan kafla með því að sækja í sig veðrið og mana menn til þess að fallast á þá skoðun, að Íslendingar skytu deilum sínum yfirleitt til útlanda, og hann hafði sig upp í talsverðan hita og sagði, að það væri svívirðing fyrir íslenzku þjóðina að óttast að fara með mál sín fyrir erlenda dómstóla. Það væri svívirðing fyrir íslenzku þjóðina! Hvað á hæstv. ráðh. við? Eigum við að fara að mana hver annan til þess að fara með þrætumál okkar hér á Íslandi fyrir erlenda dómstóla? Hvað er þetta eiginlega? Til hvers hefur þá verið öll barátta Íslendinga fyrir því að færa dómsvaldið inn í landið, einn meginþátturinn í sjálfstæðisbaráttunni? Og þessi hæstv. ráðh. telur sig vera vel að sér í sögu!
Ég veit satt að segja ekki, hvaða gildi svona lagað á að hafa, en eitt er víst: allt þetta sýnir, að það hefur komið illilega við kaunin á hæstv. ráðh., að Ólafur Jóhannesson o.fl. hafa upplýst þessar veilur, sem í samningnum eru að þessu leyti og eru mjög þýðingarmiklar. Þarna er um prinsipmál að ræða eða meginreglu, sem sé, að íslenzkir atvinnurekendur og atvinnurekendur á Íslandi séu undir íslenzkum lögum. Það verður ekki ógeðugt ástand hér, þegar þessi stefna til að gera atvinnuvegi landsmanna fjölbreyttari verður komin verulega á skrið, því að það getur varla verið, að menn, sem líta eins á þessi mál og hæstv. forsrh., hugsi sér, að þetta sé annað en lítil byrjun. Það leiðir alveg af öllum þeim hugsunarhætti, sem kom fram í hans ræðu, að hann hlýtur að hugsa þetta sem litla byrjun. Eða heldur hæstv. ráðh., að Íslendingar bjargi sér á þessu út af fyrir sig lengi, ef verulega bregzt grundvöllurinn að öðru leyti? Nei, hann heldur það ekki. Þess vegna hlýtur þetta að vera í hans huga bara byrjunin, og það verður ekki leiðinlegt ástand hér, ef menn halda áfram að framkvæma þessa stefnu og mikill hluti af atvinnurekstri í landinu verður orðinn af þessu tagi og ekkert af því á að heyra undir íslenzka dómstóla. Allur ágreiningur út fyrir pollinn!
Ég held, að það væri réttast fyrir hæstv. ráðh. að viðurkenna það drengilega, að hér hefur þeim orðið mikið á í messunni, varðandi þetta mál. Líka vegna þess, að ef þeir ætla sér að halda áfram að gera íslenzkt atvinnulif fjölbreyttara á þennan eina hátt, sem þeir virðast hafa nokkra verulega trú á, þá er réttara fyrir þá að hafa fordæmið betra en þetta. Það gæti orðið dálítið erfitt fyrir þá að fást við þessi mál framvegis, ef byrjað er með þessu. Það er fullkomlega tímabært að aðvara þá, og þeir ættu ekki að herða sig upp gegn bendingum í þessa átt, heldur brjótast í því að reyna að fá þetta lagfært.
Ég get ekki stillt mig um að skjóta því hér inn í, þó að það sé dálítið skothent, af því að ég sé, að það stendur hérna á blaðinu hjá mér: Fjármagnið eftir í landinu. Þetta mun ég hafa skrifað niður eftir hæstv. iðnmrh. eða forsrh. Það er nefnilega einn liður í þessari röksemdafærslu þeirra, að þarna sé verið að byggja svo mikið upp. Og hv. þm., Benedikt Gröndal, þegar hann í niðurlagi sinnar ræðu, hátíðlegur mjög, lagði áherzlu á, að einmitt með þessu væri verið að undirbyggja framtíðina. — Þetta fyrirtæki yrði grundvöllur í framtíðinni. En hvaða fjármagn ætlar þetta fyrirtæki að láta eftir í landinu? Það greiðir laun, en ekki meiri laun en hver annar. Það greiðir fyrir rafmagnið. Það mun sízt af veita til þess að halda í horfinu, að ekki sé meira sagt. Það greiðir skatt. Hvað verður eftir í hreiðrinu? Gróðinn kemur aldrei inn í landið. Verksmiðjan kemur inn sjálf. Fyrningafé kemur aldrei inn, og hún fer, eins og ég hef orðað það, út úr landinu jafnótt og hún slitnar. Þetta er grundvöllurinn. Þetta eru staðreyndir. Það er ekki hægt að komast framhjá þessu. Þetta er munurinn á erlendum og íslenzkum atvinnurekstri. Þetta er munurinn á þessu tvennu, og þess vegna er ekki skynsamlegt að gera meira en sem allra minnst af því að fara inn á atvinnurekstur erlendra aðila. Og það vona ég, að verði fast með íslenzku þjóðinni framvegis. Og ef þeir berja fram þennan samning, sem búið er að gera, með fyrirvara að vísu, vona ég, að það sitji þó a.m.k. eftir í unga fólkinu á Íslandi eitthvað at þeim umr., sem hér fara fram, og menn hugsi sig um tvisvar, áður en haldið verður áfram á þessari braut eða byggt á hliðstæðu sem verulegum þætti í þjóðarbúskap Íslendinga. Það getum við ekki gert vegna þess, hve við erum fáir. Það getur verið að stórþjóðirnar geti leyft sér að hafa mörg erlend fyrirlæki af þessu tagi. en við getum ekki leyft okkur svona nema í ítrustu neyð og þá mjög takmarkað. Það er þetta, sem við í Framsfl. höfum lagt mikla áherzlu á. Þess vegna er það með öllu óviðunandi, þegar hæstv. forsrh. og ráðh. eru að flytja þetta mál sem almennt úrræði í atvinnumálum Íslendinga. Ef þeir hefðu bundið sig við að segja, að þetta þyrfti að gera til þess að koma virkjuninni upp, hefðum við getað skilið þá, að þeir hefðu vegna þessarar minnimáttarkenndar, sem ég ræddi um áðan, ekki treyst sér til þess að útvega lán til virkjunarinnar og því leiðzt út í þetta. Það var skiljanlegt, þó að ekki væri það myndarlegt og sízt af öllu karlmannlegt og sízt af öllu til fyrirmyndar samanborið við það, sem áður hefur verið gert, t.d. varðandi Sogsvirkjanirnar, við miklu verri skilyrði en nú eru. En það var skiljanlegt. En hitt er verra, þegar farið er að flytja þetta sem upphaf að þýðingarmikilli stefnu til þess að gera íslenzkt atvinnulif fjölbreyttara framvegis.
