19.04.1966
Neðri deild: 72. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1690 í B-deild Alþingistíðinda. (1218)

177. mál, álbræðsla við Straumsvík

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég sé, að hv. seinasti ræðumaður er ekki viðstaddur í d., en ég hefði aðeins viljað beina til hans örfáum orðum. Það skiptir kannske ekki svo miklu máli, þó að hann sé ekki staddur hér, en ég vildi eigi að siður láta koma fram nokkur atriði í sambandi við það, sem hann sagði.

Hv. síðasti ræðumaður sagði m.a., að svo væri að skilja á framsóknarmönnum, að ef verksmiðjan, sem um er rætt i þessu frv., hefði verið staðsett á Norðurlandi, mundu þeir hafa getað verið samþykkir þessum samningi. Ég skal játa það, eins og hv. ræðumaður viðurkenndi líka sjálfur, að það hefði verulegu breytt, ef verksmiðjan hefði verið staðsett á Norðurlandi, en hins vegar hefði það þó ekki nægt til þess, að við framsóknarmenn hefðum getað verið með þessum samningi, og vil ég aðeins í því sambandi láta nægja að vísa til nokkurra ummæla í nál. 2. minni hl. álbræðslunefndar, þar sem fjallað er um gerðardómsákvæðið, og þar sem segir m.a. á þessa leið: „Gerðardómsákvæðin, eins og þau eru vaxin, fela því í sér óverðskuldaða lítilsvirðingu á íslenzkum dómstólum. Við erum þeim algerlega andvígir, og þau eru ein út af fyrir sig næg ástæða til þess að hafna þessum samningi.“

Þetta held ég, að nægi alveg til þess að sýna það, að sú fullyrðing, sem hv. 5. þm. Vesturl. bar hér fram, hefur ekki við rök að styðjast.

Hv. þm. minntist mjög á þá erlendu fjárfestingu, sem hefði átt sér stað í Noregi. Það er alveg rétt, að nokkur erlend fjárfesting hefur átt sér stað í Noregi. En ég held, að það séu ekki nein dæmi þess, að þar hafi átt sér stað erlend fjárfesting á þann hátt, sem ráðgert er í þessu frv. Ég held, að það sé ekki hægt að benda á neitt erlent fyrirtæki, sem starfar í Noregi, sem ekki verður að öllu leyti að lúta norskum lögum og norskri lögsögu. Ég held, að það sé heldur ekki hægt að benda á erlent fyrirtæki í Noregi, sem ekki verður að lúta að öllu leyti norskum skattalögum og norskum tollalögum og þannig mætti lengi telja. Þess vegna er alveg þýðingarlaust í sambandi við þetta mál að vera að vitna nokkuð í Noreg til stuðnings því, að það sé rétt að samþykkja þetta frv. Þvert á móti er hægt að vitna í Noreg til stuðnings þess, að það eigi ekki að samþykkja þetta frv., vegna þess að Norðmenn hafa sett þau skilyrði fyrir erlendri fjárfestingu, einmitt þau skilyrði, sem við minni hl.-menn leggjum áherzlu á, að fylgt verði hér, en ekki hið gagnstæða. Það mun líka vera rétt, þó að ég hafi ekki nákvæma útreikninga um það, að erlend fjárfesting er ekki meiri í Noregi en svo, að eftir að búið verður að reisa hér þá verksmiðju, sem þetta frv. fjallar um, verður erlend fjárfesting orðin meiri hér heldur en í Noregi, þegar miðað er við þjóðarauð og þjóðarfjölmenni. Erlenda fjárfestingin í Noregi er nú ekki meiri en þetta. Og ef svo kynni t.d. að fara, að þessi verksmiðja yrði ekki stækkuð nema um helming, sem alls ekki er hægt að telja óeðlilegt, ef haldið verður áfram á þeirri braut, sem hér er mörkuð, þá er erlend fjárfesting hér á landi orðin miklu meiri heldur en í Noregi og hin erlenda aðstaða miklu sterkari til þess að hafa áhrif hér, t.d. á gang þjóðmála, en í Noregi.

Annars finnst mér það einkennilegt, að þegar meðmælendur þessa máls eru að gera samanburð við erlend fordæmi, virðast þeir vita mjög takmarkað um erlendar fyrirmyndir. Þeir virðast ekki hafa haft áhuga fyrir að kynna sér neitt sérstakt í því sambandi. Mér virtist það t.d. koma fram hjá hv. síðasta ræðumanni, og það hefur komið fram hjá mörgum talsmönnum þessa máls einnig, að þeir viti t.d. ekki um það, hvernig háttað er samningum franska álhringsins við grísku stjórnina um þá álbræðslu, sem þar hefur verið byggð. Það kom t.d. fram hjá síðasta ræðumanni, að þeir vita ekki um það, hvernig samíð hefur verið um skatta við það fyrirtæki. Þeir vita heldur ekki um það, hvernig þessum málum er raunverulega háttað í Ghana, sem þeir eru stundum að vitna til. Það má vel vera, að Ghana hafi veitt einhver skattahlunnindi, en rafmagnsverðið er þó hærra þar heldur en hér. En það, sem einnig hefði þurft að liggja fyrir, til þess að þessi mynd yrði alveg glögg, er það, hvert er framleiðsluverð raforkunnar í Ghana. Ég hygg, að það sé mjög miklu minna heldur en t.d. hjá Búrfellsvirkjun, vegna þess að þar er um gífurlega stóra virkjun að ræða, sem talið er, að geti framleitt mjög ódýrt rafmagn, og þegar það er tekið með í reikninginn, mætti segja mér, að raforkusamningurinn í Ghana væri stórum hagstæðari en sá samningur, sem við erum að gera hér, þegar borið er saman framleiðsluverðið annars vegar og svo söluverðið hins vegar.

Þá finnst mér t.d., að það leiki mjög á huldu, þegar verið er að bera saman skattgreiðslur þessa væntanlega fyrirtækis hér og skattgreiðslur sambærilegra fyrirtækja í Noregi. Því er stundum haldið fram, að skattgreiðslurnar séu miklu lægri í Noregi. Hæstv. iðnmrh. hefur hins vegar orðað þetta á þann veg, að fyrstu árin verði skattarnir lægri hér en í Noregi. Ég hygg, að það sé rétt hjá honum að fullyrða ekki meira, því að ég sé ekki betur á þeim gögnum, sem voru lögð fyrir norska þingið, þegar samningarnir um Husnesverksmiðjuna voru þar til umr., en að hringurinn sjálfur geri ráð fyrir því að þurfa að borga um 54% af nettótekjum í skatta, og hann hafi byggt upp sínar áætlanir skv. því. Hér er hins vegar ekki gert ráð fyrir því, að hringurinn borgi meira en 50% af nettótekjum í skatta. Hann á að fá endurgreiðslur á framleiðslugjaldinu, ef það fer fram úr 50% af nettótekjum. Mér sýnist á þessu, að það sé mjög hæpið, sem fullyrt er, að Husnesverksmiðjan komi til með að greiða lægri skatta en Straumsvíkurverksmiðjan, en hitt er óumdeilanlegt og viðurkennt af öllum, að Husnesverksmiðjan á að borga 28% dýrara rafmagn en Straumsvíkurverksmiðjan, og það er að sjálfsögðu ekki lítill munur.

