02.05.1966
Neðri deild: 0. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2312 í B-deild Alþingistíðinda. (1486)

186. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Gunnar Guðbjartsson:

Herra forseti. Ég held, að hv. 5. þm. Norðurl. v. hafi misskilið þær gr., sem hann flytur brtt. við í þessu frv., og vildi aðeins láta þess getið í sambandi við fyrri brtt., sem fjallar um útborgunarverð mjólkurbúanna og rétt Framleiðsluráðs til þess að fyrirskipa mismunandi útborgunarverð á mjólk, að þetta er hugsað þannig af Framleiðsluráði, að þetta yrði notað undir þeim kringumstæðum, þegar þyrfti að flytja meira af mjólkurvörum út úr landinu en hægt væri að fá útflutningsuppbætur greiddar á og að fyrirskipa lægra útborgunarverð yfir sumartímann, þegar mjólkurframleiðslan er langmest og grunur og reyndar vissa er fyrir því, að verulegur hluti þeirrar framleiðslu er framleiddur með erlendu kjarnfóðri, fyrirskipa þá lægra útborgunarverð og nota þann mismun, sem kæmi í útborgunarverði, til þess að bæta upp útflutning á mjólkurvörum. Þetta kemur skýrt fram í grg. með frv., og ég held, að það þurfi ekki frekari skýringar við.

Varðandi hitt atriðið, sem fjallar um viðmiðunina á kaupi bóndans, vil ég segja það, að ég tel, að þessi gr., sem nú er fram sett, eigi að tryggja hag bændanna betur og m.a. vegna þess að það verður tekið vegið meðalt. af launatöxtum viðmiðunarstéttanna og iðnaðarmenn eru langsamlega flestir af launþegum í þeim stéttum, sem við er miðað, eða um 48% og þeirra partur vegur því þar af leiðandi langsamlega mest, og í sambandi við sjómennina var það ætlun n., sem ræddi þessar till. og formaði þær, að það yrði miðað við þá sjómenn, sem hafa tímakaup, þ.e.a.s. farmenn, en alls ekki við tryggingu bátasjómanna, því að það er hliðstætt aflahlutnum og kemur alls ekki til greina í þessu sambandi. Þess vegna held ég, að þarna sé um misskilning að ræða hjá hv. þm. og ástæðulaust að vera að gera breytingar á þessu.

