02.05.1966
Neðri deild: 85. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2306 í B-deild Alþingistíðinda. (1485)
186. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Björn Pálsson:
Herra forseti. Tilgangur minn með því að tala hér nokkur orð er nú fyrst og fremst að minnast á þær brtt., sem ég hef leyft mér að flytja. Hæstv. viðskmrh. hefur haldið hér langa ræðu um landbúnað, en ég sé nú ekki, að það sé hægt eiginlega tímans vegna að ræða svo víðtækt mál nú í þinglokin, þannig að ég geri ekki ráð fyrir að svara því miklu, enda ekki sérstaklega ástæða til, að ég geri það frekar en aðrir.
Ég hef leyft mér að leggja hér fram brtt. viðvíkjandi a-lið 3. gr. á þá leið, að í stað orðanna, að ákveða mismunandi hátt útborgunarverð til framleiðenda eftir árstímum og innheimta verðjöfnunargjald af innveginni mjólk komi: „að ákveða mismunandi verð til framleiðenda eftir árstímum, þar sem verulegur hluti mjólkurframleiðslunnar er seldur sem neyzlumjólk. Verðmunurinn skal ákveðinn í samráði við stjórnir viðkomandi mjólkurbúa. Framleiðsluráði er einnig heimilt að ákveða og innheimta verðjöfnunargjald af innveginni mjólk.“ Ég vil taka það fram, að ég er ekkert sérstaklega og alls ekki að deila við Stéttarsamband bænda eða Framleiðsluráð út af þessu. Í þeim till., sem upphaflega komu frá þeirri n., sem skipuð var í þetta mál, mun þessi liður ekki hafa verið svona orðaður og ekki heldur sá liður, sem seinni brtt. mín á við, að virðist koma fram í grg. frv., að þessum liðum hafi verið breytt seinna til samkomulags. Upphaflega var gert ráð fyrir að skattleggja fóðurbætinn til að bæta upp útflutningsafurðirnar eða þann hluta landbúnaðarvaranna, sem fluttur er út, en síðan var þessu breytt og þessi skattur lagður á mjólkina. Í fyrsta lagi hefur það verið á valdi bænda og stjórnenda í mjólkursamlögunum að ákveða verð á þessari vöru. Með þessari lagabreyt. er þetta vald tekið af þeim. Ég fyrir mitt leyti hef alls ekkert umboð frá bændum í mínu héraði til þess að greiða atkvæði með slíku, en mér finnst ástæðulaust að fá Stéttarsambandinu meira vald í hendur en það hefur þörf fyrir. Ég skal játa, að ef á að afla fjár til þess að jafna afurðaverðið innanlands og bæta upp útflutningsafurðir, vissar tegundir af þeim, þarf náttúrlega að fá það fé einhvern veginn og þess vegna verður að fá heimild til þess að leggja á verðjöfnunargjald. En það er engin ástæða til þess að fá þeim heimild til þess að ákveða mismunandi verð eftir árstímum, nema þar sem þörf er fyrir að framleiða visst magn af mjólk að vetrinum. Það er miklu dýrara að framleiða vetrarmjólkina, og ég tel enga þörf á því að fá því það vald. Ég er ekki að segja, að Framleiðsluráð misnoti vald sitt. Ég hef enga trú á því, en yfirleitt er ekki ástæða til að fá neinum aðila meira vald en hann hefur þörf fyrir að nota og í þessu tilfelli álit ég, að Framleiðsluráð hafi enga þörf fyrir að hafa vald til að ákveða mismunandi verð vetur og sumar nema á þeim svæðum, þar sem þarf að selja mikla neyzlumjólk og það á að gerast í samr. við stjórnir mjólkurbúanna. Þess vegna gengur þessi till. mín eingöngu út á, að haft sé samráð við stjórnir mjólkurbúanna og Framleiðsluráði sé ekki fengið meira vald en það hefur þörf á til þess að geta gert þá hluti, sem ætlazt er til, að það geri. Hitt getur svo verið deiluatriði, hvort ástæða er til að skattleggja frekar mjólkina en fóðurbætinn. Það er atriði út af fyrir