26.04.1966
Efri deild: 72. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2337 í B-deild Alþingistíðinda. (1521)
99. mál, ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Með frv. því, sem hér liggur fyrir til umr., er gerð till. um það að setja nýja löggjöf um gerð ríkisreikn. og fjárl., sem að meginefni felur það í sér að taka upp að verulegu leyti nýja skipan þessara mála með hliðsjón af þeim kröfum, sem nútíminn krefst í þessu efni. Núgildandi ákvæði um gerð ríkisreikn. og fjárl. er að finna í 2. kafla l. nr. 61 frá 1931, um ríkisbókhald og endurskoðun, og á þeim tíma, sem síðan er liðinn, hafa að sjálfsögðu orðið mjög verulegar breytingar á þróun fjármála og efnahagsmála og sömuleiðis á þeim aðferðum, sem almennt eru notaðar í sambandi við skýrslugerðir fyrir ríkisbúskap þjóða.
Þetta frv. er mjög tæknilegs efnis, og eins og gert er grein fyrir í grg. frv., hafa fjallað um það margir aðilar, og það var, áður en það var lagt fram, borið undir allar þær stofnanir, sem hér koma við sögu, og eru þær allar sammála um það, að það sé til mikilla bóta að lögleiða þá skipan þessara mála, sem í frv. felst.
Það má segja, eins og í aths. frv. segir, að í stórum dráttum sé markmið frv. það, að fjárlög og ríkisreikningur verði þannig úr garði gerð, að þau þjóni sem bezt þörfum fjárveitingavalds og fjármálastjórnar, almennrar stjórnsýslu og hagstjórnar, þjóðhagsreikninga og hagsýslugerðar yfirleitt. Jafnframt er svo stefnt að því, að reikningakerfið verði svo einfalt og aðgengilegt sem unnt er miðað við þann tilgang, sem því er settur. Reynt er að ná markmiði frv. með því að kveða skýrar á en gert er í núgildandi l. um það svið, sem fjárlög og ríkisreikningur ná yfir, um form þeirra og sundurliðun og um ýmis reikningsleg hugtök. Jafnframt er stefnt að því, að meiri festa skapist en verið hefur í skráningu á fjárreiðum ríkisins og meira samræmi verði á milli reikninga ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja innbyrðis. Það er gert ráð fyrir því, að þessi breyting leiði það af sér, að mun fullkomnari skýrslugerð verði bæði í sambandi við fjárlagafrv. hverju sinni og sömuleiðis ríkisreikning, og ætti það því frá sjónarmiði Alþ. að vera mjög jákvætt, til þess að alþm. geti betur áttað sig á afkomu allra þeirra fyrirtækja og stofnana, sem á vegum ríkisins eru.
Ég skal ekki fara nánar út í að útskýra frv. Það er, eins og ég sagði, mjög tæknilegs eðlis, en ég vænti þess, að sú grg., sem því fylgir, geri nægilega glögg skil þeim breytingum, sem hér eru gerðar og hvaða skipulag hér er gert ráð fyrir að taka upp. Hv. Nd. féllst einróma á það að lögfesta eða mæla með lögfestingu þessa frv., og vil ég leyfa mér að vænta þess, að þessi hv. d. geti sömuleiðis á það fallizt. Frv. hefur verið alllengi til meðferðar í Nd., og má segja, að það komi hér á seinni skipunum og það mætti því að því finna hér í þessari hv. d., að menn hafi ekki haft lengri tíma til að kynna sér það, en ástæðan til þess að það var svo lengi til meðferðar í Nd., var sú, að menn leituðust þar við að kynna sér til hlítar, hvort þær till., sem hér væri um að ræða, þjónuðu ekki einmitt þeim tilgangi, sem ég lýsti þar í upphafi, að ætlunin væri með frv. Og mun hv. fjhn. Nd. hafa sannfærzt um, að það væri svo. Ég vildi því leyfa mér að vænta þess, að hv. fjhn. þessarar d. gæti fallizt á að mæla með frv. án þess að jafnítarleg athugun þyrfti þá að fara fram á því hér.
Það er að vísu ekki gert ráð fyrir því, að fjárlagafrv. samkv. þessari nýju aðferð verði lagt fram fyrr en árið 1968, en það tekur langan tíma að koma þessu skipulagi á, og hafa nú þegar fyrir árið 1965 verið gerðar ráðstafanir til þess, að lokun reikninga ríkisins geti farið fram með þeim hætti, sem gert er ráð fyrir hér í þessu frv., og sömuleiðis hefur til bráðabirgða ríkisreikninganefnd, sem gert er ráð fyrir í frv., óformlega verið látin taka til starfa, til þess að hægt væri að framkvæma lokun reikninga nú í samræmi við þær reglur, sem leiða af þessu frv.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að eyða um þetta fleiri orðum, en vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.