25.04.1966
Neðri deild: 77. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2382 í B-deild Alþingistíðinda. (1549)

152. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Frsm. 2. minni hl. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Tvær meginbreytingar felast í þessu frv. um Fiskveiðasjóð Íslands frá þeim reglum, sem í gildi hafa verið. Nokkrar aðrar breyt. er að vísu að finna í frv., en þær eru minni háttar og skipta hér tiltölulega litlu máli. Þessar tvær aðalbreytingar eru í fyrsta lagi, að gert er ráð fyrir því að sameina í einn lánasjóð Fiskveiðasjóð Íslands, sem starfað hefur nú um langa hríð, og Stofnlánadeild sjávarútvegsins við Seðlabankann. Í öðru lagi er svo sú breyt., að gert er nú ráð fyrir nýrri og allt annarri yfirstjórn á þessum stofnlánasjóði sjávarútvegsins en áður hefur verið. Þetta eru tvær meginbreytingarnar, sem felast í þessu frv. Fyrri breyt., sem stefnir að því að sameina Fiskveiðasjóð og Stofnlánadeild sjávarútvegsins, er ég samþykkur og hef oft lýst því yfir hér áður, að ég teldi að að þessu ætti að stefna, og ég tel það út af fyrir sig rétt. En breyt. á yfirstjórn sjóðsins er ég ósamþykkur. Þar tel ég stefnt í öfuga átt við það, sem stefna hefði átt, og ég tel, að þar sé gert ráð fyrir miklu óheppilegra skipulagi heldur en verið hefur á stjórn Fiskveiðasjóðs til þessa. Eins og hér hefur komið fram í þessum umr., hefur Fiskveiðasjóður Íslands verið aðalstofnlánasjóður sjávarútvegsins nú um langa hríð. Sá sjóður er orðinn á okkar mælikvarða tiltölulega öflugur sjóður, á orðið í skuldlausri eign um 600 millj. kr. og hefur fastar tekjur, sem munu vera nú í kringum 140 millj. kr. á ári eða eitthvað nærri því. En stofnlánadeildin við Seðlabankann er miklu yngri stofnlánasjóður sjávarútvegsins og hefur satt að segja ekki starfað mikið nú um alllangan tíma. Það var kunnugt, að það var stofnað til þessarar d. á nýsköpunarárunum á sínum tíma og þá voru veitt frá henni allmikil lán til togarakaupa og til stofnlána til sjávarútvegsins í ýmsum greinum, en síðan var d. lokað þar skömmu á eftir og veitti engin lán um margra ára skeið, þar til hún var nú aftur opnuð á árinu 1961 og að nokkru leyti á árinu 1962, ekki þó á þann hátt, að d. hefði í rauninni fengið nýjan tekjustofn, heldur á þann hátt, að fluttar voru yfir í d. lánsfjárhæðir, sem sjávarútvegurinn hafði fengið úr viðskiptabönkunum og ákveðið var að breyta þeim lánum þá í föst lán, og síðan var horfið að því ráði að endurlána úr d. það fé, sem kom inn í afborgunum og vöxtum af þessum lánum. En einnig nú í þetta síðara skipti hefur starfsemi d. ekki verið ýkjamikil.

Fiskveiðasjóður hefur starfað þannig lengst af, að hann hefur fyrst og fremst veitt stofnlán til fiskibátakaupa og til þess að byggja nýja fiskibáta. Það hefur meira að segja verið þannig, að í l. sjóðsins hefur verið ákveðið, að fiskibátar innan við 300 rúml. að stærð skyldu sitja fyrir lánum frá sjóðnum og það má segja, að yfirgnæfandi meiri hl. af fjármagni sjóðsins hafi verið varið í þessu skyni. Síðan kom svo það til, að sjóðurinn fór að veita lán til endurnýjunar á vélum í fiskibátum og til ýmiss konar tækjakaupa í sambandi við breytingar bátaflotanum. En þessi sjóður hefur sem sagt fyrst og fremst allan tímann verið fyrir fiskibátaflotann í landinu. Lánveitingar í sambandi við fiskiðnað og í sambandi við ýmiss konar aðra þjónustu við útgerðina í landinu hafa verið heldur litlar, af því að fjármagn sjóðsins hefur ekki leyft það, að hann lánaði neitt sem héti til slíks. En Stofnlánadeildin hefur hins vegar lánað það litla, sem hún hefur lánað að undanförnu, aðallega til fiskvinnslustöðva og ýmissa annarra þjónustufyrirtækja við sjávarútveginn, en ekki hins vegar til skipakaupa.