Hæstv. iðnmrh. var að tala um, að Framsfl. væri í þessu eins og svo mörgu öðru heldur óstöðugur hefði óskýra stefnu og hringlaði til og frá — og sagði, að þó að við værum á móti þessum samningi, hefðum víð samt talið rétt að athuga þann möguleika að koma upp alúminverksmiðju í sambandi við stórvirkjun á Íslandi. Það er alveg rétt, við vildum láta athuga þann möguleika. En hæstv. iðnmrh. láðist að geta þess, að undir eins og við gengum til samstarfs um að athuga þetta, sem fyrir lá, eða í marzmánuði, ályktuðum við alveg greinilega, hvaða skilyrði við töldum, að þyrfti að uppfylla, til þess að það kæmi yfirleitt til mála að ljá máls á slíkum samningi. Og þar í var, með leyfi hæstv. forseta, að ekki væri hægt að afgreiða slíkt nema sem lið í heildaráætlun í framkvæmda- og efnahagsmálum og ekki tiltök að hefja slíkar framkvæmdir við verðbólguþróun og vinnuaflsskort, sem íslenzkir atvinnuvegir ættu við að búa. Sem sé, það væru ekki tiltök að leggja út í slíkt, ef Íslendinga vantaði ekki verkefni, og eins og sakir stæðu væri því ný stefna í efnahags- og atvinnumálum forsenda þess, að unnt væri að ráðast í stóriðju. Enn fremur að hið erlenda fyrirtæki nyti engra hlunninda umfram íslenzka atvinnuvegi og lyti í einu og öllu íslenzkum l., og raforkusala til þess stæði a.m.k. undir stofnkostnaði virkjunar að sínu leyti. Enn fremur að slík framkvæmd stuðlaði að jafnvægi í byggð landsins og hjálpaði til að leysa byggðavandamálið, sem hefði verið þýðingarmikið atriði og út af fyrir sig hægt að taka á sig talsverða áhættu, ef það hefði getað hjálpað okkur í þeim mikla vanda. En allt hefur þetta horfi öfugt við það, sem Framsfl. vildi og því er það, að við höfum beitt okkur á móti samningunum. Það er ekkert ósamræmi í okkar ályktunum eða framkomu í þessu efni á nokkurn hátt og með öllu ómögulegt að sætta sig við að hlusta á það ómótmælt, að slíku sé haldið fram.
Enn fremur sagði hæstv. iðnmrh., að allir væru sammála um að taka erlend lán áfram og fylgja þeirri stefnu, en það er því miður ekki þannig, að allir séu sammála um það. Það er flutt sem stefnumál að breyta til og láta erlenda aðila reka atvinnu í landinu sjálfu í stað þess að taka lán og verja þeim til þess að byggja upp íslenzkan atvinnurekstur. Og það er ekki aðeins, að það sé léð máls á því í þessu sambandi, að þetta sé eina tilfellið eða eina dæmið, heldur er fullum fetum í málgögnum Sjálfstfl. barizt fyrir því, að erlendir aðilar setji hér upp olíuhreinsunarstöð. sem yrði eitt stærsta fyrirtæki landsins og lykilfyrirtæki að ýmsum iðnaði, sem komið gæti til greina út frá því. Þá færi hann ekki að verða neinn smáþáttur í þjóðarbúskap Íslendinga, atvinnurekstur á vegum erlendra aðila, ef þessu yrði bætt við og svo því, sem út frá olíuhreinsunarstöð gæti spunnizt. Það er því alls ekki ótímabært, að þjóðin rifji upp fyrir sér einmitt þessar tvær stefnur um þessi mál, eins og við höfum verið að fara fram á, að hún gerði og það sé einmitt rætt um stefnur í sambandi við þetta málefni. Það er því ekki rétt, því miður, hjá hæstv. iðnmrh., að það séu allir sammála um að fylgja á sama hátt og verið hefur þeirri stefnu að taka erlend lán og leggja þau í innlendan atvinnurekstur. Það er einmitt það versta við þetta, að þar kemur mjög greinilega fram stefnubreyting.
