30.04.1966
Efri deild: 77. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1949 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)
177. mál, álbræðsla við Straumsvík
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Þetta mál er nú komið til síðustu umr. í þessari hv. d. og væntanlega til lokaafgreiðslu hér á hv. Alþ. Ég hef ekki til þessa tekið til máls í þessu máli, en ætla að leyfa mér nú, áður en það hlýtur lokaafgreiðslu, að segja um það nokkur orð. Ég mun aðallega ræða málið almennt, en minna um einstök atriði samninganna, enda hafa þeim atriðum verið gerð mjög rækileg skil af öðrum ræðumönnum, bæði við 1. og 2. umr. í þessari hv. d. og enn fremur við umr. í hv. Nd.
Með þessu máli er mörkuð ný stefna. Og þetta er sérstætt og alvarlegt mál. Það er auðsætt, hvort sem litið er til fortíðar, nútíðar eða framtíðar. Ef við lítum til fortíðarinnar og athugum sögu þjóðarinnar, er auðsætt, að sú stefna, sem tekin er upp með þessu máli, brýtur í bág við það, sem barizt hefur verið fyrir af beztu mönnum þessarar þjóðar á liðnum tíma. Sjálfstæðisbarátta þjóðarinnar var um það fyrst og fremst, að Íslendingar hefðu sjálfir full og óskoruð yfirráð sinna eigin mála, ekki aðeins fullt stjórnfrelsi, heldur og jafnframt að verzlunin yrði færð í hendur íslenzkra manna, að atvinnureksturinn yrði í höndum Íslendinga, að jarðeignir, sem t.d. konungur átti í allríkum mæli á vissu tímabili, kæmust í eigu Íslendinga, og enn fremur hefur verið stefnt að hinu sama í menntamálum þjóðarinnar, að skólarnir yrðu innlendir og algerlega á vegum innlendra stjórnvalda. þessi saga, sem þannig er mörkuð, er óslitin síðustu aldirnar. Og á grundvelli þeirrar baráttu, sem þessi saga þjóðarinnar lýsir, auðnaðist okkur að stofna lýðveldið árið 1944.
Íslendingar hafa einnig nokkra reynslu af því að gera samninga við aðrar þjóðir, og það mun yfirleitt hata fengizt sú reynsla af því, að það hefur þótt fagnaðarefni hverju sinni, sem samningstíminn hefur verið útrunninn, og Íslendingar hafa getað losað sig við þau bönd, sem í þeim samningum fólust. Í því efni má minna á t.d. landhelgissamninginn, sem gerður var af Dönum fyrir Íslendinga hönd 1901, að ég ætla, til 50 ára. Það var vissulega fagnaðarefni fyrir íslenzku þjóðina, þegar sá tími kom, að hægt var að losna við þann samning og þau bönd, sem þjóðin var bundin með honum. Og það má enn fremur minna á samninga af öðru tagi, þá samninga, sem í sjálfu sér voru á sínum tíma fagnaðarefni og lyftu þjóðinni eða komu þjóðinni fram á veg alldrjúgan áfanga í baráttu hennar, svo sem sambandslagasamninginn 1918. En sá samningstími, sem var 25 ár, var að ég ætla tæplega hálfnaður, þegar fulltrúar allra flokka hér á hv. Alþ. lýstu því yfir, að að því yrði keppt af þeirra hálfu og þá af stjórnmálamönnum þjóðarinnar í heild að losna við þennan samning að fullu og öllu jafnskjótt og samningstíminn rynni út. Og örlögin voru okkur Íslendingum svo hagstæð, svo mild, að okkur auðnaðist þetta á tímum heimsstyrjaldarinnar, þó að aðrar þjóðir yrðu þá að búa við mjög örðuga aðstöðu og erfið kjör.
Þeir, sem mæla fyrir þessu máli, geta ekki, sem von er til, fundið fordæmi fyrir því úr þeirri sögu, sem ég er hér að drepa á. En þeir hafa þó leitazt við í málflutningi sínum að leita einstakra fordæma úr sögu frá liðnum tíma, og í því sambandi hefur símamálið nokkuð borið á góma. Hv. 5. þm. Reykn. hefur gert þetta atriði nokkuð að umtalsefni í ræðum um þetta mál hér í þessari hv. d. og m.a. vitnað til heimilda, sem bregða nokkuð öðru ljósi á það mál, heldur en þeir hafa viljað vera láta, sem eru formælendur þessa frv. Ég skal ekki lengja umr. með því að endurtaka neitt af því, sem hv. 5. þm. Reykn. hefur sagt, en ég tek undir margt af því, sem fram kom hjá honum um þetta efni. En ég vil aðeins benda á, að símamálið er alls ekki sambærilegt við það, sem nú er verið að afgreiða hér. Landssími Íslands er í eigu Íslendinga sjálfra og undir þeirra stjórn. En hér er stefnt að því að koma á fót stóru, öflugu fyrirtæki í eigu erlendra manna. Og það á ekki að vera neitt stundarfyrirbrigði, þeirra atvinnurekstur, þeirra aðstaða og áhrif hér á landi, heldur á að gera þennan samning til 45 ára og veita þó, að mér skilst, nokkurn umþóttunartíma eftir það tímabil, svo að það er ekki fjarri lagi, að þeir eigi samkv. þessum samningi að hafa hér meiri eða minni afskipti um hálfrar aldar skeið.