Ég vildi þá ræða nokkuð það, sem hæstv. viðskmrh. kom hér inn á áðan í sambandi við landbúnaðarmálin. Hann byrjaði á því að geta um framleiðsluafköst í hinum einstöku atvinnugreinum og samkeppnisaðstöðu þeirra varðandi útflutning á vörum eins og sjávarútvegi og iðnaði. Það er alveg rétt, sem hann sagði hér, að mikil afköst í sjávarútveginum hafa orðið til þess, að sjávarútvegurinn hefur yfirleitt getað flotið á undanförnum árum og þó samhliða því aðeins, að orðið hafa miklar verðlagshækkanir á útfluttum sjávarafurðum samtímis. Og ég held, að það sé rétt, sem hv. 5. þm. Norðurl. v. sagði hér áðan, að ef þessar verðlagshækkanir hefðu ekki komið til, hefði sjávarútvegurinn ekki getað gengið, þrátt fyrir sín miklu afköst á undanförnum árum. Varðandi iðnaðinn er ég ekki eins fróður um þessa hluti, en ég hygg, að hann eigi nú í flestum greinum mjög örðugt um samkeppni við hliðstæðar greinar erlendis. Hæstv. viðskmrh. sagði, að landbúnaðurinn einn væri ekki samkeppnishæfur á erlendum markaði, því að verðlag á landbúnaðarvörum hefði ekki hækkað á heimsmarkaði á undanförnum árum og þetta er rétt. En hvers vegna hefur ekki verðlag á landbúnaðarvörum hækkað erlendis á undanförnum árum? Það er einfaldlega vegna þess, að það er ekki frjáls verðmyndun á landbúnaðarvörum meðal nágrannaþjóða okkar. Þær hafa flestar hverjar og nær allar greitt til bændanna verulegan hluta af framleiðslukostnaðinum í beinum eða óbeinum styrkjum og það svo miklu, miklu meira en íslenzkir bændur hafa þegið á undanförnum árum. Þannig hafa Bretar greitt sínum bændum um 74% af nettótekjum bændanna í beinum og óbeinum framleiðslustyrkjum. Það er gert með mörgum aðferðum, það er gert með því að bændum eru greiddir beinir framleiðslustyrkir á hverja framleiðslueiningu. Þeim eru veittir styrkir til þess að bæta aðstöðu sína, rækta og byggja og annað þess háttar, og svo eru líka greiddar verðuppbætur á seldar vörur, þannig að eftir ýmsum, mjög mörgum leiðum fá þeir um 74% af nettótekjum sínum sem framlög frá brezka ríkinu. Hjá Norðmönnum er þetta um 50%, en það er líka eftir mjög mörgum leiðum greitt, bæði sem framleiðslustyrkir og styrkir til ýmiss konar hagræðingar í búskap. Og það er rétt að leggja áherzlu á eitt atriði, sem ég hygg, að Íslendingar séu yfirleitt ófróðir um í þessu sambandi, að erlendis eru vinnsluvörur úr mjólk greiddar niður í verulega miklum mæli í flestum nágrannalöndum okkar, sem alls ekki hefur verið gert hér á Íslandi, og þetta skapar þá aðstöðu, að við eigum mjög erfitt með að keppa um sölu á vinnsluvörum úr mjólk á þeim mörkuðum, sem næstir okkur eru, ög þessar vörur eru greiddar niður þar miklu meira en nýmjólkin, sem er þó sums staðar greidd niður, en ekki alls staðar. En þegar ég segi, að brezkir bændur fái 74% af nettótekjum sínum frá brezka ríkinu og Norðmenn fá 50% af sínum nettótekjum frá norska ríkinu, þá fá íslenzkir bændur að meðtöldum útflutningsuppbótunum tæplega 40% af sínum tekjum frá íslenzka ríkinu í öllum þeim styrkjum, sem íslenzka ríkið greiðir til landbúnaðarins. Og af þessu má augljóst vera, að aðstaða íslenzka landbúnaðarins hlýtur að verða örðugri til að keppa á þeim mörkuðum, sem við verðum að flytja okkar vörur á erlendis. Og alveg sérstaklega á þetta við, eins og ég sagði áðan, um vinnsluvörurnar úr mjólkinni, þar sem þær eru miklu meira greiddar niður erlendis en nýmjólkin.

En við hljótum þá að velta fyrir okkur: Er íslenzkur landbúnaður óhagkvæmari nú en hann var áður, þegar ekki þurfti að greiða útflutningsuppbætur? N. sú, sem undirbjó þetta frv., sem hér er til umr., lét athuga, hvernig verðlag til íslenzkra bænda hefði breytzt á undanförnum 23 árum, þ.e.a.s. síðan fyrsta Sexmannanefnd var sett á laggirnar 1943 til þessa dags, í hlutfalli við tímakaup verkamanna hér í Reykjavík. Og útkoman varð sú, að mjólk til bænda í verðlagsgrundvelli hefur hækkað um 100 stigum minna en tímakaup Dagsbrúnarverkamanna á þessum 23 árum. Tímakaup Dagsbrúnarverkamanna hefur hækkað um 25 stig, en mjólk í verðlagsgrundvelli til bænda um 608 stig. Sauðfjárafurðir eða kjöt hefur hækkað mjög svipað og tímakaup Dagsbrúnarverkamanna á þessu tímabili. Þetta segir okkur það, að íslenzkur landbúnaður hefur ekki hækkað sitt verðlag eða fengið sinn hag bættan með hækkuðu verðlagi umfram það, sem tímakaup verkamanna hefur hækkað, heldur hafa þær kjarabætur, sem hann hefur veitt bændum á undanförnum árum, fengizt með aukinni framleiðslu og hagræðingu í búrekstri, eingöngu og meira en það. Hann hefur skilað lækkuðu mjólkurverði til neytendanna miðað við það, sem var 1943, og þetta hlutfall hefur haldizt nokkuð jafnt þetta árabil. Það, sem veldur því nú, að íslenzkur landbúnaður á í örðugleikum og þeir eru vissulega talsvert miklir núna í sambandi við mjólkina varðandi útflutning, er verðbólgan hér í landinu síðustu 5–6 árin.