Ég kem þá að þeim þætti í ræðu hæstv. iðnmrh. í dag, sem fjallaði um eitt þýðingarmesta atriðið í þessum samningi, og það er rafmagnsverðið og það, sem ég hafði sagt um það. Eða öllu heldur haft eftir hv. þm. Sunnl., Helga Bergs, — en ég tók það ráð að hafa þessi ummæli eftir honum, vegna þess að ég veit, að hann er allra manna bezt fær um að dæma þessi mál og þeim kunnugastur, — því tók ég það eðlilega ráð að vísa til hans orða um þessi efni. Þegar hæstv. ráðh. kom að þessum kafla, sem fjallaði um raforkuverðið og sem ég hafði eftir Helga Bergs, kom í ljós, að hæstv. ráðh. játar allri röksemdafærslu Helga Bergs frá upphafi til enda, eins og ég skal sýna. Fyrsta atriðið var, að Helgi Bergs sagði, að hæstv. ráðh. puntaði dæmt sitt með því að setja inn í raforkuverðið hluta af skattgreiðslum fyrirtækisins. Munaði þetta hvorki meira né minna en 196 millj. kr. En hvað gerði hæstv. ráðh. í dag. Hann játaði þetta. Hann játaði þetta berum orðum og sagðist vilja leiðrétta þetta. Hann sagði að vísu, að fjárhæðin væri lægri, hún væri 176 millj, eða eitthvað þar um bil, en ekki 196 millj. Hann játaði, að hann hefði látið setja hluta af skattgreiðslunum inn í raforkuverðið. Til hvers gerði ráðh. það? Hann gerði það til þess að fá ranga útkomu úr rafmagnsverðsdæminu, og ráðh. gerði þetta visvitandi. Auðvitað var honum algerlega ljóst, að hann lét hluta af skattinum inn í raforkuverðið. En hann verður nú að játa þetta, og hann verður að taka þetta til baka, af því að það stendur þannig á, að það er hægt að sanna þetta atriði. Þannig er það með þau atriði, sem hægt er að festa hendur á í þessum útreikningum, sem hæstv. ráðh. leyfa sér að koma fram með hér á Alþ. og fyrir þjóðina alla. En hvernig halda menn, að þeir hafi þá gengið frá þeim atriðum, sem ekki er hægt að sanna neitt um, þegar þeir leyfa sér að ganga svona frá þeim atriðum, sem geta legið í augum uppi fyrir kunnuga menn? En hér er hvorki meira né minna um að ræða en það, að dæmið er sett upp rangt, vísvitandi, sem nemur annað hvort 176 millj. eða 196 millj. eða nálega 1/4 af öllu saman, sem hæstv. ráðh. fékk út til réttlætingar því, að það væri mjög hagkvæmt að fara þessa leið. Og ég segi enn: Þegar svona fer um þau atriði, sem hægt er að festa hendur á, hvað er þá hægt að leggja upp úr þeim liðum, sem eru ágizkanir einar og sem þessir sömu menn fjalla um? Það er að vísu ekki hæstv. ráðh., sem reiknar þetta á reikningsvélarnar, en hann ákveður, hvernig skuli reikna, og ég ætla að biðja hann að fara ekki að skjóta sér á bak við embættismennina í þessu tilfelli, sem reikna á reiknivélarnar, eins og sumir hans kollegar hafa gert stundum, þegar hliðstæð mál hefur borið á góma. En ég veit, að hæstv. ráðh. er það mikill drengskaparmaður, að það mun hann ekki gera, og hann mun kannast við, að hann leggur til forsendurnar í dæmið. Það dreg ég ekki í efa. En það verður hæstv. ráðh. að gera sér ljóst, að þetta eykur ekki traustið á málsmeðferðinni eða því, sem fyrir okkur er lagt. Hann þarf ekkert að verða hissa, þó að mönnum finnist þetta tíðindi.
Helgi Bergs hélt því líka fram, að enginn vissi, hvar virkjað yrði eftir 1976. Hann sagði: Það veit enginn. Og hann sagði meira, sem sé, að engin fullnægjandi áætlun lægi fyrir um slíka virkjunargerð. Þar af leiðandi, sagði Helgi Bergs, er ekki leyfilegt að setja þessa faktora inn í dæmið, eins og hæstv., ráðh. hefur látið gera, og draga af því ályktanir um hag og útkomu af rekstri rafveitnanna framvegis. Hvað gerði svo hæstv. ráðh. í dag? Hann játaði, að það væri ekki búið að ákveða, hvar skuli virkjað næst. Hann játaði það berum orðum, einmitt það, sem Helgi Bergs hélt fram, og hann játaði líka, að það væri ekki einu sinni búið að gera neinar fullnægjandi áætlanir um þá virkjun, sem væri höfð í huga eða sett inn í dæmið. Hann játaði það líka, eins og eðlilegt er, því að það vita allir, að það er rétt. Það hefur engin fullnægjandi áætlun verið gerð. Það lengsta, sem hæstv. ráðh. komst í þessu sambandi, var að segja, að þetta væri ekki út í bláinn. Það voru þau orð, sem hann notaði. Það væri ekki út í bláinn að byggja reikninga á þessu, vegna þess að það kæmi til mála að virkja næst Háafoss í Þjórsárdal, það kæmi til mála, og það væri búið að gera einhverja áætlun, sem allir vita, að er ófullkomin áætlun gerð á hné sér, um þessa virkjun. Samt er hún sett inn í þetta dæmi. Hæstv. ráðh. verður því að játa, að Helgi Bergs hefur haft alveg rétt fyrir sér í þessum lið gagnrýninnar eins og hinum.
Þá hefur Helgi Bergs haldið því fram, að áætlunin um reksturskostnaðinn væri vægast sagt ónákvæm vegna óvissunnar, m.a. um ísvandamálið. Hæstv. ráðh. sagði: Jú, það er ágreiningur um, hvað þetta muni verða. Hann varð að játa, að Helgi Bergs hefur rétt fyrir sér í þessu efni. Það er alveg óvíst enn, hver kostnaðurinn verður vegna ísvandamálsins. Um þetta má deila, sagði hæstv. ráðh., en annað hvort hefur hann látið setja ísvandamálið í einhverjum tölufaktorum inn í dæmið eða þá að hann hefur alveg sleppt því. Ég veit ekki, hvort er, mér er það ekki alveg ljóst. En hann hefur gert annað hvort, sett það inn í dæmið sem fasta faktora, sem hann þykist þekkja, þó að enginn þekki þá, og hann verður sjálfur að játa nú, að hann þekkir þá ekki. Annað hvort hefur hann samt látið setja þá inn í dæmið eftir þessum ófullkomnu ágizkunum, eða hann hefur ekki sett þá inn í dæmið, og er hvorugur kosturinn góður.