Þá hefur verið minnzt á fossamálið í þessum umr. Það er rétt, að það var á tímabili deilt mjög um það, á hverra höndum skyldu vera yfirráð yfir fossaaflinu, og ég held, að það sé mála sannast, að við megum allir fagna því, að sú niðurstaða náðist í þeim efnum, sem raun varð á. Og ég hygg, að aðstaða íslenzku þjóðarinnar væri talsvert öðruvísi nú um þessar mundir, hefði niðurstaðan orðið á annan veg, eins og margir málsmetandi menn kepptu að, að yrði.
Það hefur einnig verið bent á það í umr. um þetta mál, að einstakir mikilsmetnir og mikilhæfir Íslendingar hafi á sínum tíma beitt sér fyrir því, að vatnsföllin íslenzku eða sum þeirra yrðu virkjuð með erlendu fjármagni, og hefur nafn Einars Benediktssonar sérstaklega verið nefnt í því sambandi. Ég held, að það sé mála sannast, að þáttur Einars Benediktssonar í þeim málum verði einna sízt til þess fallinn að halda minningu hans á lofti með þeim glæsileik, sem verðleikar hans gera réttmætt. Það er allt annað, sem mun halda nafni Einars Benediktssonar á lofti, jafnvel meðan íslenzk tunga er töluð. Það er sá skáldskapur, sem eftir hann liggur, og stórbrotið ævistarf að mörgu leyti. Og ég verð að segja, að það eru í mínum huga, og ég ætla, að það séu í huga margra fleiri Íslendinga daprar minningar við það bundnar, þegar vatnsréttindin í Þjórsá voru komin í eigu erlendra manna. Og ég tel það einn af hinum minnisverðari dögum hér á hv. Alþ., þegar okkur, sem nú sitjum hér, tókst undir forustu Hermanns Jónassonar að koma vatnsréttindum Þjórsár aftur í eigu íslenzkra manna, í eigu íslenzka ríkisins.
Í sambandi við það, sem forsvarsmenn þessa máls segja um þetta efni, vil ég leyfa mér að fara örfáum fleiri orðum um þátt hins gagnmerka og fræga manns, Einars Benediktssonar, í þessum vatna- og virkjunarmálum Íslendinga. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að Einar bar í huga stórar hugsjónir um alhliða framfarir hér á landi og framfarir, sem ekki yrði komið áleiðis öðruvísi en með miklu fjármagni. Þetta kemur mjög víða fram, t.d. í ljóðum hans, án þess að það sé skilgreint eða útfært þar í einstökum atriðum. En þessar hugsjónir Einars voru ekki bundnar við virkjun fallvatnanna eingöngu, heldur var það aðeins einn þáttur í miklu, miklu víðtækari áætlunum. Þær snerust um ræktun landsins, eflingu fiskveiða, bættar samgöngur og virkjanir fallvatnanna. Og þetta mikilhæfa skáld dreymdi ýmsa drauma, sem ekki hafa rætzt og ekki hafa orðið raunhæfir þættir í framfarasókn þjóðarinnar. Einar ritaði t.d. um gullnámur hér á landi, sem mundu auðga mjög íslenzkt efnahagslíf, og ýmis jarðefni, svo sem jarðbiksolíu og hagnýtingu brúnkola, og hann lét sér detta í hug að flytja út ís. Ekkert af þessu hefur reynzt raunhæft, en þetta sýnir aðeins, hve hugsun hans var háfleyg og víðtæk um alhliða framfarir.