Það er því alveg augljóst mál, þegar menn virða þessar staðreyndir fyrir sér, að með því að sameina þessa tvo stofnlánasjóði sjávarútvegsins, Fiskveiðasjóð og Stofnlánadeildina við Seðlabankann, er Fiskveiðasjóður alveg greinilega sú leiðandi stofnun, miklum mun stærri og öflugri stofnun, eldri og fastmótaðri stofnun, og það er ofur eðlilegt, að það sé staðið að sameiningu þessara lánasjóða á þeim grundvelli, að það verði Fiskveiðasjóður, sem raunverulega yfirtekur hinn sjóðinn og þá þau verkefni, sem hann hafði með höndum eða hefur haft með höndum nú síðustu árin. Það er að vísu rétt, að það hefði verið mikil þörf á því, um leið og þetta skref var stigið að sameina þessa tvo stofnlánasjóði sjávarútvegsins, að auka talsvert á tekjustofna sjóðsins, ef hann ætti í rauninni að geta staðið undir því, sem til er ætlazt, að taka við því að lána stofnlán út á ýmsar þær greinar, sem sjóðurinn hefur ekki getað sinnt hingað til. En það hefur nú ekki verið gert í sambandi við þessa sameiningu, sem nú er fyrirhuguð. Hinum nýja sjóði á ekki að tryggja neinar nýjar tekjur, en hins vegar er beinlínis ráð fyrir því gert, að einn lítill tekjustofn, sem sjóðurinn hefur haft um margra ára skeið, 2 millj. kr. frá ríkissjóði, sem veittar hafa verið á fjárl. sem fast framlag til Fiskveiðasjóðs um mjög langan tíma, falli niður, þannig að raunverulega er það svo, að það á að minnka tekjustofna þessa sjóðs um leið og verið er að gefa mönnum vonir um það, að nú komi þarna til miklu stærri og öflugri sjóður heldur en sá, sem fyrir var. Það er því að mínum dómi staðið þannig að þessari sameiningu,að mjög ófullnægjandi má í rauninni telja. En eigi að síður get ég fyrir mitt leyti fallizt á það ákvæði þessa frv., sem miðar að því að sameina þessa tvo stofnlánasjóði. Það er ekki vegna þess, það skal ég taka fram eins og hér hefur nú komið fram í umr. hjá öðrum, að ég búist við því, að því fjármagni, sem þessir sjóðir hafa ráðið yfir að undanförnu, verði miklu betur ráðstafað, það komi að miklu meira gagni en það hefur komið nú að undanförnu. Ég á ekki von á neinu slíku. Ég held, að lánveitingar Fiskveiðasjóðs hafi verið með þeim hætti fram til þessa, að þær verði að vera í mjög svipuðu formi nú eftirleiðis á næstunni, og það megi ekki draga að neinu leyti úr því. sem Fiskveiðasjóður hefur gert. Ég held líka, að þær lánveitingar, sem átt hafa sér stað nú síðustu árin úr Stofnlánadeild sjávarútvegsins, hafi verið með þeim hætti, að það verði að sinna þeim á svipaðan hátt og nú hefur verið. Ég á því ekki von á því, að hinn sameinaði sjóður fái nýtt þetta takmarkaða fjármagn öllu betur en verið hefur. En ég tel aðeins eðlilegt, að þessi meginstofnlánasjóður sjávarútvegsins sé einn og tel, að Stofnlánadeildin í horninu þarna hjá Seðlabankanum sé í mesta máta óeðlileg. Seðlabankinn á ekki að hafa með neina slíka útlánastarfsemi að gera eins og viðskipti til einstaklinga eða ákveðinna fyrirtækja, og því tel ég eðlilegt að sameina þessa sjóði einmitt undir hatti Fiskveiðasjóðs.