Hæstv. ráðh. hafði reiknað, að það væru 865 millj., sem upp úr þessu ættu að hafast miðað við að hafa ekkert alúmín fram til 1985, minnir mig. Þá er þessi mikli vaxtareikningur. Þessi einseyringsreikningur, sem notaður var í gamla daga, en sem ég hélt satt að segja, að menn væru hættir við núna á þessum síðustu og verstu tímum verðbólgunnar. Það var hamast við að reikna, hvað einn eyrir yrði eftir 100 ár eða 50 ár o.s.frv. Það voru vænar tölur, sem komu út, og þennan reikningsmáta lætur nú hæstv. ráðh. við hafa. Helgi Bergs reyndi að kippa þessu niður á jörðina með því að setja þetta inn í dæmið á þann hátt, sem venjulegir menn mundu vilja gera, sem sé með því að gera sér grein fyrir því, hvernig þessar mörg hundruð millj. litu út, ef þær væru reiknaðar niður í þann ávinning, sem yrði á ári hverju. Ég hugsa, að mönnum muni finnast gleggra að hafa þetta svona, eins og Helgi Bergs gerði og þá fékk hann sem hæstu hugsanlegu tölu 18 millj. á ári. Og nú skeður það í dag, að hæstv. ráðh. flytur sig ofan á jörðina líka og fer að tala um 18 millj. á ári. Hann er sem sagt kominn niður úr skýjunum og niður á jörðina. Hann er farinn að tala um ávinninginn á ári og þá um 18 millj. En þó er sá galli enn á þessu, að þegar talað er um 18 millj., eru inni í dæminu þessir faktorar, sem hæstv. ráðh. hefur látið setja í dæmið, en hann veit ekkert um, — þ.e.a.s. ný virkjun, sem enginn veit, hvar verður gerð og þar af leiðandi enginn veit, hvað muni kosta; kostnaður við ísvandamálið, sem enginn veit, hver verður og mjög mikill ágreiningur er um, hvað líklegt sé að verði. Og þessir faktorar eru inni í dæminu, þegar þessar 18 millj. koma út. Það er því svo fjarri því, að hægt sé að tala um þessar 18 millj. sem líklegan ávinning af því að hafa alúmínið með samanborið við að vera án þess, og þá er enn eftir að taka tillit til þess, að kostnaður við virkjunina hlýtur að fara fram úr áætlun. Það er óhugsandi, að þannig takist til miðað við íslenzkt efnahagslíf og horfur, að kostnaður við virkjunina fari ekki talsvert fram úr áætlun. Og þá er líka eftir að taka það inn í dæmið, sem Helgi Bergs sýndi ítarlega fram á og ómögulegt er að hrekja, að næsti virkjunaráfangi, sem við þurfum að leggja í og þurfum að leggja miklu fyrr út í að framkvæma vegna þess að álverksmiðjan á að fá rafmagnið frá Búrfellsvirkjuninni, mun skila dýrara rafmagni en því, sem álverksmiðjan fær, og þannig erum við, eins og Helgi Bergs sagði, að taka lán hjá framtiðinni, sem við þurfum að borga til baka, þegar við förum að nota dýrara rafmagnið úr nýju viðbótarvirkjuninni.
Enn bætist það við, að þetta dæmi er reiknað þannig, að þegar orkusöluáætlunin er gerð frá virkjun án álverksmiðju, er ekki gert ráð fyrir því, að hægt sé að selja neitt af afgangsorkunni. Það er ekki gert ráð fyrir því, að það sé hægt að selja neitt af þeirri afgangsorku, sem á að ganga til álverksmiðjunnar. En auðvitað yrði eitthvað af þessari orku selt, og einhver fyrirtæki mundu koma upp í staðinn fyrir álverksmiðjuna. Það er ekki hægt að bera þetta saman á þessa lund. Þetta er því þannig vaxið allt saman, að það eru vægast sagt engar líkur til, að það verði gróði að því í raforkuverði, þegar fram í tímann er litið, fyrir Íslendinga að hafa álverksmiðjuna með, og þá er sú ástæða brott fallin, ef skynsamlega er litið á þetta mál, fyrir því að taka þetta erlenda fyrirtæki inn í landið. En eins og margsinnis hefur verið sýnt fram á, fylgja því svo margir ágallar að hafa stórt erlent fyrirtæki í landinu samanborið við íslenzkan atvinnurekstur, að slíkt á ekki að gera, nema alveg sérstaklega standi á og brýna nauðsyn beri til.
Það er því ekkert vafamál að hæstv. ráðh. iðnaðarmála hefur alls ekki hrakið með rökum þá gagnrýni, sem beint hefur verið að útreikningum hans um hag af raforkusölu og Helgi Bergs hefur sérstaklega skilmerkilega sett fram. Það er því alveg vafalaust niðurstaða í þessari lotu í umr., að útreikningar hæstv. ráðh. í þessu sambandi eru vægast sagt þannig gerðir, að það er ekki hægt að byggja á þeim, — sumir mundu jafnvel vilja segja, að þeir væru markleysa, — en vægast sagt þannig, að það er ekki hægt að byggja á þeim. Margt bendir til þess, að útkoman úr dæminu verði þveröfug, þegar á allt er litið og öll kurl komin til grafar.
Í þessu sambandi verður líka alveg sérstaklega einkennilega ankannaleg sú röksemdafærsla hæstv. ráðh., að það þurfi að flýta sér að gera þetta til þess að koma út raforkunni strax. Það er undarlegur hugsunarháttur, að það skuli þurfa að flýta sér að koma út ódýrustu raforkunni strax fyrir lítið, og þurfa svo að nota sjálfir dýrari orku, en þessi röksemdafærsla hefur verið notuð.
Ég hef ekki hér í höndum yfirlit um virkjanl. vatnsafi á Íslandi, en ég man eftir því, að forráðamenn raforkumála hér voru að reikna út, að með því að virkja fyrir þörf Íslendinga áfram álíka hratt og gert hefur verið nú undanfarið, mundi allt virkjanlegt vatnsafi á Íslandi verða fullnotað 2010, eða svo minnir mig. Þeir litu svona björtum augum á möguleika Íslendinga sjálfra til þess að setja upp atvinnurekstur og líkurnar fyrir aukinni raforkuþörf fyrir landsmenn, án þess að reikna með stóriðju erlendra aðila. Nú ber ég enga ábyrgð á þessu, en ég man, að þessar voru þær tölur, sem mönnum voru þá fluttar um þessi efni. Ég vil þó ekki halda því fram út af fyrir sig, að það muni ekki vera óhætt að selja talsverða orku, ef það væri hagfellt og því fylgdu ekki þeir annmarkar, sem af atvinnurekstri erlendra aðila óneitanlega stafa.
