04.11.1965
Neðri deild: 11. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2104 í B-deild Alþingistíðinda. (1356)
26. mál, verðlagning landbúnaðarvara
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs vegna nokkurra atriða, sem komu fram í ræðu hæstv. viðskmrh., þegar hann talaði hér seinast. Hæstv. viðskmrh. virtist a.m.k. að einhverju leyti hafa skilið mig þannig, að ég væri orðinn sammála þeirri stefnu, sem hann hefur haldið fram í landbúnaðarmálum. Ég held, að þetta stafi af einhverjum misskilningi hjá hæstv. ráðh. Hitt er hins vegar rétt, að ég tók undir þær skýringar, sem hann gaf á því, að útflutningsuppbætur á landbúnaðarvörum hafa farið mjög hækkandi eða raunverulega margfaldazt á undanförnum árum. Það er alveg rétt, að þessar meginskýringar ráðh. taldi ég réttar. En þær voru tvíþættar. Í fyrsta lagi sú skýring, að miklar verðhækkanir innanlands af völdum verðbólgunnar hefðu hækkað mjög framleiðslukostnaðinn og þar með afurðaverðið og aukið það bil, sem er á milli þess og þess verðs, sem fæst erlendis. Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að þetta er meginorsökin til þess, hve mjög útflutningsuppbæturnar hafa hækkað á undanförnum árum. Og ég vil aðeins nefna það sem dæmi um þetta, að t.d. útflutningsmagnið á sauðfjárafurðum var svo að segja það sama haustið 1962 og 1963 og verðlagið erlendis var heldur hærra þá, þ.e. seinna haustið heldur en hið fyrra. Þrátt fyrir það þurfti að borga um 20 millj. kr. meira á þetta útflutningsmagn, sem lá eingöngu í því, að afurðaverðið hafði hækkað innanlands sem þessu svaraði og bilið á milli þess og útflutningsverðsins hafði vaxið. Þessi þróun hefur þó orðið enn meiri tvö árin, sem síðan eru liðin, og sést á þessu, að það eru verðhækkanir innanlands eða verðbólgan innanlands, sem á meginþátt í því, hve mjög útflutningsuppbæturnar hafa vaxið, en eins og ég sýndi fram á og mun siðar víkja að, er það fyrst og fremst verðbólgustefna ríkisstj., sem á þátt í þessu.
Hin ástæðan, sem hæstv. ráðh. nefndi, var sú, að mjólkurafurðir eða framleiðsla á þeim hefði aukizt meira en á sauðfjárafurðum á undanförnum árum og það ætti sinn þátt í aukningu uppbótanna, vegna þess að það fengist tiltölulega minna verð fyrir mjólkurvörurnar en sauðfjárafurðirnar. Þetta er rétt hjá honum, en þetta stafar einnig af því, hvernig hæstv. ríkisstj. hefur hagað þessum málum. Meðan nær eingöngu voru fluttar út kjötvörur, reyndi hún að halda kjötverðinu sem mest niðrí og lét verðhækkanirnar innanlands aðallega koma fram á mjólkurvörunum með þeim afleiðingum, að framleiðsla þeirra jókst, en hin framleiðslan stóð í stað eða frekar dróst saman. Hæstv. ríkisstj. átti þannig meginþátt í þessari öfugþróun með stefnu sinni og getur sjálfri sér um þetta kennt, en ekki bændunum.
Ég ætla svo ekki að endurtaka það frekar, að það er rétt hjá hæstv. viðskmrh., að það stafar af þessum tveimur meginástæðum, hve óeðlilega mikið útflutningsuppbæturnar hafa vaxið á undanförnum árum.
Ég kem þá að því, sem er í raun og veru helzta deilumálið milli mín og hæstv. viðskmrh. Ég hef haldið því fram hér í þessum umr., að verðbólgan hafi aukizt meira tvö seinustu árin en nokkru sinni fyrr, og það eigi m.a. sinn þátt í þessari miklu hækkun á útflutningsuppbótunum, sem við höfum verið að ræða um. Hæstv. menntmrh. hefur hins vegar haldið því fram, að verðbólgan hafi í raun og veru aukizt minna tvö seinustu árin en áður fyrr. Um þetta atriði hefur deilan á milli okkar staðið. Ég nefndi í ræðu minni hér á dögunum til sönnunar um þetta þá hækkun, sem hefði orðið á vísitölu byggingarkostnaðarins, og ég taldi rétt að nefna hana í þessu sambandi, vegna þess að við vorum fyrst og fremst í samhandi við þetta mál að ræða um framleiðslukostnaðinn. Af hvaða ástæðu sem það er, hvort það er af kunnáttuleysi hæstv. menntmrh. eða einhverju öðru, virðist hann líta svo á, að framleiðslukostnaður og framfærslukostnaður sé eitt og hið sama, því að hann svaraði mér aðallega með því að vitna til útreikninga, sem nýlega höfðu birzt í því blaði, sem ég er ritstjóri að og snertu framfærsluvísitöluna.
