06.12.1965
Neðri deild: 25. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2160 í B-deild Alþingistíðinda. (1382)

26. mál, verðlagning landbúnaðarvara

Frsm. meiri hl. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Vegna þess að það eru hér æ ofan í æ hafðar uppi fullyrðingar um það, að með brbl. þessum hafi verið tekinn samningsréttur af bændum, með brbl. s.l. hausti sé ég mig eiginlega knúinn til þess að fara um þetta nokkrum orðum frekar. Ég þóttist nú gera nokkuð grein fyrir því í þeim fáu orðum, sem ég sagði við framsögu nál. hér, að þetta væri hinn mesti misskilningur. En ég vil nú með leyfi hæstv. forseta lesa hér upp stuttan kafla úr yfirlýsingu frá stjórn Stéttarsambands bænda, sem hún gaf út 14. sept. 1965, en þar segir svo:

„Stjórnin (þ.e. stjórn Stéttarsambandsins) vill minna á, að bændastéttin var um langt árabil eina stétt þjóðarinnar, sem sætti sig við gerðardóm eða úrskurð yfirnefndar um kjör sín í hvert sinn, sem ekki náðust samningar í 6 manna nefnd.“ Einmitt þannig stóð á s.l. haust, eða það gilti alveg það sama, þegar 6 manna n. varð óstarfhæf, — þessu skýt ég hér inn í. „Stéttarsambandið og Framleiðsluráð landbúnaðarins var enn reiðubúið að láta afurðaverðið ganga til úrskurðar í yfirnefnd, ef hún yrði gerð virk með brbl. Ósk um það var borin fram við landbrh. með bréfi, dags. 31. ágúst s.l. Í viðræðum, sem fram fóru milli landbrh. og stjórnar Stéttarsambandsins, lýsti hann sig fúsan til að leysa málið með þessum hætti, ef hægt væri að skipa yfirnefndina sömu mönnum og 1963. Leið nokkuð á aðra viku, og hafði stjórnin ríka ástæðu til þess að ætla, að þessi leið til lausnar málsins yrði valin, þ.e. með því að gera yfirnefndina frá 1963 virka til þess að ákveða verðið.“

Ég verð að segja það, að það er með engu móti hægt að halda því fram, að með þeirri lausn hafi bændur eftir sem áður haft samningsrétt. Þeir hafa hingað til alltaf haldið því fram, eins og kemur fram einmitt í upphafi þessa, sem ég las, að þeir hafi alltaf verið reiðubúnir að sætta sig við úrskurð yfirnefndar, ef samningaleiðin var ekki fær. Það er viðurkennt, að hún var ekki fær s.l. haust, og þá var ekki heldur annað fyrir hendi en einhvers konar úrskurður, og stjórn Stéttarsambandsins var búin að samþykkja vissa aðferð við þennan úrskurð. Það náðist ekki að fara þá leið, en eftir sem áður hlaut úrskurður að falla um verðið, eins og líka var gert samkv. brbl. Það er þess vegna alveg furðulegt að heyra því haldið fram hvað eftir annað, æ ofan í æ, að samningsréttur hafi verið tekinn af bændum með brbl. s.l. haust. Hvaða samningsrétt áttu þeir, hvaða möguleika áttu þeir til samninga, eftir að 6 manna n. var orðin óvirk? Það væri ástæða til þess að spyrja um svar við þessu. Þess vegna sagði ég áðan, að það væru í raun og veru mjög óskynsamlegar allar umr. og deilur um þetta mál. Ég segi það enn.