Ég kem þá að hinni aðalbreytingunni, sem er að finna í þessu frv., en það er breyt. á yfirstjórn sjóðsins, sem ég hygg nú, að hafi verið aðalatriði hjá þeim mönnum, sem staðið hafa að því að semja þetta frv. En með þeirri breyt. er gengið út frá því, að stjórnendur hins nýja stofnlánasjóðs verði tveir fulltrúar tilnefndir af Landsbankanum, tveir tilnefndir af Útvegsbankanum og einn tilnefndur af Seðlabankanum. Það er því ekkert um að villast, að það koma nú inn alveg nýir aðilar, sem eiga að taka að sér yfirstjórn sjóðsins. Fulltrúarnir frá Landsbankanum og Seðlabankanum koma til með að skipa meiri hl. í hinni nýju sjóðsstjórn, en þessir aðilar hafa ekki átt neina fulltrúa í stjórn Fiskveiðasjóðs til þessa, en hins vegar hafa bankastjórar Útvegsbankans verið stjórn Fiskveiðasjóðs fram til þessa.

Nú skal ég taka það fram, að ég hef lengi verið á þeirri skoðun, að það væri óeðlilegt, að bankastjórar Útvegsbankans skipuðu stjórn Fiskveiðasjóðs. Ég hef einmitt talið, að það væri eðlilegt að skilja Fiskveiðasjóð að fullu og öllu frá Útvegsbankanum og skipa honum sjálfstæða og óháða stjórn. Sjóðurinn er orðinn svo stór, að það er eðlilegt. En hitt er skylt að taka fram, að þó að bankastjórar Útvegshankans hafi verið stjórnendur Fiskveiðasjóðs nú um langa hríð, tel ég ekki, að það hafi komið að neinni sök, vegna þess fyrst og fremst, að sami maður hefur nú um langan tíma verið forstöðumaður Fiskveiðasjóðs, sem raunverulega hefur haft með stjórn sjóðsins að gera. Hann hefur í rauninni verið fyrir þessum sjóði eins og bankastjóri fyrir banka. Til hans hefur verið leitað um öll viðskipti við sjóðinn og hann hefur fyrst og fremst að mínum dómi mótað starfsemi sjóðsins, þó að honum hafi eflaust tekizt að hafa gott samstarf þar við bankastjóra Útvegsbankans. En nú er sem sagt gert ráð fyrir því, að stjórn hins nýja Fiskveiðasjóðs eigi að verða í höndum þessara þriggja banka, Útvegsbankans, Landsbankans og Seðlabankans. Ég hef lýst því hér áður yfir í umr. um þetta mál, að ég tel það mjög óheppilegt, að bankastjórar viðskiptabankanna eigi að taka að sér raunverulega stjórn eða raunverulegt áhrifavald yfir rekstri stofnlánasjóðs. Það er verulega mikill munur á þessari starfsemi, viðskiptabankastarfseminni annars vegar og rekstri stofnlánasjóðs hins vegar og þó tel ég öllu fráleitast, að fulltrúi frá Seðlabankanum sé að skipta sér af slíkum störfum eins og fram fara með eðlilegum hætti í stjórn stofnlánasjóðs. En ég veit það, að þeir menn eru eflaust til, sem segja: Ja, ætli þetta saki nú nokkuð, þó að það komi fulltrúar frá Landsbankanum og Seðlabankanum inn í stjórn ásamt fulltrúum frá Útvegsbankanum, fyrst þetta hefur nú blessazt fram til þess, að bankastjórar Útvegsbankans væru einir? En mér þykir eiginlega óeðlilegt, að þannig sé spurt af þeim, sem lesa þetta frv. vel í gegn, eins og það liggur fyrir, því að þeim, sem það gera, getur ekki blandazt neinn hugur um það, að uppbygging frv. er öll á þá lund, að þeir, sem ríkjum ráða í Landsbankanum og Seðlabankanum, vilja komast til áhrifa í þessum sjóði, þeir vilja beinlínis, að Fiskveiðasjóður sé eins og nokkurs konar útibú frá bönkunum og eigi að vera þeim háður og lúta þeirra reglum í einu og öllu. Þetta er mjög áberandi í sambandi við orðalag á mörgum greinum. Ég nefni t.d. það, að á einum stað í frv., — meiri hl. n. hefur að vísu lagt það nú til að breyta því, — var tekið fram, að Fiskveiðasjóður gæti gert kröfu um það til síns viðskiptamanns, að hann legði inn reikninga sína til sjóðsins í sambandi við lánveitingar úr sjóðnum. En síðan var tekið fram í gr.: Ef þessi viðskiptamaður hefur ekki lagt slíka reikninga fram í viðskiptabönkunum. M.ö.o., það var gengið út frá því, að Fiskveiðasjóður væri slíkt aukaatriði í sambandi við þessar lánveitingar, að ef viðskiptamaðurinn hafði gert grein fyrir sínum fjárhagsástæðum til Landsbankans eða til Útvegsbankans, þurfti hann ekkert frekar að tala við Fiskveiðasjóð. (Gripið fram í.) Já, jafnvel það. Og þannig er þetta í ýmsum fleiri greinum. Það er auðvitað gert ráð fyrir því, að Fiskveiðasjóður hafi sína matsmenn til þess að meta eignir þeirra aðila, sem sækja um lán úr sjóðnum. En hvernig eiga þessir matsmenn að vera valdir, sem eiga að meta þær eignir, sem eiga að veðsetjast Fiskveiðasjóði? Það er tekið fram, að matsmennirnir eigi að vera tilnefndir einn af Landsbankanum, einn af Útvegsbankanum og einn af Seðlabankanum. Fiskveiðasjóður á ekki að velja þá matsmenn, sem eiga að meta þær eignir, sem eiga að veðsetjast Fiskveiðasjóði. Nei, það er vitanlega nóg, ef það er Seðlahankinn og Landsbankinn og Útvegsbankinn, sem hafa tilnefnt menn til að nefna þetta, þá varðar Fiskveiðasjóð ekki um meir.