En þegar við erum að tala um annmarka, sem fylgja atvinnurekstri erlendra manna, er það m.a. sú íhlutun, sem þeir geta haft um íslenzk málefni, og ég minntist á það hér í minni fyrri ræðu, að þeir væru talsvert miklir. Og eru þeir þó áreiðanlega miklu meiri en ég minntist á í þeirri ræðu. En það er eitt atriði í því sambandi, sem er sérstakt tilefni til að minnast á og ég minntist á þá, og það var þetta, að þetta stóra fyrirtæki mundi vilja hafa afskipti af kjaramálum á Íslandi, m.ö.o. einum aðalþættinum í þjóðarbúskapnum. Kjaramálin eru einn aðalþátturinn í þjóðarbúskapnum. Eitt af því, sem mestu máli skiptir í þjóðarbúskapnum, er einmitt, hvernig fer um kjaramálin, hvort almenningur fær réttmætan hluta af þjóðartekjunum t.d. á þann hátt, að kaupgjald hækki meira en verðlag og þannig verði ávinningur. Þetta er einn aðalþátturinn í þjóðarbúskapnum og þáttur, sem okkur hefur gengið mjög illa við að glíma við. Við höfum oft deilt um, hvernig tekizt hafi og ekki alltaf verið hrifnir hver af öðrum í sambandi við þetta, satt að segja, svo að við séum hreinskilnir. En inn í þennan mikla vanda getur einmitt svona stórfellt atvinnufyrirtæki troðið sér með því að fara að styðja annan aðilann í þessu sambandi og þá auðvitað Vinnuveitendasamband Íslands. Annað hvort troðið sér í það eða styrkt það, og þaðan er mjög stutt yfir í sjálfa pólitíkina, því að við skulum ekki vera með neina hræsni. Það er mjög stutt þaðan yfir í hana, og við vitum vel, hvað er hinu megin við þær dyr, þ.e.a.s. hvert sú leið liggur. En þeir í Alþfl. hafa einhverjar áhyggjur af þessu, talsverðar, því að þeim dylst þetta náttúrlega ekki, — þótt þeir hafi dregizt inn í þetta, þá dylst þeim ekki þetta. Það kom stefnuyfirlýsing frá þeim um, að hvað sem öðru líður, þá væri það skilyrði af Alþfl. hendi, að þessi hringur gengi ekki í Vinnuveitendasambandið. Ég spurði svo blátt áfram, hvernig ætti að tryggja þetta. Hvar væri að finna í þessum plöggum öllum, að gengið væri frá þessu? Og hv. þm., talsmaður Alþfl., Benedikt Gröndal, hann kom hér og svaraði þessu, og ég ætla, að mér sé óhætt að minnast á það, þó að hann sé lasinn heima, því að ég sé, að hér er nú viðstaddur hæstv. ráðh. viðskiptamála og ýmsir vaskir menn, sem ekkert er málið óskyldara en hv. þm. Benedikt Gröndal.
Og hvernig voru svörin? Hann sagði, að Alþfl. vildi, að það yrði fengin yfirlýsing frá hringnum. Fengin um þetta yfirlýsing! Hr. Meyer frá hringnum sagði í viðtali við Morgunblaðið, að þetta mál væri ekki á dagskrá. Hann hefur víst ekki kynnt sér dagskrá Alþfl., eða hann telur hana ekki svo mikils virði, að það þurfi að taka tillit til hennar. En svo maður sleppi nú öllu spaugi, af því að þetta er alvarlegt mál, þá vil ég leyfa mér að spyrja: Hvaða hald er í yfirlýsingu frá hringnum um, að hann ætli ekki að ganga í Vinnuveitendasambandið og hvaða viðurlög verða ef hann gerir það samt? Á þá samningurinn að falla úr gildi, ef þeir gera það? Er það þess háttar yfirlýsing, sem Alþýðuflokkurinn ætlar að beita sér fyrir? Og hvar á hún að koma, á hún að koma inn í samninginn, eða hvar á hún að koma? Hún hefur ekki fundizt í samningnum. Ein yfirlýsing, venjuleg. Þetta eru aðeins 45 ár. Það er víst miklu meira en meðal mannsævi. Og það má vera mikil trú, ef menn leggja upp úr yfirlýsingu frá hringnum, sem kæmi nú, og tækju hana sem góða og gilda vöru og tryggingu í þessu mikilvæga máli.
Síðan sagði hv. þm., — því að hann hefur víst haldið, að menn myndu telja þetta veikt, — að ef að þetta leystist ekki nógu vel á þennan hátt með þessari yfirlýsingu, þá væru ótal leiðir á Alþ. til þess að koma í veg fyrir þátttöku þeirra í Vinnuveitendasambandinu. Það er nú ekki mikið fram á farið, fyrst það eru ótal leiðir til, að bent sé bara á eina. Hvaða leiðir hafa þeir í huga? Ég fer ekki fram á meira en að þeir bendi á eina af þessum ótal leiðum, sem eru til. Til þess að vera ekki of ósanngjarn óska ég aðeins eftir því, að þeir bendi á eina, og mætti þá íhuga, hvort hægt væri að taka þá uppástungu þeirra til greina. En þarna sjáum við ofurlítið af þessum vanda, sem víð er að fást. Alþfl. er sjálfsagt alveg fullur af góðum vilja. Mér dettur ekki í hug, að Alþfl. vilji, að þessi hringur fari að braska hér með kjaramál, mér dettur það ekki í hug, en hér stoðar nú ekki góður vilji, og þeir standa nú ráðalausir, eða svo verður að telja, þar til hæstv. ráðh. og hans menn gera grein fyrir því, alveg skýra og klára, hvernig á að tryggja þetta. Við hinir höfum það fyrir satt þangað til, að þeir standi ráðalausir gegn þessum vanda. En þá þýðir ekkert að láta eins og menn hafi ráð, nema þeir vilji fallast á að setja um þetta algjörlega tryggileg ákvæði, þannig að viðurlögin séu þau, að samningurinn sé þá úr gildi, ef út af er brugðið. Þetta er eitt af dæmunum um þennan stórkostlega vanda, sem er einmitt fólginn í þessu. Og það er ekki með neinni léttúð gangandi inn á þessa braut. Það er einmitt þess vegna, sem Framsfl. hefur viljað fara mjög varlega í þessum málum og verið ákaflega tregur til þess að leggja út í nokkuð af þessu tagi. Þó að stundum hafi verið kannað eitt og annað í þessu sambandi, óbindandi, þá höfum við alltaf verið mjög tregir í þessu efni, og þess vegna höfum við sett öll þau skilyrði, sem greind hafa verið í ýmsum samþykktum í flokknum. — En þær kannanir, sem einstakir menn í Framsfl. hafa staðið fyrir eða látið framkvæma, hafa allar farið þannig, að þær hafa ekki leitt til neinna framkvæmda. Og það er einmitt m.a. vegna þess, að við höfum aldrei litið þannig á, að þetta ætti að geta komið til greina nema undir alveg sérstökum kringumstæðum, sem ég hef lýst.
