18.04.1966
Efri deild: 65. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2217 í B-deild Alþingistíðinda. (1449)

186. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Eins og kunnugt er rofnaði samstarf í Sexmannanefnd á s.l. hausti. Alþýðusambandið neitaði að tilnefna í n., og varð n. óstarfhæf. Afleiðingin af því varð sú, að ekki var unnt að verðleggja búvöru á s.l. hausti með eðlilegum hætti og varð ríkisstj. því að grípa til þess ráðs að gefa út brbl., til þess að verðlag fengist á búvöruna eins og nauðsyn bar til að gæti orðið. Þá sögu þarf ekki að rekja nánar.

Fyrir þessari hv. d. liggur frv. til staðfestingar á þessum brbl., sem væntanlega verður rætt um áður en langt um líður. Ríkisstj. lýsti því þegar yfir, að það væri hennar vilji að endurreisa þetta samstarf, ef mögulegt væri, og þess vegna var það, að skipuð var nefnd sjö manna til þess að gera tilraunir til að ná þessu samkomulagi aftur og skapa grundvöll undir samstarfi, sem gæti orðið til frambúðar. Form. þessarar n. var Ólafur Björnsson prófessor, og hef ég heyrt alla hina nm. sex fara lofsorði um það, að hv. þm. Ólafur Björnsson hafi veitt n. sérstaklega góða forustu. Af hálfu bænda var í n. Einar Ólafsson, bóndi í Lækjarhvammi, Vilhjálmur Hjálmarsson bóndi og Gunnar Guðbjörnsson, form. Stéttarsambands bænda. Af hálfu neytenda voru í n. frá Alþýðusambandi Íslands Hannibal Valdimarsson, frá Sjómannafélagi Reykjavíkur Sæmundur Ólafsson og frá Landssambandi iðnaðarmanna Karl Guðmundsson.

N. vann mikið starf og hélt marga fundi, og aflaði hún sér margs konar gagna um dreifingarkostnað og annað, sem n. þurfti að hafa í höndum til þess að geta skapað sér heilbrigða og rétta skoðun á því máli, sem hún var að vinna við.

Helgi Ólafsson hagfræðingur var ráðinn til aðstoðar n. og til þess að afla ýmiss konar gagna. Samdi hann skýrslu, sem sýnir dreifingarkostnað á mjólk og mjólkurvörum og staðfestir það, sem sagt hefur verið áður, að dreifingarkostnaður á mjólk eða mjólkurvörum er sízt hærri hér heldur en gerist í öðrum löndum og lægri heldur en víða annars staðar.

Út af fyrir sig var nauðsynlegt að fá þetta staðfest, vegna þess að hugmyndir manna hafa verið allmisjafnar í því efni. Hitt má svo segja, að gagnasöfnun á slíkum málum sé seint að fullu lokið. Það er vitanlega æðimikið starf, ef það á að ná því takmarki, að það sé alveg fullkomið, og ég get alveg viðurkennt það, sem kemur fram í séráliti eins nm., að það hefði verið æskilegt að hafa lengri tíma til slíks.

