04.04.1966
Efri deild: 60. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2011 í B-deild Alþingistíðinda. (1323)
100. mál, Háskóli Íslands
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Menntmn. hefur haft til meðferðar frv. það, sem hér liggur fyrir, og eins og álit n. á þskj. 621 ber með sér, er n. sammála um að mæla með frv., en einstakir nm. hafa þó áskilið sér rétt til að flytja eða fylgja brtt., og hefur brtt. verið lögð fram á þskj. 630 frá þremur nm. Að því kem ég síðar.
Efni þessa frv. er að bæta við fjórum nýjum prófessorsembættum í heimspekideild. Stofnun þriggja þessara nýju embætta, í mannkynssögu, ensku og Norðurlandamálum, einkum dönsku, er liður í 10 ára áætlun háskólans um eflingu hans. Í hv. Nd. tók frv. þeirri breyt. frá því, sem það var upphaflega, að bætt var þar við prófessorsembætti í samtímasögu. Fyrir þessu embætti var ekki gert ráð í 10 ára áætluninni. Háskólinn sér samt ekki ástæðu til annars en fagna frumkvæði hér á hv. Alþingi um það, að stofnuð séu embætti við hann í greinum, sem æskilegt er að efld sé kennsla í, og kemur þetta viðhorf bæði fram í erindi, sem háskólaráð hefur sent menntmn., meðan málið var þar til meðferðar, og ég mun kynna hér á eftir, og í erindi heimspekideildar til n., sem ég mun einnig kynna. Hins vegar hlýtur háskólinn að leggja á það áherzlu, að stofnun þessa embættis verði ekki á neinn hátt til þess að tefja framgang 10 ára áætlunarinnar, og þótt háskólinn hafi að mínu áliti síður en svo ástæðu til þess að vantreysta núverandi hæstv. menntmrh. né hæstv. ríkisstj. í því efni, mundi ég samt við þetta tækifæri eindregið óska eftir því að fá staðfestingu hæstv. menntmrh. á því, að þessi ákvörðun hæstv. Alþingis verði ekki á neinn hátt til þess að tefja framgang áætlunarinnar.
Við Íslendingar höfum oft hælt okkur af því að vera söguþjóð, og mun háskólinn því sízt af öllu óska að bregða fæti fyrir það, að sögukennsla við hann sé efld. Hins vegar finnst mér rétt að vekja athygli hv. þdm. á því, að starfandi er prófessor í nýrri tíma sögu við háskólann, en það er prófessor Þórhallur Vilmundarson. Ég tel það miður farið, að við undirbúning þessa máls hefur ekki verið haft samráð við hann og raunar við hvorugan söguprófessorinn, sem við heimspekideildina starfar. Söguprófessorarnir hafa hins vegar sent menntmn. erindi út af embætti þessu, og tel ég rétt að kynna það hv. þdm. ásamt þeim erindum, sem ég áðan nefndi að borizt hefðu frá háskólaráði og heimspekideild, og vil ég nú, með leyfi hæstv. forseta, lesa þessi erindi upp, það tekur ekki langan tíma.
Háskólaráð hefur skrifað nefndinni þannig, dags. 15. apríl 1966:
„Háskólaráð er þakklátt fyrir þann áhuga, sem hv. Nd. Alþingis hefur sýnt á nauðsyn á fjölgun prófessora við háskólann með því m.a. að samþykkja stofnun eins prófessorsembættis til viðbótar þeim fjórum embættum, sem hið upphaflega frv. til 1. um breyt. á háskólalögum mælti fyrir um.
