15.04.1966
Neðri deild: 70. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1984 í B-deild Alþingistíðinda. (1277)

151. mál, Framkvæmdasjóður Íslands

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það er að vísu eitt gott við þetta frv. Það er loksins tekin ákvörðun um að leggja niður Framkvæmdabankann. Hann hefur lengi verið óþarfur, og það hefði bara verið gott, að um leið hefði verið stigið nokkurt spor fram á við til þess að reyna að skipuleggja okkar þjóðarbúskap nokkru betur. Mér sýnist að vísu, að í einstaka atriðum, sem lagt er til með þessu frv. hæstv. ríkisstj., vaki að vísu eitthvað slíkt fyrir henni, en þetta er svo óljóst og óákveðið og yrði auðsjáanlega mjög óákveðið um alla framkvæmd á því líka, að ég held, að það sé mjög óheppilegt, eins og það er þarna sett fram. Það er gengið út frá því í 13. gr. frv., að það skuli semja áætlanir um þjóðarbúskapinn fram í tímann, og þetta verkefni er falið Efnahagsstofnun, sem nú á loksins að leiða í lög. Og sú efnahagsstofnun er látin vera algerlega stofnun innan ríkisstjórnarkerfisins. Alþ. kemur þar hvergi nærri. M.ö.o.: Það verður eingöngu embættismannastofnun, sem Alþ. hefur ekkert með að gera.

Ef einhver hugsun væri í þessu, að það ætti að útbúa áætlanir um þjóðarbúskapinn fram í tímann, hlýtur það að vera sú hugsun, að það væru ekki aðeins útbúnar áætlanir t.d. til eins árs í senn, heldur áætlanir fram í tímann, við skulum segja til 4–5 ára eða jafnvel lengur.

Nú er það gefið mál, að ef maður fer inn á þá starfsaðferð, sem er mjög skynsamleg og hæstv. ríkisstj. hefur tekið upp í sambandi við framkvæmdaáætlanir sínar að nokkru leyti, þ.e. við þrengri verkefni ríkisbúskaparins, ef maður ætlar að fara inn á það að útbúa áætlanir um þjóðarbúskapinn í heild, t.d. 4–5 ár fram í tímann, verða menn að reikna með því, að á sama tímabili geti orðið stjórnarskipti. Það þýðir m.ö.o., að ef menn ætla að útbúa áætlun, sem á að verða svo að segja leiðbeiningin og höfuðstefnan í öllum þjóðarbúskap Íslendinga t.d. næstu 5 ár, er alveg óhjákvæmilegt, ef slíka áætlun á að útbúa, að bæði stjórnarandstaða og ríkisstj. hafi þar nokkurt samstarf um. Við vitum, hvernig slíkt er. Við skulum bara hugsa okkur, að á miðju slíku 5 ára tímabili yrðu stjórnarskipti. Þá er búið að festa svona og svona mikið af fé í alls konar fyrirtækjum, sem átt hefur að koma upp, og ef það er eingöngu ríkisstj., sem að þessu hefur staðið, geta menn vel búizt við því, að sú stjórn, sem við tekur, stöðvi þetta allt í einu og byrji á einhverju allt öðru. M.ö.o.: Það gæti farið mikið í súginn og yrði að mörgu leyti ákaflega ópraktískt fyrir þjóðarbúskapinn, að þannig væri unnið. Þess vegna er það skynsamlegt, að þegar um áætlanir er að ræða fram í tímann, sé haft um þær samstarf á milli ríkisstj. og stjórnarandstöðu.

Ég hef flutt hér um alllangt skeið frv. um Áætlunarráð ríkisins, sem að ýmsu leyti en miklu ákveðnar reynir að setja þessa hugmynd út í lífið. Það frv. liggur líka fyrir þessu þingi, 27. mál, þskj. 93, og í þessu frv. frá mér var gengið út frá því, að það væri skipað af hálfu ríkisstj. 9 manna ráð. 4 menn skyldu vera tilnefndir af þingflokkunum, 4 menn skyldu tilnefndir af aðalsamtökunum í landinu, Alþýðusambandi Íslands, Stéttarsambandi bænda, Landssambandi ísl. útvegsmanna og Félagi ísl. iðnrekenda. Með þessu móti átti að tryggja, að þingflokkarnir annars vegar og helztu samtök verkamanna, bænda og atvinnurekenda hins vegar ættu þarna fulltrúa. Það var til að tryggja samhengið í starfi þessarar n. Auðvitað hefði ríkisstj. þarna oddamann og formann, og þessi n. skyldi eingöngu vinna að því að undirbúa áætlanir í hendur ríkisstj., en ríkisstj. ræður síðan, hvernig hún gerir úr garði það, sem hún leggur fyrir Alþ.