Hv. þm. Benedikt Gröndal var að tala um, að það hefði verið mjög leiðinlegt að heyra, hvað ég talaði ónotalega í garð Atvinnujöfnunarsjóðsins. Þetta er hinn mesti misskilningur hjá hv. þm., ég talaði ekkert ónotalega í garð Atvinnujöfnunarsjóðsins. Ég sagði alveg þvert á móti, að ég sæi ekki betur en Atvinnujöfnunarsjóðurinn væri skilgetið afkvæmi frv. okkar um ráðstafanir til jafnvægis í byggð landsins. Það var einmitt það, sem ég sagði, að það væri spor í rétta átt, en gengi of skammt, einkum miðað við það, að það ætti að leggja í þessar stórkostlegu framkvæmdir hér í þenslusvæðinu. Enn fremur sagði ég, að það hefði ekki þurft að leggja í þennan erlenda atvinnurekstur til þess að fá fjárhæðir inn í slíkan sjóð af þeirri stærð, sem þar er gert ráð fyrir. Hitt er annað mál, hvernig þessu barni vegnar, af því að það er óneitanlega hjá vandalausu fólki, þar sem það er nú hjá stjórnarliðinu. Þeir eru náttúrlega í raun og veru hálfneyddir til þess að fallast á þessa hugmynd í framhaldi af þeirri baráttu, sem Framsfl. hefur háð með sínum frv.
Ég fékk auðvitað engin svör við þeim spurningum, sem ég bar fram hér á laugardaginn var, til þess að reyna að fá að vita, hvað það væri, sem ætti að víkja fyrir þessum stórkostlegu fjárfestingarframkvæmdum. Því hefur öllu verið svarað út í hött, eins og við var að búast. Hv. talsmaður Alþfl. sagði, að opinberar framkvæmdir skyldu alls ekki víkja, en hæstv. iðnmrh. hafði lýst því hátíðlega yfir, að opinberar framkvæmdir skyldu víkja, og svo fékkst ekki meir nema þá helzt það, að það þyrfti ekkert að víkja. Það yrði hægt að gera allt það sama fyrir því, þó að ráðizt yrði í fjárfestingar upp á 2–3 þús. millj., það mundi ekkert þurfa að víkja fyrir því. Allt gæti farið fram eftir sem áður með jöfnum hraða. Trúi því hver sem vill. Við sjáum það náttúrlega öll, að slíkt er ekkert nema fjarstæða. Og þá vitum við, að það er auðvitað ekki búið að koma sér neitt niður á það enn þá, hvað það er, sem skuli víkja. En ef haldið verður átram eins og nú síðustu misserin og stjórnarstefnan verður óbreytt, vitum við náttúrlega, hvað það verður, sem fyrst og fremst verður sett til hliðar og með hvaða aðferðum, eins og ég benti nú raunar á á laugardaginn. Það verður klemmt saman með því að þrengja útlánin úr viðskiptabönkunum, þrengt að íslenzkum fyrirtækjum, rekstursfé þeirra og fjárfestingarfé, það er önnur aðalleiðin, sem notuð er í þessu tilfelli, og svo skornar niður opinberar framkvæmdir. En það samrýmist auðvitað ekki frelsisstefnu núv. stjórnar að fara að fresta framkvæmdum þeirra einstaklinga, sem geta borgað þær sjálfir, þannig að þeir, sem hafa fjármagnið, geta haldið áfram með sitt, en það verða opinberar framkvæmdir og svo starfræksla fyrirtækjanna, sem þurfa að skipta við bankana, sem verða fyrir barðinu á þessu. Og fyrir þessu stendur Sjálfstfl., flokkur einstaklingsframtaksins á Íslandi, þetta er hans forusta.
Í þessum orðum, sem ég hef sagt, vildi ég álíta að væru rök fyrir því, að verkefnin vantar sízt hér, og því verður erlendur atvinnurekstur við þessi skilyrði okkar eigin starfrækslu í mörgum greinum fjötur um fót. Og því síður en svo ástæða til þess að leggja í þess háttar með þeim ágöllum, sem því fylgja. Ég þykist hafa sýnt fram á, ásamt mínum félögum, að samningarnir, sem áformaðir eru, eru bæði óhagstæðir og vansæmandi. Við höfum nú í sambandi við þetta og ástandið almennt í þjóðmálum, krafizt þess, að þing yrði rofið og efnt til nýrra kosninga, en hæstv. ríkisstj. hefur knúið sitt þinglið til þess að fella vantraust á sig, því að hana langar, að því er virðist, til að sitja eitthvað enn og fresta því, sem fram verður nú að koma, þ.e.a.s. þjóðardómi í kosningum.