Áður en ég ræði frekar um þetta mál, get ég ekki látið hjá líða að koma að öðru gömlu máli, mjög gömlu máli, sem mér finnst, að hafi verið rætt hér, bæði í þessari hv. d. og eins í Ed., á annan veg en rétt sé vegna minningar þeirra manna, sem þar eiga hlut að máli. Og þar á ég við upplestur hæstv. forsrh. hér við 1. umr. á ræðu, sem einn af þeim þm., sem á sínum tíma voru á móti símasamningnum við Stóra norræna félagið, hafði flutt hér í þinginu. Og það var alveg auðséð, að hæstv. forsrh. vildi mjög halda fram þeirri sögufölsun, sem er orðin algeng í sambandi við simamálið, að Hannes Hafstein og hans forustufélagar hafi verið hinir eiginlegu einu forgöngumenn símamálsins og þeir hafi átt við hina óbilgjörnustu andstöðu að etja, sem hafi verið fólgin í því, að andstæðingarnir hafi fordæmt símann á allan hátt og alls ekki viljað, að þjóðin tæki þessa nýju tækni í sína þjónustu. Mér finnst, að hér sé svo ranglega hallað á marga af okkar beztu forustumönnum eins og Skúla Thoroddsen, eins og Björn Jónsson, eins og Bjarna frá Vogi og Benedikt Sveinsson yngri, að hjá því verði ekki komizt, að þetta sé að nokkru leiðrétt. Og þess vegna vil ég í örstuttu máli rifja þessa sögu upp. Það vakir ekki fyrir mér með þessu að gera á neinn hátt lítið úr Hannesi Hafstein. Ég álít Hannes Hafstein vera einn af okkar merkustu stjórnmálamönnum, og hann á nógu merkilega sögu, þó að ekki sé verið að gera hann að neinum óverðskulduðum þjóðardýrlingi í sambandi við símamálið og lasta og rógbera alla þá, sem ekki fylgdu honum í sambandi við samninginn við Stóra norræna félagið.

Hver er þá saga símamálsins í stuttu máli? Er það Hannes Hafstein og hans félagar, sem eiga upptökin að því, að símamálið var fyrst tekið upp hér á landi?

Nei. Sá maður, sem fyrstur gerist til þess að flytja þetta mál hér á Alþ., er Skúli Thoroddsen. Á þingi 1891 flytur Skúli Thoroddsen till. um það, að það verði sérstaklega athugað, hvort ekki verði hægt að koma á símasambandi milli Íslands og útlanda. Þegar þessi till. náði ekki fram að ganga, flytur Skúli Thoroddsen aðra till. þess efnis, að það verði athugað, hvort erlendar þjóðir hafi ekki áhuga fyrir því að leggja hingað síma vegna veðurþjónustunnar. Þetta varð svo til þess, að danska stjórnin, sem fór þá með okkar umboð, tók málið upp til athugunar, og að hennar frumkvæði að sumu leyti og Íslendinga sjálfra er tekin á fjárlög ríkisins 1895 sérstök fjárveiting til þess að vinna að því að koma á símasambandi milli Íslands og útlanda. Og það er þá enn Skúli Thoroddsen og hans félagar, sem eru fremstir í flokki fyrir því, að þessu máli sé haldið vakandi. Þessi fjárveiting er svo alltaf í fjárlögum næstu árin. Fjárveiting til þess, að það sé hafizt handa um að koma símasambandi á milli Íslands og útlanda.

Hannes Hafstein kemur ekki inn í þessa sögu fyrr en á árinu 1901, þegar hann er hér þm., og það er með þeim hætti, að þá er deilt um það, hvort símasambandið eigi að koma fyrst til Reykjavíkur eða til Seyðisfjarðar, sem Valtýr Guðmundsson beitti sér alveg sérstaklega fyrir, m.a. að ég tel vegna þess, að hann mun þá eða um það leyti eða kannske síðar hafa verið þm. Seyðfirðinga. Hannes Hafstein flytur þá till. um það í þinginu, að símasambandið verði látið ná til Reykjavíkur fyrst, en sú till. er felld, vegna þess að Valtýr Guðmundsson og aðrir börðust fyrir því, að síminn kæmi fyrst til Seyðisfjarðar, til tryggingar því, að símalína yrði lögð um allt landið frá Seyðisfirði til Reykjavíkur og þannig tryggt, að mikill hluti landsins gæti komizt í símasamband.

Hannes Hafstein talaði þá á móti þessu máli hér á þinginu, og það er ekki til þess að gera neitt lítið úr honum heldur til þess að sýna, hvernig viðhorf manna var á þeim tíma, að ég ætla að leyfa mér að lesa hér upp stutta kafla, með leyfi hæstv. forseta, úr þeim ræðum, sem Hannes Hafstein flutti um það, hvort það væri rétt að leggja landssímalínu frá Seyðisfirði til Reykjavíkur. Þessi ummæli Hannesar Hafstein eru m.a. á þessa leið:

„En allt þetta er bundið við það, að sæsíminn sé lagður þannig, að vissa sé fyrir, að sá staður, þar sem skilyrðin eru fyrir því að myndazt geti verzlunarsentrum, hafi hans vís og stöðug not, og í því tilliti er ekki um annan stað að gera en Reykjavík, höfuðstað landsins. En ég álít ekki, að þessu máli sé borgið, svo framarlega sem samband Reykjavíkur við útlönd er komið undir landssvæði á staurum. Því að fyrir utan það, að það mundi hafa í för með sér ókljúfandi kostnað fyrir landið að viðhalda stöðugu sambandi gegnum landþráð milli Reykjavíkur og Austurlands veturinn yfir, er það stopult og næsta óáreiðanlegt. Mér er kunnugt um, að telefónþráður á einum stormdegi slitnaði á 20 stöðum á 1/2 mílu vegar, og hversu mikil spjöll mundi ekki einn slíkur stormdagur geta unnið á þræði, sem lægi alla leið frá Seyðisfirði til Reykjavíkur? Vér vitum, að auk þess, sem gengur til að bæta þær skemmdir, sem á símanum verða, þarf að stofna telegrafstöð í hverri sveit og setja launaða telegrafista á hverja stöð, og allur sá sægur af fólki sem til þess þyrfti frá Seyðisfirði til Reykjavíkur, mundi því verða þungur baggi fyrir landssjóðinn.“

Hannes Hafstein segir enn fremur á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„En aðalástæðan til að leggja þráðinn ekki yfir landið er sú, að með því móti mundi hann ekki koma að tilætluðum notum, vegna þess að slys mundu verða mjög tíð og þráðurinn slitna vegna snjóþyngsla og óveðra. Hv. frsm. Valtýr Guðmundsson ætlast til, að aðalstöðvar yrðu á Seyðisfirði og á Akureyri en telefónstöðvar í hverri sveit. En ég ímynda mér, að þessar telefónstöðvar hefðu ekki lítinn kostnað í för með sér, því að þar verður að hafa fastan mann nótt og dag, hvort sem stöðin hefur verið telefónstöð eða telegrafstöð. En kostnaðurinn er ekki aðalatriðíð, heldur hitt, að þráðurinn kæmi ekki að fullkomnu gagni.“

Ég læt þetta nægja til þess að sýna, hvert viðhorf Hannesar Hafsteins var til þessa máls 1901, þegar Valtýr Guðmundsson og fleiri voru að berjast fyrir því. að sími yrði lagður milli Seyðisfjarðar og Reykjavíkur. Það voru fleiri en þeir, sem siðar voru andstæðingar hans, sem höfðu uppi allmikla tortryggni í sambandi við símann.

