07.12.1965
Neðri deild: 26. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í B-deild Alþingistíðinda. (161)
68. mál, almannatryggingar
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, er komið frá hv. Ed. eftir mjög skjóta og góða afgreiðslu þar, þar sem d. var einróma samþykk að mæla með samþykkt frv. óbreytts, eins og það var lagt fyrir.
Frv. þetta ber að skoða í nánu samhengi við næsta lið á dagskránni, þ.e.a.s. að hafa hliðsjón af frv. um ríkisframfærslu sjúkra manna og örkumla, en bæði frv. eru niðurstaða af endurskoðun, sem á sínum tíma var samþ. á Alþ. að láta fram fara á þessum lögum.
Meginefni þessa frv. er það, að sjúkrasamlögum verði skylt að greiða verulegan hluta af óhjákvæmilegum ferðakostnaði lækna, og er þá höfð hliðsjón af því, að læknavitjanasjóðir, sem stofnaðir voru með l. frá 1942, hafa reynzt vera þess illa færir að gegna því hlutverki, sem þeim var ætlað, vegna fjárskorts.
Í öðru lagi er það efni frv., að Tryggingastofnun ríkisins annist styrkveitingar til örkumla manna eða fatlaðra, sem þarfnast gervilima, umbúða eða annarra þess háttar tækja, svo og til lamaðra, sem þarfnast æfingameðferðar með viðeigandi nudd- og rafmagnsaðgerðum utan sjúkrahúsa.
Ég tel ekki þörf á því, svo nákvæm grg. sem er með frv. þessu, að hafa um þetta lengri framsöguræðu, en óska þess eindregið, að n. hraði svo afgreiðslu málsins, að frv. megi hljóta endanlega afgreiðslu fyrir jólafrí, og legg til. herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og heilbr.- og félmn.