N: varð ekki sammála, þessir sjö menn. Hannibal Valdimarsson skilaði séráliti, sem er prentað hér á þessu þskj., og hv. alþm. hafa að sjálfsögðu lesið það og kynnt sér. Hannibal Valdimarss. leggur til — ég vil ekki gera hans mál sérstaklega að umtalsefni hér að svo stöddu, mér gefst kannske tími til þess og tækifæri síðar — en niðurstöður hans eru þær, að komið verði á fót kjararannsóknarstofnun landbúnaðarins, sem skipuð sé tveimur fulltrúum Stéttarsambands bænda og tveimur, er ríkisstj. tilnefnir. Bændum skulu með lögum tryggðar lágmarkstekjur, er eigi séu lægri en meðaltekjur opinberra starfsmanna. Stéttarsamband bænda fái með lögum viðurkenndan óskoraðan samningsrétt f. h. bænda um afurðaverð og launakjör. Takist samningar ekki, skal stjórn Stéttarsambands bænda leggja tillögur sínar um verð á framleiðslueiningu fyrir alla bændur, og skoðast till. samþ., fái hún 75% greiddra atkvæða, enda taki a.m.k. 50% atkvæðisbærra bænda þátt í atkvgr. — Þetta eru niðurstöðurnar í áliti Hannibals Valdimarssonar. Meiri hl. n. leizt ekki á þetta og gat þess vegna ekki orðið samferða Hannibal, en það má vera, að ýmislegt sé nú athyglisvert í þessu áliti, þótt ekki þyki fært eða skynsamlegt að samþykkja það. Og það er að öðru leyti dálítið erfitt líka að átta sig á því, hvað meint er, t.d. þegar talað er um, að bændum séu með lögum tryggðar lágmarkstekjur, sem miðist við meðaltekjur opinberra starfsmanna. Þá er spurningin þetta: Er miðað við heildartekjur opinberra starfsmanna og bænda eða er miðað við vinnutíma? Það kemur ekki fram, en það er nú ekki ástæða til að ræða þetta atriði nánar að svo stöddu. Það gefst sennilega tími til þess og tækifæri á öðru stigi.

Sæmundur Ólafsson, fulltrúi Sjómannafélagsins í n., varð ekki sammála meiri hl. að öllu leyti og gerði tvær aths., aðra við 4. gr. framleiðsluráðslaganna og hina við 12. gr. þeirra. Seinna varð samkomulag milli Sæmundar Ólafssonar og meiri hl. n. um 4. gr. framleiðsluráðslaganna, og er hún shlj. 5. gr. frv.

Það eru þess vegna sex menn af sjö, sem hafa orðið sammála um að flytja frv. í því formi, sem það nú er, og það er samstaða um það í ríkisstj. að flytja frv. eins og það nú er.

Um 12. gr. I. hefur þess vegna ekki komið til ágreinings frekar, þar sem ekkert er um hana í frv., en 12. gr. framleiðsluráðslaganna er um útflutningsbætur. Og það hefur nú svo oft verið talað um útflutningsbæturnar, að hv. dm. eru kunnugir því, að eins og 12. gr. framleiðsluráðslaganna segir, þá er heimilt að greiða útflutningsbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir, sem nemur allt að 10% af heildarframleiðslu landbúnaðarvara.

Nú hefur það verið athugað, að eigi bændur að fá sams konar tekjur og aðrar vinnandi stéttir- og það eru eiginlega allir sammála um, þó að ekki sé vitað, hvað Hannibal Valdimarsson á við, þegar hann miðar við meðaltekjur opinberra starfsmanna, en ég hef ekki talað við neinn mann, sem ekki er samþykkur því, að bændur beri svipað úr býtum og aðrar vinnandi stéttir og útflutningsuppbæturnar væru lagðar niður, þá yrðu bændur að ná því tapi með öðru móti, og það væri ekki unnt með öðru móti heldur en þá að hækka afurðirnar á innlendum markaði. Að vísu má segja, að þa8 sé vafamál, að það næðist með því nema þá að hækka t.d. mjólkina, sem er brýnasta nauðsynjavaran, enn þá meir. En það hefur verið reiknað út, hvað vísitalan hækkaði, ef útflutningsuppbæturnar væru felldar niður og bændur bættu sér tjónið með því að hækka afurðirnar. Þá mundi búvöruverð hækka um 24,6%, ef gert er ráð fyrir, að bændur nái þeim tekjum, sem núv. verðlagsgrundvöllur gerir ráð fyrir, en ef þeim væri bætt það að því leyti, sem talið er að útflutningsb. nái nú, mundi búvöruverðið hækka um 18% og vísitalan um 9 eða 5%, en væri það bætt að fullu, yrði vísitöluhækkunin 12–13 stig eða 6%. En eins og ég segi þá held ég, að það sé ekki einhlítt að reikna dæmið svona, því ef bændur ætluðu að ná upp tapinu, þá yrði að hækka enn þá meira þær vörur, sem vitað er að hlytu að seljast og eru viðkvæmastar. Af þessu leiddi það vitanlega, að launþegar mundu ekki sætta sig við annað heldur en að fá þetta bætt, og það, sem ríkissjóður greiðir nú í útflutningsuppbætur, mundi þá fara í launahækkanir til opinberra starfsmanna vegna þeirra hækkana, sem yrðu á vísitölunni við að fella þær niður.

