02.05.1966
Efri deild: 78. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2340 í B-deild Alþingistíðinda. (1525)
99. mál, ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég sé ástæðu til þess að þakka hv. fjhn. fyrir það, að hún skuli hafa afgreitt þetta mál, því að vissulega er það rétt, sem frsm. n. sagði, að það bar hér ekki að með eðlilegum hætti, og í rauninni má segja, að það væri lítt forsvaranlegt að ætlast til þess, að n. afgreiddi frá sér frv. á svo litlum tíma. Því miður hafði þetta mál legið lengi fyrir fjhn. Nd., og það má kannske álykta sem svo, að það hafi verið íhugað vendilega og samróma álit þeirrar d. gefur þá til kynna, að það megi nokkuð á því hyggja, að þar hafi öll atriði málsins verið íhuguð, en auðvitað má segja, að það fullnægi ekki þessari hv. d. Ég lagði á það áherzlu engu að síður að fá frv. afgreitt, þar sem það veltur á miklu að geta framkvæmt þetta með eðlilegum hætti. Það tekur sinn tíma, eins og ég sagði við framsögu málsins, að koma þessum hlutum í lag, og var því mjög mikilsvert, að hægt væri að fá málið afgreitt nú. Þykir mér því sérstök ástæða til þess að þakka hv. n. fyrir þann skilning, sem hún hefur sýnt á þessu.