Þannig er í rauninni uppbygging frv. öll, að hún ber það greinilega með sér, að það er ætlunin að sveigja starfsemi stofnlánasjóðs undir þessa þrjá banka, og af þessari ástæðu er svo komin inn í frv. 14. gr., þar sem það er tekið fram, að þeir, sem sækja um lán úr Fiskveiðasjóði, geti snúið sér með lánbeiðnir sínar til hankanna, til Útvegsbankans eða til Landsbankans eða Seðlabankans, en þurfa ekkert frekar að tala við Fiskveiðasjóð. Að vísu var það svo gert til samkomulags vegna ágreinings á milli bankanna, að það er tekið fram í þessari gr., að einnig megi þeir nú snúa sér beint til Fiskveiðasjóðs, ef þeir kjósi það frekar. En a.m.k. einn af bönkunum, Landsbankinn, hafði lagt ofurkapp á það, að skýrt væri fram tekið, að lánbeiðendur sneru sér beint til sinna viðskiptabanka með lánbeiðnir úr þessum sjóði. Ég held því, að það megi allir sjá það, að ætlunin er hjá viðskiptabönkunum og alveg sérstaklega hjá Landsbankanum í þessu tilfelli og Seðlabankanum, að þeir vilja taka að sér raunverulegan rekstur á Fiskveiðasjóði. Ég vil hins vegar skilja það svo, að það hafi verið greinileg skoðun meiri hl. sjútvn. þessarar hv. d., sem um málið fjallaði, að rétt væri að hugsa sér Fiskveiðasjóð sem sjálfstæða stofnun, sem ætti í rauninni að hafa sína sjálfstæðu og óháðu stjórn og marka hér skýrt sína útlánastarfsemi og sínar starfsreglur og sjóðurinn ætti sem minnst að blanda sinni starfsemi saman við rekstur bankanna. En eigi að síður fór það nú svo, að meiri hl. sjútvn. vildi ekki breyta frv. svo mikið sem ég legg til í mínum till., þar sem að því er stefnt að gera Fiskveiðasjóð sem sjálfstæðastan, þannig að það séu tekin af öll tvímæli um það, að þarna er um sjáifstæða stofnun að ræða, sem á ekki að hafa meiri bein skipti við viðskiptabankana en eðlilegt og samrýmanlegt er í sambandi við gott samstarf lánastofnana á milli.