Árið 1960 þurftum við nálægt engar útflutningsuppbætur á landbúnaðarvörur og þó var flutt út allmikið af landbúnaðarvörum það ár og ekki minna kjöl en núna tvö síðustu árin, en þurfti ekki nema 15 millj. í útflutningsuppbætur það ár. En vegna þess að verðlagið hefur staðið í stað á markaðinum úti, en hækkað svona gífurlega mikið hér innanlands, eins og allir vita, að raun hefur á orðið vegna verðbólgunnar, er okkar aðstaða svona erfið nú í dag. Og ég hefði nú vænzt þess og átt von á því, að hæstv. viðskmrh. hefði einmitt vikið að þessu vandamáli, sem er höfuðvandamál okkar atvinnuvega, ekki aðeins landbúnaðarins, heldur líka annarra atvinnuvega nú í dag, það er verðbólgan, og hefði mátt vænta þess, að hæstv. ráðh. kæmi með einhverjar till. til úrbóta á þeim mikla vanda, því að þar liggur okkar þjóðfélagsvandi í dag. Eins og ég sagði hér fyrr og hv. 5. þm. Norðurl. v. sagði líka, mundi sjávarútvegurinn vera í mjög miklum vanda í dag, ef afurðir hans hefðu ekki hækkað jafnmikið í verði erlendis og raun hefur á orðið á undanförnum árum og við vitum ekki, hvað aðstaða hans kann að haldast. Hún gæti breytzt fyrr en varir, og þá er sjávarútvegurinn kominn í sama vanda og landbúnaðurinn er í í dag. Ég vænti þess, að þetta vandamál, sem blasir við landbúnaðinum í dag, sé ekki langvinnt. Það er margt, sem gerir það að verkum, að ég held, að þetta hljóti að leysast, þó að það verði kannske viðvarandi nokkur ár, 3–4 ár kannske. Það er í fyrsta lagi, að bændur eru margir hverjir orðnir gamlir, og bændur eru eldri að meðaltali en menn hjá öðrum starfsstéttum þjóðfélagsins. Og þetta hlýtur að valda því, að það þarf mikinn fjölda í viðkomu á næstu árum, ef bændastéttin á að halda sinni tölu,og það eru ekki líkur til þess, miðað við þær aðstæður sem nú eru í landbúnaðinum, að viðkoman verði eðlileg, þannig að bændafjöldinn haldist, enda hefur sú reynsla verið síðustu 8 ár. Bændum hefur fækkað árlega og þetta eitt gerir það að verkum, að framleiðslan hlýtur að minnka á næstunni, og kannske mun meira á næstu árum en nemur fækkun bændanna sjálfra. Og þetta kemur til af því, að það er mjög örðugt fyrir unga menn að stofna til búskapar, vegna þess að það þarf svo mikið fjármagn til þeirra hluta. Annað kemur til, að fólki fjölgar mikið í landinu og það getur veitt sér í vaxandi mæli þessar vörur og það hefur verið reynslan núna a.m.k. síðustu árin, t.d. varðandi kjötið, að þar er neyzluaukningin mun meiri en nemur fólksfjölguninni í landinu, og það kemur til af því, að fólkið hefur betri lífskjör og getur veitt sér meira af þessari vöru en áður var. Og ég trúi því, að það eigi enn eftir að aukast allverulega. Má vera, að það verði ekki eins mikil aukning hlutfallslega í mjólkursölunni, en hún verður þó alltaf í öllu falli í samræmi við fólksfjölgunina. Og það er stefna bændasamtakanna að reyna að skipuleggja framleiðsluna þannig, að hún hæfi betur markaðsskilyrðunum, bæði heima og erlendis, og við væntum þess, að við getum haft þau tök á þessu, að það geti tryggt hag bændanna þannig, að þeirra hlutur verði ekki verri í hlutfalli við aðrar stéttir en verið hefur að undanförnu og helzt nokkru betri. Og ég vænti þess, að það frv., sem hér liggur fyrir, tryggi, að því marki verði náð.