Hæstv. ráðh. reyndi að hnekkja þeim niðurstöðum, sem ég hafði birt þar, með því að koma með allt aðra útreikninga. Þeir útreikningar, sem ég hafði birt í blaðinu, voru fólgnir í því að fylgja vísitölunni á tilteknu árabili miðað við ákveðinn grundvöll eða grundvöll fyrir eitt ár og bera síðan saman hækkun vísitölustigana á hverju ári og byggja samanburðinn um hækkunina á þennan hátt. Ég hygg, að því verði ekki á móti mælt, að þetta er réttur samanburður og það er ekki hægt að fá réttan samanburð með neinum öðrum hætti. Ef á að gera slíkan samanburð eins og þetta, verður að sjálfsögðu alltaf að miða við sama grundvöllinn, en ekki við mismunandi grundvelli, eins og hæstv. ráðh. gerði í sínum útreikningi. Og það verður til þess að gera útreikninginn réttan að taka alltaf sama magnið. Í hverju vísitölustigi felst að sjálfsögðu sama upphæðin, og þess vegna er ekki önnur leið réttari til þess að fá réttan samanburð en einmitt þessi. Hæstv. menntmrh. vildi hins vegar fara allt aðrar leiðir í þessum efnum með því að taka mismunandi niðurstöðu fyrir hvert ár og reikna út prósentur af því. En það mætti draga upp dálítið dæmi til að sýna muninn á þessum tveimur reikningsaðferðum og hvor væri réttari. Við skulum t.d. segja, að sá atburður gerðist, að tveir hv. alþm. tækju upp á því að hækka jafnmikið, t.d. um 10 cm. Við skulum segja, að þetta væru menn, sem eru dálítið mismunandi stórir eins og t.d. Davíð Ólafsson og hæstv. forsrh. Ef þeir lengdust báðir um 10 cm, mundi ég halda því fram, að þeir lengdust nokkurn veginn jafnt, cm væri cm, hvort heldur það væri hjá DÓ eða BBen. En nú kem ég að því einmitt, sem ég ætlaði að koma að. Hæstv. menntmrh. er að sjálfsögðu trúr herra sínum og húsbónda, og hann vill halda því fram, að Bjarni Benediktsson hafi hækkað meira en Davíð, og þá kemur hann með prósentuna, og það finnur hann sennilega út, að Bjarni Benediktsson hafi hækkað um 7% en Davíð hafi ekki hækkað nema um 5%, og með þessum útreikningi heldur hann því fram, að hækkunin hjá Bjarna hafi orðið miklu meiri, og það er með þessum hætti, sem hann finnur það út, að verðbólgan á síðari árum hafi verið minni en áður fyrr, með því að reikna út prósentur af mismunandi grundvelli. Ég held, að þetta dæmi sé alveg nægilega ljóst til að sýna mismuninn á minni reikningsaðferð og reikningsaðferð ráðh. og hún dragi alveg ljósa mynd af því, hvor okkar hafi réttara fyrir sér, þegar verið er að mæla það, hvað dýrtíðin hafi aukizt á undanförnum árum.
En ég ætla þá að koma aftur að þeim útreikningum, sem ég var með hér á dögunum og ég taldi fyrst og fremst sanna það, að verðbólgan og dýrtíð hefði aukizt miklu meira tvö seinustu árin en áður fyrr, og það byggði ég á vísitölu byggingarkostnaðarins, og það er nefnilega gott að nota hana, vegna þess að það gildir ein og sama vísitalan fyrir ákveðið tímabil, en ekki mismunandi vísitölur eins og í sambandi við framfærslukostnaðinn, og auk þess mun það flestra dómur, að vísitala byggingarkostnaðarins muni vera mun nær sanni en hin vísitalan með hvað það snertir að gefa rétta mynd af ástandinu.