Ég efast ekkert um það, að þeir sjávarútvegsmenn, sem átt hafa sín viðskipti undanfarandi ár bæði við Fiskveiðasjóð með sín stofnlán og sín viðskiptalán í viðskiptabönkunum, muni yfirleitt kvíða fyrir því ástandi að þurfa að leggja mál sín eða ganga með þau í gegnum viðskiptabankana í sambandi við sín eðlilegu viðskipti við stofnlánasjóð. Það þekkja líka allir það, að viðskiptabankarnir eru því miður ekki allt of samrýmdir í sínum störfum. Þeir koma sér ekki allt of vel saman um það, hvernig eigi að leysa hin einstöku mál, sem kunna að falla undir þá báða. Það munu því fæstir útvegsmenn óska eftir því að þurfa að hrekjast á milli þeirra með mál sín, þau mál, sem menn vilja fá afgreidd með eðlilegum hætti eftir tiltölulega föstum reglum eins og stofnlánasjóður á að starfa eftir.

Ég skal svo víkja með nokkrum orðum að þeim brtt., sem ég flyt hér við frv. Fyrst er hér um að ræða 6 brtt. á þskj. 541.

1. brtt. á því þskj. er við 1. gr. frv. Með þeirri till. tek ég undir það sjónarmið, sem kom fram frá forstöðumanni Fiskveiðasjóðs um það að slá því föstu, að sá fiskveiðasjóður, sem hér er verið að samþykkja lög fyrir, er í rauninni sá sami fiskveiðasjóður, aðeins í framhaldi, sem stofnaður var fyrir fullum 60 árum síðan. Ég tek undir þá skoðun hjá forstöðumanni Fiskveiðasjóðs, ég kann ekki við það, þó að um þessa sameiningu sé að ræða á hinni tiltölulega veiku stofnlánadeild, að við þurfum að leggja niður okkar 60 ára gamla Fiskveiðasjóð, sem er býsna mótuð stofnun, og mynda hér alveg nýjan sjóð. Ég kann miklu betur við það að slá því föstu, að þessi fiskveiðasjóður, sem hér er verið að setja löggjöf um, er í beinu framhaldi af hinum sjóðnum, en þá mundi sem sé l. gr. orðast svo eða upphaf hennar: Fiskveiðasjóður Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins, stofnaður með l. nr. 52 10. nóv. 1905. Það má segja, að þetta sé ekki stórt atriði, en ég fyrir mitt leyti tek undir þetta sjónarmið, sem þarna kom fram hjá forstöðumanni sjóðsins og þykir þetta réttara.

2. brtt. er við 4. gr. frv., en þar legg ég til, að tekið verði upp fast framlag á fjárl., 2 millj. kr. á ári, eins og verið hefur til Fiskveiðasjóðs um margra ára skeið.

3. brtt. er um það að undirstrika nokkuð frekar en er í gr. sjálfstæði Fiskveiðasjóðs og mikilvægi hans forstjóra, en þar er sem sagt tekið fram, að málefni sjóðsins skuli vera í höndum forstjóra sjóðsins og stjórnar Útvegsbankans, vegna þess að undir hana kæmu til með að falla nokkuð atriði í rekstri sjóðsins, sem eru meira almenns eðlis. Sama er að segja um 4. brtt. á þessu þskj. Þar er ég að undirstrika alveg hið sama og forstjóri Fiskveiðasjóðs hefur lagt til. Þar er sem sagt tekið fram, að forstjóri sjóðsins skal sjá um að ganga frá reikningum sjóðsins fyrir tiltekið tímabil, en ekki segja, að Útvegsbankinn skuli ganga frá reikningum sjóðsins.