Mér er ekki kunnugt um, að Einar Benediktsson hafi nokkurs staðar útfært í einstökum atriðum þessar hugmyndir sínar skýrar og betur heldur en í ritgerðinni „Starfsfé fyrir Ísland“, sem hann birti í blaðinu Ingólfi 1914. Þar talar hann um eða gerir grein fyrir því, að Íslendingar þurfi að fá erlent fé til uppbyggingar í landinu, en það eigi að vera lánsfé fyrst og fremst, það sé endurborgað. Og aðalmergurinn málsins, segir hann orðrétt, er sá, að hér þurfa að koma fyrirætlanir — það mundum við nú kalla áætlanir — um margþættar framfarir og gera sér grein fyrir því fyrir fram, í hvaða farvegi þetta fé eigi að renna. Og hann segir:
„Af öllu því, sem nú var nefnt, er auðsætt, hve mikið verk það er, sem fyrir hendi liggur, að rannsaka, hve mikla íbúatölu Ísland gæti borið, en það verður að ganga á undan, áður en því verður svarað rétt, hve mikið starfsfé lands- og hafsvæðið íslenzka gæti ávaxtað og endurborgað eftir venjulegum, evrópskum mælikvarða. Af því, sem að framan hefur verið sagt, er það ljóst, að framleiðsluafl Íslands bæði á landi og sjó er mælikvarði þess, hve mikill fjöldi manna getur lifað hér og hve mikið auðmagn getur ávaxtazt hér. Þjóðin getur vaxið og auðmagnið getur aukizt og hvort tveggja takmarkalaust, en framleiðslumáttur landssvæðisins alls hefur sín takmörk. Af þessu leiðir, að meginhugsjón Íslendinga, efling þjóðernisins, hefur hátt og voldugt mið að stefna til, og aðeins, eins og ástæður horfa pú allar, er ákveðið hlutfall milli möguleikanna og máttarins, milli landsins og þjóðarinnar, sem á að geta ráðið því, hve mikið auðmagn má flytja inn í Ísland.“
Síðan gerir hann í þessari ritgerð grein fyrir einstökum þáttum í þessari áætlun, og fer ég ekki út í það. Hann minnir t.d. á, að það megi rækta á Suðurlandsundirlendinu ekki minna en 4000 ferkm. lands, og ef það yrði gert, mundi sá landbúnaður, sem á því ræktunarlandi væri rekinn, einungis geta ávaxtað og afborgað 200 millj. kr. á 10 árum, vitanlega miðað við verðgildi peninganna þá, 1914, en í framhaldi af þessu segir svo Einar Benediktsson orðrétt þessi eftirtektarverðu orð, sem ég vil — með leyfi hæstv. forseta — lesa.
„Næst auðninni, sem þjóðin býr nú við, er samflutningurinn voðalegasta hætta þjóðernisins, eins og þegar hefur verið tekið fram. Ég hef þess vegna ekki byggt 200 millj. kr. upphæðina á Suðurlandi einu, heldur á landsfyrirtækjum um endilangt Ísland. Peninga handa lánsfélögum í sveitunum og peninga handa íslenzkum stórkaupmönnum til að kaupa vöruupplög á þá staði, sem bera bezt bein viðskipti við útlönd, m.ö.o.: peningar, sem draga stórarðinn af íslenzku verzluninni inn í landið, eru það fyrsta, auðfengnasta og landshollasta fé fyrir þjóðernisstefnuna, sem vill grípa yfir og halda fast við landsbygging og hefja þjóðina yfir útlendan vinnukraft.“
Ég ætla, að þetta séu alveg nægilega skýrar tilvitnanir til þess að sýna fram á það, að þeir, sem minna á hugsjónir Einars Benediktssonar í sambandi við þetta mál, fá ekki mikla stoð í þeim samanburði. Þannig horfir þá málið við, ef litið er til fortíðarinnar.
En ef við lítum til nútíðarinnar, er fyrst að því að gæta, hvernig háttað er í þjóðfélaginu um þessar mundir bæði í efnahagsmálum og um vinnuafl o.fl., sem margrætt er í sambandi við þetta mál. Ég skal því fara fljótt yfir þá sögu, því að það væri endurtekning, ef ég færi að hafa mörg orð um þessa þætti málsins.
En það er kunnara en frá þurfi að segja, að sú stefna, sem viðreisnarstjórnin á sínum tíma lofaði að fylgja og skrásetti þau loforð í hvítri bók, sem öll þjóðin fékk að gjöf, um að halda verðbólgunni í skefjum og koma atvinnuvegunum á traustan og heilbrigðan fjárhagsgrundvöll, sú stefna er í raun og veru fokin út í veður og vind. Í stað þess er hér í landi verðbólga, sem ógnar í raun og veru öllum atvinnuvegum þjóðarinnar. Þeir eru misjafnlega vel undir það búnir að mæta þessu, sumar atvinnugreinar gefast fyrr upp, en aðrar seinna, en nú er þetta mál þó komið á það stig, að það er enginn atvinnuvegur lengur óhultur fyrir þessari þróun. Vinnuaflsskortur er í landinu, þannig að undirstöðuatvinnuvegir þjóðarinnar eiga mjög í vök að verjast vegna harðrar samkeppni á því sviði, og stöðugt sígur meira og meira á ógæfuhliðina um jafnvægi í byggð landsins. Það mál hefur verið gert nokkuð að umtalsefni hér í þessari hv. d. í sambandi við annað frv., og ætla ég ekkert að endurtaka af því, sem þar kom fram. Allt það, sem þá var sagt, stendur óhaggað, enda byggt á fullkomnum staðreyndum.