Ég held, að þegar þessi mál eru athuguð ofan í kj í nn, þó að það þyki mikið nú að borga allt að 220 millj. kr. á ári í útflutningsuppbætur, þá sé það nú ekki sú upphæð, sem veltir efnahagskerfinu. Þetta eru þó ekki nema 4–5% af fjárlagaupphæðinni, og þessar uppbætur eru til þess að tryggja það, að nóg af landbúnaðarvörum sé í landinu og að verðið verði þá ekki hærra heldur en nauðsyn ber til.

Ég held, að það sé ekki nauðsynlegt að fara mikið meira út í till. Hannibals. En ef bændur verðlegðu vöruna sjálfir eins og komið hefur fram eða semdu við ríkisstj. eins og sumum hefur dottið í hug, þá sýnist það vera eitt af því, sem ekki er eðlilegt. Meiri hl. sjö manna nefndar kemst að þeirri niðurstöðu og segir hér á bls. 9: „Ríkisstj. er ekki aðili að þeim viðskiptum, sem hér er um að ræða, (þ.e. verðlagningunni), heldur framleiðendur og neytendur búvöru. Þar sem hlutverk ríkisstj. er auðvitað jöfnum höndum að gæta hagsmuna neytenda og framleiðenda, getur hún að okkar áliti ekki verið fulltrúi annars þessa aðila gagnvart hinum.“ Þetta er vitanlega alveg rétt. Ríkisstj. á ekki að vera fulltrúi annars aðilans, heldur á ríkisstj. að hugsa jafnmikið um báða þessa aðila, framleiðendur og neytendur, og reyna eftir föngum að tryggja hagsmuni beggja.

„Erfitt yrði að okkar áliti“, segir meiri hl. sjö manna nefndar, „að tryggja það með löggjöf, að samningsaðstaða bænda gæti orðið svipuð því sem nú er, þar sem við svo öfluga samningsaðila er að etja sem ríkisvaldið. Löggjöf sú, er tryggja ætti bændum slíka samningsaðstöðu, væri sett af ríkisvaldinu, framkvæmd af því og það hefði í hendi sér að breyta henni. Er því að okkar áliti hætt við, að allar ráðstafanir, sem í slíku efni ætti að gera, yrðu óraunhæfar.“ Ég er alveg samþykkur þessu, sem meiri hl. sjö manna n. segir. „Þá getum við ekki látið hjá líða að benda á þá hættu, að miklu meiri ófriður yrði um búvöruverðið en nú er, ef semja ætti um það milli ríkisstj. og bænda. Með aðild ríkisstj. að verðlagningunni væri hún dregin inn í almenn stjórnmálaátök, en slíkt teljum við hvorki bændum né neytendum í hag.“ Þetta held ég að sé alveg rétt líka. N, er þó sem fyrr segir sammála um það, að nauðsyn beri til að bæta verulega þann upplýsingagrundvöll, sem verðlagningin byggist á, og í því augnamiði er gert ráð fyrir að breyta 8. gr. framleiðsluráðslaganna.

