05.04.1966
Neðri deild: 67. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1612 í B-deild Alþingistíðinda. (1203)
177. mál, álbræðsla við Straumsvík
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Hv. I. þm. Austf. sagði okkur það í kvöld í sinni stuttu ræðu. fyrri ræðunni, þessari, sem stóð á þriðja klukkutíma, að það væri vafalaus niðurstaða þessarar fyrstu lotu, eins og hann orðaði það, að Eysteinn Jónsson væri sigurvegarinn. Mitt mál var nánast markleysa, eins og hann orðaði það svo smekklega. Þessi sami hv. I. þm. Austf. sagði okkur í sömu ræðu, að ráðherrarnir, sem voru frá 1934–1938, Eysteinn Jónsson hét einn þeirra, hefðu lagt grundvöllinn að öllum framförum á Íslandi siðan. Þetta var efni málsins, en orðin kannske nokkuð önnur, og hvort tveggja er þetta jafnsmekklegt.
Þar sem ég geri ráð fyrir að vera hér síðastur núna í þessari I. umr., skal ég láta niður falla allt það, sem ég hafði viljað gera athugasemdir við, af ýmsu því, sem fram hefur komið, og ekki gera tilraun til þess að ýfa upp nein sár í því sambandi. En það er eitt atriði, aðeins eitt, sem ég vil árétta, sem er í sambandi við gerðardóminn, sem er alveg fráleitt og hv. I. þm. Austf. sagði hér í kvöld, að fyrirvari eða bókun í þn.-fundi, 14. fundi hinn 15. júli 1965, frá Helga Bergs og Ingvari Gíslasyni, 2. liður: að verksmiðjufyrirtækið lúti í einu og öllu íslenzkum lögum, eigi að þýða það, að ákvæði um gerðardóm væri ekki í samningnum. Þetta er algerlega fráleitt, og það er furðulegt að segja um leið, að mér hafi ekki verið vorkunn að vita, hvað í þessu fælist. Hvorugur þessara manna sveigði nokkuð að þessu, ekki með einu einasta orði, enda er það svo, að það að lúta gerðardómsákvæðum er í fyllsta máta að lúta íslenzkum lögum. Efnislega er þetta vitleysa, algjör vitleysa, og það er nú, þegar málið er komið fyrir þingið, fyrst, að þessir herrar eru að reyna að leita að einhverju atriði, sem þeim áður hefur yfirsézt, sem sanni, að hér sé um hálfgert stjórnarskrárbrot og glapræði að ræða, þá er reynt að búa til sögusagnir eins og þessar. En skv. efni málsins sjálfs, er það auðvitað að lúta íslenzkum lögum að semja sig undir gerðardómsákvæði, og það höfum við svo fjölmörg dæmi um.
Og annað var það í sambandi við þetta líka, að það væri fráleitt að setja fyrirtæki á Íslandi undir erlenda lögsögu. „Fyrirtæki á ÍSLANDl“ hefur verið, að mínum dómi, mjög mikið misskilið, og ég hef vakið athygli á því hér í umr. áður, að ISAL, sem að formi til er íslenzkt hlutafélag, eins og hv. þm. er ljóst, er í raun og veru fyrirtæki Alusuisse. Það sem efnislega er gert, er að leyfa Alusuisse að reisa þessa verksmiðju. það er þess vegna ríkisstj. og Alusuisse, sem fara mundu með sakarefni í öllum málum, sem til gerðardómsins yrðu lögð, skv. 47. gr. Það er vegna þess, að þessir tveir aðilar, ríkisstj. og Alusuisse, taka á sig allar ábyrgðir og skuldbindingar vegna ISALs annars vegar og Landsvirkjunar og Hafnarfjarðarkaupstaðar hins vegar. Hins vegar mundu aðrir aðilar að samningunum, sem deiluna varða, geta átt meðalgöngu að gerðinni, eins og fram kemur í 46. gr. 6. málsgr. Þetta skal ég svo ekki lengja, en þetta vildi ég láta koma fram, en geymi mér rétt til þess að svara að öðru leyti ýmsum þeim aðfinnslum, sem fram komu hér í umr. í kvöld.