Mér hefur borizt í hendur nú alveg síðustu dagana eitt tölublað af blaðinu Degi, sem gefið er út á Akureyri, og þar er í stuttri klausu birt nokkur athugun, sem gerð hefur verið á þróun þessa þáttar í þjóðarbúskapnum síðasta árið. Það er byggt á niðurstöðum Hagtíðinda, sem nýlega eru komin út, um manntalstölur frá l. des. s.I. Og niðurstöður þessara athugana eru í örstuttu máli þannig, með leyfi hæstv. forseta.
„Bráðabirgðatölur Hagstofunnar um fólksfjölda á Íslandi 1. des. 1965 liggja nú fyrir. Samkv. þeim tölum var fólksfjöldinn 193.215, en á sama tíma árið áður 190.230. Fjölgun á árinu 2985 menn eða nálega 1,6%. Virðist fólksfjölgunin fara heldur minnkandi, því að um alllangt árabil eftir heimsstyrjöldina var hún um og yfir 2% á ári. Í þeim sveitarfélögum, sem nú eru almennt talin til höfuðborgarsvæðisins eða Stór-Reykjavíkur, var fólksfjöldinn samtals 1. des. s.l. 99.960 menn, eða nálega 100 þús. af þeim rúmlega 193 þús., sem landið byggja, og hefur fólkinu á þessu svæði fjölgað um 2091 mann á árinu en um 894 menn samt. á landinu öllu utan Stór-Reykjavíkur. Í Norðurl. e. var fólksfjöldinn 1. des. s.l. 21.102 menn og er fjölgunin 138 á árinu, en eðlileg fólksfjölgun á árinu, 1.6%, hefði verið 335. Þetta þýðir, að nálega 6 af hverjum 10, sem við bættust á árinu, hafa flutzt burtu úr kjördæminu. Á Akureyri var fólksfjöldinn 1. des. s.l. 9.628 og hafði fjölgað um 96 menn á árinu, en eðlileg fólksfjölgun, 1.6%, hefði verið rúmlega 150 manns. Þetta þýðir, að 3–4 af hverjum 10, sem við bættust, hafa flutt burt og þar að auki sem svarar öllum þeim, sem flutt hafa til bæjarins á árinu, en þeir munu vera allmargir.“
Þetta eru athuganir byggðar á síðustu tölum Hagtíðinda um þennan þátt þjóðmála.
Nú er stefnt að því að koma hér upp við Faxaflóa stóriðju og virkjun hér á Suðurlandsundirlendinu, fyrirtækjum, sem samtals kosta 4–5 milljarða króna. Það gefur auga leið, hvort það er til að draga úr þeirri þróun, sem ég hef hér drepið á, eða hvort þetta verður til að örva hana, enda skilst mér, að það treysti sér í raun og veru enginn til þess að halda því fram, að það, sem stefnt er að í þessu máli, sé til þess fallið að draga úr aðstreymi fólks á þetta þéttbýlasta svæði landsins eða að snúa við þeirri þróun, sem í þessum efnum hefur ríkt. En þrátt fyrir þetta virðist þingmeirihl. vera einhuga um það að knýja þetta mál fram.
Það kemur fram í nál. um þetta mál, sem lagt var fram í hv. Nd., að frá því hafði verið skýrt opinberlega þegar á árinu 1962 af formanni stóriðjunefndar, Jóhannesi Nordal, í sambandi við þær ráðagerðir, sem nú er verið að gera að veruleika með samþykkt þessa frv., að ein aðalástæðan fyrir þessum ráðagerðum væri sú, „að íslenzkur sjávarútvegur er ekki talinn geta aukið útflutningstekjur sínar nema um 5% í hæsta lagi á ári næstu ár, og slík tekjuaukning hjá aðalatvinnuvegi landsmanna nægir ekki til að tryggja með góðu móti bætt lífskjör og velmegun í landinu. Íslendingar verða því að leita annarra möguleika til að auka útflutningstekjur sínar.“ Þetta, sem ég las hér, er innan gæsalappa og tekið orðrétt eftir formanni stóriðjunefndar. Þetta var sagt og skrásett 1962.
Nú er það kunnara en frá þurfi að segja, að sá tími, sem síðan er liðinn, hefur fært Íslendingum heim sanninn um, að þessi orð eru ekki á rökum reist, og þær áætlanir, sem gerðar eru eftir þessum forsendum, eru ekki í samræmi við raunveruleikann, því að sem betur fer hefur framleiðsluaukningin í sjávarútveginum verið svo miklum mun meiri síðustu árin en 5% árlega, eins og hagfræðingurinn gerði ráð fyrir. Og nú er svo komið, góðu heilli, vil ég segja, að það eru a.m.k. ýmsir menn í stjórnarliðinu, sem hafa áttað sig á þessu og viðurkenna þetta, að þessi forsenda sé ekki traust til að byggja á.