Háskólaráð fulltreystir því, að stofnun prófessorsembættis þess í heimspekideild, sem hér um ræðir, muni ekki að neinu leyti tefja fyrir lögfestingu þeirra prófessorsembætta, sem háskólinn hefur þegar óskað eftir eða mun óska lögfestingar á nú á næstunni. Er hér fyrst og fremst átt við prófessorsembætti skv. áætlun háskólans um fjölgun embætta áratuginn 1964–1973, þ. á m. embætti í læknisfræði og þjóðhagfræði, er stofna skal samkv. þeirri áætlun á árinu 1966, svo og prófessorsembætti í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp og röntgenfræðum í læknadeild. Í þessu sambandi er einnig rétt að benda á, að þess mun verða óskað nú á næstunni, að prófessorsembætti í heimspeki, sem skv. áætluninni skyldi stofna 1971, verði lögfest þegar á þessu ári. Stendur það í sambandi við endurskoðun, sem nú hefur farið fram á skipan kennslu í heimspekilegum forspjallsvísindum. Þá má enn benda á, að heimspekideild hefur talið óhjákvæmilegt, að stofnað yrði prófessorsembætti í málvísindum og almennri bókmenntasögu. Má þykja vist, að af hálfu heimspekideildar hefði verið óskað eftir stofnun þessara þriggja embætta á undan embætti í sagnfræði, ef notið hefði við frumkvæðis háskólans í þessu máli.
Enn er á það að líta, að áætlunin um fjölgun prófessorsembætta tekur aðeins til fjölgunar embætta í þeim greinum, sem þegar er fengizt við kennslu í. Nú er unnið að athugunum um að stofna til kennslu í félagsfræði, og háskólinn hefur fyrir nokkru lagt til, að hafin verði kennsla í náttúrufræði, og er mjög brýn þörf á að stofna til prófessorsembætta í þeim greinum hið allra fyrsta. Þá er einnig í athugun stórfelld viðbót við starfsemi verzlunardeildar að öðru leyti og verður þeim breytingum ekki fram komið nema með mikilli aukningu kennslukrafta. Mætti svo lengi telja.
Háskólaráð telur vissulega mikilvægt, að prófessorsembætti verði stofnað um það rannsóknarsvið, sem greinir í nál. menntmn. Nd. Hins vegar ber að benda á, að athuganir skortir á starfsemi þessa prófessors, afmörkun starfs hans gagnvart öðrum embættum í sagnfræði og könnun á kennsluefni í því sambandi o.fl. Þarf slík athugun að sjálfsögðu að fara fram í háskólanum, áður en embættið er auglýst laust til umsóknar. Þá eru skiptar skoðanir um það, hvort embættið eigi að vera í nútímasögu, miðað við hugmyndir um rannsóknarsvið prófessorsins, og hafa komið fram ákveðnar skoðanir um, að það eigi fremur að vera í stjórnvísindum (statsvetenskap, political science), en hugmyndir um kennslu í þeirri grein hafa oftar en einu sinni verið settar fram af einstökum mönnum í háskólanum. Telur háskólaráð eðlilegast, að þetta atriði verði gagngert kannað, áður en embættið er auglýst laust til umsóknar eða ráðstafað með öðrum hætti, og verði svo um hnúta búið af hálfu Alþ., að heimilt sé að hafa embættið í stjórnvísindum, ef það telst haganlegra. Þótt embættið yrði í stjórnvísindum, mætti það allt að einu tilheyra heimspekideild.
Háskólaráð leyfir sér að óska þess, að í nál. eða í framsögu verði lýst sams konar fyrirvara um þetta embætti og fram kemur um hin prófessorsembættin fjögur, og lýtur að því, að heimilt sé að nota fé það, er lagt sé til embættisins, um allt að þriggja ára bil til þess að styrkja efnilega menn, sem til greina kæmu sem umsækjendur, til framhaldsnáms.
Að lokum vill háskólaráð taka undir þá hugmynd, að hér við háskólann verði komið á fót sagnfræðilegri rannsóknarstofnun.
