10.02.1966
Neðri deild: 39. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1998 í B-deild Alþingistíðinda. (1313)

100. mál, Háskóli Íslands

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í frv. þessu eru ákvæði um, að stofnuð skuli fjögur ný prófessorsembætti við Háskóla Íslands, þrjú í heimspekideild, þ.e.a.s. í ensku, í almennri sagnfræði og í Norðurlandamálum, einkum dönsku, og eitt í lagadeild, í réttarsögu. Ríkisstj. samþykkti á s.l. ári að beita sér fyrir skipulegri fjölgun prófessora og annarra kennara við háskólann á 10 ára tímabili í samræmi við áætlun, sem háskólaráð hafði samið um nauðsynlega fjölgun kennaraembætta við stofnunina á 10 ára tímabili. Fyrsta embætti samkv. þessari 10 ára áætlun hefur þegar verið lögfest, og á ég þar við prófessorsembætti í lífefnafræði, sem stofnað var með l. nr. 72 1964, og hefur það embætti þegar verið veitt. Með þessu frv. er lagt til, að stofnuð verði þau fjögur prófessorsembætti, sem áætlunin gerir ráð fyrir að stofnuð yrðu til ársins 1966.

Ég skal nú gera nokkra grein fyrir þessari áætlun í heild. Rétt er að taka fram þegar í upphafi, að hér er um að ræða áætlaða kennaraþörf í þeim deildum, sem nú starfa við háskólann. Ef komið yrði á fót nýjum deildum eða tekin upp kennsla í nýjum greinum, mundi það auka kennaraþörfina umfram það, sem gert er ráð fyrir í 10 ára áætluninni.

Nú munu innritaðir í háskólann um 1100 stúdentar. Ekki stundar þó allur sá fjöldi samfellt nám við háskólann, og er erfitt að fullyrða um, hversu margir helga sig námi að öllu eða mestu leyti. Óhætt er þó að fullyrða, að í flestum deildum verður það æ fátíðara, að menn vinni samhliða námi. Hefur þetta fyrst og fremst tíðkazt við B.A.-nám í heimspekideild, en eftir að það nám var aukið og endurskipulagt á s.l. hausti, má gera ráð fyrir, að það verði framvegis mun fátíðara þar. Áætlað hefur verið, að stúdentatala háskólans þrefaldist á næstu tveim áratugum, og er þá miðað við reynslu liðinna ára og fjölda nemenda í menntaskólum, áætlaða fólksfjölgun og mat á auknu aðstreymi í menntaskólana. Við áætlun á kennaraþörfinni næstu 10 ár hefur verið höfð hliðsjón af þessu mati á stúdentafjölguninni. Prófessorsembættin, sem gert er ráð fyrir að stofna, eru alls 32. Er gert ráð fyrir mestri fjölgun í verkfræðideild, eða 15 nýjum prófessorsembættum, 7 í læknadeild, 4 í heimspekideild, 3 í lagadeild, 2 í guðfræðideild og 1 í viðskiptadeild. Þá er gert ráð fyrir stofnun 49 annarra kennaraembætta, þ.e.a.s. dósentsembætta og lektorsembætta. Þar er fjölgunin langmest í læknadeild, eða 33 ný kennaraembætti, 5 í verkfræðideild og 5 í lagadeild, 4 í heimspekideild og 2 í viðskiptadeild. Alls eru því hin nýju kennaraembætti, sem áætlunin gerir ráð fyrir að stofna á þessu 10 ára tímabili, 81.

Þá skal ég fara nokkrum orðum um nauðsyn þeirra embætta, sem þetta frv. gerir ráð fyrir.