Ég minni í því sambandi á það, að þessa síðustu daga, meðan þetta stórmál hefur verið á ferðinni hér í gegnum þingið, hefur einn af þm. Sjálfstfl., hv. 11. landsk., Matthías Bjarnason, mælt fyrir till. um eflingu sjávarútvegsins, og í því sambandi, einmitt á meðan þetta mál er hér að fara gegnum þingið, hefur hann lagt vinnu í að afla sér margháttaðra tölulegra upplýsinga um þá möguleika, sem fyrir hendi eru í sjávarútveginum með því að vinna betur úr því hráefni, sem fiskiflotinn dregur að landi. Ég fer ekki að lesa neitt upp úr þeirri ræðu, ég held, að þm. hafi yfirleitt hlustað á hana, en í þeirri ræðu koma fram margar mjög eftirtektarverðar tölur og upplýsingar um þetta mál, sem auðvitað eru þá um leið þungur dómur um þá, sem hafa á undanförnum árum haldið því fram, að gjaldeyrisverðmæti Íslendinga gætu ekki aukizt nema mjög takmarkað af afrakstri undirstöðuatvinnuveganna, sjávarútvegs og landbúnaðar. Hér er þvert á móti sýnt fram á, að í þeim efnum eru mjög miklir möguleikar fyrir hendi.
En þá segja menn: Það er öllu óhætt með að samþykkja þetta mál og ráðast í þau stórvirki, sem hér er stefnt að, vegna þess að við höfum dæmi Norðmanna við að styðjast. — Ef við lítum á það, er fyrst þess að gæta, að þó að Norðmenn séu ekki stórþjóð miðað við stórveldi heimsins, þá eru þeir miklu stærri þjóð en við Íslendingar og með miklu meiri þjóðarbúskap, þegar á heildina er litið, svo að ef við berum þetta saman og lítum á, hvað erlend fjárfesting er hátt hlutfall af heildarfjárfestingu Norðmanna og sú framíeiðsla, sem þar fer fram, hátt hlutfall af heildarframleiðslu norska þjóðarbúsins, er sýnilegt, að með þessu máli er stefnt að miklu stórfelldari afskiptum og áhrifum útlendinga í íslenzkum þjóðarbúskap hlutfallslega við stærð þjóðarinnar en Norðmenn hafa lagt í til þessa. Þess er einnig að geta, að þegar Norðmenn gerðu gangskör að því að laða til sín erlent fjármagn, sem kallað er, og fá erlend fyrirtæki til að byggja upp eða styrkja atvinnulífið í Noregi, var heimsstyrjöldin nýlega um garð gengin. Og þar er ekkert sambærilegt, hvernig aðstaðan í Noregi var eftir síðustu heimsstyrjöld eða þær ástæður, sem við áttum þá við að búa. Íslenzka þjóðarbúið safnaði gróða, en Norðmenn urðu fyrir stórkostlegum áföllum. Atvinnulíf og mannvirki voru að meira eða minna leyti í rústum, og þó að þeir á þeim tíma gripu til úrræða til að rétta við með snöggu átaki atvinnulífið hjá sér og koma af stað uppbyggingu, þá er það ekki sönnun fyrir því, að það sé réttmætt fyrir okkur Íslendinga að fara að dæmi þeirra nú í þessu efni, miðað við allar ástæður hjá okkur.
En nú höfum við með höndum fleira við að styðjast í þessu efni. Hér var einu sinni á ferð bankastjóri frá Noregsbanka, Erik Bronfoss, og hann flutti erindi hér á Íslandi um erlent fjármagn í Noregi. Þetta erindi er prentað í Fjármálatíðindum 1961. Þetta er mjög yfirgripsmikið erindi, þar sem þetta mál í heild er rætt af mikilli þekkingu þessa embættismanns. En það kemur fram alveg skýrt í þessu erindi norska bankastjórans, að ef um það sé að velja að fara lánaleiðina, sem hann kallar, annars vegar, þ.e.a.s. þá leið, sem Íslendingar hafa farið til þessa við að byggja upp atvinnulíf og fyrirtæki hér á landi, eða hins vegar að koma á fót fyrirtækjum með erlendri fjárfestingu, eins og það er oft orðað, segir bankastjórinn alveg skýrt og ákveðið, að það eigi að fara lánaleiðina, ef mögulegt er.