En svo að ég reki þessa sögu áfram, þá heldur fjárveitingin áfram að vera í fjárlögunum til þess að hafizt verði handa um að leggja símann milli Íslands og útlanda í allmörg ár, án þess að nokkrar framkvæmdir séu, þangað til það gerist árið 1902, að Einar Benediktsson skerst í málið og kemur með tilboð frá Marconifélaginu brezka um það, að komið sé á þráðlausu sambandi á milli Íslands og útlanda. Á næsta þingi 1903 er þessi áðurnefnda heimild samþykkt á þann veg, að stjórnin er látin hafa frjálst val um það, hvort heldur skuli komið á símasambandi eða þráðlausu sambandi við Ísland. Það eigi að fara eftir því, hvað sé álitið tæknilega réttara og fjárhagslega léttara í þessum efnum. Og þannig stendur málið, þegar Hannes Hafstein verður ráðherra. Þá liggur fyrir af þingsins hálfu heimild til þess, að leggja annað hvort síma milli Íslands og útlanda eða að taka upp þráðlaust samband. Við nánari athugun koma fram tvö tilboð um þetta, annað frá Marconifélaginu brezka um það að koma á þráðlausu sambandi við nokkra staði á landinu og svo hitt frá Stóra norræna félaginu um það að koma á símasambandi við landið. Hannes Hafstein tekur þá ákvörðun að semja við Stóra norræna símafélagið. Og það var fyrst og fremst út af því, hvaða tilboði var tekið, sem deilurnar stóðu í símamálinu 1904–1905. Þeir, sem voru andstæðingar Hannesar Hafsteins í þessu máli, voru ekki á móti því, að komið yrði upp sambandi á milli Íslands og útlanda, heldur töldu, að samningur við Marconifélagið væri hagstæðari og réttari en samningur sá, sem Hannes Hafstein hafði gert við Stóra norræna félagið um símasamband. Um þetta stóð deilan fyrst og fremst. Og það, sem blandaðist að verulegu leyti inn í þessa deilu, var viðhorf manna þá til sjálfstæðisbaráttunnar. Þeir, sem voru andvígastir nánu sambandi við Dani, þeir, sem vildu rjúfa sambandið við Dani sem mest og vildu að Íslendingar yrðu fullkomlega sjálfstæðir, þeir vildu heldur semja við Breta um þetta mál en danskt auðfélag. Og það var af þeim ástæðum, að menn eins og Bjarni Jónsson frá Vogi, Benedikt Sveinsson yngri og aðrir slíkir beittu sér gegn þeim samningi, sem Hannes Hafstein hafði gert. En ég álít það með öllu rangt, þegar þessi saga er íhuguð og lesin ofan í kjölinn, að það sé verið að stimpla þá, sem stóðu gegn Hannesi Hafstein í sambandi við Stóra norræna félagið, sem einhverja sérstaka afturhaldsmenn og halda því fram, að þeir hafi verið á móti framförum og öðru slíku, þegar í þeim hópi voru einmitt þeir menn, sem voru upphafsmenn að því, að þessum málum var hreyft hér á Alþ., eins og Skúli Thoroddsen. Þetta er í sannleika sagt einhver sú mesta sögublekking, sem hefur átt sér stað eða á sér stað hér á landi, þegar verið er að stimpla þessa menn sem einhverja sérstaka afturhaldsmenn, segja, að þeir hafi verið á móti simasambandi á milli Íslands og útlanda, þar sem þeir áttu einmitt margir hverjir manna mestan þátt í því, að þetta mál komst fram. Skúli Thoroddsen var t.d. fyrsti maðurinn, eins og ég sagði áðan, til að hreyfa þessu máli hér á Alþ., og það var verk Valtýs Guðmundssonar, að síminn var lagður til Seyðisfjarðar og þannig fengin strax lína milli Seyðisfjarðar og Reykjavíkur, en hún hafði alveg ómetanlega þýðingu á sínum tíma. Mér fannst rétt, vegna þess að svo ómaklega hefur verið sagt frá þessu máli, bæði hér í þessari d. og eins í hv. Ed., að þetta kæmi hér fram, því að þeir menn, sem hér hefur einkum verið kastað auri að, eiga vissulega allt annað skilið en að varpað sé skugga á minningu þeirra með þessum hætti.

Ég skal svo láta þetta nægja um símamálið og víkja að því frv., sem hér liggur fyrir.

Ég held, að það dyljist engum eftir þær umræður, sem hér hafa farið fram, að það er orðið alveg ljóst, að sá samningur, sem hér er til umr., sé mjög óaðgengilegur. Því hefur ekki verið mótmælt, að samkv. honum er rafmagnsverðið, sem hefur verið samið um við sambærilega verksmiðju í Noregi, 28% hærra en hér. Því hefur ekki heldur verið mótmælt með neinum rökum, að mestar líkur séu til þess, að það verði halli á þessari raforkusölu, þannig að hún standi ekki undir kostnaðarverði eða framleiðsluverði og þess vegna verði rafmagnsverðið til landsmanna hærra en ella mundi verða. Og það þarf ekki langt mál að rekja til þess að gera sér þetta ljóst, þar sem það liggur fyrir, að samkv. þeim áætlunum, sem seinast hafa verið gerðar, verður framleiðsluverðið á orku Búrfellsvirkjunarinnar um 10,4 aurar á kwst. En hins vegar verður það selt bræðslunni á 10,7 aura. Nú vita það allir, sem nokkuð hafa fylgzt með málum á undanförnum árum hér á landi, hve mikil brögð hafa verið að því, að framkvæmdir hafi farið fram úr þeim áætlunum, sem um þær hafa verið gerðar. Það þarf ekki aðeins að vitna í Norræna húsið til þess að benda á dæmi þess, heldur mörg önnur. Og þessi áætlun, sem hér hefur verið gerð, þarf ekki að fara nema 3–4% fram úr því, sem hún er nú, til þess að það verði halli á þessari sölu. En þó gefur það auga leið, að það hljóta að verða hér verulegar hækkanir, ef verðbólguþróunin, — jafnvel þó að hún verði ekki eins mikil á næstu misserum og hún hefur verið að undanförnu, — heldur áfram.