Með því að vinna að þessu með svona móti, er hægt að tryggja samhengi og þar með nokkurt öryggi í framkvæmd svona áætlana. Að svona áætlunum er nú unnið svo að segja alls staðar í Evrópu, ekki bara í sósíalistískum löndum, heldur löndum eins og Frakklandi, Noregi og víðar. Og það er engin spurning um það, að í landi eins og okkar, þar sem ríkið hefur í sífellu svona mikil afskipti af efnahagsmálum þjóðarinnar og raunverulega á vissan máta stjórnar þeim, verður óstjórn á þessu, meðan þessi háttur er ekki tekinn upp.

Ég þykist að vísu gera mér nokkra grein fyrir, hvernig þarna er allt í pottinn búið. Það er vitað mál, að Sjálfstfl. hefur verið dálítið smeykur, af því að honum hefur fundizt það lykta of mikið af sósíalisma, en þar er um mikinn misskilning að ræða. Það er ekki hægt að stjórna nútíma atvinnulífi öðruvísi heldur en með því að gera slíkar áætlanir, og það er ekki heldur hægt að stjórna því, án þess að það sé slíkt öryggi í sambandi við samningu slíkra áætlana, og við það, að það sé haldið áfram að vinna að þeim, hvort sem pólitísk stjórnarskipti verða eða ekki og að stjórnarandstaða á hverjum tíma hafi nokkuð með þetta að gera og ég tala nú ekki um þau voldugu samtök í landinu, sem í raun og veru marka jafnvel enn þá meira en stjórnmálaflokkarnir þróunina í þessum efnum. Ég held þess vegna, að það hafi verið rangt af hæstv. ríkisstj., þegar hún undirbýr þetta frv., að taka ekki dálítið meira tillit til þeirra till., sem áður hafa legið fyrir í þessum efnum.

Ég held, ef ég veit rétt, og ég held mig vita það, að Alþfl. hafi yfirleitt verið mjög hlynntur því, að það væri gengið alllangt í sambandi við samningu slíkra áætlana og í sambandi við að koma upp slíkum áætlunarráðum. Við vitum það, að Alþfl. hefur lengi barizt fyrir slíku. Það var strax hér í gamla daga, 1934, þegar hann í tyrsta skipti tók þátt í ríkisstj. á Íslandi, þá var það hans höfuðbaráttumál, og í því máli vann hann sinn stærsta pólitíska sigur, sem hann hefur nokkurn tíma unnið í sinni sögu, að koma á slíkum áætlunarbúskap á Íslandi. Þá var það Framsfl., sem eyðilagði það í þeirri ríkisstj., að slíkt yrði gert.

Þegar vinstri stjórnin var mynduð 1956, var eitt af því, sem ákveðið var í þeim stjórnarsáttmála, að unnið skyldi að því að koma slíku áætlunarráði á, og bæði Alþb. og Alþfl. stóðu saman að till., sem þá komu fram í sambandi við afgreiðslu á bankamálunum, að komið yrði upp slíku áætlunarráði eða stofnun, sem hefði það vald og verkefni, sem áætlunarráði almennt er ætlað. Þá var það Framsfl., sem hindraði, að slíkt yrði gert. Hins vegar hafa nú eftir 7 ára stjórnarandstöðu Framsfl. hvað eftir annað komið fram yfirlýsingar m.a. frá hans formanni um, að flokkurinn væri mjög hlynntur því, að slíkum áætlunarbúskap væri komið á. Og ég leyfi mér að spyrjast fyrir um, hvort það er ekki rétt skilið hjá mér, að Framsfl. hafi lært það af langri reynslu, sem hann því miður hvað eftir annað hefur komið í veg fyrir, að það sé ekki ætlandi að ætla að reyna að stjórna nýtízku atvinnulífi á Íslandi án þess að koma slíku kerfi á. Ég held, að hvað Sjálfstfl. snertir, sé þetta í raun og veru bara leifar af gamaldags íhaldssemi, að ganga ekki inn á það að koma upp svona stofnunum. Flokkar samsvarandi Sjálfstfl. hafa þegar gert þetta mjög víða úti í Evrópu, og það er mjög misráðið að gera ekki ráðstafanir til þess, að það sé hægt að koma á samvinnu um slíkt nú þegar hér heima. Ég held, að það ætti þess vegna mjög alvarlega að athuga það, hvort ekki gæti orðið við framhald annaðhvort þessarar eða næstu umr. samkomulag um það að gera þarna breytingar á.