sig, sem ég kem ekki inn á, af því að ég lit svo á, að það sé búið að ná samkomulagi um að leggja það á mjólkina, en ekki á fóðurbætinn, jafnvel þótt ég telji, að þetta hafi dálitið öfugar verkanir, því að ef skatturinn er lagður á fóðurbætinn á hann að draga úr fóðurbætisgjöfinni, en með því að leggja hann á neyzlumjólkina og verðlauna þá, sem framleiða að vetrinum, þegar mest er notað af fóðurbæti, örvar það fóðurbætisnotkunina, svo að það verkar í raun og veru öfugt, þetta ákvæði, við það, sem það á að verka, ef maður miðar við það að draga úr heildarmjólkurframleiðslunni yfir árið. Svo er það náttúrlega hlutur út af fyrir sig, sem skattur á fóðurbæti gæti komið í veg fyrir, og það er það, hve mikið er gefið af fóðurbæti að sumrinu, til þess að kýrnar mjólki enn meira, og það er hlutur, sem við eigum í fyrsta lagi að leggja niður. Við eigum að beita kúm á gott haglendi og rækta það, ef með þarf, en við eigum ekki að moka í þær erlendum fóðurbæti eða fóðurbæti, sem við gætum selt fyrir góðan gjaldeyri, eins og við höfum gert við síldarmjölið. Við eigum ekki að gera það að sumrinu, meðan við höfum nóga mjólk í landinu. Og það er náttúrlega stórt atriði, sem bændastéttin í heild verður að leysa og verður ekki leyst hér með stuttum umr., það er að skipuleggja framleiðsluna á sem hagkvæmastan hátt.
Seinni brtt. mín, sem er við 5. gr. frv., gengur út á það í fyrsta lagi að gera þessa gr. skýrari hvað orðalag snertir. Hér er t.d. sagt: „og virða vinnutíma til samræmis við kaupgjald verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna.“ Þarna er talað um að virða vinnutíma til samræmis við kaupgjald. Mér finnst þetta vera algert bögumæli. Svona má reyndar segja um a-lið 3. gr. frv., þar sem talað er um að ákveða mismunandi hátt útborgunarverð. Eins og ég skýrði í ræðu minni um daginn, þá er með útborgunarverði átt við það verð, sem borgað er út, þegar tekið er á móti vörunni. Það er þannig notað hjá öllum samvinnufélögum, en endanlegt verð — eða verð, eins og ég orða það í brtt. minni — mjólkurinnar er fullnaðarverð hennar, þannig að ég álít, að þrátt fyrir það, að við samþ. þessa gr., geti stjórnir mjólkurbúanna skotið sér undan og haft sama verð vetur og sumar með því að snúa út úr þessu orði en ég veit, að meiningin hjá þeim, sem sömdu frv., er, að þetta eigi að vera endanlegt verð. En útborgunarverð er bara allt annað en endanlegt verð. Þá kem ég að því aftur að ég álít, að ekki sé hægt að miða vinnutíma við kaupgjald. Það sjá allir menn, að það er ekki rétt. Það er hægt að miða kaupgjald við kaupgjald og vinnutíma við vinnutíma og þess vegna legg ég til, að seinni gr. sé orðuð þannig: „miða vinnutíma og kauphæð til samræmis við meðallaun og meðalvinnutíma starfsmanna ríkis og bæja, verzlunarfólks, verkamanna og iðnaðarmanna.“ Ég felli sjómennina niður. Það kom hér fram hjá síðasta ræðumanni áðan, að samkv. þessu ættu bændur að hafa svipuð kjör og aðrar vinnandi stéttir í þjóðfélaginu. En það er nú bara dálítið öfugt. Með þessari gr. er bara tryggt, að þeir hafa ekki sömu kjör, algerlega. Ég skil vel, að hæstv. menntmrh., sem var að halda hér ræðu áðan, er ánægðari með þau, enda lét hann miklu betur af þessum lagaákvæðum heldur en aðrir. Með því að samþykkja þessa lagagr. er algerlega tryggt, að íslenzk bændastétt er lægst launaða stétt á Íslandi, meðan jafnmikil eftirspurn er eftir vinnu eins og nú er, og skal ég rökstyðja það frekar.