Ég held, að það séu líka flestir, sem athuga þessi mál hlutdrægnislaust, nokkuð sammála um, að það geti verið mikil hætta á því, að ísvandamálið hafi miklu meiri kostnað í för með sér en gert er ráð fyrir í umræddri áætlun. Þess vegna er það alveg áreiðanlegt, að sú áætlun, sem nú hefur verið gerð, stenzt ekki. Hversu mikið kostnaðurinn fer fram úr áætlun, það er ekki gott að fullyrða um það á þessu stigi, en alveg nægilega mikið til þess, að það liggur í augum uppi, að það verð, sem álhringurinn greiðir fyrir raforkuna, mun ekki nægja til að standa undir framleiðsluverði og þess vegna verða Íslendingar af þeim hluta rafmagnsins, sem fellur þeim í skaut, að greiða hærra verð en þeir ella mundu hafa þurft. Þó mun þetta verða enn þá tilfinnanlegra síðar meir. Þegar að því kemur að ráðast þarf í nýrri og dýrari virkjanir og framleiðslukostnaðurinn verður meiri, þá þurfa Íslendingar að greiða mun hærra raforkuverð á sama tíma sem hringurinn býr við óbreytt raforkuverð og situr að hinni ódýru orku. Mér finnst, að nú í þessum umr. hafi tiltölulega lítið verið gert til þess að mótmæla þessu, og mér finnst, — og það er auðvitað alveg rétt hjá hæstv. ráðh. og hans fylgismönnum, — að þeir vitni nú orðið miklu minna í hinn glæsilega hagnað, sem Íslendingar eiga að hljóta af þessari raforkusölu, og var, held ég, um skeið kominn upp í 600–800 millj. kr. á 20 ára tímabili. Þeir hafa orðið að viðurkenna það, bæði beint og óbeint, að þessir útreikningar eru meiri og minni vitleysa og ekki minnstu líkur til þess, að þeir fái staðizt, heldur að dæmið snúist á hina leiðina. Af þeim ástæðum er rangt að gera þessa samninga. — Raforkuverðið er allt of lágt. Ég hef ekki heyrt það enn þá, að það hafi verið bent á dæmi um óhagstæðari raforkusamning heldur en þennan, sem hér liggur fyrir eða felst í þessu frv. eða er tengdur þessu frv. Að vísu hefur eitthvað verið talað um það, að einhver álhringur vestur á Kyrrahafsströnd hafi samið um lægra raforkuverð, en það fylgja því ekki neinar upplýsingar um það, til hve langs tíma sá raforkusamningur er, en það skiptir að sjálfsögðu meginmáli, hvort þar er um að ræða, að það sé samið til örstutts tíma, 2–3 ára, eða hvort samið er til 25 eða raunverulega til 45 ára, eins og hér á sér stað, án þess að verðið hækki svo að teljandi sé.

Það hefur ekki verið hægt af meðhaldsmönnum þessa frv. að benda á nokkurt hliðstætt dæmi þess, sem felst í gerðardómsákvæði samningsins. Þeir hafa verið að nefna viðskiptasamninginn, sem var gerður við Rússa á sínum tíma, en ég held, að þeir séu nú hættir að gera það lengur, vegna þess að þar er um algerlega ósambærileg atriði að ræða, því að þar er um að ræða samninga á milli ríkja en ekki ríkis og einkafyrirtækis. Þeir hafa ekki getað nefnt eitt einasta dæmi þess á Norðurlöndum, í Evrópu eða í Norður-Ameríku, að fyrirtæki, sem á þó að teljast innlent, hafi rétt til þess að skjóta málum sínum undir erlendan dómstól. Og þeir hafa ekki getað leynt því af hverju þetta ákvæði er komið inn í samninginn, vegna þess að það liggja fyrir ummæli forstjóra svissneska hringsins sjálfs um það, að þetta ákvæði sé komið inn í samninginn, vegna þess að íslenzkum dómstólum sé vantreyst. Íslenzkir dómstólar séu ekki vanir því að fást við slík mál eins og þessi og þess vegna sé ekki hægt að treysta þeim til þess að fjalla um þessi atriði og því verði að leggja ágreiningsmál, sem upp kunna að koma, undir erlenda dómstóla.

Meðhaldsmenn þessa frv. hafa ekki heldur getað bent á dæmi þess, að þegar hliðstæður samningur hefur verið gerður um álbræðslu, að viðkomandi ríki hafi ekki ráðið því nokkurn veginn sjálft, hvar sú álbræðsla væri staðsett. Þeir hafa orðið að viðurkenna það, að það hefur verið eitt af frumskilyrðum norsku stjórnarinnar, þegar hún hefur samið um slík mál, að ríkisstj. réði mestu um staðsetninguna. Það mun að vísu rétt vera í sambandi við Husnesverksmiðjuna, að norska stjórnin nefndi nokkra staði, sem álhringurinn gat valið á milli, en allt voru þetta staðir, sem lágu þannig við, að þeir fullnægðu kröfu stjórnarinnar um aukið jafnvægi í byggð landsins, og svissneski hringurinn hafði ekki annað val en að taka einhvern af þessum stöðum. Þetta væri sambærilegt við það, að við hefðum látið þá velja á milli þess að hafa verksmiðjuna á Norðurlandi eða á Suðurlandsundirlendinu, en ekki á mesta þéttbýlissvæðinu.

Meðhaldsmenn þessa frv. hafa heldur ekki getað bent á nokkurt hliðstætt dæmi þess, að skattar séu útreiknaðir þannig, að fyrirtæki leggi fram kostnaðaráætlun og það sé síðan tekið gott og gilt og því áætlaðir skattar til langs tíma samkv. þeim útreikningum. Hún er vissulega dálítið önnur sú aðstaða, sem þetta fyrirtæki nýtur í þessum efnum, en þeir skattgreiðendur, sem skattalögreglan er nú að fást við hér í bænum. Þeir hafa ekki sloppið með það að leggja fram kostnaðaráætlun, og síðan hafi þeim verið reiknaðir skattar samkv. því. Þeir verða að skila ítarlegum og nákvæmum framtölum. Þau ganga síðan undir skattaeftirlit og að lokum undir skattalögreglu. Þetta sýnir þann meginmun, sem íslenzkir aðilar og hið erlenda fyrirtæki verða að búa við í þessum efnum. Og þannig má halda áfram að rekja þetta.

Þessi samningur á ekki nein fordæmi. Það er ekki hægt að benda á svipaðan raforkusamning og þann, sem gerður hefur verið við Landsvirkjun. Það er ekki hægt að benda á svipað gerðardómsákvæði. Það er ekki hægt að benda á svipað skattafyrirkomulag. Í öllum þessum efnum hefur verið farið eftir þeim óskum, sem svissneski álhringurinn hefur borið fram.

