21.03.1966
Neðri deild: 57. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2358 í B-deild Alþingistíðinda. (1536)

152. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Sverrir Júlíusson:

Herra forseti. Frv. það til l. um Fiskveiðasjóð á þskj. 325, sem hér er til umr., tel ég eins og fram hefur komið við umr., að verði að skoða í ljósi þeirra tillagna, sem ríkisstj. hefur lagt fram um breyt. á stofnlánasjóðum og hagræðingu ýmsa í sambandi við það. Ég vil í fáum orðum segja það, að þótt ég sé ekki 100% ánægður með ýmis atriði í frv., tel ég, að hér sé stórt spor stigið í áttina til aukningar stofnlána og haganlegri skipunar á stofnlánasjóðum sjávarútvegsins. Ég mun því fylgja þessu frv. Ég get sagt eins og hv. 3. þm. Norðurl. e., að ég er í n. þeirri, sem frv. þetta kemur til með að verða afgreitt í, og get þar af leiðandi rætt um ýmis atriði þar. En vegna þess að það hefur borið á góma og hæstv. sjútvmrh. vitnaði í þáltill., sem samþ. var á 84. löggjafarþingi, þar sem ég flutti till. um athugun á hagkvæmari skipan og aukningu stofnlánasjóða sjávarútvegsins, vil ég segja það, að ég tel, að þetta sé fyrsta sporið og ég vil enn fremur segja, vegna þeirra umr., sem hér hafa farið fram, að það hefur bæði verið leitað álits stjórnar Fiskveiðasjóðs og ýmissa samtaka um þessa till. og einmitt hv. 3. þm. Norðurl. e. var í allshn. Sþ. ásamt mér og fleirum á 84. löggjafarþingi og mælti eindregið með samþykkt þeirrar till. Í nál. því, sem skilað var með till., þegar hún var lögð fram til samþykktar, en hún var samþ. samhljóða, sagði m.a.:

„N. hefur athugað till. þessa og fengið um hana umsögn frá þessum aðilum: Framkvæmdabanka Íslands, Seðlabanka Íslands, Fiskimálasjóði, Fiskveiðasjóði Íslands, Landssambandi ísl. útvegsmanna, Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Samlagi skreiðarframleiðenda. Öll sölusamtök útvegsins, Landssamband ísl. útvegsmanna og Fiskimálasjóður mæla einróma með samþykkt till. Seðlabankinn og Framkvæmdabankinn mæla einnig með, að till. verði samþ., en gera báðir nokkrar aths. við stofnlán útvegsins og framkvæmd þeirra. Fiskveiðasjóður „hefur fyrir sitt leyti ekkert á móti því, að umrædd athugun fari fram,“ en bendir á nauðsyn þess, að Fiskveiðasjóður fái aukið fjármagn til umráða. Það er einróma álit n., að æskilegt sé, að sú athugun fari fram, sem till. gerir ráð fyrir, og leggur n. til, að till. verði samþ. óbreytt, eins og hún liggur fyrir á þskj. 103.“