Það kemur einnig fram í þessu erindi, að erlent auðmagn hefur sótt eftir áhrifum og aðstöðu í Noregi, og það áður heldur en hafizt var sérstaklega handa eftir þeim reglum, sem nú gilda um þetta efni þar í landi, þá hafi erlend auðfélög seilzt eftir því að eignast hlut í norskum fyrirtækjum og koma ár sinni fyrir borð í norsku atvinnulífi. Hann segir, að það hafi brezk, bandarísk, kanadísk og þýzk stórfyrirtæki komið sér fyrir í rafefna- og rafmálmiðnaðinum í Noregi og að franskir hagsmunir hafi látið til sín taka í Norsk Hydro, „stærsta fyrirtæki okkar, sem stofnað var raunar að norsku frumkvæði.“ Og hann skýrir frá því, að ýmis annar iðnaður í Noregi, svo sem smjörlíkisiðnaður, hafi verið rekinn á tímabili með þátttöku erlendra auðfélaga. Og þessi maður dregur ekki dul á það, að þessi afskipti erlendra auðfélaga hafi valdið ýmiss konar vandkvæðum í Noregi og það hafi verið reynt með lagaákvæðum að takmarka áhrif þeirra og afskipti í norsku atvinnulífi. Hann segir orðrétt:
„Tilgangur“ — þ.e.a.s. auðfélaganna — „var oftast nær sá að hagnýta sér norsk hráefni og vatnsafl. Einstöku voru stofnsett til að njóta sömu réttinda og innlendir aðilar og komast hjá tollmúrum, svo og til þess að geta sýnt orðið „norskt“ í nafni fyrirtækisins.“ Ég held, að þetta allt megi verða okkur nokkurt umhugsunarefni og eigi að hafa þau áhrif á afstöðu manna í þessu máli, að ástæða sé til, m.a. með tilliti til þessa, að fara gætilega á þeirri braut, sem hér er lagt út á.
Þá kem ég að síðasta þættinum, sem ég ætlaði að fara hér um nokkrum orðum, það er viðhorfið til framtíðarinnar í sambandi við þetta mál. Ég hef áður drepið á það, sem allir hv. þm. gera sér nú ljóst, að verðbólgan er sívaxandi hér í landi og hefur hin margvíslegustu áhrif í íslenzkum þjóðarbúskap. Ein af afleiðingum verðbólgunnar er sú, að áætlanir, sem gerðar eru til skemmri eða lengri tíma, raskast óðar en varir. Verðbólgan veldur því, að engar áætlanir standast, nema örstutta stund. Þessi dæmi höfum við fyrir okkur hér á hv. Alþ., t.d. í sambandi við vegaáætlun og margt fleira, sem við erum að fjalla um. Nú eru í þessum samningi gerðar áætlanir langt fram í tímann, og það er rætt um þær niðurstöður, sem í samningnum greinir, eins og verðlagsgrundvöllurinn hér á landi sé alveg staðfastur. Nú er það auðvitað, að verðbólgan, ef hún heldur áfram að vaxa — og allar líkur benda til þess, að einmitt þetta mál verði til þess að örva þá þróun, en ekki að draga úr verðbólguþróuninni veldur því, að þær áætlanir, sem gerðar eru einnig í þessu efni, eins og um önnur atriði, standast ekki til langframa. Þeim þarf að breyta óðar en varir. Það er fullkomlega rétt fyrir þá, sem vilja skoða þetta mál rökrétt og ætla sér, að því er virðist, að knýja þetta gegnum þingið, að skoða rækilega þessa hlið málsins.
Eins og ég gat um, þegar ég hóf mál mitt, er með þessu máli mörkuð ný stefna, lagt út á nýja braut í þjóðlífi Íslendinga með því að samþykkja þetta mál, — lagt út á þá braut að leiða erlendan auðhring til sætis í íslenzku atvinnulífi og skipa honum þar allofarlega á bekk. Íslendingar hafa ekki af eigin viðskiptum hér í landi a.m.k. kynnzt starfsháttum og aðferðum erlendra auðhringa, sem betur fer vil ég segja, og það er af mörgum talið, að það sé erfitt að fá yfirsýn yfir starfshætti auðhringanna, eins og þeir haga sínum störfum yfirleitt í heiminum. Og ég hef ekki þá þekkingu til að bera á þessu sviði, að ég skuli út af fyrir sig fara mörgum orðum um það eða fella um það stóra dóma. En ég ætla að leiða til vitnis mann, sem ég hygg, að hæstv. ríkisstj. muni telja málsmetandi, ekki sízt á þessu sviði, og það er sjálfur efnahagsmálaráðunautur ríkisstj., Jónas