Það er ekki ófróðlegt að íhuga það, af hvaða ástæðum þessi samningur skuli vera jafnóaðgengilegur og raun ber vitni um. Ég vil alls ekki halda því fram, að þetta stafi af því, að þeir menn,sem um þessa samninga hafa fjallað, geti ekki verið sæmilegir samningamenn, þegar aðstaðan er með þeim hætti. En þeir eru áreiðanlega margir hverjir mjög glöggir og greindir menn, og ég vil alls ekki gera neitt lítið úr því. En hvað er það, sem veldur því þá, að samningarnir skuli vera með þeim hætti, sem raun ber vitni um og ég hef nú lítillega minnzt á, en aðrir hafa gert miklu rækilegar, og ég sé þess vegna ekki ástæðu til að gera það frekar að sinni? Hvað er það, sem veldur því þá, að jafnóhagstæður samningur og þessi hefur verið gerður? Ég fann helzt skýringuna á þessu í þeirri ræðu, sem hæstv. forsrh. flutti hér við 1. umr. málsins. Hæstv. forsrh. má nú eiga það, að hann er oft einna skýrastur af sínum flokksmönnum eða stjórnarsinnum og það er kannske ekki heldur óeðlilegt, vegna þess að hann er nú sá, sem ræður mestu um þær gerðir og veit þess vegna helzt, hvað hann má segja. Og ég ætla þá að víkja að því, sem helzt verður hægt að telja skýringu á því hjá hæstv. forsrh., að jafnóhagstæður samningur hefur verið gerður og sá, sem hér liggur fyrir.

Ég ætla þá að byrja á því að lesa hér upp stuttan kafla úr ræðu forsrh., sem er sennilega að vissu leyti nokkur skýring á því, að hann hefur getað gengið að þessum samningi, þó að hann sé svona óaðgengilegur. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að hæstv. forsrh. hefur talað manna mest um það, að Ísland væri á mörkum hins byggilega heims og taka yrði tillit til þess. Í þessum kafla, sem ég ætla hér að lesa upp úr ræðu hæstv. forsrh. við 1. umr., víkur hann nokkuð að þessu atriði. Honum farast þá orð á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta. Þetta eru ummæli forsrh.:

„Nú má auðvitað endalaust deila um trú hvers og eins á landinu, og víst lítum við misjafnlega á okkar aðstöðu hér, og það getur verið, að okkar kreddur blindi okkur nokkuð og geri okkur einsýna. En því lærdómsríkara er að heyra, hvað þeir, sem standa utan við deilurnar, segja um þetta efni. Og ég rakst á það í Morgunblaðinu nú 2. marz s.l., að alþekktur fræðimaður, náttúrufræðingur ágætur, Jón Eyþórsson, skrifaði ritdóm um ferðabók Ólafs Olaviusar. Hann segir, ég held í niðurlagi sinnar greinar:

„Þjóðskáldið okkar, Davíð Stefánsson, komst svo að orði, að líf íslenzku þjóðarinnar sé eilíft kraftaverk. Ég skal játa það, að þessi orð hafa verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk við að lesa ferðabók Olaviusar annars vegar og hins vegar hinar gagnmerku ritgerðir Þorkels Jóhannessonar, Plágan mikla og Við Skaftárelda, í bók hans Lýðir og landshagir.“

Þetta segir Jón Eyþórsson. Hann vitnar þarna til þjóðskáldsins og bezta sagnfræðings Íslendinga.“

Hér lýkur tilvitnun í ræðu hæstv. forsrh.

Ég held, að það sé nokkurn veginn ljóst, hvað hæstv. forsrh. er að fara hér. Það er ekki aðeins gamli söngurinn um það, að Ísland sé á mörkum hins byggilega heims, heldur er því nú einnig bætt hér við, að plágur hafi herjað hér á landi, eins og Svartidauði og Móðuharðindi, og hæstv. forsrh. finnst alveg sérstök ástæða til þess að rifja það upp við umr. um þetta mál. Ég skal ekki draga úr því, að Ísland hafi herjað plágur eins og önnur lönd og við höfum orðið að búa við harðindi, eins og margar aðrar þjóðir. Og það er alveg rétt. Hér hefur geisað Svartidauði og hér hafa geisað Skaftáreldar. En ég held nú satt að segja, þó að þetta sé allt saman satt og rétt, að það hafi litla þýðingu að rifja það upp í sambandi við umr. um þetta mál. Ég a.m.k. trúi því ekki, að ef harðindi geisa hér eða pestir, muni álbræðslan verða okkur að neinu liði, og við munum verða jafnvarnarlausir fyrir þessum vágestum eftir sem áður. En þó að maður taki þessi ummæli forsrh. ekki fullkomlega alvarlega á þennan hátt, er auðséð, að þarna í þessu öllu saman gægist fram sama vantrúin á landið og hvað eftir annað hefur komið fram í ummælum hans og annarra stjórnarsinna og sem fela það í sér í raun og veru, að við getum ekki treyst þeim atvinnuvegum, sem þjóðin byggir nú á, og þess vegna verðum við að flytja eitthvað annað. En satt að segja held ég það, þó að ég vilji ekki neitt lítið úr álbræðslunni gera, að ef veruleg harðindi geisuðu hér á landi, ég tala nú ekki um, ef hér yrðu nú Móðuharðindi eða annað þess háttar, mundi þetta álbræðslumál ekki reynast okkur mikill styrkur.

En það var meira en þetta og jafnvel athyglisverðara, sem kom fram í ræðu forsrh. og sem hafa kannske átt að vera aðalrökin fyrir því, að hann telur rétt að ganga að þessum samningi, þó að óaðgengilegur sé. Forsrh. vitnaði mikið til þess ástands, sem var hér á kreppuárunum, og lýsti því með mörgum orðum og upplestrum á því, hve hér hefðu verið margir atvinnuleysingjar o.s.frv. Mér finnst það einkenna nokkuð mikið svo ágæta menn í þessari virðulegu d., annars vegar forsrh. og hins vegar hv. 3. þm. Reykv., að þeir hefja sina stjórnmálabaráttu á krepputímum og eru þess vegna, að því er mér virðist, alltaf haldnir eins konar kreppuótta og vilja finna einhver sérstök ráð við þessu ástandi, sem þeir bjuggu við, þegar þeir voru ungir. Það vita allir, hvert er ráð hv. 3. þm. Reykv. Hann telur, að við eigum að leysa núverandi skipulag af hólmi með kommúnismanum. Hæstv. forsrh. sér annað til bjargar í þessum efnum, til þess að vinna á móti kreppunni. Það er alveg ljóst, hver víðbrögð hæstv. forsrh. hefðu orðið á kreppuárunum, ef hann hefði þá verið við stjórn. Ég hygg, að hann hefði þá kosið sama kostinn og Nýfundnalandsmenn kusu. Í staðinn fyrir það að reyna að þoka af sér kreppunni eins og við gerðum, fundu Nýfundnalandsmenn það ráð að óska eftir erlendum yfirráðum eða a.m.k. erlendri íhlutun, og það er þetta ráð, sem hæstv. forsrh. virðist alltaf sjá í sambandi við sinn kreppuótta, að við eigum að leita erlendrar aðstoðar og erlendrar hjálpar til þess að vernda okkur fyrir hörmungum af völdum náttúrunnar og fyrir þeirri kreppu, sem hann óttast, að kunni alltaf að vera á næstu grösum. Það sé ekki um annað úrræði að ræða heldur en það að leita styrks hjá útlendingum, því að við séum ekki færir um það sjálfir að leysa þessi mál.