Ég man það að vísu vel, að hæstv. ríkisstj. lýsti því yfir, þegar hún tók við völdum, að hún mundi ætla að láta atvinnulífið yfirleitt eiga sig og skipta sér ekki af því, atvinnurekendur og verkamenn ættu að koma sér saman um laun og ríkisstj. mundi ekkert skipta sér af neinu slíku. Það væri alveg mál atvinnurekenda og verkamanna. Í mörg ár hefur hæstv. ríkisstj. alltaf þverbrotið þetta prinsip sitt, og að miklu leyti hefur það verið rétt af henni, því að það er alveg óhugsandi fyrir eina ríkisstj. að ætla að láta efnahagsmál þjóðarinnar, sem eru raunverulega aðalmálin, sem til umr. og afgreiðslu eru, láta þau afskiptalaus. Og þetta hefur jafnvel farið út í þær öfgar hjá hæstv. ríkisstj„ að í staðinn fyrir að álíta, að atvinnurekendur og verkamenn ættu einir að koma sér saman um kaupgjald í landinu og hún ætti hvergi að koma þar nærri, hefur hún í fyrsta lagi farið að koma mjög nærri þessum málum, þannig að hún hefur raunverulega verið einhvers konar þriðji samningsaðili við alla kaupgjaldssamninga, en hún hefur bara stigið enn þá lengra skref, sem ég svona sem gamaldags fylgjandi þingræðis er frekar smeykur við, því að hún hefur álitið, að það ætti að fara að útkljá meginið af löggjafarmálum þjóðarinnar, sem um efnahagsmál fjalla, í sambandi við kaupgjaldssamninga verkamanna og atvinnurekenda. Og þar finnst mér nú satt að segja vera stigið nokkuð stórt spor út fyrir veggi þessa þings. Þó að menn hafi oft neyðzt til þess á tímum tiltölulega slæmra stjórna að reyna að knýja fram ýmis góð mál í sambandi við slíka kaupgjaldssamninga, væri mjög órétt að gera það að slíku prinsipi, að öll góð mál væru alltaf drepin á Alþ. og sem mest af slæmum málum sett í gegn, til þess að ætla síðan verkalýðshreyfingunni að brottnema þau slæmu mál, þegar til kaupgjaldssamninga komi og knýja fram eitthvað af þeim góðu málum.

Þegar hæstv. ríkisstj. er nú farin að álíta, að svona mikið þurfi að hafa við um samninga milli verkamanna og atvinnurekenda, sýnist mér það nú vera einsætt, að þegar um er að ræða höfuðstefnuna í sjálfu atvinnulífinu, áætlanirnar hvað snertir, hvað gera skuli á næstu árum og jafnvel áratug, ætti þó sannarlega að leyfa atvinnurekendum og verkamönnum að koma þar eitthvað nærri og ég tala nú ekki um þingflokkana. Eins og hins vegar þetta er í Il. kafla þessa frv., er það eingöngu Efnahagsstofnunarinnar, sem sé eingöngu nokkurra embættismanna ríkisins. Ég skal að vísu viðurkenna, að þessi árátta er mjög rík í nútímaþjóðfélagi að fara að draga meir og meir úr höndum Alþ. og þinganna yfirleitt stjórnina á þessum málum og flytja þetta til embættismanna, en þetta er engan veginn góð tilhneiging. Og ég held, að við eigum að hindra, að slíkt sé gert að höfuðstefnu. Ég álít þess vegna, að þarna eigi að gera mikla breytingu á. Ég sé að vísu, að hv. þm. Framsfl. í félmn. eru þarna með nokkrar brtt., sem að vísu eru til bóta, en stíga samt ekki nærri því nógu langt í þessum efnum.