Það er tekið út, það er ekki verið að miða við iðnaðarmenn og sjómenn, eins og raunverulegar tekjur þeirra eru, nei, ónei. Það er tekin út öll ákvæðisvinna, og við vitum, að þar sem meginvinnan fer fram í þéttbýlinu, þar er enginn maður, sem er sæmilega hæfur, t.d. í byggingariðnaðinum, sem vinnur öðruvísi en ákvæðisvinnu, hvorki múrverk eða uppsláttur er framkvæmdur öðruvísi. Og þeir hafa svona 1000 kr. á dag og jafnvel upp í 1400. Mér var sagt í dag, það sagði mér einn af auðmönnum bæjarins, að hann hefði múrara og hann hefði 50 þús. kr. á mánuði núna og væri að spjalla um það svona á milli þess, sem hann væri að múra, að þetta væri gersamlega ómögulegt þjóðfélag til að lifa í. Eftir því sem menn fá meira, eftir því vanþakka þeir meira. En auðvitað leggur maðurinn mikið á sig, ég efast ekkert um það. Og ég get vel gengið inn á, að þegar á að miða tímavinnu við ákvæðisvinnu beri að taka tillit til þess, að akkorðsmaðurinn leggur venjulega meira á sig. En fyrr má nú rota en dauðrota. Það er bara ekkert tillit tekið til þess, hvort sjómaðurinn hafi einhvern hlut eða ekki, það er bara miðað við trygginguna hans, og ef það væri eingöngu miðað við tryggingu sjómanna, mundi ekki einn einasti sjómaður fást útáskip í dag, því að þeir mundu ekki draga fram lífið með fjölskyldum sínum á þeim tekjum. En ég get vel gengið inn á að miða ekki sjómenn við aðrar stéttir þjóðfélagsins, vegna þess að þeir eru mikið af árinu fjarri heimilum sínum og þá eyða þeir meiri peningum og neita sér náttúrlega um ýmislegt og verða fyrir ýmiss konar vosi, þannig að í till. minni felli ég þá alveg niður. Ég get gengið inn á, að það sé ekki rétt að bera þá saman við aðra, en ég get ómögulega gengið inn á, að það eigi að miða við þá iðnaðarmenn, sem vinna bara fyrir tímakaupi, skráðu tímakaupi, og verkamenn, af þeirri einföldu ástæðu, að ég hygg, að það megi telja á fingrum sér þá menn, sem eru vel vinnufærir og á bezta aldri og geta unnið hvaða verk sem er, sem vinna fyrir venjulegan verkamannataxta. Það eru margir menn, sem vinna hér í bæjarvinnunni, en margt af þessu eru eldri menn, sem ekki væru færir um að reka búskap, og hinir eru ýmist komnir út á sjóinn; í iðnað, sem gefur kannske frá 1000 upp í 1400 kr. með akkorðsvinnu á dag eða þá eitthvað annað. En við vitum, að bændur verða yfirleitt að vinna verkin einir, svo að segja, öll erfiðisverkin a.m.k., og þess vegna er ekki hægt fyrir aðra en menn með fullu vinnuþreki að stunda þá atvinnu. En með þessu frv. er algerlega tryggt, að ef rétt er reiknaður út kostnaðurinn við búin og réttur vinnutími við að reka þau og ef sá tími, sem fer í að hirða hverja skepnu, er ekki ofreiknaður, er bændastéttin lægst launaða stétt í landinu og það langlægst launuð, því að ég hef sannar sögur af því, að tímamenn hér venjulegir, sem ekki eru neinir fagmenn og vinna hér í holræsagerð o.fl. hjá mönnum og taka akkorðin hjá bænum, hafa 60 kr. á tímann, þar í er raunar orlof. En venjulegt verkamannakaup er svona 42–43 kr., sem á að miða kaup bóndans við. Ég fyrir mitt leyti vil ekki ganga inn á þetta. Þess vegna hef ég tekið grunninn breiðari, og ef við viljum draga meðallínu, er það algert lágmark að taka inn í viðmiðunina launafólkið í landinu, starfsmenn ríkis og bæja, sem er geysifjölmenn stétt orðin, og verzlunarfólkið, þetta er orðinn einhver fjölmennasti launamannahópur landsins, og ég vil taka það inn ásamt verkamönnunum og iðnaðarmönnunum, og