02.05.1966
Neðri deild: 85. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2305 í B-deild Alþingistíðinda. (1484)

186. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Frsm. meiri hl. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki á þessu stigi að fara út í þessa miklu ræðu, sem hæstv. viðskmrh. var að flytja. Ég hafði kvatt mér hljóðs áður út af till., sem hv. 5. þm. Norðurl. v. hefur lagt fram. Við 2. umr. málsins flutti hann ræðu og gagnrýndi m.a. nokkuð tvær gr. í því frv. til breytinga á framleiðsluráðsl., sem hér liggur fyrir, og vildi þá koma fram á þeim breyt. eða lagfæringum, eins og hann vildi orða það. Hann fór jafnframt fram á, að landbn. d. tæki frv. til athugunar á ný, en síðar við þessa umr. lýsti form. n. því yfir, að hann sæi ekki ástæðu til þess, þar sem hv. þm. Björn Pálsson hefði hreyft sínum hugmyndum allákveðið á fundi n., sem haldinn var um þetta frv.,og málið var þar allmikið rætt, áður en það var afgr., en þessar till. hv. þm. fengu þar ekki hljómgrunn. En svo sem ég hef áður sagt, hefur hann nú lagt þær fram hér í hv. d. í þeim anda, sem hann hreyfði í n. og þeim anda, sem hann ræddi nokkuð um hér við 2. umr. málsins.

Í fyrri brtt. við 3. gr. felst aðeins það, að hann vill draga úr því valdi, sem Framleiðsluráði er fengið, valdi til þess að ákveða mismunandi hátt útborgunarverð á nýmjólk eftir árstímum, en leggur hins vegar til, að það sé tekið fram í þessari gr., að það skuli gert í samráði við stjórnir viðkomandi mjólkurbúa. Ég verð nú að segja það, að mér dettur ekki í hug, að Framleiðsluráðið starfi þannig, að það muni ekki hafa slíkt samráð án þess að það sé tekið sérstaklega fram í l., og þess vegna tel ég þessa till. með öllu óþarfa og sízt ástæðu til þess að vantreysta Framleiðsluráði að fara með þessa heimild.

Við 5. gr. frv. er síðari brtt. þessa hv. þm., en hún fjallar um vinnulaun vísitölubúsins. Í brtt. er lagt til, að breytt sé um viðmiðunarstéttir, sem kaup bænda er ákveðið eftir, og að opinberir starfsmenn og verzlunarfólk sé tekið þar inn í stað sjómanna. En hingað til hafa einmitt þessar þrjár viðmiðunarstéttir, verkamenn, sjómenn og iðnaðarmenn ásamt bændastéttinni verið aðalerfiðisstéttir þessa lands, og ég hygg, að það sé einmitt þess vegna og ekki sízt þess vegna, sem þessi viðmiðun er til komin. Hún hefur skapazt af venju og hún hefur einnig verið vegna þeirra ákvæða, sem alltaf hafa verið í framleiðsluráðsl., að þeir, sem tilnefna fulltrúa af hálfu neytenda í Sexmannanefnd,eru einmitt fulltrúar þessara þriggja stétta, sjómanna, iðnaðarmanna og verkamanna. Þess vegna finnst mér, að þessi brtt. sé sízt til bóta, og hún byggir í raun og veru á allt öðrum grunni. En hins vegar er ljóst, að það má orða þessa gr. á ýmsa vegu, en aðalatriðið er náttúrlega sá tilgangur, sem ætlað er að ná með henni, og hann er sá, sem alltaf hefur staðið í l. og stendur enn. Við því hefur ekki verið hróflað, að þeir, sem landbúnað stunda, beri úr býtum hliðstætt kaup fyrir sín störf eins og aðrar vinnandi stéttir, og eins og ég hef sagt: í framkvæmdinni hafa viðmiðunarstéttirnar orðið þessar þrjár, sem ég áður greindi. Nú varð um það samkomulag, að ég hygg í undirbúningsnefndinni, eða hún hafi a.m.k. fallizt á það, — þeirri sjö manna undirbúningsnefnd, sem aðallega hafði með að gera endurskoðun á l., þó að einum nm. undanskildum, — að bæta inn í þessa 4. gr. l., sem nú er, nánari skýringu á því, sem í þessu á að felast, að þeir, sem landbúnað stundi, hafi hliðstæðar tekjur og aðrar vinnandi stéttir. Það er á þá lund, að miðað skuli við taxtakaup þessara vinnustétta. Í brtt. hv. 5. þm. Norðurl. v. er kveðið á um að nota þær upplýsingar, sem fyrir hendi eru um vinnuþörf viðmiðunarbúsins. Ég held, að þetta sé með öllu óþarft, því að einmitt um þetta atriði fjallar 12. gr. þessa frv. Þar er gert ráð fyrir því, að gögn frá Búreikningaskrifstofu ríkisins og Hagstofunni séu höfð við ákvörðun vinnuaflsþarfar búsins. Ég fæ þess vegna ekki séð annað en það sé sízt til bóta, að þessi till. hv. þm. yrði samþ., auk þess sem hér er, eins og vitað er, um að ræða mál, sem þeir aðilar hafa fjallað um, sem lengst hafa farið með þessi mál að undanförnu í Sexmannanefnd, og ég vil leggja áherzlu á það, að frv. nái fram að ganga eins og það liggur fyrir.