Haralz. Hann hefur skrifað ritgerð, það var nú raunar áður en hann gekk beint í þjónustu íslenzka ríkisins sem efnahagsmálaráðunautur, en hann mælir eigi að síður af sinni miklu þekkingu á þessu sviði, og ég álít orð hans engu síður gild fyrir það, hvort þau eru sögð nokkrum árum fyrr eða seinna, því að það er fyrst og fremst fræðimaður á þessu sviði, sem talar. Hann hefur skrifað ritgerð um starfshætti auðhringa. Þar kemur ýmislegt fram. Ég skal nú ekki þreyta hv. dm. með löngum upplestri úr þeirri ritgerð, en ég ætla að leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa örfáar línur úr upphafi ritgerðarinnar. (Gripið fram í.) Hún er birt í Tímariti Máls og menningar, desemberhefti 1947, og þessi maður hefur raunar vikið að sama efni víðar eða oftar, en það ætla ég nú ekki að gera að umtalsetni í þessari ræðu. Hann byrjar grein sína á þessum orðum, með leyfi hæstv. forseta:
„Enda þótt athygli manna á auðhringunum og hinni geysimiklu og afdrifaríku þýðingu þeirra fyrir hag og stjórnmálaþróun tuttugustu aldarinnar hafi verið vakin fyrir löngu, hefur þó furðulítið áreiðanlegt verið um þá og starfsemi þeirra vitað. Þeir hafa verið eins og voldugar skuggaverur, sem grillt hefur í, og hafa með ótal lítt sýnilegum þráðum ráðið kjörum og lífi milljóna manna, skipað örlögum heilla þjóða. Einstaka sinnum hefur tekizt að draga starfsemi sumra þeirra fram í dagsbirtuna, sýna fram á féflettingu þeirra á almenningi, völd þeirra á stjórnmálasviðinu.“
Síðan eru í þessari ritgerð rakin dæmi, sem ég skal nú ekki fara að rekja, sem eru til rökstuðnings þessum almennu orðum fræðimannsins, og í lokaorðum segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Hátterni og siðalögmál þessara auðhringa er í eðli sínu að engu frábrugðið þeim aðferðum lénsherra miðaldanna að setja slár yfir vegi og neyða alla vegfarendur að greiða sér vegskatt eða brúartoll. Og ekki er heldur hægt að gera nokkurn greinarmun á þeim og hinum alþekktu amerísku bófum, sem láta friðsama borgara greiða sér skatt fyrir að fá að ganga óáreittir á götunum.“
Ég tek fram, að þetta eru ekki mín orð. Þetta er orðrétt tilvitnun í ritgerð hagfræðiráðunautar ríkisstj. (Gripið fram í: Nei, það var ekki hagfræðiráðunautur ríkisstj., sem skrifaði þessa ritgerð.) Jú, efnahagsmálaráðunautur. (ÓB: Það eru 19 ár síðan.) Já, ég tók það fram í öndverðu, en hann skrifar hér sem fræðimaður, og orð hans að þessu leyti eiga að hafa sama gildi, hvaða starfi sem maðurinn gegndi á þeim tíma.
Nú er með þessu máli stefnt að því að leiða erlendan auðhring, eins og ég sagði áðan, til sætis í íslenzku atvinnulífi, og það er naumast hægt að gera sér rökrétta grein fyrir áhrifum þess á aðra lund en þá að búast við, að áhrifin af þessu segi til sín smátt og smátt og allvíða í íslenzku þjóðlífi, þegar frá líður. Alþfl. segir að vísu, að hann ætli nú að sjá fyrir þessum þætti mála, því að hann setji bara skilyrði nú þegar fyrir fylgi sínu við þetta mál. Þetta birti Alþýðublaðið fyrir nokkru og er samþykkt miðstjórnar Alþfl. Það sé skilyrði fyrir stuðningi Alþfl. við málið, að álfélaginu beri að sjálfsögðu að hlíta íslenzkum lögum um skipti við stéttarfélög, en eigi ekki að ganga í samtök atvinnurekenda, iðnrekenda eða annarra sambærilegra aðila og hafa þannig áhrif á kjarabaráttu þjóðarinnar.
Nú leyfi ég mér að spyrja út af þessu: Hvernig ætlar Alþfl. að tryggja þetta? Ég fæ ekki komið auga á, að þessi skilyrði séu nokkurs staðar skrásett eða verði lögfest í samningnum, sem hér liggur fyrir. Ég ætla, að ég muni það rétt, að forstjóri Alusuisse, sem var hér á ferðinni og átti viðtöl við útvarpsmenn og blaðamenn, hafi einmitt sagt, að þessi þáttur málsins væri ekki á dagskrá.