Það verður að fagna því, að meiri hl. sjö manna n., þ.e. 6 menn af 7, hafa orðið sammála um að koma aftur á samstarfi milli framleiðenda og neytenda um búvöruverð. Það er enginn vafi á því, að það er farsælla að slíkt samstarf eigi sér stað og samvinna heldur en að verið sé að togast á með ófriði eins og annars hlyti að verða, og það má benda á, að á þeim 19 árum, sem liðin eru, síðan framleiðsluráðslögin voru sett, hefur oftast orðið samkomulag. Það hefur þó einum fimm sinnum, að ég ætla, komið til úrskurðar, en langoftast hefur orðið samkomulag um búvöruverðið, og það hafa aldrei orðið mörg ár í röð, sem ekki hefur orðið samkomulag, þannig að þó að slitnað hafi upp úr, hefur orðið samkomulag á næsta ári. Þetta er vitanlega mikið atriði, sem hlýtur að leiða til þess, að það verður meiri friður um þessi mál heldur en annars gæti orðið. Ef þetta frv. verður að l., verður Sexmannanefnd skipuð á ný og tekur til starfa, og það fyrsta, sem hún gerir, hlýtur að vera það að gera ráðstafanir til að afla þeirra gagna, sem gert er ráð fyrir í 12. gr. frv. Þær breytingar, sem meiri hl. leggur til, að gerðar verði á framleiðsluráðsl. eru þá í aðalatriðum þessar:

A-liður 3. gr. frv. fjallar um 2. gr. I. Þar segir, að framleiðsluráði heimilist að ákveða mismunandi hátt útborgunarverð til framleiðenda eftir árstímum og innheimta verðjöfnunargjald af innveginni mjólk. Þetta er nýtt, framleiðsluráðið hefur ekki ákveðið mismunandi útborgun og greiðslur eftir árstímum nema að sáralitlu leyti, aðeins stöku sinnum lítið eitt hærri á haustmjólkina, en það hefur ekki haft heimild til að innheimta verðmiðlunargjald af innveginni mjólk, heldur aðeins af seldri mjólk. Með því að innheimta verðmiðlunargjald af innveginni mjólk, fær framleiðsluráð meira svigrúm. Aftur á móti er heimilt samkv. framleiðsluráðsl. að taka verðmiðlunargjald af innvegnu kjöti. Þá er það b-liður 3. gr., að ráðstafa því fé, sem fást kann í verðjöfnunarsjóð samkv. a- og b-lið, til verðuppbóta á þær vörur, sem framleiðsluráð telur þörf á, svo sem til útflutningsuppbóta til viðbótar því fé, sem greitt er úr ríkissjóði samkv. 12. gr. Gjöld þau, sem um ræðir samkv. a- og b-lið, hafa ekki áhrif á útsöluverð landbúnaðarvara til neytenda.

