14.12.1965
Neðri deild: 30. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í B-deild Alþingistíðinda. (143)
6. mál, Húsnæðismálastofnun ríksisins
Frsm. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Frv. þetta um breyt. á l. nr. 19 frá 10. maí 1965, um húsnæðismálastofnun ríkisins, er flutt í samræmi við yfirlýsingu þá, sem ríkisstj. gaf á liðnu sumri í sambandi við lausn á samningum verkalýðsfélaga og atvinnurekenda um kaup og kjaramál.
1. gr. frv. felur í sér, að ríkisstj. er heimilað að láta byggja hagkvæmar, ódýrar íbúðir í fjölbýlishúsum í samvinnu við hlutaðeigandi sveitarfélög.
Um 2. gr. frv. er það að segja, að í hinu svonefnda júnísamkomulagi á árinu 1964 var ákveðið, að ríkissjóður skuli árlega leggja byggingarsjóði ríkisins eða húsnæðismálastjórn til 40 millj. kr., sem aflað væri með skatti á fasteignir eða á annan hátt. Í framhaldi þessarar yfirlýsingar var sú ákvörðun tekin, að þessu framlagi úr ríkissjóði, að fjárhæð 40 millj. kr., skuli varið til húsnæðismálastofnunarinnar, og til þess að mæta þessum útgjöldum skal miða eignarskatt við gildandi fasteignamat þrefaldað, eins og segir í 4. gr. l. um húsnæðismálastofnun ríkisins frá 10. maí 1965. Í ljós hefur komið, að með þreföldu fasteignamati kemur þessi skattur til með að gera í tekjur aðeins 16–19 millj. kr., og vantar því 21–24 millj. kr. til þess að ná því framlagi, sem upprunalega var ákveðið, og er því í frv. lagt til, að í stað þrefaldaðs fasteignamats komi sexfaldað, og er með því talið, að þá verði þessar tekjur um 40 millj. kr.
3. gr. frv. er um það, að lánsfjárhæð til íbúða að upphæð 280 þús. kr. er miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar 1. júlí 1964 og skal framvegis hækka eða lækka, eftir því sem vísitalan kann að breytast. Samkv. þessu verður vísitöluákvæði reiknað á hverja árgreiðslu lántakanda, og það má segja, að eðlilegt sé, að vísitölureikningur sé tekinn upp í sambandi við þessi lán, þar sem á ný hefur verið tekinn upp vísitölureikningur á allar launagreiðslur. Enn fremur mætti ætla, að ef verðhækkanir ættu sér stað hefði ráðstöfunarfé byggingarsjóðs orðið sífellt minna, þar sem árlegar tekjur sjóðsins, eins og skyldusparnaðurinn, sem hækkaði á s.l. ári úr 6% í 15% eru verðtryggðar. Þá er það ákvæði, að láglaunafólk í verkalýðsfélögunum skuli hafa forkaupsrétt að íbúðum þeim, sem byggðar verða samkv. 1. gr. þessa frv., og jafnframt skuli veita þessu fólki lán, sem nemur allt að 80% af verðmæti íbúðanna.
Í 4. gr. frv. eru nánari ákvæði um lán, sem veitt eru meðlimum verkalýðsfélaganna, svo sem að lánstíminn sé 33 ár og lánin afborgunarlaus fyrstu 3 árin.
Í þau 10 ár, sem húsnæðismálastofnunin hefur starfað, hafa lán til íbúða tekið miklum breytingum. Fyrst var lánað almennt 70 þús. kr. á íbúð, síðan voru lánin hækkuð í 100 þús. kr., og eftir 1. ágúst 1961 voru þau hækkuð í 150 þús. kr. og giltu þau hámarkslán til íbúða, sem byrjað var á fram til 1. apríl 1964, en þá voru hámarkslán hækkuð í 200 þús. kr. En frá síðustu áramótum er hámarkslánið komið í 280 þús. kr. Í ákvæðum til bráðabirgða í þessu frv. segir, að næstu 5 árin skuli lánsfjárhæðir samkv. 7. gr., 280 þús. kr., hækka um eigi lægri fjárhæð á ári hverju en 15 þús. kr., þó að vísitala byggingarkostnaðar valdi ekki svo mikilli hækkun lánsfjárhæðarinnar, og jafnframt, að þeir, sem hófu byggingarframkvæmdir á tímabilinu frá 1. apríl til 31. sept. 1964, skuli eiga kost á viðbótarláni hjá húsnæðismálastofnun ríkisins, sem nemur 50 þús. kr. Það verður ekki annað sagt en lánsfjárupphæðir og öll lánskjör lána húsnæðismálastofnunarinnar hafi tekið miklum breytingum til þess betra fyrir þá, sem eru að byggja og koma sér upp íbúðarhúsnæði.
Heilbr.- og félmn. hefur rætt þetta frv. á tveimur fundum og er sammála um að mæla með því, að það verði samþ., en 3 nm., Hannibal Valdimarsson, Jón Skaftason og Ágúst Þorvaldsson, áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt., sem þeir hafa þegar flutt og munu að sjálfsögðu skýra, en allir nm. lýstu yfir samþykki sínu við frv., en gerðu þessar tilteknu aths., sem fram koma í þeirra brtt.
Persónulega hefði ég gjarnan viljað flytja brtt. við þetta frv. eða sérstaklega við l. um húsnæðismálastofnunina frá síðasta þingi, en þar segir, að húsnæðismálastjórn geti enn fremur veitt sveitarfélögum og Öryrkjabandalagi Íslands lán til byggingar leiguhúsnæðis í kaupstöðum og kauptúnum. Það kemur á daginn, að í hinum smærri sveitarfélögum hafa þau ekki forustu um það að byggja leiguhúsnæði, og hefði verið mjög eðlilegt, að það væru byggingarfélög, t.d. atvinnufyrirtæki á þeim stöðum. En ég vil ekki tefja fyrir þessu máli, af því að það er komið svo nærri þinghléi og það þyrfti þá að fara aftur til Ed., en vil mjög mælast til þess við hæstv. félmrh., að við næstu endurskoðun þessara l. yrði tekið meira tillit til þessara sjónarmiða gagnvart hinum smærri sveitarfélögum og atvinnufyrirtækjum á þeim stöðum, þar sem annar hvor aðilinn getur ekki ráðizt í slíkar byggingar, heldur þurfi í þessu tilfelli að hafa samvinnu og samstarf milli þessara aðila.
Ég ætla svo ekki að fjölyrða frekar um þetta mál. en legg til, að því verði vísað til 3. umr. að lokinni þessari umr.