Maður getur svo sem skilið þetta eins og ástatt er, en vitaskuld hefði ekki annað átt að geta komið til mála en að efnt yrði til kosninga, áður en lagt væri út á þessa braut, sem nú er fyrirhuguð, og með tilliti til þess, að ríkisstj. hefur gengið á bak nálega alls þess, sem hún lofaði þjóðinni varðandi stefnuna í efnahagsmálum og atvinnumálum við síðustu alþingiskosningar. Enn fremur tel ég, að þetta mál, eins og það liggur fyrir nú, sé í raun og veru alveg nýtt fyrir mönnum og hafi aldrei verið gerð grein fyrir því. Ég sé það í pistlum Morgunblaðsins, sem kenndir eru við hæstv. forsrh., að hann vill nú ekki viðurkenna þetta og er þar að tina til ýmis ummæli, sem sýni, að mönnum hafi svo sem verið vel ljóst við síðustu kosningar, hvað til stóð og ekki þurft að fara í grafgötur um neitt og þess vegna sé alveg óþarfi að vera að gera ráð fyrir því, að mönnum komi nokkuð á óvart eða að það þurfi að bera undir fólk eitt eða annað af því, sem nú stendur til. Og ég tók eftir því, að talið var, að 1961 hafi verið gefin út mikil aðvörun og stefnuyfirlýsing um þetta, og það er nú hvorki meira né minna en sjálfur aðalmaðurinn, sem vísar þar á ræðu, sem hann hélt á einhverjum stað á því herrans ári 1961, og þar stendur sem sé um þetta, með leyfi hæstv. forseta:
„Svissneskt stórfyrirtæki hefur þreifað fyrir sér um samvinnu á þessum grundvelli, sem sé á þeim grundvelli, að þeir ættu fyrirtækið, en keyptu raforkuna. Ríkisstj. er nú að láta kanna þá möguleika frá grunni. Um árangur þeirrar könnunar skal ég ekkert segja fyrir fram, en hér er tvímælalaust um að ræða eitt veigamesta viðfangsefni næstu ára.“
Ég held nú á hinn bóginn, að menn hafi ekki verið miklu nær, eftir að hafa séð svona yfirlýsingu, hvað það var, sem til stóð, eða hafi verið miklu nær í kosningunum 1963 að dæma um, hvort það væri skynsamlegt að fela Sjálfstfl. t.d. forustu í þessum málum eftir yfirlýsingar eins og þessar. Ég held, að það sé ekki hægt að telja, að það hafi farið fram einhver atkvgr. um það, hvort leggja ætti í stóriðju við þær kringumstæður, sem nú eru, og með . þeim skilyrðum, sem gert er ráð fyrir í þessum samningum. Það kemur auðvitað ekki til mála að fallast á, að málin hafi legið þannig fyrir.
Það er enginn vafi á því, að hæstv. ráðh. hefur tínt í þessa pistla það, sem hann fann haldbezt til að sýna fram á, að mönnum hefði átt að vera ljóst, hvað til stæði. Enn önnur klausa um þetta er svona: „Haldið sé áfram undirbúningi nýrrar stóriðju í landinu“. Mér finnst satt að segja hæstv. forsrh. ganga nokkuð langt, ef hann heldur því til streitu, að þessar yfirlýsingar gefi rétt til þess að halda því fram, að það hafi verið kosið síðast um stóriðjusamninga við erlend fyrirtæki af því tagi, sem hér liggja fyrir. Þá var ekkert vitað um, hvaða skilmálar kæmu til greina, aðeins minnzt á það prinsipatriði, að erlendir aðilar gætu undir vissum kringumstæðum átt fyrirtæki, sem keyptu hér raforku. Það er því fullkomlega tímabært, alveg tvímælalaust fullkomlega tímabært, að verða við þeirri kröfu, sem Framsfl. hefur gert, að rjúfa þing og efna til kosninga. En ef þeir, sem fyrir þessu standa, vilja ekki með nokkru móti fallast á þetta, væri þó að minnsta kosti sanngjarnt, að þeir féllust á, að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla um samninginn, og kæmi þá í ljós, hverjir hafa rétt fyrir sér í þessum efnum, þeir, sem halda því fram, að æði margir séu meðmæltir því, sem nú er verið að gera, eða hinir, sem halda því fram, að meginþorri manna sé á móti. Ég er einn af þeim, sem álíta, að meginþorri manna sé á móti þessari samningagerð, sem nú stendur fyrir dyrum, og að ríkisstj. hafi engan síðferðilegan rétt til þess að knýja hana fram. Á hinn bóginn væri ekki hægt að ásaka hæstv. ríkisstj. að því leyti, ef hún féllist á þjóðaratkvgr. um þetta mál. Og ef hún treystir sínum málstað, eins og hún þykist gera, ætti hún að gera það. Við vitum, að það er mjög mikil andstaða gegn þessum samningum meðal margra þeirra, sem hafa fylgt stjórnarflokkunum að máli fram að þessu. Við vitum, að það lið er æði fjölmennt, og það má vera, að þessi beygur hæstv. ríkisstj. við að fallast á þjóðaratkvgr. stafi af því, að henni sé þetta líka kunnugt, ekki síður en okkur, af mörgum samþykktum, sem um þetta málefni hafa gengið. En slíkur beygur í brjósti hæstv. ríkisstj. er ekki nein frambærileg rök fyrir því að synja um, að þetta mál fari nú í þjóðardóm.
Ég get ekki stillt mig um, af því að það hefur verið rætt talsvert mikið um það í sambandi við þessa samninga, að fara örfáum orðum um það, hvernig þeir virðast koma heim og saman við það, sem tíðkast hjá frændum vorum Norðmönnum, en það er oft vilnað til þeirra í þessu sambandi. Það er upplýst, að raforkuverðið, sem við eigum að fá, er 28% lægra en í Noregi, og að það á að vera fast hér í 25 ár. En Norðmenn hafa þann hátt á þessu, að þar hækkar raforkuverðið, þó að það sé svona miklu hærra en við eigum að fá, að nokkru leyti miðað við raforkuverðsvísitölu þar í landi. Það er því ekkert sambærilegt á nokkurn hátt, hvað þessir samningar okkar eru miklu óhagstæðari en samningar Norðmanna. Það hefur verið upplýst, að Norðmenn gerðu það að skilyrði og hafa beinlínis þá stefnu, að ef framkvæmdir af þessu tagi eigi að koma til greina, þá verði þær að vera til styrktar dreifbýlinu, þær verði að hjálpa til að leysa þeirra byggðavandamál, sem er þó aðeins brot af okkar vanda. Og það er upplýst, að álmenn, erlendir, hafa orðið að taka á sig þann bagga að leggja í æði mikinn aukastofnkostnað í Noregi til þess að uppfylla þetta skilyrði Norðmanna. M.a. hefur það verið upplýst, að Husnes-verksmiðjan varð, að talið er, 60 millj. íslenzkra kr. dýrari á Husnesi en á ódýrasta staðnum, sem kom til greina. En eftir kröfum Norðmanna var hún sett á Husnesi, því að þar var hún hugsuð til þess að koma upp í kringum hana byggðakjarna og hjálpa til að leysa byggðavandamálið. En hér er aftur á móti verksmiðjan staðsett þannig, að hún eykur byggðavandamálið, og stjórnin hefur ekki haft neina dáð í sér til þess að koma öðru fram. Annaðhvort skortir viljann eða duginn til þess að koma öðru fram.