Eins og ég minntist á hér áðan, var það ein þjóð, sem valdi þennan kost einmitt á kreppuárunum 1930–1934. Nýfundnalandsmenn, sem höfðu að ýmsu leyti svipaða aðstöðu og við og urðu fyrir álíka áföllum og við af völdum kreppunnar. Fiskurinn féll hjá þeim stórkostlega í verði, og þeir gátu ekki selt hann og bjuggu þess vegna við stórkostlega erfiðleika. Þeir reyndu ekki að halda í sitt sjálfstæði, eins og við þó gerðum, heldur leituðu á náðir Breta. Nýfundnaland var þá búið að vera nokkum veginn sjálfstætt land í nærri 100 ár, þegar það gafst upp með þessum hætti, og það endaði með því hjá þeim, að þeir bjuggu við eins konar brezka stjórn um 15 ára skeið, og síðan var það, eftir að þjóðaratkvgr. hafði fárið tvisvar sinnum fram í Nýfundnalandi, að það var ákveðið, að þeir skyldu sameinast Kanada. En ég held, að það sé alveg óhætt að fullyrða það, að ef hlutur okkar og Nýfundnalandsmanna er borinn saman í dag, sé hlutur okkar að öllu leyti miklu betri. Ég hygg, að það sé mjög auðvelt að sanna það með tölum, að framfarir hafi orðið miklu meiri á þessu tímabili hér á landi en á Nýfundnalandi, og ég held, að við njótum nú miklu meiri virðingar meðal þjóðanna en Nýfundnalandsmenn, þó að ég vilji ekki litið úr þeim gera. En ég held, að þetta sýni það, að við völdum hinn rétta kost, að reyna á eigin spýtur að standa á eigin fótum og leita ekki aðstoðar annarra á kreppuárunum, en ekki að fara alltaf að bregða við og leita erlendrar aðstoðar, eins og virðist mjög vaka fyrir hæstv. forsrh. og vera sú eina leið, sem hann sér við kreppuvandanum. Sannast bezt að segja hygg ég, að það verði nú líka niðurstaðan, ef hér skylli á svipuð kreppa og heimskreppan mikla á árunum 1930–1935, að þá mundi álbræðsla koma okkur að takmörkuðum notum, því að ég held, að það hafi einmitt verið stóriðjan, sem varð harðast úti á kreppuárunum og sem mest dróst saman, og sú gæti orðið raunin enn.

Annars vil ég segja það í sambandi við þennan kreppuugg, sem kom svo mjög fram hjá hæstv. forsrh., að ég er ekki svo mjög haldinn af honum. Ég er þeirrar skoðunar, að heimurinn hafi breytzt mjög verulega á árunum síðan 1930–1934. Hann hefur breytzt verulega til bóta t.d. í hinum kommúnistíska heimi að hafa staðizt alveldi hans sem mest þar, en ég álit þó breytingar til hins betra hafa orðið enn þá meiri í hinum kapítalíska heimi. Ég álit, að það fjármálaástand sé að festa rætur í hinum vestræna heimi, að það þurfi ekki að óttast eins mikið kreppurnar og á þessum árum. Það fjármálaskipulag er að festast nokkum veginn í þessum löndum, að það þarf ekki svo mjög að óttast, að kreppur skelli á með svipuðum hætti og í kringum 1930. Það er komin sú stjórn á fjármál þessara þjóða, að slík hætta er að miklu leyti úr sögunni. Þessar þjóðir hafa lært þau undirstöðuatriði, sem þarf til þess að koma í veg fyrir kreppur og sem er fólgið í því að tryggja það nokkurn veginn í stuttu máli sagt að hafa hæfilega og vaxandi eftirspurn, og verkalýðssamtökin og bændasamtökin hjálpa mjög til þess með því að hafa þá stjórn á fjármálunum, að þetta sé nokkurn veginn tryggt, þá er miklu mínni hætta á því en áður, að til atvinnuleysis og kreppuástands komi og þess vegna er það einkenni hins vestræna heims í dag. Einkenni hans í dag er ekki atvinnuleysi eins og á þessum árum, sem hæstv. forsrh. vitnar til, heldur það, að það er skortur á vinnuafli. Í langsamlega flestum löndum hins vestræna heims i dag er skortur á vinnuafli. Þannig er það í Vestur-Þýzkalandi. Þannig er það á flestum Norðurlöndum. Það er að verða í Bandaríkjunum. Það er að verða í Bretlandi og víðar. Og það bendir miklu fleira til þess, að þetta ástand haldi áfram, fremur skorti vinnuafi en það komi til atvinnuleysis, sem betur fer. Þess vegna held ég, að það sé miklu minni ástæða til þess fyrir okkur nú að vera haldnir þeim ótta, að ástandið frá 1930–1940 endurtaki sig, en það var fyrst og fremst fólgið í því, að við misstum markað erlendis og verðlag féll af völdum ástands í öðrum löndum. Ef sú óhamingja ætti hins vegar að gerast, að til slíks kæmi aftur, sem ég hef ekki trú á, er það alveg vist, að álbræðslan er nokkuð takmörkuð vörn, vegna þess að hættan er sú, að það yrði einmitt stóriðjan, sem yrði harðast úti undir þeim kringumstæðum, og það væri því hún, sem fyrst og fremst mundi dragast saman.

Varðandi þann ótta í sambandi við sjávarútveginn, sem hefur gægzt oft fram hjá hæstv. forsrh. og öðrum, sem tala á svipaða leið, sé ég ekki ástæðu til að rifja neitt upp hér, því að það hefur verið svo rækilega gert í þessum umr. En það er nokkurn veginn víst, að allir þeir spádómar, sem t.d. fræðimenn núv. ríkisstj. höfðu uppi í sambandi við sjávarútveginn fyrir 5–6 árum, hafa sem betur fer ekki rætzt. Aflabrögðin hafa orðið miklu meiri heldur en þeir spáðu, og verðlagið hefur hækkað einnig, og ég held, að a.m.k. hvað verðlag snertir, sé engin ástæða til sérstakrar svartsýni. Hitt skal hins vegar viðurkennt, að íslenzkur sjávarútvegur varð fyrir miklu áfalli með brezka landhelgissamningnum frá 1961. Það getur orðið sjávarútveginum þungur baggi, ef sá samningur verður þess valdandi, að við getum ekki helgað okkur allt landgrunnið, eins og við hefðum ella getað gert. En við verðum að vænta þess, að með nægilegri festu og einbeitni takist okkur að leysa þá fjötra af okkur eins og svo marga aðra.