Undir þetta skrifar m.a. einmitt hv. 3. þm. Norðurl. e. Þetta sýnir, að þó að ekki sé hægt að segja, að þetta sé í beinu framhaldi og ekki gengið eins langt og till. sú gerði ráð fyrir, þá er opnaður þarna möguleiki og fari svo, að frv. um Framkvæmdasjóð, sem lagt var fram hér í hv. d. í dag, verði samþ., geri ég ráð fyrir, að einmitt þessi sjóður fái verulegt fjármagn þaðan. En til að skýra örlítið betur, hvað á sínum tíma vakti fyrir mér, vil ég lesa örstuttan kafla úr ræðu þeirri, sem ég flutti, þegar málið var lagt fram. Eftir að ég hafði talið upp sjóðina, sem kæmu til með að vinna saman í einu eða öðru formi, sagði ég m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Ég hef nú að nokkru rakið, hvernig mál þessi standa hjá sjóðum þeim, sem l. samkv. hafa heimild til að veita sjávarútveginum stofnlán. En þótt það liggi ekki fyrir, hve háum fjárhæðum stofnlán sjávarútvegsins nema í öðrum stofnunum, viðskiptabönkum svo og atvinnuleysistryggingasjóði, ýmsum lífeyrissjóðum og víðar, er það fullvíst, að upphæðir þessar eru mjög háar. Eins og segir í grg., vakir það fyrir flm. till. þessarar, að athugun fari fram á eðlilegri aukningu stofnlána til eflingar og breytinga á vinnutilhögun hjá þessum undirstöðuatvinnuvegi landsmanna og jafnframt girða fyrir, að óumsamdar lausaskuldir verði sjávarútveginum fjötur um fót, eins og komið var, þegar l. um heimild Stofnlánadeildar sjávarútvegsins við Landsbanka Íslands til að opna nýja lánaflokka voru sett samkv. l. nr. 48 29. marz 1961. Í öðru lagi vakir það fyrir flm., að athugað verði, hvort það væri ekki hagkvæmara að færa saman starfsemi þessara stofnana að því er lánveitingar til sjávarútvegsins snertir, og vitna ég hér til þess, er í grg. segir um þetta atriði. Ég tel, að ef þessi skipan kemst á, yrði það eðlileg vinnutilhögun, að aðrir sjóðir, er nú veita stofnlán til sjávarútvegsins, haldi því áfram á þann hátt annað tveggja að veita hinni nýju stofnun lán í stærri stíl eða að lánveitingar yrðu framkvæmdar í samráði við væntanlega stjórn. Ég tel, að þetta væri hliðstætt framkvæmd lána til húsnæðismála. En ganga verður út frá því, að sú stjórn eða sá aðili, er kæmi til með að annast það hlutverk, sem hér er hugsað, komi til með að hafa þá yfirsýn, hvað fjárhagsgeta þjóðarinnar leyfir í þessum efnum, og þá einnig, hvar framkvæmdanna er mest þörf hverju sinni, einnig að lánveitingum verði hagað þannig, að umráðaaðilum vinnslustöðvanna, verksmiðjanna, veiðiskipanna eða vegna aukningar og endurbóta á iðjuverum verði gert kleift að ljúka framkvæmdum á eðlilegum tíma til hagsbóta fyrir alla aðila. Fyrirkomulag það, sem hér er hugsað, mundi verða mjög til hagræðis fyrir þá aðila, sem í framkvæmdir þurfa og vilja ráðast af þessu tagi, og jafnframt auka öryggi þeirra, því að þeir, sem á annað borð þurfa að leita eftir lánsfé, en það eru flestir, ef ekki allir, sem þennan atvinnuveg stunda, yrðu að leita eftir því fyrir fram, hvaða lánsmöguleikar væru fyrir hendi og mundu þá haga sér eftir því. Ég tel, að sú skipulagsbreyting, sem ég hef hér talað um, sé hliðstæð breyt. þeirri, sem gerð var á lánasjóðum landbúnaðarins á s.l. ári.“

Þetta er aðeins innsýn inn í, hvað ég hugsaði á þeim tíma, þegar ég bar þessar till. fram og þótt frv. það, sem hér liggur fyrir, sé aðeins einn þáttur í þeirri breytingu, sem núv. ríkisstj. vill koma á stofnlánasjóði og lánakerfi landsmanna, þá tel ég, að þetta sé til bóta. En það byggist vissulega á því, að það komi verulegt aukið fjármagn til þessarar starfsemi, Að mínu viti er það rétt, sem hv. 5. þm. Norðurl. v. sagði áðan, að það er ekki um háar fjárhæðir að ræða frá Stofnlánadeild sjávarútvegsins, sem koma í sjóðinn. En við skulum athuga einnig það, sem má lesa á milli línanna. Við vitum einnig, að bankarnir þrír, sem þar eru taldir, hafa gert samning um verulegt fjármagn, sem eftir því sem ég veit bezt á að standa inni til mjög margra ára, 20 eða jafnvel til 40 ára. Ef ég fer ekki hér með rétt mál, bið ég velvirðingar á því, en þetta er eftir því, sem ég veit bezt.