Um stofnun prófessorsembættis í ensku er það að segja, að enska er nú orðin höfuðtungumálið af þeim erlendu tungumálum, sem kennd eru í íslenzkum skólum. Til háskólans sækir mikill fjöldi enskukennara háskólamenntun sína, og er því nauðsynlegt að leggja sérstaka rækt við enskukennslu í háskólanum. Fleiri stúdentar hafa lagt stund á ensku sem aðalgrein eða aukagrein en nokkra aðra grein til B.A.-prófa. Tekin hafa verið um það bil helmingi fleiri stig í ensku í þessum prófum en þeim greinum, sem næst koma, þ.e.a.s. mannkynssögu og dönsku. Á síðari árum hefur enskukennslunni í háskólanum verið haldið uppi af einum dósent, einum sendikennara frá British Council og einum skiptiprófessor í bandarískum bókmenntum. þetta kennaralið er of fámennt og nauðsynlegt, að forstöðumaður enskukennslunnar sé prófessor, er geti skipulagt heildarstarfsemina.

Um stofnun prófessorsembættis í Norðurlandamálum, einkum dönsku, er það að segja, að danska er ein þeirra greina, sem mest er lögð stund á í B.A. námi. Er það eðlilegt sökum náinna menningartengsla við hin Norðurlöndin og þá fyrst og fremst Danmörku og hins, að danska er fyrsta erlenda tungumálið, sem kennt er í íslenzkum skólum og við hlið ensku annað aðaltungumálið, sem þar er kennt. Undanfarin ár hefur kennslunni verið haldið uppi af sendikennara og stundakennara. Þetta er ófullnægjandi. Mikill hörgull er á dönskukennurum, og er án efa bezta ráðið til þess að bæta úr þeim skorti að efla og bæta aðstöðuna til dönskunáms við háskólann. Þess vegna er gert ráð fyrir því, að stofnað verði prófessorsembætti í dönsku, en jafnframt mun haldið áfram að halda uppi kennslu í norsku og sænsku, og von er á sendikennara í finnsku næsta haust. Í þessu sambandi má geta þess, að samkv. hinni nýju reglugerð, sem sett var um B.A.-námið á s.l. ári og kom til framkvæmda við upphaf yfirstandandi skólaárs, er gert ráð fyrir því, að hægt sé að ljúka meistaraprófi í Norðurlandamálum hér við háskólann.

Um prófessorsembætti í almennri sagnfræði er það að segja, að sagnfræði er meðal fjölsóttustu námsgreina til B.A.-prófs, og auk þess er sagnfræði kennd til kandidats- og meistaraprófs. Að undanförnu hefur sagnfræðikennsla við háskólann verið í höndum aukakennara. Með hliðsjón af því, hversu margir leggja stund á sagnfræðinám við háskólann, og hinu, að hörgull er á hæfum kennurum í sagnfræði í skólum landsins, virðist fyllilega tímabært að koma á fót prófessorsembætti í almennri sagnfræði.

Um prófessorsembættið í réttarsögu er það að segja að síðustu, að íslenzk réttarsaga er óplægður akur. Þótt gera verði ráð fyrir, að nýr prófessor í réttarsögu mundi annast nokkra kennslu í öðrum greinum lögfræðinnar en réttarsögunni, yrði hér fyrst og fremst um að ræða rannsóknarstarf eða svo ætti að vera a.m.k. Á sviði íslenzkrar réttarsögu er um að ræða mjög mikilvæg rannsóknarefni, sem fram að þessu hefur ekki verið nægilega sinnt. Það gleymist of oft, að íslenzk lög þjóðveldisaldar eru dýrmætur fjársjóður við hlið fornbókmenntanna og verða hiklaust talin eins og þær meðal helztu andlegra stórvirkja norrænna manna. Það hlýtur fyrst og fremst að teljast menningarskylda Íslendinga að hafa forustu um rannsóknir á þessum menningararfi, og ætti það að vera höfuðhlutverk nýs prófessors í réttarsögu.

Að síðustu skal þess getið, að í fjárl. fyrir yfirstandandi ár er gert ráð fyrir fjárveitingum til allra þessara embætta. Ég vona því, að þetta frv. hljóti skjóta og góða afgreiðslu hér á hinu háa Alþ. Embættin mundu þá verða auglýst laus til umsóknar þegar eftir samþykkt frv. og í þau skipað, þegar hæfir menn hafa um þau sótt.

Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.