08.11.1965
Neðri deild: 12. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2134 í B-deild Alþingistíðinda. (1362)

26. mál, verðlagning landbúnaðarvara

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Mig langar til þess að beina einni mjög einfaldri og örstuttri fsp. til hv. síðasta ræðumanns, hv. 3. þm. Vestf. (SE), og duga til þess fáein orð. Ég heyrði að vísu ekki alla ræðu hans, en ég heyrði því miður, nóg af henni, til þess að það væri mér og ábyggilega öllum öðrum ljóst, að ræða hans var engan veginn samboðin Alþingi Íslendinga og ekki sú reikningslist eða sá skilningur á einföldustu grundvallaratriðum í talnafræði, sem í ræðunni kom fram.

Ég benti á það, — ég held, að það hafi verið sl. fimmtudag, — að það væri að sjálfsögðu algerlega fráleitt að meta dýrtíðaraukningu á tveimur tímabilum með alllöngu árabili upp á þann einfalda, ég vildi segja ótrúlega barnalega máta að telja þau vísitölustig, sem vísitalan hefur hækkað um á hvoru tímabilinu um sig. Þetta var þá sagt að gefnu tilefni hjá hv. 5. þm. Reykv. (ÞÞ). Ég sé það á hans ágæta blaði s.l. sunnudag, að hann virðist hafa skilið þetta, hversu fjarstæðukenndur slíkur málflutningur er, því að þessari aðferð beitir hann ekki lengur á sunnudaginn, heldur notar þá aðferð, sem ég sagði, að ein kæmi til greina, vildi maður meta dýrtíðaraukningu á tveimur ólíkum tímabilum, að athuga, hversu mikið hlutfallslega vísitalan hefði hækkað á tímabilunum tveimur. Hins vegar virðist hv. þm. Sigurvin Einarsson ekki hafa skilið þetta enn, eða önnur ályktun verður ekki dregin af ræðu þeirri, sem hann flutti hér áðan. Ég held, að ég hafi tekið þannig til orða í nokkrum orðum, sem ég sagði á fimmtudaginn var, að hversu fráleit sú aðferð væri að telja aukningu vísitölustiganna á tveimur tímabilum, kæmi bezt fram í því, ef við gerðum ráð fyrir því, að fyrir einum áratug hafi vísitalan verið 100 og hækkað um 10 stig, þ.e.a.s. 10 af hundraði. Ef svo eftir áratug væri vísitalan orðin 1000 og hækkaði líka um 10 stig, þ.e.a.s. um 1%, virtust þessir spekingar telja, að vísitalan hefði hækkað nákvæmlega jafnmikið, 10 stig á báðum tímabilunum eða báðum árunum, og fyrst 10 stig væru 10 stig, hlyti dýrtíðaraukningin, að vera nákvæmlega sú sama, hún væri 10 stig, hún væri sú sama. En nú vildi ég beina þeirri fsp. til hv. 3. þm. Vestf., þessari einföldu og ég vona alveg skýru fsp.: Ef 10 stig eru alltaf jafnmikil dýrtíðaraukning, hver svo sem vísitölugrundvöllurinn er, vill hann þá draga þá ályktun af því að láta dýrtíðaruppbót, láta kaupuppbót, sem fylgir vísitölunni, vera hina sömu fyrir 10 stig, hver svo sem grundvöllurinn er? Ef 10 stig fyrir 10 árum, þegar grundvöllurinn var 100, ef hann hefði þá þýtt 10 kr. kauphækkun í dýrtíðaruppbót, vill hann þá líka, eftir að vísitalan er orðin 1000 og hefur fylgt vísitölunni, vill hann þá líka láta dýrtíðaruppbótina vera 10 kr. eins og var fyrir 10 árum? Er hægt að draga aðra rökrétta ályktun af skoðunum þm., fyrst hann telur 10 stiga vísitöluhækkun alltaf vera jafnmikla dýrtíðaraukningu, að þá eigi kauphækkunin, sem fylgir í kjölfar 10 stiganna, alltaf að vera sama krónutalan? M.ö.o., ef 10 stig hafa gefið 10 kr. dýrtíðaruppbót, kauphækkun, fyrir 10 árum, eiga þá ekki 10 stig núna eða á seinna tímabili, þó að vísitalan sé orðin 1000, líka að gefa 10 kr.? Og ég gæti gert fsp. enn þá einfaldari og enn þá skýrari: Mundi hv. þm. telja 10 kr. kauphækkun fyrir 10 árum, þegar vísitalan er 100, vera jafngóða fyrir launþega og 10 kr. kauphækkun, eftir að vísitalan er orðin 1000? Svari nú hv. þm.