Þá er það 5. gr. frv. Það er breyt. við 4. gr. l., þá sem Sæmundur Ólafsson gerði sérálit um í upphafi, en síðar varð samkomulag um á milli 6 nm. að hún skyldi orðuð eins og nú er: Það er, að í verðlagsgrundvelli skal, sbr. ákvæði 6. gr., tilfæra ársvinnutíma bóndans, skylduliðs hans og hjúa á búi af þeirri stærð, sem miðað er við hverju sinni, og virða vinnutímann til samræmis við kaupgjald verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna, eins og það er við upphaf hvers verðlagstímabils. Eigi skal þó taka til viðmiðunar ákvæðisvinnu verkamanna og iðnaðarmanna eða aflahlut sjómanna. Til kaupgjalds teljast hvers konar samningsbundin hlunnindi. Með því að orða greinina eins og nú er gert, er allmiklu breytt frá því, sem er í I. Í I. er gert ráð fyrir að miða við heildartekjur verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna, þ. á m. aflahlut og ákvæðisvinnu. Hér er hins vegar miðað við vinnutímakaupið og vinnutímastundirnar og það hefur stundum verið talað um það, að óeðlilegt væri, að mikil síldveiði gæti haft áhrif á afurðaverðið. Lítil síldveiði hefur þá vitanlega líka áhrif á afurðaverðið og ég held, að bændur hafi séð það, að það sé ekki víst, að það sé alltaf hagur fyrir þá að miða við aflahlut sjómanna, og ég held, að bændur séu það sanngjarnir, að þeir telji eðlilegt, að þeir fái tilfærða með verðgrundvellinum þá vinnu, sem þeir leggja fram og sem sanngjarnt er, að þeir leggi fram við meðalbúið. Það væri þess vegna eðlilegt að finna það nákvæmlega út, hve margar vinnustundir þarf á ári á hverja kú, hverja á eða hverja skepnu í búinu. Það þarf vilanlega að finna meðalbúið, hve margar kýr eru í meðalbúinu, hve margar ær, hve mörg hross o.s.frv. Og þegar búið er að því, þarf að tilfæra og finna út, hve margar vinnustundir þarf við búið. Í verðgrundvellinum minnir mig, að sé nú 24 þús. kr. fyrir aðkeypta vinnu. Bændur segja, að þetta sé of lítið. Ég ætla ekkert að fullyrða um það núna, og ég ætla því síður að segja nokkuð um það, hve margar vinnustundir á ári þarf til þess að vinna við meðalbúið. Ég hef ekki þær tölur og vil ekkert um það segja. En eins og gr. nú er orðuð, hlýtur að verða að þessu leitað og þetta hlýtur að verða fundið. Og þegar það er fundið, hve margar vinnustundir þarf við meðalbú á ári við meðalskilyrði, getur sá bóndi, sem komið hefur ár sinni þannig fyrir borð, að hann hefur betri skilyrði heldur en í meðallagi, notið þess með því að nota færri vinnustundir við framleiðsluna. Eins og gr. hljóðar nú, er gert ráð fyrir, að tillit sé tekið til skylduliðs og hjúa, þ. á m. hlýtur kaup konunnar að svo miklu leyti, sem hún vinnur við framleiðslu, að vera tekið með í þennan reikning. En 12. gr. frv., sem er breyt. við 8. gr. framleiðsluráðsl., gerir ráð fyrir því, að Búreikningaskrifstofa ríkísins verði efld og að fundnir verði nægilega margir búreikningar og unnið í samráði við Hagstofu Íslands að því að fá allar þær upplýsingar, sem nauðsynlegar teljast til þess að finna réttan og raunhæfan grundvöli undir verðlagninguna. Það verður að segja það eins og er, að Búreikningaskrifstofan hefur starfað í nærri 20 ár, en hún héfur lengi vel ekki haft neitt starfsfé, en Búreikningaskrifstofan hefur áreiðanlega talsverðan grundvöll til þess að byggja á, þannig að það er betra heldur en ætti að fara að byrja að nýju, og Búreikningaskrifstofan og Hagstofan þurfa að leggja til það efni, sem Sexmannanefnd þarf að hafa til þess að finna grundvöllinn undir verðlagninguna. Og eins og 12. gr. frv. hljóðar nú, ætti samkv. henni að vera hægt að ná þessu takmarki. Til þess að tryggja það, að Sexmannanefnd verði starfhæf, enda þótt einhverjir aðilar, sem rétt hafa til að tilnefna mann í n., vilji ekki nota hann, er gert ráð fyrir því, að ef um neytendafulltrúa er að ræða, skipi félmrh. mann í n. og ef um fulltrúa bænda er að ræða, skipi landbrh. mann í hana. Með þessum hætti ætti Sexmannanefnd alltaf að vera fullskipuð, þó að einhver af þeim aðilum, sem rétt hafa til að skipa fulltrúa í n., vilji ekki nota hann. Það verður nú að telja líklegt, að þeir aðilar, sem hafa þennan rétt, muni nota hann. Þótt Alþýðusambandið hafi ekki notað hann á s.l. hausti, geta viðhorfin alltaf breytzt og vitað er, að stjórn A.S.Í. var ekki á einu máli. Það má líka vera, að það hafi verið freisting hjá stjórn A.S.Í. á s.l. hausti að reyna þetta einu sinni, þar sem vitað var, að með því var hægt að sprengja kerfið, sem hv. forseti A.S.Í. hafði verið búinn að lýsa á miður þægilegan hátt. En nú, þegar vitað er, að Sexmannanefnd verður gerð starfhæf, ef einhver aðili ekki notar sinn rétt, hlýtur viðhorfið að breytast hjá þessum aðilum, og ég gæti nú bezt trúað því, að forseti og meiri hl. stjórnar A.S.Í. endurskoði afstöðu sína, eftir að þetta frv. verður að l., enda óskiljanlegt, að þeir ekki vilji nota þann rétt, sem þeim er gefinn til þess að taka þátt í verðlagningu búvöru, sem er svo þýðingarmikið atriði fyrir alla neytendur og landsmenn. Þá er hér nýmæli samkv. 8. gr. frv. og það er það, að þegar rætt er í Sexmannanefnd um álagningu á búvörum, er fulltrúa frá kaupmannasamtökum gefinn kostur á því að sitja fundinn og hafa þá málfrelsi eða tillögurétt. Kaupmannasamtökin hafa óskað eftir að hafa atkvæðisrétt, þegar um það er að ræða, en það hefur nú ekki þótt koma til greina. Hins vegar þykir eðlilegt að gefa þeim rétt til þess að sækja sitt mál og verja og sitja fundi, sem fjalla um þau mál.