5. brtt. mín er um það, að 14. gr. frv. falli niður. Á þetta bendir einnig forstöðumaður Fiskveiðasjóðs, Elías Halldórsson. Hann leggur það líka til, að 14. gr. falli niður, en þar er að finna þetta krull, þar sem það er lagt til, að þeir, sem sækja um lán úr sjóðnum, skuli snúa sér með sína lánbeiðni til viðskiptabankanna eða til sjóðsins. þessi gr. á að mínum dómi að falla niður, því að þeir, sem sækja um lán úr sjóðnum, snúa sér með eðlilegum hætti til sjóðsins sjálfs og einskis annars.

Þá er 6. till. mín á þessu þskj. við bráðabirgðaákvæði, en þar er í rauninni um sams konar atriði að ræða eins og önnur, sem ég hef minnzt hér á, að í bráðabirgðaákvæði frv. kemur það líka skýrt fram, hver virðist vera megintilgangurinn með frv., en það er sem sagt að slá því föstu, að það séu bankarnir þrír, sem séu nú að yfirtaka Fiskveiðasjóð með einu og öllu, sem hann á. En orðalag bráðabirgðaákvæðisins er svona í frv. orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Seðlabankinn, Landsbankinn og Útvegsbankinn skulu nefna til sinn manninn hver til þess að taka við verðmætum, skuldum og skuldbindingum Fiskveiðasjóðs annars vegar og Stofnlánadeildar sjávarútvegsins hins vegar úr hendi núverandi stjórnenda þessara sjóða.“

Það er sem sagt verið að slá því föstu, að fulltrúar bankanna, viðskiptabankanna beggja, og fulltrúi Seðlabankans, þeir skulu koma og láta leggja sér út þetta, sem fyrir er. Ég hins vegar legg til vegna þeirra skipulagsbreytinga, sem þarna eru fyrirhugaðar, að bráðabirgðaákvæðið hljóði þannig:

„Sjútvmrh. skipar 3 menn í n. til þess að taka við verðmætum, skuldum og skuldbindingum o.s.frv.“ Vitanlega er það eðlilegra, að sjútvmrh. tilnefni þá menn, sem eiga að taka við þeim eignum frá hvorum aðilanum um sig um það leyti, sem á að sameina þetta í einum sjóði. En ég vil hins vegar, að það hverfi úr frv., sem ber einkenni þess, að bankarnir eigi nú að yfirtaka þennan fiskveiðasjóð, því ég er á móti því.

Þá flyt ég á þskj. 560 3 brtt., sem eru stílaðar við brtt. meiri hl. sjútvn. á þskj. 539. 1. brtt. mín er um stjórn Fiskveiðasjóðs. Ég legg til, að stjórn hins nýja Fiskveiðasjóðs verði skipuð 7 mönnum og fimm þeirra verði kosnir af Alþ., en tveir verði tilnefndir, annar af L.Í.Ú. og hinn af A.S.Í. Ég tel alveg sjálfsagt, að landssamtök útgerðarmanna og sjómanna eigi fulltrúa í stjórn þessa sjóðs, þar sem því verður ekki neitað, að tekjur sjóðsins eru lagðar fram í aðalatriðum að jöfnum hluta af útgerðarmönnum og sjómönnum, þar sem útflutningsgjaldið er í rauninni tekið af óskiptum afla.