það er náttúrlega ofurlítil hækkun, en engan veginn þó eins og ef teknir væru bæði iðnaðarmenn og sjómenn miðað við raunhæfar tekjur þeirra, það er ekki langt gengið, en það er þó ofurlítil bót í máli. En ég get ekki greitt atkv. með því að lögbinda það, að bændur séu skilyrðislaust lægst launaða stétt í landinu. Ofan á þetta á svo að bæta því, að bændur eiga að nokkru leyti að taka af þeim tekjum, sem reiknaður eru þeim þannig til tekna, til að bæta upp útflutningsverðlagið. Svo er það annað mál, að það má vel vera, að í gegnum samninga sé hægt að reikna meiri vinnu, að bóndinn geti ofreiknað sér vinnu við framleiðslu heys og hirðingu skepna, en það verður bara aldrei gert til langframa. Þess vegna er ekki rétt að binda það í l. Það má líka vel vera, að það sé hægt að blöffa einhverja og einhverja kostnaðarliði og gera þá eitthvað meiri en þeir raunverulega eru, en þetta er bara ekki rétta aðferðin. Við eigum að komast að sem sannastri og réttastri niðurstöðu um vinnuaflsþörf við búið og eðlilegum kostnaði við búið, og svo verðum við að reikna bændum eitthvað svipaðar tekjur og aðrir þjóðfélagsþegnar hafa. Ef það er ekki gert, ef það er lögbundið, að bændur séu lægst launaðir af öllum mönnum í þjóðfélaginu, hætta vitanlega allir sæmilega duglegir menn búskap og fara í eitthvað annað.
Ég hef ekki viljað taka undir það, að bændur landsins hafi búið við vond kjör s.l. 2 ár, því að það er ekki rétt, enda hafa þeir búið við betri kjör en þeir hafa verið vanir að búa við s.l. 2 ár, og það er meðfram af því, að þjóðartekjurnar hafa vaxið. Og það er alveg rétt, sem Jónas Haralz sagði í útvarpsviðtali, að þessum tekjum, sem hafa komið af síldargróðanum, hefur verið dreift meðal landsmanna. Þær sitja ekki nema að litlu leyti eftir hjá síldarsjómönnunum sjálfum, það er mikið tekið í útgjöld af útgerðarmönnunum, því hefur verið dreift meðal landsmanna. Meðan þannig árar held ég, að það hafi verið skynsamlegt og rétt, að þetta dreifðist einnig til bændastéttarinnar. En við getum ekki alltaf búizt við þeim gullgrefti, sem við höfum haft núna s.l. 2 ár. Ég veit, að þetta breytist. Þegar vinnueftirspurnin minnkar, breytist þetta. Þá lækka vafalaust þessar greiðslur, sem eru borgaðar umfram eðlilegt tímakaup, en ég get ómögulega fallizt á það að binda kaup bændanna skilyrðislaust, þannig að svo framarlega, sem rétt sé reiknaður út kostnaðurinn við búið og vinnutími við að hirða skepnurnar og heyja, sé það alveg tryggt, að þeir séu lægst launaða stétt á Íslandi og það langsamlega. Þess vegna hef ég viljað taka grunninn breiðari. Það má vel vera, að þessum I. verði breytt síðar meir, en ef við göngum einu sinni inn á að greiða atkv. með þessu, erum við búnir að viðurkenna þetta, sem ekki er rétt að viðurkenna, og það er, að bændur eigi að vera lægst launaða stéttin. Það er sama, hvað stendur á pappírnum, við vitum ósköp vel, að verkamenn og iðnaðarmenn og sjómenn bera ekki við að vinna fyrir venjulegt tímakaup. En hitt játa ég, að það eru náttúrlega menn, sem eru á þessum aflabátum, þetta eru duglegir menn og menn, sem taka að sér þessi akkorð, hvort heldur er í iðnaði eða öðru, það eru duglegir menn, en bændur verða bara líka að hafa vinnuþrek, annars geta þeir ekki búið. Um leið og bóndinn fer að gefa sig með vinnuþrek, hætta að geta unnið hvaða verk sem er, hann þarf ekki meira að segja annað en þola ekki að vera í heyjum, verður hann að gera svo vel og hætta að búa.