Ég verð nú því miður að upplýsa það, að sá útreikningur, sem ég var með hér á dögunum, var ekki að öllu leyti réttur eða þ.e.a.s. hann var að vissu leyti úreltur. Þær tölur, sem við vorum með, voru á þá leið, að frá 1. okt. 1955 til 1. okt. 1963 hafi vísitala byggingarkostnaðar hækkað úr 100 stigum í 183 stig, eða hækkað um 83 stig á þessum 8 árum eða um 10 stig á ári til jafnaðar. Ég fór hins vegar með þær upplýsingar þá, að á þeim tveimur árum, sem síðan eru liðin, frá 1. okt. 1963 og til 1. okt. í ár, — sem er stjórnartímabil núv. ríkisstj. þ.e. rn. Bjarna Benediktssonar — hefði vísitala byggingarkostnaðar hækkað úr 183 stigum í 248 stig. Ég verð því miður að viðurkenna það, að þessar upplýsingar eru ekki alveg réttar, þ.e.a.s. þær eru orðnar úreltar. Ástæðan er sú, að Hagstofan hefur um seinustu mánaðamót reiknað nýja vísitölu byggingarkostnaðar eins og hún gerir árlega í hvert skipti í októberbyrjun, ef vísitalan er reiknuð út tvisvar á ári. Seinast var hún reiknuð út 1. júní, og ég miðaði mína tölu við það, en það hefur komið á daginn að þrátt fyrir það þó að hæstv. menntmrh. segi, að það sé engin verðbólga í landinu eða a.m.k. miklu minni verðbólga í landinu en áður hefur verið, gefur vísitala byggingarkostnaðarins annað til kynna, því að hún hefur á þessum 4 mánuðum hvorki meira né minna en hækkað um 19 stig, sem er algert met í þessum efnum. Byggingarkostnaður hefur samkv. þessum upplýsingum aldrei hækkað meira í landinu en á þessum 4 mánuðum síðan 1. júní s.l. eftir því sem útreikningar Hagstofunnar herma. Og í dag er því vísitala byggingarkostnaðar ekki 248 stig, eins og ég sagði hér fyrir nokkrum dögum, heldur 267 stig, eða hefur m.ö.o. hækkað um 84 stig síðan 1. okt. 1963 eða í valdatíð núv. ríkisstj. M.ö.o., til þess að menn fái nokkurn samanburð á þessum tveimur árum og undanförnum árum sést hann kannske einna ljósast af því, að á 8 árunum, frá 1955–1963, hækkar vísitala byggingarkostnaðar um 83 stig, hækkar um 83 stig á 8 árum, en á þeim tveimur árum, sem síðan eru liðin, valdatíð Bjarna Benediktssonar sem forsrh., hefur þessi sama vísitala hækkað um 84 stig eða 1 stigi meira en á 8 árunum á undan. Á átta árunum á undan hækkar hún um 10 stig til jafnaðar á ári, en á tveimur árunum seinustu hefur hún hækkað um rösklega 40 stig á ári, eða fjórum sinnum meira. Og nú skal ég gera það hæstv. menntmrh. til geðs, þó að ég álíti hans reikningsaðferð alls ekki rétta, eins og ég hélt hér fram áðan, að reyna að reikna þetta út í prósentum, hvað byggingarkostnaðurinn hefur vaxið mikið á þessum tveimur árum samkv. þeirri aðferð, sem hann viðhefur. Og mér skilst, að niðurstaðan væri þá sú, svo að hans reikningsaðferð sé höfð, að á árunum 1955–1963 hafi byggingarkostnaður hækkað til jafnaðar um 10% á ári, en á þeim tveimur árum, sem síðan eru liðin, hafi hækkunin numið 46%, eða 23% á ári. Ég held þess vegna, að það nægi ekki einu sinni fyrir hæstv. menntmrh. að hafa þessa reikningsaðferð, sem hann hefur haft, ef hann ætlar að sanna það, að verðbólgan og dýrtiðin hafi vaxið minna seinustu árin en á undanförnum árum. Meira að segja, þótt hann noti sína aðferð, kemur út sú niðurstaða, að vöxtur byggingarkostnaðar hefur orðið tvöfalt hraðari á þessu tímabili en áður var.