En ég kem þá að því í rökstuðningi hæstv. forsrh. fyrir þessum samningi, sem mér féll einna verst, sem mér féll enn verr heldur en vantrú hans á landið og ótti hans við kreppuna. Hæstv. forsrh. minntist á það, að á 13. öld hefðu verið hér um 80 þús. íbúar. Síðan hefði þjóðinni fækkað og hún hefði ekki náð sömu tölu aftur fyrr en um seinustu aldamót. Og hann varpaði fram þeirri spurningu, hvað mundi hafa valdið þessu, að þjóðin fór ekki að rétta við aftur fyrr en komið var fram á síðara hluta seinustu aldar. Hann vildi skýra þetta með því, að það hefði myndazt þéttbýli í landinu, og það má vel vera, að það hafi átt einhvern þátt í þessu. Eg skal ekki gera lítið úr því, því að þéttbýli og borgir eru nauðsynlegar. En það var annað, sem átti miklu meiri þátt í þessu og sem var aðalatriðið í þessu. Og það var það, að á þessum tíma, siðari hluta 19. aldar, fór þjóðin smátt og smátt að ná völdunum í sínar hendur undan erlendum yfirráðum. Þjóðin fékk meira frelsi til athafna og dáða, og það varð þess valdandi, að henni ekki aðeins fjölgaði, heldur sótti hún fram á allan hátt. Mér eiginlega hálfpartinn sárnar það, að forsrh. landsins skuli ekki gera sér grein fyrir þessu, vegna þess að það er einmitt frelsið, sem er sterkasta aflið hjá hverri þjóð, og þegar hún fær að njóta þess í vaxandi mæli, er hún fær um að leysa sín viðfangsefni án þess að hún þurfi á erlendri aðstoð að halda. Það höfum við sannað svo greinilega á seinustu 100 árunum, að um það ætti enginn að villast. En það yfirsást forsrh. alveg að minnast á þetta, og það liggur í þessu, vantrú á eigin manndóm þjóðarinnar, vantrú á frelsi þjóðarinnar til að leysa stór mál og viðfangsefni og þess vegna þurfi sífellt á einhverri aðstoð erlendri að halda til þess að leysa okkar vanda og hjálpa okkur fram á leið. En menn bara gleyma sögunni, sem er í stuttu máli sú, að í hvert skipti, sem við höfum lagt á okkur einhver erlend bönd, hefur dregið úr framtaki og dugnaði okkar sjálfra, en í hvert skipti, sem við höfum leyst af okkur erlend bönd, er eins og það hafi farið fjörkippur um þjóðina, og það hafa komið nýjar framkvæmdir og ný framsókn í kjölfarið. Mér finnst að það sé illt verk, þegar um slík mál er rætt eins og þessi, að þessu sé gleymt, og þó að ég geti undir vissum kringumstæðum hugsað til þess, að við höfum samvinnu við erlenda aðila um einkafjármagn um viss verkefni hér heima fyrir, megum við aldrei lita svo stórt á það og mikla það svo í augum okkar, að við teljum, að það sé það, sem mestu skipti, en gleyma hinu, að það er einmitt frelsi okkar sjálfra, frelsi einstaklinganna til sem mestra athafna, sem við eigum að byggja á og sem gefst okkur langsamlega bezt að byggja á. Mér finnst það satt að segja einkennilegt, að flokkur, sem telur sig sérstaklega bera íslenzka atvinnurekendur fyrir brjósti og vera þeirra flokkur, skuli vera haldinn einmitt þessu trúleysi á atvinnurekendurna, sem hér reynir kannske einna mest á, að þeir séu ekki þeim vanda vaxnir að halda hér uppi blómlegu athafna- og framfaralífi og þess vegna þurfum við alltaf á einhverri erlendri aðstoð að halda í þeim efnum.

Það væri að sjálfsögðu ástæða til þess að ræða þessa samninga mjög ítarlega. En þar sem það hefur verið gert, nokkuð af mér og af þeim, sem á undan mér hafa talað, mjög rækilega, sé ég ekki ástæðu til þess að fara að sinni nánar út í einstök atriði þeirra. En það, sem mér finnst rétt að leggja áherzlu á að lokum, er einmitt þetta, að það stendur alveg óhaggað, — því hefur ekki verið mótmælt með neinum rökum, — að þessi samningur er óaðgengilegri en nokkur annar hliðstæður samningur, sem gerður hefur veríð um mál eins og þessi. Það hefur ekki verið beni á neinn annan samning, þar sem rafmagnsverð er raunverulega eins óhagstætt. Það hefur ekki verið bent á neinn annan samning, þar sem fyrirtæki, sem á að teljast innlent, getur skotið öllum sinum málum undir erlenda dómstóla. Það hefur ekki verið bent á dæmi þess, að þannig hafi verið samið, að fyrirtæki geti raunverulega sjálft ráðið því, hvaða skatta það hefur með því að þeir eru byggðir á þess eigin kostnaðaráætlun, og þannig mætti lengi telja.

Ég tel, að það sé ekki aðeins alvarlegt, að það skuli vera gerður svona óhagstæður samningur við þetta svissneska álfyrirtæki, það, sem ég óttast ekki sízt, er það, að í kjölfar þessa samnings, þegar hann einu sinni hefur verið gerður, fara fleiri slíkir og verri samningar. Og á það legg ég alveg sérstaka áherzlu, að ég óttast þetta vegna þess hugsunarháttar, sem mér fannst koma fram í ræðu forsrh. og fólst í trúleysinu á landið, fólst í ótta við kreppu, fólst í trúleysi á þjóðina, fólst í vanmati á frelsi þjóðarinnar, fólst í vanmati á framtaki íslenzkra atvinnurekenda. Það er þess vegna, sem ég tel þennan samning vera sérstaklega hættulegan, ekki aðeins vegna þess að hann sé gerður nú við þetta fyrirtæki; heldur það, að hann skapi hættulegt fordæmi, ef við síðar viljum semja við erlenda aðila um eitthvert slíkt viðfangsefni. Þá verður til hans vitnað, og þá verður þess krafizt, að við göngum undir sama jarðarmen eða jafnvel enn verra en það, sem í þessum samningi felst.