Ég hef ekki verið meiri kröfumaður fyrir íslenzka bændur en aðrir, ég skal játa það, og ég álít, að allar stéttir þurfi að kunna sér hóf í kröfum. En það er ekki ósanngjarnt, þó að ég telji, að bóndinn eigi að hafa eitthvað svipað kaup og meðallaun eru hjá opinberum starfsmönnum. Ég hygg, að það sé eitthvað nálægt því, sem gagnfræðaskólakennarar hafa, eða eitthvað svipað kaup og við höfum hérna í þinginu. En ég hef tekið það fram hérna í þessari gr., ég veit ekki, hvort ég nenni nú að lesa hana, en hún liggur vist á borðinu hjá okkur, ég hef tekið það fram, að ég álít, að það eigi að miða við vinnutíma opinbers starfsmanns og verzlunarfólksins, hafa þar sama tíma og í daglaunavinnu, vegna þess að þó að skrifstofutíminn sé áætlaður dálítið styttri vitum við, að útivinnan er hollari en innivinnan og maðurinn hefur ekki sama þrek til að vinna við skrifstofustörf jafn lengi, þ.e.a.s. ef hann vinnur, þá hefur hann varla sama þrek eins og við útivinnu. Þeir, sem hafa reynt hvort tveggja, vita það, að innivinnan þreytir meira, þannig að ég held, að með þessum till. hafi ég ekki farið fram á neina ósanngirni.
Mér er það alveg ljóst, að þær verða ekki samþ. núna, a.m.k. seinni till. Orðalaginu mætti raunar breyta, vegna þess að það er búið að semja um þetta atriði. En ég vil ekki greiða atkv. með þeim eins og þær eru. Ég vil ekki binda það í l., að bændur séu skilyrðislaust lægst launaða stéttin í þjóðfélaginu, jafnvel þó að stjórn Framleiðsluráðs og Stéttarsambandsins geri sér vonir um það að geta með einhverjum samningum talið vinnuna kannske of mikla eða kostnaðinn of mikinn við búin, þannig að bændur fái þolanlegt verð, og ég satt að segja efast ekkert um það, að það muni verða einhvern veginn séð fyrir því, að þeir sleppi þolanlega út með verðið í sumar. Við erum bara búin að viðurkenna þetta í l., ef við greiðum atkv. með þeim, þess vegna geri ég það ekki.