Það er upplýst, að verksmiðjur af þessu tagi eru skýlaust undir norskum dómstólum, en hér á fyrirtækið að vera undir erlendum dómum — erlendri lögsögu. Í Noregi eiga skattar og skyldur að vera eftir norskum lögum, eins og þau eru á hverjum tíma, en hér tryggir hringurinn sér skattgreiðslu eftir vissum reglum, sem ekki breytast á neinn hátt, eftir því sem Íslendingar sjálfir verða að borga í skatta, — tryggir sig gegn skattahækkunum framtíðarinnar. Það mundi mörgum atvinnurekanda íslenzkum þykja það góðir kostir, en þeir búa ekki við slíkt. Norðmenn láta þessi fyrirtæki búa við sömu skattalög og sín eigin fyrirtæki. Enn fremur er það upplýst, að í Noregi leggur það fyrirtæki, sem reisir Husnesverksmiðjuna, fram húsnæði fyrir þá, sem þar vinna, ef þeir vilja búa nálægt fyrirtækinu. Upplýst er, að fyrirtækið leggur fram fjárhæðir til þess að kosta slit á vegum, brúm og hafnarmannvirkjum vegna verksmiðjustarfseminnar, en hér kemur ekkert slíkt til greina. Enn fremur kemur fram, að verksmiðjunni beri að reka sjúkrahús og sjá starfsmönnum fyrir sjúkrahjálp. Ekkert slíkt kemur hér heldur til greina. Það er því augljóst af þessum flýtislega samanburði, en sem byggður er á upplýsingum, sem áreiðanlega er óhætt að treysta og komu raunar fram í grein, sem hv. þm. Gísli Guðmundsson hefur ritað um þessi mál, og enginn mun draga í efa. að skýri rétt frá, að samningarnir eru á allan hátt miklu hagstæðari í Noregi en hér og á engan hátt sambærilegir hér við það, sem þar er. Það er því enginn sleggjudómur, þó að það sé sagt, að þessir samningar séu mjög óhagstæðir.
Mótmæli hafa borizt til hv. Alþ. út af þessari samningagerð og ályktanir gegn samningunum frá mörgum samtökum. Búnaðarþing hefur varað sterklega víð, fundur frystihúsaeigenda hefur varað sterklega við og Alþýðusamband Íslands og fjölmörg félög innan þess og sambönd hafa kröftuglega mælt gegn því að leggja inn á þessa braut.
Enn fremur hefur borizt til þm., og ég vil, að það komi inn í þingtíðindin, að áhugamenn um landsmál í einu kjördæmi landsins, Norðurl. e., hafa safnað áliti manna um þetta efni, og um það segir svo í bæklingi, sem hv. þm. hafa fengið, með leyfi hæstv. forseta:
„Áhugamenn um landsmál í Norðurlandskjördæmi eystra hafa valið n. Eyfirðinga og Þingeyinga til að gangast fyrir því að safna undirskriftum, þar sem skorað er á Alþ. Íslendinga að hafna þeim samningum, sem nú eru í undirbúningi um stóriðju auðhrings í þéttbýlinu við Faxaflóa. N. leyfir sér hér með að senda hinu háa Alþ. meðfylgjandi undirskriftalista. Eigi þótti gjörlegt sökum tímaskorts og samgönguerfiðleika að leita almennra undirskrifta alþingiskjósenda, heldur var leitað stuðnings forráðamanna í sveitar- og héraðsstjórnum og forgöngumanna í félagsmálum, mennta- og atvinnumálum. Mótmæli þessi styðja 487 alþingiskjósendur í kjördæminu. 128 sveitarstjórnarmenn af 155, sem til náðist, eða um 83%, 62 af 67 félagsstjórnarmönnum stéttarfélaganna á Akureyri, Hrísey og Húsavik, sem leitað var til, eða 93% og um 300 menntamenn, atvinnurekendur og félagsstjórnarmenn kvenfélaga, ungmennafélaga og búnaðarfélaga úr öllum sveitarfélögum kjördæmisins, sem hægt var að ná til, auk nokkurra annarra áhugamanna, er óskuðu eftir að veita málinu stuðning. Þátttaka félagsstjórnarmanna í hinum einstöku sveitarfélögum í undirskriftasöfnuninni hefur víðast hvar verið milli 80 og 90% og allt upp í 100%, en sökum óvenjumikilla samgönguörðugleika reyndist ekki unnt að ná til nærri allra félagssamtaka á svæðinu. Skv. þessu teljum við líklegt, að um 80—90% alþingiskjósenda í Norðurlandskjördæmi eystra séu andvígir fyrirhugaðri stóriðju í Straumsvík.“
Það er ekkert um að villast, að í hópi þessara trúnaðarmanna í félagsmálum, sem leitað hefur verið til og sem til hefur náðst, eru menn úr öllum stjórnmálaflokkum og þá einnig úr stjórnarflokkunum, og það sýnir mjög greinilega, að andstaðan við þessa samningagerð nær langt út fyrir raðir þeirra, sem fram að þessu a.m.k. hafa verið kallaðir stjórnarandstæðingar, og eru það vitaskuld mjög aukin rök fyrir því, að það sé réttmæt krafa, að fram færi þingrof og kosningar, og fáist það ekki fram, þá þjóðaratkvæðagreiðsla um málið.