Ef þetta er rétt skilið, sem ég ætla vera, að þessi skilyrði séu hvergi bundin inni í samningnum, sem á að öðlast lagagildi með samþykkt þessa máls, þá fæ ég ekki séð, hvernig Alþfl. hugsar sér að tryggja þetta, þegar fram í sækir. Hér er verið að gera samning, sem á að vera bindandi fyrir þjóðina í 45 ár. Nú er það vitað, að mannsævin er takmörkuð, og líkur benda til þess, að við, sem sitjum hér nú og tökum þátt í þessari málsmeðferð, við verðum allir horfnir héðan eftir 45 ár, og það er engin vissa fyrir því, að Alþfl. verði til á Íslandi eftir 45 ár, alls engin vissa fyrir því, og bara miklar líkur fyrir því, að hann eigi ekki svo langa lífdaga. Þá er mér þetta hrein ráðgáta, hvernig Alþfl. ætlar allan samningstímann að tryggja það, að þessum skilyrðum verði fullnægt, því að þó að málið sé kannske ekki á dagskrá við afgreiðslu málsins núna eins og haft er eftir hinum erlenda forstjóra, þá getur það komið á dagskrá á samningstímanum, hvenær sem er. Og þó að jafnvel það dragist eða verði ekki, að þetta álfélag gangi formlega í samtök atvinnurekenda og fari þannig beinlínis að blanda sér í þau mál, sem íslenzku stéttarfélögin hafa afskipti af, skyldi það þá ekki reynast rétt, sem Jónas Haralz segir, að erlendu auðhringarnir þeir séu eins og voldugar skuggaverur, sem grilli í? Ætli það geti ekki verið, að það grilli einhvers staðar í áhrif þessa auðhrings í íslenzku þjóðlífi, jafnvel þótt hann gerist ekki formlegur aðili að atvinnurekendasamtökunum? Og eins og Jónas Haralz segir enn fremur, að hann kunni að hafa lag á því með ótal lítt sýnilegum þráðum að ráða kjörum og lífi manna og hafa áhrif á örlög heilla þjóða.
Nei, það sem stendur á bak við starfsemi auðhringanna, það er alþjóðleg auðhyggja, en það er ekki þjóðernisstefnan, sem Einar Benediktsson talaði um, og ég vitnaði til orða hans hér fyrr í ræðu minni. Það er ekki þjóðernisstefnan, sem vill landsbygging og grípa yfir allt landið með alhliða framförum. Nei, hér er á ferðinni alþjóðleg auðhyggja, og það sem þingmeirihlutinn er að gera með samþykkt þessa máls, það er að opna dyr fyrir þessu valdi inn í íslenzkt þjóðlíf, inn í íslenzkt atvinnulíf. Og reynslan mun nú sýna það, hvort þeir, sem standa að samþykkt þessa máls, kunni ekki síðar að verða fúsir til að opna dyr á fleiri sviðum í sömu stefnu, og ef svo verður gert, þá á þessi samningur, sem hér liggur fyrir, að vera fordæmið. Það er fyrsti stóri samningurinn af þessu tagi, sem Íslendingar gera við erlendan aðila. Þessi samningur hlýtur því að verða skoðaður sem fordæmi, ef áframhald verður á þessari braut, og þá er vert að hafa það ríkt í huga, sem svo rækilega hefur verið rakið hér í þessari hv. d. af öðrum en mér við 1. og 2. umr. þessa máls, hvaða ágallar, hvaða stórfelldir ágallar eru á þessum samningi, þar sem m.a. er gengið svo langt að afsala að nokkru leyti dómsvaldi í hendur útlendinga.
Hvernig sem á þetta mál er litið, þá er það ekki ofsagt, sem ég sagði í upphafi þessara orða, að hér væri um sérstætt mál og alvarlegt að ræða. Það er alvarlegt mál bæði gagnvart nútíðinni og gagnvart framtíðinni og á sér ekki fordæmi í íslenzkri sögu. Og það er sérstætt mál fyrst og fremst vegna þess, að hér á að gera bindandi samning, sem á að öðlast lagagildi til 45 ára. Þeir, sem taka á sig þá ábyrgð að gera þennan samning bindandi til 45 ára, þeir taka jafnframt á sínar herðar þá þungu ábyrgð að binda hendur þeirra, sem síðar koma inn í þessa stofnun til þess að ráða málum þjóðarinnar, þegar við höfum lokið okkar starfsdegi hér. Þetta er þung ábyrgð, og hún er sérstaklega þung, þegar þess er gætt, hve naumur sá þingmeirihluti er, sem að samþykkt þessa máls stendur, því að svo naumur er sá þingmeirihluti, að í þessari hv. d. þyrfti ekki nema einn maður úr hópi meiri hlutans að snúast til fylgis við minni hlutann, til þess að málið félli hér með jöfnum atkvæðum. En þeir, sem taka á sínar herðar þessa ábyrgð með svona naumum meiri hluta, þeir ganga einnig svo langt að neita því að leggja þetta mál undir þjóðaratkvæði. Allt þetta, efni málsins og máísmeðferðin, er því þannig, að það er að mínum dómi ekki aðeins réttmætt heldur sjálfsagt að greiða atkvæði gegn þessu máli.