Þá er það 9. gr. frv., sem er talsverð breyt. frá því, sem er í gildandi I. Það er gert ráð fyrir því, að ef ágreiningur verði í Sexmannanefnd, verði málinu vísað til sáttasemjara, og sáttasemjari ríkisins gerir tilraun til þess að sætta aðila, ef til þess kemur, að þeir eru ekki sammála. Takist það ekki innan tilskilins tíma, verði skipuð yfirnefnd, þannig að hvor nefndarhluti kjósi einn mann, en þó ekki þá menn, sem hafa setið í Sexmannanefnd, og síðan skipi hæstiréttur oddamanninn. Þetta er breyt. frá því sem var að því leyti, að hvor n.-hluti skipaði einn mann, venjulega mann, sem hafði átt sæti í Sexmannanefnd og samkv. I. er ákveðið, að hagstofustjóri verði oddamaður. Neiti þessir partar í n. að tilnefna mann, skipar ráðh. hann, eins og kveðið er á um í 6. gr. frv., þannig að yfirn. ætti þá einnig að verða skipuð, jafnvel þótt aðilar neituðu að nota sinn rétt, sem I. gefa. Þá er samkv. 11. gr. gert ráð fyrir því, að grundvöllurinn gildi í 2 ár í staðinn fyrir 1, eins og er í l., og er það vitanlega til bóta.

Um 16. gr. frv. eða 14. gr. I. fjallaði n. ekki, en það þótti eðlilegt að breyta 14. gr. l., þ. e. um veitingu sláturleyfa.

Það hafa orðið árekstrar í sambandi við það, og ég veit ekki annað en framleiðsluráðið sé samþ. þessari breyt. Sláturleyfin eru í höndum framleiðsluráðsins eftir sem áður, en eins og það var í l., mátti ekki veita tveimur samvinnufélögum sláturleyfi á sama svæði. Þetta varð þó að gera og hefur verið gert undir vissum kringumstæðum. En það þótti eðlilegt að breyta 14. gr. I. til hægðarauka í framkvæmdinni.

Þetta eru þá aðalatriðin í sambandi við þær breyt. á framleiðsluráðsl., sem þetta frv. felur í sér. Allar breyt. eru samþykktar af 6 mönnum af 7 í n., og verð ég að segja, að starf n. hefur gefizt betur heldur en á horfðist, þegar n. settist fyrst á rökstóla, enda voru margir, sem spáðu því á s.l. hausti, að það yrði ekki um mikið samkomulag að ræða. Ég geri ráð fyrir, að það megi þakka góðri forustu formannsins og vilja nm. til að ná samkomulagi og leita eftir úrræðum, og það er von mín, að með því að lögfesta þetta frv. sé lögð undirstaða að samkomulagi og samstarfi, sem hefur, þrátt fyrir allt, reynzt farsælt fyrir bændur og fyrir neytendur og sem oftast hefur nægt til þess að tryggja frið um þessi viðkvæmu mál, sem verðlagsmál búvörunnar hljóta alltaf að verða. Ég tel svo, herra forseti, að að svo komnu sé ekki ástæða til þess að fjölyrða meira um þetta mál, en legg til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.