Það er rétt, að opnaðir eru möguleikar fyrir því að lána fleiri aðilum heldur en Fiskveiðasjóður hefur gert áður, en það vitum við, að Fiskveiðasjóður hefur haft heimild til að lána fiskvinnslustöðvum á undanförnum árum, þó að hann hafi ekki gert það nema mjög óverulega og á síðasta ári, ef ég man rétt, lánaði hann 2 millj. 503 þús. kr. til fiskvinnslustöðva, en það er vegna þess að hann hefur ekki getað svarað eftirspurninni vegna innflutnings á fiskiskipum. Það, sem hér hefur komið fram, að frv. væri vantraust á forstjóra Fiskveiðasjóðs, er sú firra, sem ekki er raunverulega svara verð, því að allir vita, að það er leitun á manni, sem nýtur jafn óskoraðs trausts eins og forstjóri Fiskveiðasjóðsins gerir. Hv. 5. þm. Norðurl. v. var að tala um það hér í kvöld, að þetta væri alger breyt., forstjórinn hefði samþ. allar lánveitingar einn. Við vitum, að hann hefur traust bæði viðskiptavina og stjórnenda sjóðsins og það hefur verið farið eftir hans till., en samkv. núgildandi l. hefur hann orðið að bera það undir stjórn Fiskveiðasjóðs, svo að raunverulega er þar engin grundvallarbreyting frá því, sem hefur verið. Breyt., sem hér er lögð til, er sú, að það verði þrír aðilar, sem tilnefna stjórnina. En endist þeim ágæta manni, sem hefur stjórnað Fiskveiðasjóði um langan aldur, líf og heilsa, þá er ég ekki í nokkrum vafa um það, að hann verður jafn ráðamikill — það verður eins mikið farið eftir hans till., þó að það verði fleiri aðilar frá fleiri stofnunum, sem eiga að veita lánin. En það vil ég að síðustu undirstrika, að ég vona, að þetta sé byrjunin á því, að öll stofnlán til sjávarútvegsins fari gegnum þennan sjóð. Ég man, að þegar ég var að ræða um þessi mál, taldi ég það eðlilega skipan og sú skipan hlýtur að komast á, að lán, sem eru lánuð í þessu augnamiði frá atvinnuleysistryggingasjóði og frá ýmsum öðrum stofnunum, hljóta að fara, þegar stundir líða fram, gegnum þennan sjóð. En þetta er tvíþætt. Annars vegar er það, að lánin nýtist sem bezt, það sé ekki verið að smáhenda út lánsupphæðum og siðan er það látið í framkvæmdir, sem ekki komast í gagnið. Því miður er hægt að benda á ýmis fyrirtæki, sem hafa fengið of lítið fjármagn, lánin hafa farið til ýmissa aðila, er ekki hafa fengið nægilegt fjármagn til þess að komast af stað. En hvað þýðir þetta? Það þýðir, að þetta er baggi fyrir framleiðsluna, það er baggi fyrir þjóðarheildina, það er baggi fyrir þá aðila, sem þarna eiga hlut að máli. Og einnig það, sem fyrir mér vakti á sinum tíma og ég veit, að þið eruð áreiðanlega sammála margir hverjir, að þessi skipan verði til hægðarauka fyrir þá, sem þurfa að leita eftir lánum, þeir þurfi ekki að fara í 6–8–10 eða hver veit hvað marga staði. Ég get sagt ykkur, að í mínu starfi hef ég séð, að stofnlán eru kannske upp í það frá 9 aðilum. Það hefur verið stofnlán til sjávarútvegsfyrirtækja frá Ræktunarsjóði, meira að segja frá Ekknasjóði Íslands og þeir, sem hafa fylgzt með þessum málum, vita, hvaða göngu þeir hafa þurft að ganga, sem hafa þurft að leita eftir lánum. En sé það þannig, að þetta verði undir einum central, — ég er viss um, að það veljast þar sanngjarnir og góðir menn til starfa þá verður það náttúrlega metið þannig, að það verður ekki farið í meiri framkvæmdir á hverjum tíma en nauðsynlegt er fyrir þjóðarbúið, það hefur ákaflega oft orðið okkur mjög dýrt. Eins og ég segi, er ég meðmæltur þessu frv., þó að það geti vel farið svo, að ég mundi vilja breyta einhverju í því, en ég skal ekki segja neitt um það á þessari stundu, því að þegar það kemur til meðferðar í n., hef ég möguleika til að fjalla um málið. En það er þegar upplýst af því, sem ég hef sagt, að framleiðendur hafa stutt þessa hugsun, að stofnlánasjóðir væru færðir saman, en það byggist vissulega að mestu leyti á framkvæmd þeirri um Framkvæmdasjóð Íslands og ýmsa aðra sjóði, sem koma til með að veita fé inn í þetta, að það verði sem mest, því að þessi atvinnuvegur þarf vissulega á mjög miklu fjármagni að halda.