Virðingarfyllst,
Ármann Snævarr
rektor.“
Þetta var erindi háskólaráðs. Frá heimspekideild hefur komið fram svo hljóðandi erindi: „Heimspekideild Háskóla Íslands fagnar því, að lagt hefur verið fram á Alþ. frv. til laga um breyt. á íögum nr. 60 7. júní 1957, um Háskóla Íslands. Þetta frv. felur í sér, að stofnuð verði þrjú ný prófessorsembætti við deildina (í ensku, í almennri sagnfræði og í Norðurlandamálum, einkum dönsku). Sömuleiðis fagnar deildin þeim áhuga á íslenzkum fræðum og málefnum háskólans, sem fram kemur í því, að Nd. Alþingis — að till. menntmn. — hefur samþ., að stofnað verði prófessorsembætti í íslenzkri samtíðarsögu.
Deildin vill þó skýrt taka fram, að stofnun slíks embættis kæmi að litlu haldi, nema búið yrði á sómasamlegan hátt að fyrirhuguðum prófessor. Þess vegna telur deildin óhjákvæmilegt, að fé verði árlega varið til söfnunar-, útgáfu- og rannsóknarstarfs eftir till. sagnfræðiprófessora heimspekideildar.
Jafnframt leggur deildin áherzlu á, að tryggt verður að vera, að stofnun hins síðastgreinda embættis orki á engan hátt til seinkunar á framkvæmd áætlunar háskólans um kennaraþörf.
Þá bendir deildin á, að stofnun prófessorsembættis í samtíðarsögu bætir aðeins að litlu leyti úr þeirri þörf, sem nú er á auknum kennslukröftum í Íslandssögu og stafar af endurskipan náms í deildinni. Sýnt er, að nauðsynlegt verður að stofna lektorsstarf (í 22. launaflokki) í Íslandssögu á næsta ári, jafnvel þótt hið nýja prófessorsembætti verði stofnað.
Loks vill deildin benda á, að nauðsyn ber til þegar á þessu ári að stofna prófessorsembætti í heimspeki og á allra næstu árum verður ekki hjá því komizt að stofna prófessorsembætti í almennum málvísindum og almennri bókmenntasögu. Till. um lektors- og dósentsstörf mun deildin gera, jafnskjótt og framkvæmd hins nýja námsskipulags leiðir í ljós þörf á slíku.“
Þetta var erindi heimspekideildar, og þá er að síðustu erindi til menntmn. frá söguprófessorunum við háskólann, þeim Þórhalli Vilmundarsyni og Guðna Jónssyni, en það hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Jafnframt því sem við undirritaðir prófessorar í íslenzkri sögu við Háskóla Íslands þökkum þann áhuga á efling íslenzkra sagnfræðirannsókna, er að baki býr fram kominni till. á Alþingi um stofnun prófessorsembættis í íslenzkri nútímasögu, viljum við leyfa okkur að taka fram, að við teljum brýnni þörf á að sinna íslenzkri nútímasögu á annan veg en gert er ráð fyrir í framkominni till. á Alþingi: með gagnasöfnun, útgáfu frumheimilda og sérrannsóknum á margvíslegustu sérsviðum, sem fráleitt er að hugsa sér, að geti orðið eins manns verk. Þess vegna leyfum við okkur að leggja til við hv. Alþingi, að fé, sem svarar einum prófessorslaunum, verði árlega varið til slíks frjáls söfnunar-, útgáfu- og rannsóknarstarfs eftir till. sagnfræðiprófessora heimspekideildar. Mætti þar finna kjörin viðfangsefni ungum og efnilegum fræðimönnum, er orðið gætu styrkþegar (stípendíatar) hæfilegan tíma í senn. Gæti slík fjárveiting þannig orðið upphaf að íslenzkri sagnfræðirannsóknarstofnun (historisk institut), en þess háttar stofnanir eru hvarvetna við erlenda háskóla höfuðstoð og aflvaki sagnvísinda.“
Þetta var erindi þeirra prófessoranna Þórhalls Vilmundarsonar og Guðna Jónssonar.