Í III. kaflanum er lagt til að koma upp hagráði. Þar eiga fulltrúar atvinnurekenda, verkamanna og ýmissa fleiri stofnana og samtaka að eiga sína fulltrúa. Þetta kvað eiga að vera 21 manns ráð. Reynslan af svona stórum ráðum er sú, að þetta Verður — ja, mér liggur við að segja kjaftasamkoma í bezta falli. Það er að vísu hægt að gera svona ráð að vettvangi til að berjast á og knýja fram atkvgr. og annað slíkt og reyna á ýmsan hátt að hafa þar áhrif og koma fram með mál og þess háttar, það er hægt að gera það, en það er í raun og veru ekki slíkt, sem okkur sérstaklega vantar. Alþ. og fleiri slíkir vettvangar eru til. Það, sem við þurftum að hafa, var einmitt ráð, þar sem t.d. þingflokkarnir og sterkustu samtökin í landinu gætu talað saman.

Það er reynsla okkar hér á þingi, að það sé óheppilegt að hafa n., sem eru öllu fjölmennari en 5–7–9 menn, það séu n.,sem geti unnið, það séu n., sem geti starfað vel, og höfuðstarfsnefnd Alþ., fjvn., er skipuð 9 mönnum. Ég held þess vegna, að það hefði verið miklu skynsamlegra að blanda nokkuð þarna saman. Í staðinn fyrir þetta fjölmenna hagráð hefði heldur átt að setja stjórn í þessa Efnahagsstofnun, sem var skipuð t.d. 9 mönnum, eitthvað svipað því, sem ég hafði lagt til með áætlunarráðið. Ég held, að þá yrði miklu hentugri og skynsamlegri stjórn á þessum efnum. Ég segi þar með ekki, að það sé ekki hægt að tala við þá aðila, sem lagt er til í 18. gr., að haft verði samstarf við.

Í 5. gr. míns frv. um áætlunarráð var einmitt lagt til, að til þess að skapa sem bezta samstöðu meðal þjóðarinnar og hagnýta sem bezt þekkingu og hugvit einstaklinga skuli ársfjórðungslega boðað til fundar með fulltrúum frá einmitt flestöllum þessum stofnunum, sem getur um í 18. gr. þessa stjfrv. M.ö.o.: það er ákaflega hægt að láta Efnahagsstofnunina, ef hún fær sæmilega stjórn, kveðja til ráðuneytis við sig ársfjórðungslega og gefa tækifæri til að spjalla við sig þessum fulltrúum þessara stofnana. Ég held, að þetta væri miklu skynsamlegra fyrirkomulag heldur en það, sem lagt er til í þessu stjfrv., eins og það hér liggur fyrir. Þá vil ég líka segja hitt, að ef áætlanir um þjóðarbúskapinn á að undirbúa af einni stofnun fyrir ríkisstj., eiga að vera fyrirmæli um það, á hvern hátt hæstv. ríkisstj. á hverjum tíma leggur slíkar áætlanir fyrir Alþ. Ég hafði í 8. gr. míns frv. nákvæm fyrirmæli um þetta. Ég held, að það hefði verið skynsamlegra að taka nokkurt tillit til þeirra hugmynda, sem áður hafa komið fram í þessum efnum. Það hefðu fengizt með því móti betri stofnanir, sem hefðu tryggt betra samhengi í efnahagsstefnu þjóðarbúskaparins, og ég skal vissulega viðurkenna, að það eru enn þá alveg möguleikar til þess, ef hæstv. ríkisstj. og hennar fylgismenn vildu verða við því að gera þarna breytingu á.