Þetta kemur áreiðanlega heldur engum á óvart, sem nokkkuð hefur fylgzt með þróuninni í landinu á undanförnum tveimur árum. Ég held, að það sé ekki hægt að finna þann atvinnurekanda, sem ekki viðurkennir það, að framleiðslukostnaðurinn hafi aldrei aukizt hraðar en á þessu tímabili. Og ég held, að það sé líka erfitt að finna þá launþega, sem ekki viðurkenna það, að dýrtíðin hafi aldrei aukizt hraðar en á þessum tímabilum. Í raun og veru þurfum við engar vísitölur til þess að finna þetta út, vegna þess að þetta eru staðreyndir, sem liggja hvarvetna fyrir og staðreyndir, sem menn finna hvarvetna fyrir. Það hefur aldrei verið annar eins verðbólguvöxtur og dýrtíðarvöxtur í þjóðfélaginu og á þessum tveimur árum síðan núv. ríkisstj. var mynduð undir forustu Bjarna Benediktssonar. Það eru staðreyndir, sem allir vita, svoleiðis að það er í raun og veru óþarft fyrir okkur hæstv. menntmrh. að vera nokkuð að þrátta um vísitölu í því sambandi, því að það vita allir, hver er sannleikurinn í þessum efnum. Menn gera sér alveg grein fyrir því, að ef við segjum t.d., að undanfarnar ríkisstj. hafi fengið ótemjur norðan úr Húnavatnssýslu eða Skagafirði til að þeysa á dýrtíðarreiðina, þá mætti til samanburðar segja það, að þeir hæstv. forsrh. og hæstv. viðskmrh. hefðu fengið sér strút til þess að þeysa reiðina á, en hann hleypur að sjálfsögðu miklu hraðar en nokkur íslenzkur hestur mundi geta gert. Og það er kannske líka sameiginlegt með reiðmönnunum og reiðskjótunum í þessum efnum, og það er nú kannske það athyglisverðasta, að þeir hafa báðir þann hæfileika að geta stungið höfðinu í sandinn og ekki séð þá hættu, sem er að nálgast, og ég held, að það sé af þeim ástæðum, sem þeir hæstv. forsrh. og hæstv. viðskmrh. virðast svo ákaflega rólegir, þó að verðbólgan og dýrtíðin sé alltaf að vaxa í höndum þeirra, og reyni að sannfæra sig um það, að þetta sé allt í bezta lagi og í raun og veru hafi verðbólgan og dýrtíðin aldrei vaxið minna en einmitt nú.
Mér finnst rétt að víkja nokkrum orðum að því, sem kom fram í sambandi við þessi mál hjá hæstv. landbrh. Hann virtist vilja halda því fram, að ég teldi það aðallega stafa af hækkun kaupgjaldsins, hve dýrtíðin og verðbólgan hefði vaxið mikið í landinu á undanförnum árum. Þetta er alveg rangt hjá hæstv. landbrh. Og ég vil í þessu sambandi árétta það, sem hæstv. forsrh. hefur hvað eftir annað sagt og er á þá leið, að verkalýðssamtökin hafi aldrei verið hófsamari í kröfum sínum en einmitt síðan hann var forsrh. og þess vegna hafi verið mjög auðvelt að ná sanngjörnum samningum við þau. En ég held því ekki heldur fram, að það sé því verði að kenna, sem bændurnir hafa fengið, hve mjög verðbólgan og dýrtíðin hafa vaxið á undanförnum árum. Ég held því fram, að þetta liggi fyrst og fremst í rangri stjórnarstefnu, stjórnarstefnu, sem er röng á flestum eða mjög mörgum sviðum, og því til viðbótar sé þetta fólgið í algerlega duglausri ríkisstj., ríkisstj., sem sé búin að gefast upp við það að stjórna og láti þessi mál sem mest afskiptalaus og hugsi aðeins um það eitt að hanga í stólunum. Ég álít, að verðbólgan stafi að mjög miklu leyti af því, að ríkisstj. hefur alveg gefizt upp við það að hafa nokkurt taumhald á fjárfestingunni. Ég álít, að verðbólgan stafi ekki að litlu leyti af þeirri skattastefnu, sem hæstv. ríkisstj. hefur fylgt, þeirri ofsköttunarstefnu, sem hún hefur fylgt. T.d. á þeim tveimur árum, sem hafa liðið síðan ríkisstj. Bjarna Benediktssonar var mynduð, hefur söluskatturinn verið hækkaður um 150%, og það eitt gefur sennilega um 600 millj. kr. meira í ríkissjóðinn en hann áður fékk, auk þess sem fjöldamargir aðrir skattar hafa verið hækkaðir og álögur. Þetta