Samkv. þeim búreikningum, sem ég hef farið yfir, síðustu búreikningunum, sem fyrir liggja, er gert ráð fyrir, að það fari um 300 tímar í að hirða um kúna og 12 tímar í að hirða um kindina. Annars mættu þeir gjarnan vera einfaldari og gleggri en þeir eru, ég verð nú að segja það. En það má vera, að þetta hafi verið á þeim búum, sem hafa legið fyrir hjá Búreikningaskrifstofunni, en ég efast nú um, að þetta sé rétt tala. Og ég álít, að ekkert sé við það að athuga, eins og ég tek fram hérna í brtt. minni, að höfð sé einhver hliðsjón af nágrannalöndunum, þangað til Íslendingar eru búnir að finna þetta raunhæft út. Ég álít, að það sé ekki nema rétt og eðlilegt, að þetta sé gert raunar eins fljótt og unnt er. Náttúrlega er þetta ákaflega misjafnt, og í búreikningunum kemur fram, að það er alveg geysilega mikill munur á afkomu hjá einstökum bændum, og við eigum að miða náttúrlega að því að gera reksturinn hagkvæmari. Það er ekki nóg að hækka alltaf verðið og það er alveg rétt tekið fram, sem kom alveg óbeint fram hjá hæstv. menntmrh., það er ekki nóg að hækka alltaf verðið. Þróunin hefur verið ákaflega ör og tæknin vaxið, en nú þurfa bændurnir að taka sig saman um að reka sinn búskap af sem mestri hagkvæmni, eins og t.d. Danir eru búnir að gera um áratugi. Það er allt saman útreiknað, hvað bezt er að gera. Þeir eru háþróuð þjóð í landbúnaðarmálum. Það er ekki nema eðlilegt, að það verði einhver hroðvirkni í þessu, meðan breytingar eru jafnörar og þær hafa verið. En þetta þurfa íslenzkir bændur að laga, og það tekur sinn tíma.
Þetta er nú aðalatriðið. Ég veit ekki, hvort ég sé ástæðu til að vera neitt að deila viðhæstv. viðskmrh. Það var vafalaust margt rétt í því, sem hann sagði, og hæstv. ráðh. talaði nú í raun og veru miklu hógværlegar en hann hefur stundum gert um þessi mál, en ég held nú satt að segja, þegar hæstv. ráðh. var að reikna það út, hve miklar útflutningsuppbætur þyrftu að vera árið 1970, komi þar nú ýmsir póstar inn í, sem er ekki fyrir neinn að sjá fyrir, og þ. á m. er nú þróun verðlagsmálanna í landinu. Hans útreikningur miðast við það, að hún breytist ekki og búaukningin verði svipuð. En mér virðist, að vísitalan hafi ekki staðíð í stað. Svo er nú hægt náttúrlega að taka fleira, t.d. það, að verð á sjávarafurðum hefur sífellt farið hækkandi undanfarin ár. Ef það hefði ekki gert það, væri sennilega orðið útilokað annað en að búið væri að lækka krónuna eða a.m.k. alveg að því komið, ef sjávarafurðir hefðu ekki hækkað frá því 1960 eða 1961. En landbúnaðarafurðir hafa aftur á móti hækkað mjög lítið. Við vitum ekki, hversu lengi þetta heldur áfram. Svo er nú miðað við verð á útflutningsafurðum. Þá er náttúrlega ekki hægt að miða kjötið við enska markaðinn, því að Bretar borga bændunum stórfé með hverjum grip, sem þeir framleiða innanlands, til þess að lækka framleiðslukostnaðinn til þess að geta haldið nýlendukjötinu niðri, sem er framleitt á ákaflega ódýranhátt,þar sem skepnur ganga sjálfala. Þá eru ýmsir fleiri póstar, en ég sé bara ekki ástæðu til að fara að ræða landbúnaðarmálin almennt í þetta skipti. Bæði er ekki tími til þess og svo eru þetta svo miklu viðtækari mál en hægt sé að gera þeim skil í fáum orðum, þannig að ég hef bara minnzt á þessar brtt. mínar. Mér er það ljóst, að þær munu ekki verða samþ., en ég hef sett þarna fram mína skoðun í málinu og þótt hún verði ekki tekin til greina núna, er ég ekki viss um nema það komi til greina að taka hana til greina síðar. Þess vegna þótti mér rétt að leggja till. fram; þótt því væri lýst yfir í n., að breytingar mundu ekki fást á frv. og mér sé ljóst, að þær verði ekki samþykktar.