Ég vil taka það fram í þessu sambandi um till. þá, sem fulltrúar Framsfl. flytja í sjútvn. um skipun stjórnarinnar, að segja má að vísu, að hún sé skárri, en þar er ekki um stóran mun að ræða frá því, sem er að finna hjá meiri hl. eða í frv., því að þar er áfram gengið út frá því, að bankarnir eigi beina fulltrúa inni í stjórninni, sem ég er fyrir mitt leyti algerlega á móti. Hins vegar er hinu sjónarmiðinu mætt í þeirri till., að fulltrúar frá samtökum útgerðarmanna og sjómanna verði í stjórninni og segja má því, að það sé nokkur stigsmunur, en ekki er nú um hreinar línur í þessu að ræða að mínum dómi.

Þá er önnur brtt. mín á þessu þskj. um það, að lán úr sjóðnum út á skip megi vera til 20 ára, en það er sem sagt í sömu átt eins og fulltrúar Framsfl. leggja til í sínum brtt.

3. till. mín er varðandi 15. gr. frv., en þar legg ég til, að sú gr. verði umorðuð og því verði slegið föstu, að vextir af lánum Fiskveiðasjóðs út á skip skuli vera 4%, en af lánum út á fasteignir 51/2%. Vexti af öðrum lánum ákveður stjórn sjóðsins. Hún ákveður og gjalddaga lána og önnur lánsskilyrði. Dráttarvextir skulu vera 1/2% fyrir hvern mánuð, sem greiðsla dregst. Ég legg sem sagt til með þessari till., að teknir verði upp á ný sömu vextir og dráttarvextir, sem lengst af hafa verið á lánum Fiskveiðasjóðs. En þessir vextir og einnig dráttarvextirnir voru hækkaðir í sambandi við hina almennu vaxtahækkun, sem ákveðin var af Seðlabankanum á árinu 1960. En ég tel, að það sé eðlilegt, að vextir á lánum Fiskveiðasjóðs séu mun lægri en á flestum öðrum lánum, vegna þess hvernig stofnfé sjóðsins er tilkomið. Þar sem útvegsmenn og sjómenn leggja það að mestu leyti fram, er engin ástæða til þess að þau lán beri jafnþunga vexti eins og ýmis önnur lán, sem í gangi eru í landinu.

Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekar, en vil aðeins segja þetta að endingu: Ég vil, að það komi hér skýrt fram, ég er samþykkur þeirri breytingu að sameina þessa tvo stofnlánasjóði og get verið með frv. að því leyti til. Hins vegar er ég algerlega mótfallinn þeirri stefnu, sem kemur fram í frv. varðandi yfirstjórn sjóðsins. Ég álít hins vegar, að það hafi lítið að segja að leggja til að vísa málinu frá og láta fara fram endurskoðun á því. Ég vil þó ekki vera á móti því, en hér er um hreint stefnuuppgjör að ræða. Málið er ósköp einfalt. Vilja menn, að stjórn Fiskveiðasjóðs sé óháð stjórn, sjálfstæð stjórn, ekki skipuð af viðskiptabönkunum eða bönkunum í landinu, eða vilja menn fallast á þá kröfu Seðlabankans og Landsbankans, að það séu bankarnir, sem eigi raunverulega að stjórna þessum sjóði í einu og öllu. Málið er því ofureinfalt. Það er í rauninni bara að velja á milli. Mér hefði því fundizt full ástæða til þess, að það hefði verið hægt að fá fram þá afgreiðstu á þessu frv. hér á þessu þingi, sem hefði mátt heita viðunandi fyrir sjávarútvegsmenn, þó að sjálfsögðu væri margt enn eftir, sem hefði þurft að taka til nánari athugunar síðar, eins og t.d., hvernig ætti að útvega þessum sjóði auknar tekjur til sinnar starfsemi. Það skil ég miklu fremur, að getur verið ágreiningur um, hvernig eigi að afla slíkra tekjustofna, en um þetta hefði ég eiginlega ætlazt til, að ekki þyrfti að verða hér mikill ágreiningur, en því miður virðist það nú vera svo, að um það geti ekki orðið samstaða hér, hvernig á að afgreiða þetta skipulagsmál sjóðsins.

Ég hef þá gert grein hér fyrir mínum till. og minni afstöðu til málsins.