hefur að sjálfsögðu sín áhrif á dýrtíðina og verðlagiði landinu og síðan á framfærslukostnaðinn. Ég álít enn fremur, að sú vaxtapólitík, sem ríkisstj. hefur fylgt, eigi mikinn þátt í verðbólgunni og dýrtíðinni. Ég álít á sama hátt, að sá lánsfjárskortur, sem ríkisstj. heldur uppi, eigi mikinn þátt í því, hvernig farið hefur í þessum málum, og þannig mætti rekja áfram fjölmargar aðrar ástæður. Það má líka í þessu sambandi benda á það, að þó að verulegur vandi hafi skapazt í sambandi við útflutningsuppbætur á landbúnaðarvörum af þessum ástæðum, hefur ekki síður vandi sagt til sín á mörgum sviðum öðrum. Ég veit ekki betur en hæstv. ríkisstj. sé nú í þann veginn að skipa sérstaka nefnd til að athuga rekstrarafkomu vélbáta, sem eru innan við 100 eða 120 smál., vegna þess að þrátt fyrir hin beztu aflabrögð og þrátt fyrir hærra útflutningsverð á sjávarafurðum en nokkru sinni fyrr, er svo komið, að þessi stóri hluti bátaflotans ber sig ekki eða ber sig a.m.k. mjög illa og sumum þessara báta hefur orðið að leggja af þeirri ástæðu. Þetta er ástand, sem ég held, að öllum mönnum í nálægum löndum hljóti að þykja ótrúlegt. Og ég held, að fátt hafi vakið öllu meiri furðu á Íslandi á undanförnum árum, þegar Surtsey er undanskilin, heldur en sú stórfellda hækkun á byggingarkostnaði Norræna hússins, sem norræn blöð hafa hvað eftir annað verið að segja frá. Þeir hafa þar úti á Norðurlöndum ætlað að hjálpa okkur að byggja þetta hús og verið að gera um það nýjar og nýjar áætlanir, og alitaf á að hækka framlögin til okkar. En það dugir aldrei neitt, vegna þess að verðbólgan hér heima heldur svo hratt áfram að þeysa áfram, þeir ríða svo hart á strútnum, forsrh. og viðskmrh., að þeir úti í Noregi, sem hafa þessa útreikninga með höndum, hafa ekki við að hækka áætlanirnar um Norræna húsið. Og núna á þjóðþingunum, sem voru að koma saman þar fyrir nokkrum dögum eins og hér, verður það eitt af málunum, sem þar liggur fyrir, að koma með till. um að hækka framlögin, sem Íslendingar eiga að fá í Norræna húsið vegna hins meinta verðbólguvaxtar, sem hér hefur orðið.
Það er kannske einna gleggsta dæmið um þann mikla verðbólguvöxt, sem hefur orðið í tíð núv. ríkisstj. tvö síðustu árin, að í fjárlfrv., sem lagt er fram á þessu þingi fyrir 1966, er gert ráð fyrir um það bil helmingi hærri álögum en var gert ráð fyrir í fjárlfrv. fyrir árið 1963. Þannig hefur hæstv. ríkisstj. með verðbólgu sinni tekizt að tvöfalda ríkisálögin á þremur árum á sama tíma og hún hefur svo raunverulega lækkað framlögin til verklegra framkvæmda. Þetta gefur kannske einna gleggst til kynna þá gífurlegu verðbólguþróun, sem hefur orðið í landinu á undanförnum árum. Ég held þess vegna, að það sé alveg vonlaust verk fyrir hæstv. menntmrh. að ætla að reyna að halda því fram, að dýrtíðin og verðbólgan hafi vaxið minna á tveimur undanförnum árum en hún hefur áður gert. Það þarf raunar enga vísitölu til þess að sanna hið gagnstæða, vegna þess að fólkið í landinu veit hið gagnstæða, það veit hið rétta í þessum efnum, og það finnur það sjálft á pyngjum sínum, hver þróunin hefur verið í efnahagsmálum og hvernig verðbólgan og dýrtíðin hafa vaxið gífurlegar á undanförnum tveimur árum en nokkru sinni fyrr.
Og það, sem ég vildi þess vegna að lokum segja við hæstv. ríkisstj., er, að hún á að hafa kjark til þess að hætta að vera á strútnum, hún á að hafa kjark til þess að hætta að stinga höfðinu í sandinn eins og strúturinn. Hún á að gera sér grein fyrir þeim erfiðleikum, þeim háska, sem er fram undan í þessum efnum, ef ekkert verður að gert. Ef hæstv. ríkisstj. gerir þetta ekki, hefur hún skilyrðislaust engan annan góðan kost en að segja af sér.