05.04.1966
Neðri deild: 67. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1612 í B-deild Alþingistíðinda. (1202)

177. mál, álbræðsla við Straumsvík

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Við erum farnir að deila um keisarans skegg. Ég hygg þó, að hv. þm. misminni, því að ef ég man rétt, þá segir Hjalti Jónsson, að hann hafi sótzt eftir einhverjum af þremur til að verða borgarstjóri til þess að sleppa út úr viðræðum sinum við Sigurð Jónasson. Jón Þorláks son var einn, Eggert Claessen annar og Richard Thors sá þriðji. Það má vera, að mig misminni, en þessa sögu hef ég með öryggi heyrt. Hitt vitum við svo báðir, að æviminningar eru aldrei taldar alveg örugg heimild, jafnvel eftir hina allra merkustu og grandvörustu menn, vegna þess að sjálfsævisögur eru ætið skrifaðar sem afsökun og til að reyna að breiða yfir það, sem miður hefur farið.