Þessi samningur, sem hér er gerður, er sá fyrsti sinnar tegundar, sem íslenzka þjóðin hefur gert, og þess vegna var höfuðnauðsyn að vanda hann sem bezt og ekki að gera hann nema það næðust aðgengilegir kostir. Að því ráði hefur ekki verið horfið, og þess vegna hefur hér verið skapað fordæmi, sem getur átt eftir að reynast okkur hættulegt síðar. Það má t.d. vitna í það, að á norska stórþinginu á s.l. vori voru lagðir fram nýir orkusamningar, sem höfðu veríð gerðir við norskt og amerískt fyrirtæki, norsk- ameríska álbræðslu. Fjórir þingflokkar í norska stórþinginu töldu orkusamninginn óhagstæðan, þó að það væri gert ráð fyrir því, að stofnverðið væri 28% hærra en samið er um hér og þó að gert væri ráð fyrir nokkrum vísitöluuppbótum. Fulltrúar fjögurra stjórnmálaflokka eða flokka, sem nú fara með stjórn í Noregi, fluttu till. um það, að við frumverðið bættist ekki aðeins takmörkuð vísitöluuppbót, eins og samningurinn gerði ráð fyrir, heldur full vísitöluuppbót. Eftir að þeir höfðu hreyft þessari till. í Stórþinginu, kemur bréf frá þessari norsk-amerísku álbræðslu, þar sem sagt er, að ef þeir fá ekki nákvæmlega sama raforkuverðið og Husnesverksmiðjan fékk, muni þeir hætta öllum framkvæmdum í Noregi og allar áætlanir, sem um það höfðu verið gerðar, að þeir stækkuðu sín fyrirtæki þar, væru úr sögunni. Og þá var það, sem það kom upp hjá ýmsum þm., að vegna þess að hér væri þó um hálfnorskt fyrirtæki að ræða, væri eðlilegt, að það nyti ekki verri kjara en svissneski álhringurinn eða fyrirtæki svissneska álhringsins, sem væri algerlega útlent, og vegna þess að hér var um dreifbýlisfyrirtæki að ræða eða verksmiðju, sem er byggð í strjálbýlí í Noregi, féllst meiri hl. þingsins á það, að samningurinn yrði óbreyttur. En það kom mjög greinilega fram í þessum umr., sem fóru fram í júnímánuði s.l., að Norðmenn telja það raforkuverð, sem samið var um við Husnesverksmiðjuna, óhagstætt og það sé útilokað að semja öðru vísi í framtíðinni en að fá nokkuð hærra verð en þar er gert ráð fyrir, því að ef þeir fái ekki hærra verð en þar, væri það til þess, að þeir væru að borga með raforkunni. Þess vegna hygg ég það, að það muni koma á daginn, að þeir flokkar, sem nú fara með stjórn í Noregi, muni halda nokkuð öðru vísi á þessum málum en fyrrv. stjórn gerði. Og það hefur alveg sérstaklega komið fram hjá þessum flokkum, og ekki sízt hjá norska íhaldsflokknum, að það kæmi ekki til neinna mála að láta nein erlend fyrirtæki njóta meiri réttinda og betri aðstöðu en norsk fyrirtæki hefðu. Það er meginkrafa atvinnurekenda þar í landi.

Það er nú eitthvað annað uppi á teningnum en að þannig sé litið á erl. atvinnurekendurna hér eða þeir látí til sín heyra á þann hátt. Þó skal ég að vísu undanþiggja fiskiðnaðarfyrirtæki, en ef við berum saman fiskiðnaðinn, sem er nú eina stóriðjan á Íslandi, og álbræðsluna væntanlegu, eru þau býsna ólík kjörin, sem þessir aðilar eiga að búa við. Álbræðslan á að borga eitthvað á milli 3–4% útflutningsgjald af sinni framleiðslu, sem þeir kalla framleiðslugjöld, og sleppur svo við alla skatta. En hvernig er búið að fiskiðjunni í þessu sambandi? Fiskiðnaðarfyrirtækin borga 4–6% útflutningsgjald eða hærra en álbræðslan á að borga, og þar að auki borga þau alla skatta og alla tolla, þannig að þau koma til með að búa við svo margfalt verri aðstöðu í skattamálum en álbræðslan, auk þess sem þau verða svo að greiða miklu hærra rafmagnsverð en álbræðslan. — En það kemur fram í þessu að mismuna á þannig erlendum og innlendum fyrirtækjum, mismuna þannig fiskiðnaðinum og álbræðslunni. Það kemur fram í þessu, að þessir aðilar, sem að þessum samningum standa, virðast hafa miklu meiri trú á hinum erlenda atvinnurekstri en innlendum og þess vegna sé ástæða til þess að hlynna miklu meira að honum en íslenzkum atvinnurekendum og þess vegna tekur það sig þannig út, að álbræðslan nýtur miklu meiri skattahlunninda, miklu meiri tollahlunninda og á allan hátt betri aðstöðu heldur en fiskiðnaður í landinu, sem er þó einmitt sú atvinnugrein, sem við eigum fyrst og fremst að kappkosta að efla, eins og nú standa sakir. En í staðinn fyrir það er munurinn sem sagt þessi, eins og ég minntist á, að fiskiðnaðurinn verður að borga hærri útflutningsgjöld og svo alla skatta og tolla að auki, sem álbræðslan sleppur alveg við.

Ég hef ekki trú á því, að íslenzkir atvinnurekendur sætti sig við þetta. Ég hygg, að það hljóti að koma í framhaldi af þessum samningi öflugar kröfur um það, að t.d. fiskiðnaðurinn fái miklu betri aðstöðu en hann býr við í dag, að fiskiðnaðurinn njóti svipaðra skatta og tollaaðstöðu og t.d. álbræðslan hefur og ekki lakari. Ég verð a.m.k. að segja það fyrir mína parta, að ég mun ekki vilja standa á móti því, að fiskiðnaðurinn nyti sömu aðstöðu og álbræðslan, eftir að þessi samningur hefur verið samþykktur. Þvert á móti teldi ég það höfuðnauðsyn, að það yrði strax hafin barátta fyrir því að skipa fiskiðjunni á sama bekk og hún búi ekki á neinn hátt við lakari aðstöðu og verri heldur en álbræðslan, því að þó að einstaka menn kunni að álita, að það sé lífsnauðsyn fyrir okkur að efla álbræðslu í landinu, er það víst, að það er mörgum sinnum nauðsynlegra að efla fiskiðnaðinn. Í staðinn er nú búið að honum þannig, að hann á í framtíðinni, eða eins og nú horfir, að búa við margfalt verri skatta- og tollakjör en álbræðslan. Hann á að búa við lánsfjárskort, eins og átt hefur sér stað að undanförnu, og hann á að búa við vaxandi samkeppni um vinnuaflið við hið erlenda álfyrirtæki. Mig undrar það ekki, þó að í hópi þeirra, sem að sjávarútvegi standa og við fiskiðnað vinna, sé mikil óánægja yfir því misræmi, sem hér er verið að skapa og yfir því, hvernig núverandi valdhafar vilja láta erlenda aðila verða miklu rétthærri og hafa betri aðstöðu heldur en fiskiðnaðinn í landinu. Það hlýtur óhjákvæmilega að koma í kjölfar þessa, ef þannig á að fara að búa að erlendum atvinnurekstri í landinu, að sjómenn, útgerðarmenn og þeir, sem við fiskvinnsluna vinna, gera kröfu til þess, að þessi atvinnugrein búi við allt önnur og betri kjör en á sér stað nú og a.m.k. ekki á neinn hátt lakari heldur en hinn erlendi atvinnurekandi.

Eða þá það verði með endurskoðun á þeim samningi, sem hér liggur fyrir, knúið fram, að álbræðslan verði að búa við sömu kjör og þessir aðilar, a.m.k. ekki betri. Íslenzkir atvinnurekendur eiga að hafa alveg sama metnað í þessum efnum og norskir atvinnurekendur, en hann er fólginn í því, að þeir búi ekki við lakari aðstöðu en erlend fyrirtæki í landinu, heldur a.m.k. jafnrétti. Það er skylda þeirra flokka, sem að þessum samningi standa, að sjá til þess, ef hann verður samþ., að íslenzkir atvinnurekendur komi ekki til með að búa við lakari aðstöðu en álbræðslan í Straumsvík. Og ef það fæst ekki fram, að bætt verði þannig aðstaða íslenzkra atvinnuvega, að hún verði sambærileg, verður með nýjum samningum um þessi mál að knýja það fram, að álbræðslan, ef hún verður reist, sitji við sama bekk.