Ég vil í sambandi við þessi mál enn fremur rétt minnast á það, sem hér er alltaf öðru hvoru mjög mikið til umr., það eru mál dreifbýlisins. Við erum hér með Framkvæmdasjóð, einn nýjan sjóð til viðbótar við aðra, og í Ed. er verið að fjalla um frv. um Atvinnujöfnunarsjóð, sem kemur bráðum til okkar. Það eru ótal sjóðir í þessum efnum, en sannleikurinn er, að ef við ætlum að gera eitthvað í því að rétta dreifbýlið við, þá verður það ekki gert bara með einhverjum svona sjóðamyndunum. Það verður ekki gert með öðru en sjálfri yfirstjórninni á þjóðarbúskapnum, með því raunverulega að snúa straumnum við. Það þarf miklu róttækari ráðstafanir heldur en verið er að gera með þessum sjóðum. Það er sjálf yfirstjórnin á þjóðarbúskapnum, sem þarf að miðast við það að hindra, að Íslendingar safnist allir smám saman hérna við Faxaflóann. Og það verður ekki gert með því að veita smálán í þetta skiptið til þessa og hitt skiptið til hins, sem einhverjar hungurnefndir utan af landi næla út, þegar þær koma hingað til Reykjavíkur, heldur verður það gert með því, að yfirstjórnin á sjálfri stefnunni miðist við það, að hafa áhrif í þessa átt.

Ég verð að segja, að mér þykir það mjög leitt, að það skuli ekki hafa verið tekið tillit til þess við samningu þessa frv., að Alþ. ætti að hafa þarna nokkru meira um að segja. Þessi árátta, að ætla að sameina allt vald hjá nokkrum embættismönnum ríkisstj., er mjög óheppileg, og við vitum svo, hvað þetta kemur til með að þýða í praksís. Þetta kemur til með að þýða það, að þessi stofnun ríkisstj., sem er einvörðungu á hennar vegum, undirbýr allar mögulegar áætlanir, hún leggur þetta fyrir ríkisstj. og stundum kannske fyrir einhverja stofnun eins og stjórn Framkvæmdasjóðsins og ýmissa annarra slíkra sjóða, og þá er raunverulega búið að gera hlutina, og fulltrúar Alþ. hafa hvergi komið þarna nærri. Síðan er komið með þetta niður í þing, og síðan er þetta barið í gegn, jafnvel þó að svo og svo margir af þeim, sem ríkisstj. fylgja, séu máske mjög óánægðir með þessa afgreiðslu. En þeir hafa í raun og veru aldrei komið þarna nærri, þingflokkarnir sem slíkir hafa ekki að þessu unnið, þeirra fulltrúar hafa ekki haft aðstöðu til að ræða þetta áður, og þetta miðar þá allt saman að því að auka valdið hjá embættismönnunum og hjá ríkisstj. og draga úr valdi Alþ. og gera Alþ. meir og meir að tómri afgreiðslustofnun.

Þetta er mjög óheppileg þróun. Það liggur við að manni finnist stundum að Alþ. sé í raun og veru að verða eins konar ráðgefandi þing fyrir ríkisstj. og þar með búið. Það kemur vart fyrir lengur við afgreiðslu frv., sem lögð eru fyrir, a.m.k., þegar bjórinn eða refirnir og minkarnir eru undanteknir, — að þm. stjórnarflokka fái í raun og veru að njóta nokkurs persónufrelsis. Þeirra persónuleiki er svo að segja þurrkaður út. Flokkavaldið, sérstaklega þegar um stjórnarflokka er að ræða, er að verða svo geigvænlegt í okkar þjóðfélagi, að sjálft Alþ. sem slíkt líður undir því. Og mér sýnist, að með þeim ráðstöfunum, sem hérna er verið að gera, þá sé verið að halda áfram á þessari braut. Ég mun ekki að þessu sinni gera brtt. við þetta frv. en sjá, hvernig fer um það og brtt., sem fluttar eru við þessa umr. En ég vildi eindregið mælast til þess, ef hæstv. ríkisstj. leggur nokkuð upp úr því yfirleitt að reyna að hafa samstarf við stjórnarandstöðu um efnahagsmálin í þjóðfélaginu, að þá verði undir 3. umr. reynt að koma sér saman um einhverjar víðtækari brtt. en þær, sem nú liggja fyrir.