Þó að ég telji réttmætt, að komið sé til móts við þessi erindi með heimildarákvæðum í lagabreytingu þeirri, er nú er verið að gera, hef ég þó ekki séð mér fært að bera fram brtt. þess efnis eða standa að öðrum brtt., fyrst og fremst með tilliti til þess, að vegna þess, hve þingstörfum er langt komið, er hætta á, að öllu málinu yrði stofnað í hættu, ef frv. væri endursent Nd. Hitt mundi ég þó leggja áherslu á að fá yfirlýsingu um frá hæstv. menntmrh., ef hann sæi sér fært að verða við slíkri ósk, sem ég veit að bæði háskólaráð og heimspekideild standa að baki, að embætti þetta verði ekki auglýst til umsóknar nema að höfðu samráði við þessa aðila. Ekki getur verið álitamál, að ef stofnun embættis þessa á að ná tilgangi sínum, verður að fást í það hæfur maður. Ég skal hér ekki láta í ljós neina skoðun á því, hvort völ er á slíkum manni nú. En þar sem háskólinn verður að bera ábyrgð á þessum starfsmanni sínum sem öðrum, hlýtur hann að leggja á það áherzlu, að samráð sé við hann haft, áður en embættið er auglýst, og ekki verði í það skipað, fyrr en völ er á hæfum manni í það að dómi háskólaráðs og heimspekideildar. Þetta er það, sem ég legg mesta áherzlu á.
Hvað viðvíkur brtt. þeirri, sem borin hefur verið fram af þremur hv. menntmn: mönnum á þskj. 630, þá tel ég efnislega, að hún sé réttmæt, þótt ég mundi að vísu kjósa, að sú heimild, sem þar mundi verða lögfest, væri á breiðari grundveili en í þessari till. Hitt finnst mér gefa auga leið, að ef hæstv. menntmrh. sér sér fært að gefa yfirlýsingu um það, að í þetta embætti verði ekki skipað nema að höfðu samráði við háskólaráð og heimspekideild, þá megi vænta þess, að því fé, sem sparast við það, að ekki er í embættið skipað, verði á einn eða annan hátt ráðstafað með tilliti til þess að undirbúa stofnun þessa embættis. M.a. kæmi það fyrst og fremst til greina að styrkja efnilegan ungan mann til þess að búa sig undir slíkt embætti, þó auðvitað án skuldbindinga um það, að hlutaðeigandi fái embættið, og að öðru leyti til þess að skapa skilyrði fyrir því, að þessu embætti megi gegna þannig, að háskólanum og þjóðinni megi verða til sóma.
Þar sem fyrir liggur þingvilji um það, að til þessa embættis verði stofnað, mundi ég að öllu óbreyttu treysta því, að möguleiki verði á því að fá því til leiðar komið með samstarfi milli stjórnarvalda, háskólans og fjárveitingavaldsins hverju sinni. Hins tel ég ekki hægt að vænta, að á það verði fallizt, að þeim fjármunum, sem hér er um að ræða, verði ráðstafað til einhvers alls annars en í þágu þessa embættis.
Ef hæstv. menntmrh. sæi sér fært að gefa yfirlýsingar hér að lútandi, mundi ég telja óþarft í rauninni að samþykkja þá till., sem fram hefur verið borin á þskj. 630, og mundi þá vilja beina þeim tilmælum til hv. flm. hennar, — þó að ég, eins og ég áður hef sagt, sé henni í rauninni efnislega samþykkur, — að hún verði tekin aftur, því að verði hún felld, finnst mér það frekar verða til að torvelda það að fá því til leiðar komið, meðan ekki er skipað í þetta embætti, að þeim fjármunum, sem við það sparast, verði ráðstafað í samráði við háskólaráð og heimspekideild með tilliti til þess að undirbúa stofnun embættisins.
Hæstv. forseti. Að öðru leyti leggur n. til, að þetta frv. verði samþykkt.